Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.1982, Side 3
DV. FÖSTUDAGUR1. OKTOBER1982. 3
Varðskipið Ægir kom mikið við sögu i siðasta þorskastriði, þegar það var
með „kiippurnar" á iofti og hreiiti tjaiiann. Og Guðmundur Kærnssted
varð þjóðsagnapersóna ibresku sjávarbæjunum Grimsby og Huiiá þessum
árum. En nú er búið að leggja Ægi og reyndar Þór iika vegna fjárskorts hjá
Landhelgisgæslunni. Á myndinni sjáum við Ægi, i Reykjavikurhöfn fyrir
nokkrum árum, „að slappa af" i spegilsléttum sjónum. Það var svona
stund milli striða i ólgusjó baráttunnar.
Höfum viö
ekki efni á
að verja
landhelgina?
Landhelgi Islands var færö út í 200
mílur á árinu 1975. Á þeim tíma var
stofnun er heitir Landhelgisgæslan
mikið í fréttum. Nokkrir skipherrar
stofnunarinnar uröu landsfrægir er
þeir „klipptu” á trollvíra breskra og
þýskra togara og afrek þeirra fréttust
langt út fyrir landsteinana islensku.
Sem dæmi má nefna aö Guömundur
Kærnested varö þjóösagnapersóna hjá
ibúum bresku sjávarborganna Grims-
by og Hull. En síöan viö fengum yfir-
ráð yfir landhelginni hefur minna fariö
fyrir Landhelgisgæslunni í fréttum.
En þaö hefur vakiö athygli margra
aö varöskipin Ægir og Þór hafa verið
bundin viö bryggju megniö af yfir-
standandi ári. Menn spyrja sig þeirrar
spurningar hvort ekki þurfi aö verja
landhelgina lengur fyrir erlendum sæ-
görpum. Hefur veriö slakaö á gæsl-
unni? Eftir þeim upplýsingum sem DV
hefur aflaö sér sést greinilega aö sigl-
ingum varöskipanna hefur fækkaö
jafnt og þétt á síðustu árum.
Minnkandi sig/ing
varðskipanna
Viö skulum skoöa fjölda sigldra sjó-
mílna og brennsluolíunotkun skipanna
síðustu árin.
ÁR Sjómílur Brennsluolíunotkun lítrar
1976 161.807 6.251.629
1977 115.621 4.433.428
1978 108.920 4.170.447
1979 85.895 3.326.342
1980 77.914 2.749.916
1981 66.319 2.458.414
1982 1.539.499 (1.1.—1.9. >82)
Af þessum upplýsingum er vist aö
slakað hefur verið verulega á gæslunni
ef miöaö er viö siglingu varðskipanna.
Ægi og Þórlagt
I fyrra voru þrjú varöskipanna af
fjórum í notkun fram á mitt áriö eftir
þaö voru þau tvö. I ár voru þrjú skip-
anna í notkun fram í apríl eftir þaö
hafa þau verið tvö. Þaö eru Týr og Oð-
inn en Ægir og Þór liggja bundnir viö
bryggju. .
Ástæðan fyrir þessu er sú að stjórn-
völd skammta stofnuninni rekstrarfé
sem engan veginn dugir fyrir gæslu
sem samsvarar þeirri sem þekktist
fyrir nokkrum árum. Og vandi Land-
helgisgæslunnar er sá sami og annarrar
útgeröar í landinu, olíuhækkanirnar
skeröa mjög raungildi fjárveitinganna
til stofnunarinnar.
Til aö sjá þetta betur skulum viö líta
á f járveitingar til Landhelgisgæslunn-
ar. Fjárveitingum til Landhelgissjóös
ersleppt.
Fjárveitingar til
Landhelgisgæslunnar
ÁR: 1980 1981 1982
Fjárlög: 28.2 36.8 49.9
Fengu: 32.8 45.5 ( )
Tölur í mkr.
Eins og sést af þessu hefur Land-
helgisgæslan fengiö öllu meira en gert
hefur verið ráö fyrir samkvæmt fjár-
lögum á þessum árum. Ástæðan er sú
aö olíuveröhækkanir hafa veriö miklu
hærri en gert hefur verið ráð fyrir í öll-
um áætlunum. Eins eru tryggingar
skipanna i erlendri mynt, þannig aö
þær hafa einnig fariö fram úr áætlun.
Og á næstunni eru aö fara fram viö-
ræður viö fjárveitingavaldið um aö
auka greiöslur þessa árs vegna mikilla
olíuhækkana.
Olíuverðhækkanir
En lesendum til frekari fróöleiks
sýnum viö hvernig verð á brennslu-
olíunni til Landhelgisgæslunnar hefur
hækkaö.
Ár Oliu- verð kr.
1. jan. ’78 0.40
l.jan. ’79 0.69
1. jan. ’80 1.55
1. jan. ’81 2.35
1. jan. ’82 3.10
1. sept. ’82 5.20
Af þessu sést aö olíuverð hefur
fimmtánfaldast janúar 1978 til dagsins
í dag. Og þaö kemur einnig i ljós aö
olíuverðiö hefur hækkaö mun meira en
fjárveitingar til stofnunarinnar. Þetta
vegur þungt þar sem um 25% af
reksturskostnaöi varöskipa eruoliu-
kostnaöur.
Niöurstaða þessarar greinar er því
sú, aö gæsla landhelginnar fer sifellt
minnkandi, ef miðað er viö minnkandi
siglingar varöskipanna. Og af fjórum
skipum sem Landhelgisgæslan á, eru
aðeins tvö í notkun. Og ástæðan er ein-
föld. Ekki er fé til að hafa þau í frekari
siglingum. -JGH
að notaðir
VOLVO
bflar
séu betri
én nýir bflar
af ódýrari
gerðum
V)
Volvo 345 GLS '82
ek. 5.000, beinsk. Verð kr. 190.000.
Volvo 244 GL '82
ek. 10.000, beinsk. Verð kr. 250.000.
Volvo Lapplander '81
ek. 32.000. Verð kr. 190.000.
Volvo 244 GL '81
ek. 18.000, sjálfsk. Verð kr. 220.000
Volvo 244 GL '80
ek. 24.000, beinsk. Verð kr. 190.000.
Volvo 245 GL 79
ek. 46.000, sjálfsk. Verð kr. 165.000.
Voivo 244 DL 78
ek. 53.000, sjálfsk. Verð kr. 130.000.
Volvo 343 DL 78
ek. 29.000, sjálfsk. Verð kr. 90.000.
Opið /augardaga frá kl. 13—16.
35200 VELTIR
W 1 " W SUÐURLANDSBRAUT16
Hártoppa-
kynning
Hártoppurinn sem fer
, sigurför um heiminn
verður kynntur laugard.
2. okt., sunnud. 3. októ-
ber.
Kynningarverð
Pantið tíma ísima 21575eða 42415
VILLI
RAKARI háriðs/f
Miklubraut 68
Þúgetur
þvegið hann
á höfðinu?
synt með
hann og
greittsom
eigið hár.