Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.1982, Qupperneq 8
8
DV. FÖSTUDAGUR1. OKTOBER1982.
Útlönd
Útlönd
Útlönd
Útlönd
Útlönd
Sídasti dagur
Schmidts í
kanslarastóli
— Tvístirnið KohlogStrauss tekur við stýrinu
Ef ekki kemur til eitthvert pólitískt
stórundur, mun Helmut Kohl leysa
af hólmi Helmut Schmidt í kanslara-
embættinu í sambandsþinginu í dag
þar sem gengið verður til atkvæða
um vantraust á Schmidt kanslara.
Um það leyti sem DV fór í prentun
undir hádegið var atkvæðagreiðslan
aö hefjast en hún hefur verið ræki-
lega undirbúin af stjómarandstöðu-
flokkunum í slagtogi með frjálslynd-
um, fyrri samherjum Schmidts úr
ríkisstjórninni. — Kohl er öruggur
um stuðning kristilegu flokkanna
beggja og þarf ekki nema 23 þing-
mannaatkvæði frjálslyndra, sem
samþykkt höfðu raunar samstarfs-
sáttmála flokksforystunnar með 34
atkvæðum gegn 18.
I liöi frjálslyndra hefur þó komiö
upp urgur, því aö þeim mislikar
mörgum samstarfsrof Genschers við
Schmidt, og eru lítt hrifnir af sam-
starfi við Strauss, formann kristi-
legra sósíalista, sem sjaldan setur
sig úr færi við að klekkja á frjáls-
lyndum.
Franz Josef Strauss og Helmut Kohl
taka nú við stýrinu, hinn síðamefndi í
kanslarastóli.
Sósíaldemókratar hafa nú farið
með ríkisstjórn í V-Þýskalandi í 16
ár, og er Schmidt, ef allt fer sem
horfði í morgun, fyrsti kanslarinn
sem sambandsþingiö víkur úr em-
bætti. — „Við munum koma aftur,”
kallaöi Schmidt til manngrúans, sem
í gærkvöldi hafði farið í fjöldagöngu
berandi logandi kyndla, en gangan
endaöi fyrir framan heimili kanslar-
ans. Utifundir vom einnig haldnir í
Hamburg, Stuttgart og Hannover.
Var ekki annað að s já á Schmidt en
hann byggist sjálfur ekki viö að vera
daginn í dag á enda í kanslaraem-
bættinu. Meðal annars kallaði hann
flesta erlenda diplómata í Bonn sam-
an og ávarpaöi þá líkt og í kveðju-
skyni. — Hinn 78 ára sendiherra
Bandaríkjanna, náinn vinur
Schmidts, táraöist, þegar hann
faðmaöi kanslarann.
Þingfundurinn í morgun hófst á því
að Schmidt flutti ræðu þar sem hann
býöur upp á önnur úrræði en þau sem
þríhyrningur mið- og hægriflokk-
anna hefur komið sér saman um. En
Rainer Barzel, sem var kanslaraefni
kristilegra 1972, þegar svipuö van-
trausttillana gegn Willy Brandt, þá-
verandi kanslara, var felld, bar upp
vantraustið á Schmidt.
Eining" senn
rr
VILL FORNA NYRA
FYRIR BÓK SÍNA
Fyrir tólf ámm hætti Salvadore
Chevalier enskukennslu í heimaborg
sinni, Detroit, til að helga sig skrift-
um. Síðan hefur hann lokiö viö
nokkrar glæpasögur en sá hængur er
á að engin þeirra hefur fengist útgef-
in. T.d. fékk hann bestu söguna sína,
Get Dr. Kill, endursenda frá fúnm
bókaútgáfum.
Hann lagði því höfuðið í bleyti til að
finna ráð til að koma bókum sínum á
framfæri. Árangurinn af þeim heila-
brotum var eftirfarandi auglýsing í
blaðinu Detroit Daily:
,,Eg lýsi mig tilbúinn til að gefa
þeim aöila sem tekst að koma bók
minni Get Dr. Kill á framfæri annað
nýra mitt.”
— Þetta er mín síðasta von, segir
höfundurinn, sem nú er orðinn 55 ára
gamall. — Ég get vel lifað með eitt
nýra, en ég get ekki lifað án þess að
ná einhverjum árangri í starfi mínu.
bönnuðí Póllandi Kvikmyndaiðn-
nn n oirt nil linriir O n Dnnnor Knfiin nll ntn nf nnm l L' immTnr IníTnnnnirlinrtiinn nn n/i rvinn ■ imnnirtl
Pólsk yfirvöld búa sig nú undir að
reka smiöshöggið á kistu hinnar óháöu
verkalýðshreyfingar, Einingar — lík-
lega óvmsælasta aðgerð þeirra síðan
herlögúi voru leidd í gildi í desember í
fyrra.
Frést hefur að í þingnefndum sé til
umræðu nýtt lagafrumvarp um starf-
semi verkalýðsfélaga og verði það lagt
fyrir þingfund úinan tveggja vikna.
Verði það samþykkt, sem líklegt
verður að teljast, leiðir af því að leyst
verða upp öll verkalýðsfélög sem við
lýði voru áöur en herinn tók völdin fyr-
ir tíumánuðum.
Raunar hefur öll starfsemi Einingar
legiö niðri eftir að herinn tók völdin en
formlega hefur félagið ekki verið
bannað. I staöinn var látiö duga að
eúiangra helstu forúigja þess um tíma,
og leiðtogi samtakanna, Lech Walesa,
er enn hafður í stofufangelsi. —
Kaþólska kirkjan og vesturveldin hafa
hvatt pólsk yfirvöld til þess að endur-
reisa Einingu en fyrir daufum eyrum.
Það munu vera götuóeú-ðimar fyrir
mánuði, þar sem kom til átaka milli
lögreglu og verkalýðssmna í 54 borg-
um Póllands, sem getið hafa af sér
lagabreytúiguna, er nú mun í uppsigl-
ingu.
Öeirðirnar brutust út þegar lögregl-
an og herúm dreifðu mannsöfnuði sem
lét í ljós stuðning við Eúiúigu — en
ákvæði herlaganna banna fundi og
mannsöfnuð.
Jozef Glemp erkibiskup lét í ljós
áhyggjur við bandaríska blaöamenn á
miðvikudaginn, að þessi fyrirhugaða
lagabreyting mundi leiða til alvar-
legra óeú-ða. Ráðamenn virðast húis
vegar treysta því að brotinn hafi veriö
á bak aftur mótþróinn og seiglan sem
Pólver jar eru svo f rægir fyrir.
aður i bloma
Bandariski kvikmyndaiðnaðurinn er
síður en svo á undanhaldi ef trúa má
nýjustu tölum um aðsókn að kvik-
myndahúsum þar í landi sumarið ’82.
A tímabilinu maí—ágúst eyddu
Ameríkanar 1,33 milljörðum dala í bíó-
ferðir og er það 17% aukning frá sama
tímabili áriðáöur.
Vinsælasta myndrn á þessari önn var
mynd Stevens Spielbergs, E.T., og gaf
hún 235 milljónir dala í aöra hönd.
Næstar á eftir komu myndimar Rocky
IH (111 milljónir dala) og Star Trek II
(76milljónirdala).
Aðrar myndir sem einnig skiluðu
snotrum ágóöa eru Poltergeist (65,7
milljónú- dala), söngleikurinn Annie
(52,7 milljónir dala) og An Officerand
a Gentleman (45 milljónir dala).
BWI
Drukknudu
á skólaferöalagi
Tuttugu og tvö börn í skólaferða-
lagi drukknuðu í fyrradag, þegar
skemmtibát þeirra hvolfdi á
Tunjabi-vatni á Indlandi. Fjörutíu
bömum var bjargaö. Skólabörnin
voru á aldrinum 11 til 12 ára.
Sprengjur
áSpáni
Neðansjávarsprengja eyðilagði
dælustöð, sem flaut á pramma við
oúuhöfnina í Barcelóna. Var pramm-
inn um 1.300 metra frá landi.
Sprengjur voru sprengdar í tíu borg-
um á Spáni i þessari viku og ollu
miklu tjóni, en ekki meiðslum á fólkL
Vinstrisúina skæruúðum, sem kenna
sig viö Grapo-samtökin, er kennt um
þessi hryðjuverk og þau sett í sam-
band við kosningamar, sem fram
eiga að fara 28. október.
Norðmenn
pantakafbáta
Thyssen-fyrirtækið í Vestur-
Þýskalandi skýrú- frá því, að Norð-
menn hafi pantað hjá því sex kafbáta
(fyrir 800 milljónir þýskra marka).
Smiöi kafbátanna mun hefjast í
Emden-skipasmíöastöðúini 1984 og
þeir afhentir við lok áratugarins.
Norðmenn munu sjálfir leggja til
búnaðar kafbátanna, eins og vopna-
kerfi smiðað af Kongsberg vopna-
verksmiðjunum.
Gyðingaofsóknir
Skríll réðist á verslanir og hús í
eigu gyðinga í Túnis á mánudaginn
á meðan gyðingar héldu hátíðlega
Yom Kippur-helgi sma. Ruplað var í
verslunum í smáþorpinu
Bengardane við landamæri IJbýu
og eldur borinn í íbúöarhús gyðinga.
Handtók lögreglan fjölda ungmenna
en meiðsú urðu engin á fólki.
Þjófurinngleymdi
eldhættunni
Þjófur, sem reyndi að stela olíu úr
yfirgefinni oúuborholu í Gujurat-
fylki á Indlandi, lét úfið, þegar
logandi vindúngur hans kveikti í
jarðgasinu, sem lagöi frá holunni.
Hefur eldurinn í holunni nú logað í
fjóra daga. Tveir aðstoöarmenn
þjófsins slösuðust.
Nóbelslaunin
hækka
Nóbelsnefndin sænska hef ur til-
kynnt, að nóbelsverðlaunin sex verði
þetta árið 1,15 múljónir sænskra
króna en þau voru ein mUljón í fýrra.
— Verðlaunin í læknisfræöi verða
afhent 11. október og húi dagana á
eftir. Friðarverðlaunin verða afhent
íOsló.
Mannrán
Tveú- vinstrisinna hryðju-
verkamenn voru skotnir til bana í
Kóiombíu, þegar lögregla og her
bjargaöi auðugum búhökú, sem þeir
höfðu rænt á mánudag. Höfðu
rænúigjarnir krafist 100 þúsund doll-
ara lausnargjalds. Annar búgarðs-
eigandi, sem rænt hafði verið, kom
fram heUl á húfi, án þess aö nokkurt
lausnarg jald hefði verið greitt.
Finnabeinaf
fomaldardýrum
Austur-þýskir fornleifafræðmgar
hafa fundið leifar afáöur óþekktri
kjötætu sem virðist hafa verið af
stórkattarkyni. Komu þeir niður á
beinin í uppgrefti við Memingen
skammt frá Suhl í suðurhluta A-
Þýskalands. Giskaö er á að þetta
kunni að hafa verið einhver
hlébaröategund en segulrannsóknú-
benda tU þess að beinin séu yfir 800