Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.1982, Side 16
16
DV. ÞRIÐJUDAGUR 31. ÁGUST1982.
Spurningin
Drekkurðu mjólkurlaust
kaffi?
Pálína Guðlaiigsdáttir húsmóöir: Nei,
þaö geri ég ekki. Finnst svart kaffi
mun verra. En ég sleppi aö vísu sykr-
inum.
Bogi Eggertsson, hestamaöur með
meiru: Hef hvorki mjólk né sykur út í
kaffið. Finnst þaö best ef þaö er sterkt.
Nei, ég drekk ekki mikið kaffi. Fer
svona langt meö brúsann yfir daginn.
Þuriður Yngvadóttlr, vinnur á Reykj-
um í Mosfellssveit: Já, það geri ég.
Finnst þaö tvímælalaust betra þannig.
En ég sleppi sykrinum. Annars drekk
ég ekki mikiö kaffi.
Ólafía Aðalsteinsdóttir sjúkraliöið: Já,
þaö geri ég. Þaö er miklu betra með
mjólk út í. Eg veit ekki af hverju en ég
hef alltaf drukkiö kaffi með mjólk út í.
Hreinlega ekki vanist svörtu. Reyndar
drekk ég ekki mikiö af kaffi, finnst þaö
ekki nógu svalandi.
Helga Heigadóttir húsmóöir: Já, oft-
ast. En get vel verið án þess. Drekk
minna kaffi en áður. Drekk kaffi helst
ekki á kvöldin, því þá á ég erfiðara
meðsvefn.
Elías Jónsson lögregluvarðstjóri: Já,
það geri ég. Gamall vani. Drekk helst
ekki kaffi mjólkurlaust.
Lesendur
Lesendur
Lesendur
„UNDARLEGUR
ERIU, VILMUNDUR”
— segir Baldvin Þ. Kristjánsson um „hrottafengna og gífuryrta árásargrein
Vilmundar á Friðjón”
Baldvin Þ. Kristjánsson skrifar:
Þegar ég fyrir nokkrum dögum
var aö koma vestan af Snæfellsnesi
barst mér á heimleiðinni fregn af því
aö Vilmundur Gylfason hefði ráðist
harkalega meö offorsi miklu aö Friö-
jóni Guðröðarsyni, sýslumanni á
Höfn í Hornafirði. Þetta þótti mér þá
þegar leitt, og þó verra síðar, því til
beggja manna hef ég taugar, þótt af
ólíkum toga séu.
Á sinum tíma, þegar Vilmundur óö
hvaö f jörugastan berserksgang gegn
„kerfiskörlum” og „möppudýrum”
- og síður en svo aö ástæðulausu-
var mér tíöum hugsaö til þess, aö ég
vissiþó a.m.k. af einum sem sannar-
lega félli ekki aö óhrjálegri lýsingu
Vilmundar á embættismannakerfi
dómsmálanna: Friðjóni Guðrööar-
syni, sýslumanni þeirra Austur-
Skaftfellinga. Eg hafði um alllangan
tíma þekkt þann mann vel, og ég
vissi aö fullkomnari andstæöa við
andskota Vilmundar yröi vart fund-
in.
Eftir aö hafa svo sjálfur lesið
hrottafengna og gifuryrta árásar-
grein Vilmundar á Friðjón, fannst
mér þessi uppákoma hatrömm og
skil hvorki upp né niður í þankagangi
og ósvífni þingmannsins og dóms-
málaráöherrans fyrrverandi. Orð
hans um framkomu sýslumanns í til-
teknu máli ná ekki nokkurri átt og
eru upp- og útblástur einn, greinar-
höfundi til vansæmdar. Enda stríöa
þau gegn þeim framkomnum opinber-
um viöurkenningarorðum til Friö-
jóns af einmitt sama umrædda til-
efni, samanber „þakkir og stuðning”
viö hann frá stjórn Blaðamannafé-
lags Islands, frá 26. þm. Fjölmiöla-
viðtölin í Skaftafeili vöktu athygli al-
mennings vegna blátt áfram, hrein-
skilinna og manneskjulegra tilsvara
sýslumanns. Hér kvaö við nýjan tón.
Þeir sem þekkja Friðjón Guöröö-
arson vita best hversu óraf jarri öll-
um sannleika dylgjur og getgátur
Vilmundar í garð hans eru. Friöjón
myndi aldrei vilja gera öðrum rangt
til eöa særa, hvorki innlenda menn
né erlenda. Sá maður hefur hjartaö á
réttum staö og næga góðvild, dóm-
greind og vitsmuni til þess að hlýða
rödd þess. Friöjón er ósvikinn mann-
vinur.
Þaö er því mála sannast, hvemig
sem á er litið, ef Vilmundi skánar
ekki æðiskastið, að háttvirtir alþing-
ismenn hafi öömm og þarfari hnöpp-
um að hneppa, er þing kemur loksins
saman, en að athuga möguleika á þvi
að losa þjóðina viö stjómarformann
Sýslumannafélags Islands. Og er Vil-
mundur minn þess umkominn aö kasta
fyrstasteininum?
Verðbótahækkunin skert
um rúmlega þriðjung
Barskrifar:
Aö undanförnu hefur gætt nokkurs
misskilnings í umfjöllun fjölmiðla um
væntanlega skeröingu veröbóta á laun.
Til aö mynda hefur verið rætt um 2,9%
skerðingu veröbóta þann 1. september
og um 10% skerðingu þann 1.
desember nk. Þetta er ekki rétt og
skalþaðrökstutt nánar.
Frá 1. maí sl. til 1. ágúst sl.
hækkaöi framfærsluvísitalan um
11,8%. Verðbætur á laun þann 1.
september ættu því að hækka um sömu
hundraðstölu, ef ekki kæmu til á-
kveðnir frádráttarliðir, svo sem sýnt
er á eftirfarandi töflu:
Frádráttarliöir veröbótahækkunar
á laun þann 1/91982:
Vegna hækkana búvöru 0,60%
Vegna verðhækkunar
áfengis og tóbaks 1/6 0,54%
Vegna viöskiptakjararýmunar
svk. Olafslögum 0,25%
Sérstakurfrádráttur 2,90%
Frádráttur alls 4,29%
Hækkun verðbóta á laun hinn 1.
september samsvarar því hækkun
framfærsluvísitölu (11,8%) aö frá-
dregnum ofangreindum frádráttar-
liðum (4,29%), eða 7,51%.
Hinn sérstaki frádráttur (2,9%) hér
að ofan er tilkominn vegna bráða-
birgðalaga ríkisstjómarinnar frá því
fyrr í sumar í samræmi við kjara-
samninga ASI og VSI frá sama tíma.
Hér er um frádrátt aö ræöa en ekki
hundraöstölu skerðingar. Miöað við
UPPLYSINGAR UM
HEIMA-BINGÓK)
Haraldur Haraldsson, framkvæmdar-
stjóri Heimabingósins, skrifar:
Þátttakendur i Heimabingóinu hafa
velt vöngum yfir því af hverju ekki eru
jafnmargar tölur dregnar út í hverri
viku í bingóinu. Sumir hafa jafnvel
haldið aö ef fáar töiur eru dregnar út
komi fáir vinningar. Hvaö snertir
fyrstu umferðina í heimabingólinu
skiptust vinningar á seldar bingó-
blokkir þannig:
Vikuna 21/6—26/6
Vikuna 28/6 —j3/7
Vikuna 5/7—10/7
Yikuna 12/7—17/7
Samtals
Það hefur borið á því að þátt-
takendur hafi merkt við útdregnar
tölur á alla fjóra seölana í blokkinni.
Þannig að þegar fyrsta vikan er búin
hafa allir seðlarnir veriö útkrossaðir.
Þetta er að sjálfsögöu ekki rétt. Á jaðri
hvers bingóseðils er uppgefinn
ákveöinn gildistími. Þær tölur sem
dregnar eru út á þessu tímabili skulu
aðeins færast inn á þann seðil sem
hefurþennan ákveðna gildistíma.
Utdregnar tölur 16 vinningar 34,48%
- 17 - 17,24%
- 16 — 13,8%
- ________151 - 34,48%
65 ’ 100%
' Samkvæmt þessum upplýsingum er
ekki að sjá, þó aðeins 15 tölur séu
dregnar út í síðustu vikunni, aö neitt
færri vinningar komi í þeirri viku.
I þeirri umferð sem nú stendur yfir
hafa verið dregnar út 65 tölur sern
skiptast þannig:
Vikuna 9/8 — 14/8 16tölur
Vikuna 16/8 — 21/8 14tölur
Vikuna 23/8 — 28/8 18 tölur
Vikuna 30/8 - 4/9 17tölur
Samtals 65 tölur
Ef ekki hefur fengist bingó á
umræddan seöil skal hann rifinn frá
blokkinni. Þiö byrjiö alltaf á nýjum
seðli á mánudegi og endið á laugar-
degi.
Að lokum skal það tekiö fram að
vanti einhvem nánari upplýsingar
getur viðkomandi hringt fyrir hádegi í
síma 28010.
heildartölu vísitöluhækkunar (113%)
jafngildir 2,9% frádráttur frá henni
um24,6%skerðingu.
Alls munu frádráttarliðir verðbóta-
hækkunarinnar þann 1. sept. þvi nema
um 36,4% skeröingu verðbóta. Þetta
þýðir að veröbótahækkunin um næstu
mánaöamót er skert um rúmlega
þriöjung.
Krafa fólksins
aö stjórnendur
gangi á undan
meðgóðu fordæmi
Sólon Lárusson skrifar:
Hvernig hugsa þessir ráðherrar,
hvemig ætlast þeir til að hinn
almenni borgari taki þá alvarlega?
Þessir menn hika ekki við að taka til
sín á fjórða þúsund launahækkun á
mánuöi á sama tíma og laun verka-
mannsins hækka um þrjú hundruð
krónur.
Eg heföi haldið að það kostaði þaö
sama að framfleyta verkamanna-
fjölskyldu og ráðherrafjölskyldu. A
tímum sem þessum kemur ekki
annað til greina en að allir fái sömu
krónutölu. Kaupskerðingar-
aðferðirnar era ekki til annars en að
hleypa illu blóði í fólk.
Það kemur ekki til greina að
þessir menn stjómi lengur, jafnvel
þó ekki taki betra við. Það hlýtur að
vera krafa fólksins að stjórnendur
gangi á undan með góðu fordæmi.