Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.1982, Page 6
DV. FÖSTUDAGUR1. OKTÖBER1982.
Neytendur
Neytendur
Neytendur
Neytendur
Neytendur
Islenskir ostar fá góða
dóma í Danmörku
Betur má ef duga skal — ítalskur parmesan ostur væntanlegur
Rætt við Oskar H. Gunnarsson, f ramkvæmdast jóra Osta- og smjörsölunnar
„Þegar á heildina er litiö er útkoman
þokkaleg og í mörgu tilliti mjög góð,”
sagöi Óskar H. Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóri Osta- og smjörsölunnar,
í samtali við blm. DV. Leitað var frétta
af niðurstööum danskrar matsnefndar
á islenskum ostum. í síðustu viku var
kynning á dönskum mjólkurafurðum í
borginni Herning á Jótlandi, eins og
við greindum frá í síðustu viku, sem er
haldin árlega; senda öll dönsk mjólkur-
bú afurðir sínar. Nú voru í fyrsta sinn
neyslumjólk og sýrðar afurðir sendar
inn með öðrum afurðum. Á þessarí
sýningu er sérstök matsnefnd sem gef-
ur afurðum einkunnir. Sérstakt ís-
landsborö var á sýningunni í Herning
þar sem úrval íslenskra osta var kynnt
fyrir neytendum og dómurum. Á sýn-
inguna komu margir frá nágranna-
löndum svo og að sjálfsögðu heima-
menn. Áuk dönsku ostanna voru aðeins
ostar frá islandi á sýningunni.
Gæöasamanburö
vantaði
„Tilgangurinn með aö senda osta
héðan var að fá einhvem gæðasaman-
burð við íslensku ostana. Staða okkar
osta er ekki verri en þeirra, sé litið á
meðaltalsútkomu. Hæstu einkunn ís-
lenskra osta, 12,5, fékk maribo-ostur-
Neytenda-
mál rædd
í Borgarnesi
Formannaráðstefna og almenn
ráðstefna um neytendamál á veg-
um Neytendasamtakanna verður
haldin í dag, föstudag, og ájnorgun
í Hótel Borgamesi. Fyrri ráð-
stefnudaginn koma formenn hinna
ýmsu deilda NS saman og ræða
m.a. um helstu verkefni og mark-
miðsamtakanna.
Síðari daginn er almenn ráð-
stefna um neytendamál. Á dagskrá
verða m.a. framsöguerindi um
vísitölukerfið og áhrif þess á stöðu
kaupenda og seljenda, matvælaeft-
iriit, verðlagning og framboð og
hvemig vöraverð myndast og leiðir
til lækkunar þess. Frummælendur
verða Jón Ottar Ragnarsson, Þór-
hallur Halldórsson, Jónas Bjama-
son, Jóhannes Siggeirsson, Guð-
mundur Sigurösson og Ámi
Árnason. Ekkert ráðstefnugjald
verður og öllum heimill aðgangur.
Jarlinn er harðostur og nýkominn á markaðinn. Margir neytendur vilja fá
itölskum permesan osti, en aðeins litlu magni.
bragðsterkari harðosta og nú hefur verið veitt undanþága til innflutnings á
DV-myndBj. Bj.
inn sem er framleiddur á Sauðárkróki.
Til samanburðar má geta þess að
hæsta einkunnagjöf á dönskum osti var
13. Maribo-osturinn er 26% feitur ost-
ur, framleiddur skorpulaus og er ca
þriggja mánaða gamall þegar hann fer
já neytendamarkaö. Gouda-ostur fékk
einnig mjög góða einkunn, 10,5—11.
Gouda er framleiddur hjá mjólkur-
samlagi KEA á Akureyri, bæði 26% og
30% og skorpulaus. Smurostarnir, sem
við framleiðum hér í Osta- og smjörsöl-
unni, fengu góða dóma, einkunn 11—12.
Þá fengu íslensku mysuostamir líka
góð ummæli, svo og óðalsosturinn.”
Svo fórast Oskari H. Gunnarssyni
orð um mat danskra dómara á ís-
lensku ostunum. Bætti hann við að þó
að útkoman væri tiltölulega góö fyrir
ostaframleiðendur hér á landi væri
engin ástæöa til að sofna á verðinum,
menn yrðu að halda vöku sinni og
halda uppi gæðum osta og vinna stöð-
ugt að betri framleiðslu. Einnig haföi
hann orð á því að töluvert hefði verið
spurt um íslensku ostana til útflutn-
ings, en litlar líkur væru á að af ostaút-
flutningi héðan gæti orðið í einhverjum
mæb. Ástæðan væri sú aö bæði hefði
dregið úr mjólkurframleiðslu hér og
lágt verð væri á ostum á Evrópumark-
aði.
Sem viðbót við þá dóma á ostum sem
hér er sagt f rá á undan má geta þess að
ostur frá Mjólkursamlaginu á Húsa-
vík, búri, fékk afar góða dóma
danskra matsmanna fyrir ári. I ár
fékk búri einnig góða einkunn, en lægri
en í fyrra. Taldi Oskar aö hitabreyting
vegna flutninga á milli landa gæti hafa
haft áhrif á gæði ostsins. 1 raun heföi
veriö tekin mikil áhætta með því að
flytja íslensku ostana til Danmerkur af
fyrrgreindri ástæöu.
Harðostur — parmesan —
væntanlegur
Við erum sammála framkvæmda-
stjóra Osta- og smjörsölunnar um það
atriði að þó að vel ári í augnablikinu og
ostaframleiðendur hafi byr, má gera
betur. Því spurðum við Óskar hvort
væntanlegar væru nýjungar í ostagerð
og endurbætur. Kvartanir hafa borist
okkur til eyma varðandi ostafram-
leiðslu, neytendur segja að hér vanti
mikið úrval á markaöinn áður en við-
unandi geti talist. Margir hafa látiö í
sér heyra varðandi gráöaostinn sem
framleiddur er á Akureyri, hann sé
vondur, hafi áður verið hinn ágætasti
ostur en uppfylli ekki kröfur í dag. Um
þessi tvö atriði var Oskar spurður og
einnig hvort neytendur mættu i náinni
framtíð vænta þess að hafin yrði fram-
leiðsla á camembert-osti í minni ein-
ungum en nú er gert. Camembert-ost-
urinn er eingöngu framleiddur hjá
Mjólkurbúi Flóamanna á Selfossi. Svo
sem mönnum er kunnugt er camem-
bert-osturinn aðeins framleiddur í
einni stærð. Undanfariö hefur færst
mjög í vöxt að fólk djúpsteiki þessa
osttegund. Þá erhandhægara aðfá ost-
inn í minni einingum, t.d. Utlum þrí-
hymingslaga sneiðum eins og camem-
bert-osturinn er á neytendamarkaði
erlendis.
„Fyrst skal ég svara þessu atriöi
með bragðsterku ostana. Mikil áhætta
er fyrir ostaframleiöendur að geyma
osta í tvö ár, en þaö er geymslutíminn
sem t.d. parmesan-ostar þurfa. I
geymslu vilja þessir ostar molna eða
brotna. En við höfum nýlega fengið
undanþágu til aö flytja inn parmesan-
ost, sem er líklega meðal þekktustu
osta. Við ætlum að kanna undirtektir
neytenda, kanna markaðinn hvað
þennan ost varöar. Einnig könnum við
þá í framhaldi af viðbrögðum neyt-
enda hvort einhver framleiðandi inn-
anlands treystir sér til aö framleiða
þennan ost. Við verðum að fikra okkur
áfram áður en lagt er í dýra fram-
leiðslu á parmesan-osti. En það er rétt
aö við höfum oft heyrt þessar raddir
sem vilja fá bragðsterkari haröosta til
matargerðar, svo semtíðkasterlendis.
Vonandi getum við komið til móts viö
óskir þessara neytenda íframtíðinni.
V arðandi kvartanir um gráðaostinn
get ég sagt það eitt að þegar mjólkur-
samlagiö á Akureyri fór í nýtt húsnæöi
fyrir nokkra virtist koma ólag á fram-
leiöslu gráöaostins. En framleiðslan
hefur lagast aftur og virðist osturinn
vera farinn að finna sig í nýja húsnæð-
inu.
Síöasta atriðið sem þú spyrð um,
varðandi camembert-ostinn, þá er því
til að svara að oft hefur verið rætt um
að framleiða hann í smærri einingum
en nú er gert. Það er eingöngu kostnað-
arhliðin sem hefur komið í veg fyrir
framleiösluna. Slík framleiösla er
mjög dýr því hér er nánast um handa-
vinnu að ræöa. Umræðan er enn í gangi
og málið í athugun svo ekki er vitað
hver niöurstaðan verður. ”
Parmesan-osturinn, sem er væntan-
legur í verslanir, er innfluttur frá
Itah'u. Ekki er enn vitað hvað hann
mun kosta. S jálfsagt kætast nú margir
„harðhnumenn” við þessa fregn, að
vænta megi ítalsks parmesan-osts inn-
antíðar.
-ÞG
getraunin
Opel Kadett
að verðmæti kr.: 180.000. Þ& ^
Dreginn út 15. nóvember nk.
Takið þátt í skemmtiiegum bíiaieik.
Nýir og eidri áskrifendur, sendið inn seðii.
,FT*rS