Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.1982, Síða 7
DV. FÖSTUDAGUR1. OKTÖBER1982.
7
Neytendur Neytendur Neytendur
4—5 murtur eru soðnar niður í hverja dós i niðursuðuverksmiðjunni Ora hf. Dósir með lykkjuloki eru
sendar til útflutnings en dósir á innlendum markaði eru ipökkum með uppskriftum á bakhlið. D V-mynd G VA.
MURTAN ER
SMÁBLEIKJA
— notuð í salöt, steikt, soðin, reykt eða söltuð
Murta er smáfiskur sem líkist
bleikju og er veiddur á þessum árs-
tíma. Mesta veiöin fer fram í Þing-
vallavatni, þar er murtan 19—20 cm
löng. Hún hefur einnig veriö veidd i
Skorradalsvatni, 15—16 cm aö stærð,
og í Vesturhópsvatni og Svínavatni í
Húnavatnssýslu, en þar er hún 26—27
cm aö lengd. Veiði hófst um miöja
síöustu viku og stendur hún yfir í 3—4
vikurárhvert.
Það eru íbúar á bæjunum í kringum
Þingvallavatn, sem stunda murtu-
veiöar og selja fiskinn. Murtan er
síðan seld til niðursuöuverksmiðj-
unnar Ora hf. Alls eru bæimir níu, sem
Ora hefur viöskipti viö. Þeir eru
Heiöarbær 1 og 2, Kárastaöir, Skála-
brekka, Mjóanes, Miöfell, Krókur,
Nesjavellir og Nesjar.
Blaöamaöur DV haföi samband við
íbúa á Heiöarbæ 1 og innti þá eftir
frekari upplýsingum um murtuveiöar í
Þingvallavatni. „Veiðin gengur þannig
aö fariö er út klukkan sjö á
morgnana og veriö að fram eftir degi.
Murtan er veidd í lagnet og afgreidd
glæný um kvöldmatarleytið og þá í
sendiferðabíla frá niöursuðuverk-
smiöjunni Ora hf.” sagði einn íbúinn í
Heiðarbæ 1. Þar getum viö keypt nýja
murtu um helgar því þá er hún ekki
afgreidd til niöursuðuverksmiöjunnar.
Kílóiö kostar 12 krónur. Eina skilyröiö
til aö fá hana keypta er aö panta hana
meö fyrirvara. Best er að hringja á
föstudegi, í gegnum símstööina á
Selfossi. Þá er unnt aö afgreiða
murtuna á laugardegi.
Hvar fæst murta?
Þeir sem hafa bragðað á murtu láta
vel af henni og er sjálfsagt aö þeim
gefist kostur á að neyta hennar. Þá er
annaöhvort aö kaupa hana í niðursuðu-
dósum eöa aö leggja leið sína til Þing-
valla. Þingvallamurta í dós, sem
vegur 270 g, kostar 17 krónur í heild-
sölu. Murta hefur fengist i fiskbúöum
en að sögn fisksala hefur litill áhugi
verið fyrir henni. Fólk er hrætt viö aö
bragða á nýjum fæðutegundum og þaö
forðast að kaupa í mat það sem sein-
legt er aö matreiða. Eftirspum hefur
því ekki veriö mikil.
Magnús Tryggvason, framkvæmda-
stjóri niöursuöuverksmiöjunnar Ora
hf., haföi þetta aö segja um verkun á
murtu: „Hún er hausuö og hreinsuð aö
innan. Þaö eru vélar sem opna hverja
murtu og hreinsa allt blóö úr hryggn-
um. Nú eru um 50—60 manns sem
starfa við þetta hjá Ora hf. en fljótlega
veröa teknar í notkun fullkomnari
vélar sem verka murtuna. ’ ’
Murtan er niöursoöin í dósirnar, sem
eru bæði seldar hérlendis og fluttar til
Bandaríkjanna, Englands og víöar. I
hverri dós eru um 5 murtur og er látiö í
um 10 þúsund dósir á dag. Ora hf. hefur
soöiö murtu niöur í dósir síöastliöin 27
ár en aflamagn er misjafnt ár frá ári,
eöa allt frá 4 tonnum í 70—80 tonn á ári.
Algengasta magnið er 50—60 tonn á
ári.
Hvernig er murtan
matreidd?
Murta er soðin niöur í tvær geröir
dósa. Þær sem fara á erlendan markaö
eru áprentaðar: „Brook trout, from
the glacier Lake of the Land of Fire.”
Þær eru meö lykkjuloki og er því eitt
handtak aö opna þær. Dósir sem fara á
innlendan markað eru í ómerktum
dósum sem eru seldar út í kössum, þar
sem á er letraö Þingvalla murta. Á
bakhliö þessa kassa eru uppskriftir
,sem gefa mönnum hugmyndir um
hvernig best er að neyta hennar.
Dagstimpli er þrykkt á allar dósimar,
sem segir til um pökkunardag, og —
ár.
Margir boröa murtuna soöna og þá
meö kartöflum og smjöri. Best er þá aö
láta suöuna koma upp en slökkva síðan
undir. Er þar sami háttur hafður á og
'er humar er soðinn. Murtan er einnig
■góö nætursöltuð. Þá er hún verkuö eins
og sild, hausinn er tekinn af og murtan
er slægö. Þaö nægir aö láta hana liggja
í salti í hálfan sólarhring. Það er mikiö
verk aö flaka hana til steikingar en
alveg lostæti og hafa margir látiö
næg ja aö slordraga murtuna og steikja
hana síðan t.d. úr brauömylsnu. Nýja
murtu er unnt að sjóða, steikja, reykja
eöa salta, en siöursoðin murta er mest
notuð sem álegg á brauö. Þá em útbúins
salöt úr henni sem eru ekki ólik
túnfisksalötum.
Murtan er ódýr matur
Jón Kristjánsson fiskifræðingur
haföi þetta um murtuna aö segja þegar
blm. hafðisamband viðhann:
\ „Murtan er smávaxin bleikja sem lifir
á svifkrabbadýrum í djúpum vötnum.
|Hún tekur sér þetta líferni upp og tak-.
markast því vöxtur hennar af fæöu-
frainboðinu. Murtan er fullvaxin eftir
fjögur ár.” Sagði Jón að murtuveiðar
fæm aðallega fram í Þingvallavatni en
aö veiöin heföi minnkaö í gegnum árin
þar sem íbúum í kringum vatnið hefði
fækkaö.
Þótt murtuveiöar fari aðallega fram
í september og október hefur murtan
einnig veriö veidd á sumrin. Þá er hún
veidd í flotnet áöur en hún kemur til
hrygningar. Þá er fariö út á vatn í júlí
og ágúst, í bátnum er fisksjá og er þá
murtan í torfum í miöju Þingvalla-
vatni. Hún er ekki síður góö til neyslu
og fæst í verslunum heilfryst í blokk í
litprentuöum öskjum. Hver askja er
eitt kíló aö þyngd og seld á 29 krónur.
Uppskriftimar á murtupökkunum
frá niðursuðuverksmiðjunni Ora hf.
eru þessar:
Ora murtusalat
lds.murta
2 msk. tómatsósa
1 saxað harðsoðiö egg
1 tsk. f int saxaður Iaukur
50 g majones
salt og pipðar eftir smekk
Murta og grænar baunir
m/dillsósu
Forréttur f yrir fjóra:
2ds.murta
1 bolli grænar bauuir
1/4 boIU saxaður graslaukur
4 söxuð egg
ÖUu blandaö saman og látiö standa í
kæliskáp í2—3 klukkustundir.
Dillsósa
2/3 boUi majones
2 tsk. sítrónusafi
2 tsk. saxaö dUl
1 tsk. sinnep
1 tsk. dUl fræ
kryddað með salti og pipar
Murta með óvöxtum
Forróttur fyrir fjóra:
1 ds. murta
2 stk. appelsínur
1/4 boUi majones
1/4 boUi sýrður rjómi
1/4 boUi möndlur eða hnetur
1/4 bolU vínber skorin í tvennt
1 tsk. tabasco
ÖUu blandaö saman, kryddaö meö
salti og pipar, borið fram með salat-
blööum.
Murta og avacado
(eggaldin) í tómat
1 ds. murta
1 stk. avacado, skorið í litla bita
2 tsk. sítrónusafi
1 tsk. marinn h vitlauksgeiri
1/3 boUi saxað seUerí eða paprika
2 msk. saxaður graslaukur
Þetta er ágæt fyUing í holaða
tómata. Salatiö er kryddaö með salti
pipar og tabasco, látið í tómatana og
borið framkælt.
-RR.
DELMA
QUARTZ
Spáðu í DELMA-quartz
þau eru í sérflokki.
Svissnesk
gæði.
Póstsendum.
Jón og Úskar
Laugavegi 70, sími 24910.
Auglýsing
um tollafgreiðslugengi í október
1982
Skráð tollafgreiðslugengi 1. október 1982:
Bandaríkjadollar USD 14,596
Sterlingspund GBP 24,835
Kanadadollar CAD 11,805
Dönsk króna DKK 1,6495
Norsk króna NOK 2,0920
Sænsk króna SEK 2,3222
Finnskt mark FIM 3,0129
Franskur franki FRF 2,0414
Belgískur franki BEC 0,2978
Svissneskur franki CHF 6,7325
Holl. gyllini NLG 5,2722
Vestur-þýskt mark DEM 5,7669
ítölsk líra ITL 0,01026
Austurr. sch. ATS 0,8184
Portug. escudo PTE 0,1652
Spánskur peseti ESP 0,1281
Japanskt yen JPY 0,05427
írskt pund IEP 19,726
Sérstök dráttarréttindi SDR 15,6603
Tollverð vöru sem tollafgreidd er í október skal miða við
ofanskráð gengi. Hafi fullbúin tollskjöl borist tollstjórum fyrir
lok október skal þó til og með 8. nóvember 1982 miöa tollverð
þeirra við tollafgreiðslugengi októbermánaðar.
Auglýsing þessi er birt með þeim fyrirvara að í október
komi eigi til atvik þau er um getur í 2. mgr. 1. gr. auglýsingar
nr. 464/1982 um tollafgreiðslugengi.
Hafi tollskjöl komið fullbúin til tollstjóra fyrir lok spetem-
bermánaðar skal tollverð varnings reiknað samkvæmt toll-
afgreiðslugengi er skráð var 1. september 1982 til og með 8.
október 1982.
Fjármálaráðuneytið, 28. september 1982.