Dagblaðið Vísir - DV - 20.09.1982, Page 15
DV. MÁNUDAGUR 20. SEPTEMBER1982.
15
Menning Menning Menning
Thorvaldsen
1770-1844
Þá hugleiddu þessir sömu menn lista-
verk frá 16., 17. og 18. öld, en nú í nýju
ljósi.
Andsvar við rókókó
I sögulegri einföldun er nýklassík
oft túlkuö sem andsvar gegn barokk-
og rókókólist og þá gjaman visaö til
rita safnfræðingsins og fagurfræðings-
ins J. J. Winckelmann.
Barokklistin, sem ríkt haföi áöur, er
í eðli sínu ótvíhverf og „malerísk” þar
sem formin ganga hvert inn á annað í
dýnamískri hreyfingu. I þessum
verkum er línan jafnan hverful og leik-
andi og virkar síkvik undir auga áhorf-
andans. Barokklistin var því ágætt
tjáningarform til aö lýsa tvíræðu
inntaki þar sem fjallaö var um dular-
fullt ástand, eins og t.d. samruna lífs
og dauða.
En nýklassíska hugmyndafræöin var
mun hlutkenndari (konkret) og fagur-
fræöin því oft einfaldari þar sem lista-
verkin einkenndust af jafnri og sterkri
línuáherslu. Obrotin lína umlék því oft
vel aðgreind formin. Þessi áhugi á
hinni hreinu línu átti eölilega eftir aö
endurvekja gamalt tjáningarform sem
mikið var notaö í grísk-rómverskri
list.þ.e. lágmyndina.
I hinum stórfenglegu barokkhögg-
myndum lögöu listamennirnir mikiö
upp úr því aö láta listaverkið vera í
nánu samspili við umhverfið, þaö rými
sem umlék verkið. Áhorfandinn átti
ekki aö hafa eitt sjónarhom heldur átti
hann aö hafa möguleika á því að ganga
umhverfis verkiö og njóta þess frá
mörgum hliöum. Hvert sjónarhom
hafði nánast sitt inntak. Aftur á móti er
þaö greinilegt aö nýklassíska listin,
sem grundvallaðist á kyrrlátum,
sléttum og oft gljáandi formum, lagði
áherslu á aöeins eitt sjónarhorn. 1
þessum myndum var tekin af öll tví-
ræöni formsins. Stytturnar voru yfir-
leitt einlitar, ljósar og lítið var gert til
aö fela efni formsins og ala á sjón-
blekkingu.
Thorvaldsen
Enginn vafi er á aö nýklassíski
myndhöggvarinn Thorvaldsen var á
sínum tíma talinn stærsti listamaður
Norður-Evrópu og naut hann reyndar
alþjóölegrar frægöar.
Thorvaldsen var fyrst viö nám í
Fagurlistaskólanum í Kaupmanna-
höfn og hefur hann eflaust kynnst þar
myndum listamannsins Sergel (+
1814) sem tileinkaði sér í fyrstu
nýklassískar hugmyndir en sneri sér
síðan að natúralískari verkefnum í ætt
viö franska myndhöggvarann Houdon,
þar sem reynt var eftir megni aö sætta
hinar skörpu andstæður milli rókókó
og nýklassisma.
En þaö var örugglega í Róm árið
1797 sem Thorvaldsen finnur forsendur
og módel aö síöari listsköpun sinni. Og
áriö 1803 lýkur hann frummyndinni aö
verkinu Jason sem gerði hann nánast
frægan á einni nóttu. Þar kemur
greinilega fram þekking hans á fomri
höggmyndalist og við getum vel greint
í þessari mynd mótíf eins og
Doryphore og Apolló í Belvedere þar
sem notaöar eru sömu stell-
ingar/hreyfingar handa og höfuös.
Styttan af Jason er óvenju skýr og tær
í linunni og var tekin sem fullkomnun
hins nýklassíska stíls. Hér er ekki
lengur að finna einstaklingsbundið
raunsæi barokklistamannsins heldur
er þaö nú ný sýn sem á uppruna sinn í
„ideal fegurö” fomlistarinnar. Mótífið
er hetjulegt og háleitt og formið full-
komlega hreint og skýrt.
Óvenju vel útfærð
sýning
Sýningin hér á Kjarvalsstööum er
óvenju vel uppbyggð og útfærð. Allt er
gert til aö nálgast listamanninn frá
ólíkum hliöum og sýna fram á þróun og
breytingar í verkum hans. I hinu
„endurreista Thorvaldsensafni” á
Kjarvalsstööum getur áhorfandinn
lesiö sig í gegnum teikningar og
skissur, sett listamanninn í sögulegt
samhengi (þótt mátt heföi gera
þennan þátt nákvæmari og skýrari) og
síðan barið augum fullunnar styttur
meistarans. Þá fylgir sýningunni sér-
staklega vel unninn litskyggnuþáttur
og fræðandi bók um Thorvaldsen sem
lengi mun vitna um þessa ágætu
sýningu. -GBK.
Jason. Róm 1802—3. Fullunnin i marmara 1828. Hæð 242 cm.
Smáauglýsingadetldiner
jJ»yerliolti 11 —Sámi 27022.
Opidalla virkadagakl.9-22.
Iai Laugardagakl.9-14.
I Sunnudag'akl. 18-22.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 64., 70. og 72. tölublaði Lögbirtmgablaðsins 1981 á
eigninni Hvaleyrarbraut 18—24, Hafnarfirði, þingl. eign Lýsis og Mjöls
hf., fer fram eftir kröfu Tryggingastofnunar rikisins, Innheimtu ríkis-
sjóðs og Útvegsbanka fslands á eigninni sjálfri fimmtudaginn 23.
september 1982 kl. 15.30.
Bæjarfógetinn i Hafnarf iröi.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var i 54., 57. og 62. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1980 á
eigninni Þverholt v/Vesturlandsveg, Mosfellshreppi, þingl. eign Heng-
ils sf., fer fram eftir kröfu Innheimtu rikissjóðs á eigninni sjálfri
f immtudaginn 23. september 1982 kl. 16.00.
Sýslumaðurinn i Kjósarsýslu.
^Dale .
Carneeie
námskeiðiÖ
KYNIMIIMGARFUNDUR
þriðjudaginn 21. september kl. 20.30 að
Síðumúla 35.
Námskeiðið getur hjálpað þér að:
★ Öðlast hugrekki og meira sjálfstraust.
★ Bæta minni þitt á nöfn, andlit og staðreyndir.
★ Láta í ljós skoðanir þínar af meiri sannfæringarkrafti í
samræðum og á fundum.
★ Stækka vinahóp þinn, ávinna þér virðingu og viðurkenn-
ingu.
★ Talið er að 85% af velgengni þinni sé komið undir því
hvernig þér tekst að umgangast aðra.
★ Starfa af meiri lífskrafti — heima og á vinnustað.
★ Halda áhyggjum í skefjum og draga úr kvíða.
★ Verða hæfari að taka við meiri ábyrgð án óþarfa spennu og
kvíða.
Okkar ráðlegging er því: Taktu þátt í Dale Carnegie-nám-
skeiöinu.
í dag er þitt tækifæri.
Uppi. í síma
N
INNRITUN
^ í SÍMA
52996
GÖMLU DANSARNIR
^ SAMKVÆMISDANSAR
O/MVirV V/tlVIIOL//\IVOA\n
^ ROKK — DISKÓDANSAR ^
Ýr NÝTT — DISKÓ — LEIKFIMI r-tf'
frá kl. 1—7