Dagblaðið Vísir - DV - 20.09.1982, Blaðsíða 19
DV. MÁNUDAGUR 20. SEPTEMBER1982.
19
t smáæfingu fyrir keppnina tókst Árna Guðmundssyni að snoðklippa flestöll tannhjólin í girkassanum hjá sér. Einungis
þriðji gírinn var virkur eftir æfinguna og notaði Árni hann alla keppnina. Hékk þriðja girs hjólið saman þrátt fyrir
ítrekaðar tilraunir hans til að bursta tennurnar af því líka.
brautinni varð Halldór fyrstur kepp-
endanna til að komast upp að fyrr-
nefndu barði og var hann búinn að
jafna það aö mestu Ieyti við jörðu áður
en hann varð að gefast upp við þaö en
þá var hann búinn aö brjóta framöxul í
jeppanum. Halldóri tókst að ljúka
keppninni á afturdrifinu en ekki gekk
honum eins vel og áður. Halldór náði
þó þrátt fyrir framdrifsleysið næst-
besta tímanum í fyrri timabrautinni,
13,5 sek., og í henni tók jeppinn það
lengsta stökk sem jeppi hefur tekið í
torfærukeppni í Grindavik og var um
mannhæð undir jeppann þegar mest
var. Halldór lenti í þriöja sæti keppn-
innarmeðl460stig.
Bjarmi Sigurgarðarsson
Bjarmi hreppti annað sæti í keppn-
inni með 1485 stig en hann keppti á ’46
Wiliys með 400 cid. Chevrolet vél.
Áberandi var hve kraftmikill og lipur
jeppinn hans var enda átti hann auð-
velt meö að aka flestar þrautirnar. I
síðustu brautinni festi Bjarmi jeppann
uppi á haugnum við enda drullugryfj-
unnar og við það má segja aö hann hafi
misst af fyrsta sætinu í keppninni.
Bergþór Guðjónsson
Sigurvegari í keppninni varð Berg-
þór Guðjónsson en með sigri sínum
tryggöi hann sér Islandsmeistaratitil-
inn, annaö árið í röð.
Bergþór keppti á gömlum Willys,
eins og Bjarmi, meö B-20 Volvo vél
með afgastúrbínu (Turbocharger) og
var alveg hreint ótrúlegt hversu vel
hann virkaði. Er jeppinn léttur og hlut-
fallslega mjög kraftmikill svo að hann
virtist renna fyrirhafnarlaust og án
nokkurrar mótstöðu yfir ófærumar.
Þekkir Bergþór jeppann greinilegar en
æðamar á höndum sér og veit upp á
hár hvað má bjóða honum. 1 þriðju
brekkunni mistókst Bergþóri að kom-
ast alla leiö upp en þar drap Volvo vél-
in á sér þegar vatnsinnspýtingin á
henni klikkaði. Við það missti Bergþór
forskotið og náði því ekki fyrr en í
tímabrautinni síðustu þar sem hann ók
með miklum glæsibrag og náði besta
timanum. I keppninni hlaut Bergþór
1685 stig. Jóhann Kristjánsson.
Sigurður Sigurðsson keppti á Svarta torfæmtröllinu, sem var ósigrandi í torfæm-
aksturskeppni í höndum Benedikts Eyjólfssonar fyrir nokkrum ámm. Keppti
Sigurður í sinni fyrstu keppni og stóð sig með ágætum enda var torfærutröllið
geysiöflugt að vanda.
bJbIbIbIbIeIbIbIsIeI^gIbISgIbIbIbIbIbIbIbIbIbIbIbIbIbIbIbIb
Biaðburðarbörn
NU ER VERIÐ AÐ RAÐA FYRIR
VETURINN
Látið skrifa ykkur á biðlisfa
BLAÐBERAR ÓSKAST í EFTIRTALIN HVERFI STRAX
Suðurlandsbraut
Skúlagata
Hafíð samband
AFGREIÐSLAN
ÞVERHOLT111
SÍMI27022
Viðurkennd
varahlutaþjónusta
Eigum mikið úrval „boddy“ hluta
í Scout II.
Mikið magn varahluta á lager
einnig standstuðarar,
(kúlustuðarar), toppgrindur og fl.
Komið eða hringið.
Þjónustusimi 38900
BUVELAVARAHLUTIR
Véladeild
Sambandsins
Armula 3 Reykiavik
Þetta er mikilvæg spurning þegar ieiðum til þess að
verðtryggja fé hefur fjölgað og hægt er að velja mis-
munandi ávöxtun.
Leiðin sem hentar þér gæti m.a. verið:
Verðtryggð spariskírteini Ríkissjóðs.
Verðtryggð veðskuldabréf.
Óverðtryggð veðskuldabréf.
Happdrættisskuldabréf Ríkissjóðs.
Við höfum víðtæka reynslu í verðbréfaviðskiptum
og fjármálalegri ráðgjöf og miðlum þeirri þekkingu
án endurgjalds.
Viljir þú ávaxta sparifé þitt munum við ráðleggja þér
hagkvæmustu ráðstöfun þess.
Veröbréfemarkaöur
Fjárfestingarfélagsins
Lækjargötu12 101 Reykjavik
lönaöarbankahúsinu Sími 28566