Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.1982, Síða 5
DV. FÖSTUDAGUR1. OKT0BER1982.
5
Sovéska vélin
fór af braut
beint á móti
Cargolux-
skýlinu
— Hefði lent á þrem íslenskum f lug-
vélum, ef hún hefði beygt til vinstri
í staðinn fyrir að renna til hægri
Frá Valgeiri Sigurðssyni, fréttaritara
DV í Luxemborg:
„Aðkoman var hrikaleg, þegar mig
bar að slysstaðnum 45 mínútum eftir
að sovéska farþegaþotan sentist út af
flugbrautinni og brotnaði í mél í skógi-
vöxnu gili utan flugvallar. — Flug-
vélarflakið var orðiö ern brunarúst en
þó svo heitt aö björgunarsveitir þurftu
að kæla það meö vatnsbunum til þess
að geta leitað að líkum innan um brak-
ið.
En almannavarnir þeirra Luxem-
borgara sýnast vel vaxnar sínu hlut-
verki. Þaö var búið að flytja alla slas-
aða á sjúkrahús nær eða fjær, og höfðu
þar komiö til hjálpar sjúkrabíiar alla
leið frá Frakklandi, Belgíu og Þýska-
landi.
Enn kunna menn engar skýringar á
því, hvemig þaö mátti verða að vélin,
sem haföi komið niður á flugbrautina
með eðlilegum hætti, hemlað með
vélarafli, sömuleiðis eðliiega, tók upp
á því að beygja 20 gráður til hægri,
þegar hún hafði runnið langleiðina inn
á miðja braut.
Hitt er þó ljóst að hefði hún beygt út
af brautinni til vinstri í staöinn fyrir að
renna til hægri, hefði hún lent beint á
flugskýli Cargolux. Fyrir framan það
stóð DC-8 þota Flugleiða, Júmbóþota
og DC-8 þota Cargolux en inni í skýlinu
voru tvær flugvélar í viðgerð. Enginn
vafi þykir á því að það hefði allt eyði-
lagst. -GP.
Grettir frá hafnarmálastjórn vann við að dýpka höfnina i Bolungarvik og er
hún nú orðin greiðfær skipum sem sum hver þurftu áður að biða eftir flóði
tilþess aðgeta sigltinn ihöfnina. DV-myndKristján Friðþjófsson.
■ ■ r
HOFNINIBOLUNG-
ARVÍK DÝPKUÐ
Dýpkunarskip hafnarmálastjómar,
Grettir, hefur nýlokið við að dýpka
höfnina í Bolungarvík. Aö sögn Einars
Þórðarsonar, bæjarritara Bolungar-
víkur tók verkið aöeins lengri tíma en
fyrir fram var áætlaö og var orsökin sú
að dýpkunarskipið Grettir var bilað og
gat því ekki unnið meö fullum afköst-
um. Því tók það skipið um einn og hálf-
an mánuö að vinna að dýpkuninni.
Aætlaö var að það þyrfti að taka um 26
þúsund rúmmetra úr höfninni en þegar
á hólminn var komið reyndust rúm-
metrarnir verða fleiri en ætlaö var í
upphafi. Er nú svo komið að höfnin er
víðast hvar um 6 metra djúp og geta
því stærstu skipin auðveldlega siglt inn
i höfnina.
Kostnaðaráætlunin við verkið hljóð-
aði upp á 2,3 milljónir króna en Einar
sagði að ljóst væri að kostnaðurinn
yrði meiri því framkvæmdirnar hefðu
tafist sökum bilunar í Gretti.
Áður en til dýpkunarinnar kom þurftu
stærstu skipin yfirleitt að bíða eftir
flóði til þess að komast inn í höfnina.
Einar sagði að það þyrfti að dýpka
höfnina reglulega því hún væri lífæð
staðarins.
Atvinnulíf Bolvíkinga hefur verið
gott og enginngengiðumatvinnulaus í
langan tíma. Verið var aö vinna við að
leggja gangstéttir í sumar og er gatna-
kerfið á Bolungarvík mjög gott, nú eru
um 84% af því með bundnu slitlagi.
-EG.
Oe'
t\st
a
d*»*
Eitt blað —
— ótrúleg
áhrif—
ÁSKRIFTARSÍMINN ER
27022
BRÁTT ER ALLRA VEÐRA VON VERTU UNDIR ÞAÐ BÚINN
1 Mótorþvottur 7 Skipt um bensínsíu í blöndungi
Rafgeymasambönd hreinsuö Viftureim athuguð
Mæling á rafgeymi og hleðslu 9 Kælikerfi þrýstiprófað
4 Loftsía athuguö \Q Frostþol mælt
s Skipt um platínur TÍ Mótorstilling
6 Skipt um kerti / Öll Ijós yfirfarin og aðalljós stillt
iHemlarreyndir 3
GILDISTfMI 1. OKT. TIL 30. NÓV.
Verö:
4 strokka vél kr. 730.-
6 strokka vél kr. 918,-
8 strokka vél kr.1.041.-
Auk vinnu er eftirtalið efni innifalið í verði:
Kerti, platínur, frostvari og bensínsía
Gæðaeftirlit með gæðavörum.
<StVÉIADEILD
ÞJÓNUSTUMIÐSTÖÐ
Höfðabakka9í585539
KULDASKÓR - EKTA GÆRA
GÓÐIR GÚMMÍSÓLAR
• Litir: Dökkblátt, brúnt,
mosagrænt, blágrænt.
Stærðir: 36-41
Verðkr.: 1150,-
SiUStt
LAUGAVEGI 74 SIMI: 17345
KULDASKÓR - EKTA GÆRA
GÓÐIR GÚMMÍSÓLAR
Litir: Gulbrúnt, dökkbrúnt,
blágrænt, mosagrænt,
vínrautt, hvítt.
Stærðir: 36-41
Verðkr.: 975-
LAUGAVEGI 74 SIMI: 17345