Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.1982, Page 10
10
Útlönd
Útlönd
DV. FÖSTUDAGUR1. OKTÖBER1982.
Útlönd
Útlönd
Hið nýja kanslaraefni
Þjóðverja, Helmut Kohl
Þegar leiðtogi kristilegra demó-
krata, Helmut Kohl, verður valinn á
sambandsþinginu í Bonn í dag til aö
stýra hinni nýju samsteypustjórn
mið- og hægriflokkanna, eignast
Þjóðver jar stórkanslara. Aö minnsta
kosti líkamlega séð, því að hann er
193 sentimetrar á hæö.
En hvort nýi kanslarinn verður
jafn-mikill í verkum sínum, verður
síðan reynslan að leiða í ljós. Um það
eru ekki allir jafn-vongóðir. Ekki
einu sinni allir flokksbræöur hans,
sem sumir hefðu heldur kosið að sjá
Gerhard Stoltenberg, forsætisráð-
herra í Slésvík-Holstein, eða Ernst
Albrecht, forsætisráðherra í Neðra-
Saxlandi, í hans stað. — Jók það ekki
álit hinna lengst til hægri innan
kristilegra demókrata, hve tvístíg-
andi Kohl var í ákvörðun sinni um að
bjóða Helmut Schmidt að þessu sinni
byrginn.
Kanslaraefni kristilegra demó-
krata er fimmtíu og tveggja ára
gamall. Hann hefur veriö í þeim fá-
menna hópi vestur-þýskra stjórn-
málamanna, sem enginn hefur
treyst sér til þess að bendla viö nas-
ista Hitlerstímans. Hann fæddist 3.
apríl 1930 í Ludwigshaven á bökkum
Rínar. Foreldrar hans voru milli-
stéttar. Faðirinn starfaði sem toll-
vörður. Þegar Kohl var fimmtán ára
unglingur, var Þriðja ríkiö farið að
seilast til táninganna til þess að fylla
raöir hermanna sinna. Kohl var
sendur til þjálfunar í Bæjaralandi,
en innrásarlið Bandaríkjamanna
batt enda á hermennskuferil hans,
áður en hann eiginlega hófst. f alltof
stórum einkennisbúningi sínum, án
svo mikils sem tveggjeyrings með
gati í vösum sínum, gekk þessi upp-
gjafahermaöur 560 mílur heim til sín
til þess að ljúka grunnskólanámi.
Fyrir skólagjöldunum vann hann í
steinsmiðju og lauk undir það síðasta
doktorsprófi í stjómvísindum við há-
skólann í Heidelberg.
Kohlfékk fljóttáhugaástjómmál-
um og sautján ára gamall var hann
orðinn félagi í flokki kristilegra
demókrata. 24 ára var hann orðinn
formaður ungmennahreyfingar
flokksins. Ári síðar sat hann í fylkis-
stjórn kristilegra í Rínarland-Pfalz.
1969 var hann orðinn yngsti fylkisfor-
sætisráöherrann í V-Þýskalandi og
fjórum árum síðar yngsti formaður
landssamtaka flokksins. Konrad
Adenauer kanslari hafði mikið álit á
hinum unga manni og átti drjúgan
þátt í brautargengi hans.
29 ára gamall hafði Kohl lýst því
yfir, aö hann mundi verða yngsti
kanslari V-Þýskalands. Þegar
Rainer Brazel mistókst 1972 að fella
Willy Brandt úr kanslaraembættinu,
varð Kohl kanslaraefni samstarfs-
flokkanna kristilegra demókrata og
kristilegra sósíalista í kosningunum
1976 og tapaði. Hitt var sársauka-
meira fyrir hann, þegar Franz Josef
Strauss var tekinn fram yfir hann til
kanslaraframboðs í kosningunum
1980, en hinn mikli ósigur Strauss
opnaði nýja leið fyrir Kohl. Þó loddu
lengi viö Kohl ásakanir um aö hafa
verið of linur í þjarkinu við Strauss.
Framan af fór það orð af Kohl, að
hann væri meiri hreppapólitíkus en
landsmálamaður, en á seinni árum
hefur hann rekiö það af sér. Telja
margir honum þaö mest til ágætis,
hve vel honum hafi tekist að halda
góðri einingu innan síns eigin flokks,
þar sem hann hefur oft þurft að fara
bil beggja. Má vera aö það álit
manna að hann sé hikandi og tvístíg-
andi, þegar til stórákvaröana komi,
sé einmitt sprottið upp úr mála-
miðlunaraðferðum hans. Enda hefur
flokksbundum félögum í CDP f jölgað
upp í 707 þúsund í formannstíð Kohls,
sem er meira en tvöföldun úr tíð
Barzels.
Oákveðni Helmuts Kohls þykir
meðal annars speglast í óljósri
stefnuskrá flokksins, sem gefi lítið til
kynna um hvernig kristilegir
demókratar hyggist taka á efna-
hagsvandanum, þegar þeir komast
til valda. Þar má þó skilja að þeir
vilji efla tengslin við NATO og
Bandaríkin og koma upp eldflauga-
skotpöllunum umdeildu. Kohl er
sagður vilja herða afstöðuna til
Sovétríkjanna, en þó ekki gefa
„austurstefnuna” alveg upp á bát-
inn.
Kohl er lítt þekktur utan síns
heimalands. Hann er sagöur tónlist-
arunnandi með mestan áhuga fyrir
djassi og sígildri tónUst. HeimiU
hans er skammt utan við Ludwigs-
ha ven, og þar á Kohl forláta vínk jaU-
ara. Hann hefur játað á sig veikleika
fyrir sjónvarps-vestrum og pizzum,
en þaö er eina spUUngin sem menn
hafa orðað Kohl við. Þau hjónin,
Hannelore og Kohl, gengu ekki í
hjónaband fyrr en eftir eUefu ára
trúlofun, meðan Kohl stundaði nám.
Það var tímabil langtíma aðskUnað-
ar, en Hannelore segir, að Kohl hafi
verið ólatur að skrifa og henni borist
tvö til þrjú bréf á viku frá honum.
Heldur hún bréfunum (yfir 2000
talsins) enn til haga.
Menn segja, að Kohl sé maður
seintekinn til fylgis við málefnin, en
þegar hann gefi sig aö þeim á annað
borð, reynist hann traustur vel og
muni mikið um stuðning hans.
or á enda, sést hór fyrir framan mynd af „gamla manninum" Adenauer
kanslara, sem haföi mikið álit á hinum unga manni.
Allt í
plati
— edastríöidá
milli þeirra
appelsínugulu
ogþeirrabláu
I dagrenningu grípur von Buttlar
höfuðsmaður til sjónaukans og horfir
fastyfirEystrasalt:
— Ekki hafa þeir þó vUlst, segir
hann undrandi.
Hann á við 11 herskip sem tekiö
hafa röska stefnu á ströndina við
Eckemförde en staðnæmst skyndi-
lega nokkuö hundruð metra frá tak-
marki sinu.
— Þeir væru auðvitað löngu komn-
ir að landi ef þetta væri í alvöru, bæt-
ir hann svo við.
— Þeir vilja ekki koma, segir Uðs-
foringi sem norpar við hUð hans í
morgunkuldanum. — Þeim finnst
alltof kalt til landgöngu.
Þessar umræður eru ekki gripnar
úr nýrri stríðsmynd heldur áttu þær
sér stað við síðustu heræfingar Nato
á Eystrasalti.
En skipin komust loks að landi og
landganga hófst. Gekk hún nokkum
vegmn slysalaust fyrir sig nema
hvað eitt skip rak aftur frá landi með
þeim afleiðingum að nokkrir her-
mannanna sukku á bólakaf í hafið
með vopnum og öUum græjum.
Flestum hermannanna tókst þó að
komast tU skógar í tæka tíð, aðrir
vom „teknir til fanga” á leiðinni.
OvinU-nir voru „þeir appelsínu-
gulu”, varnarlið „þeir bláu”.
Samkvæmt áætlun var þeim síðar-
nefndu ekki ætlað að veita alltof
mikið viönám í f yrstu.
öskureiður bóndi
— Fjandinn sjálfur, hrópaöi gam-
aU bóndi i þorpinu Missunde þegar
„þeir appelsínugulu” tóku að víg-
girða kringum hlööuna hans. — Nú
hef ég sannarlega fengiö nóg af
þessu.
Aftur á móti brá hundinum hans
svo mjög við vopnagnýinn að hann
hljóp sem fætur toguðu út á akurinn
með skottið á miUi lappanna.
— Við erum bara með smáheræf-
ingu, sagði von Buttlar höfuðsmað-
ur, tU skýringar á öUum látunum.
— Áttu ekki kaffidropa handa okkur?
Á æfingadagskrá Nato hétu æfing-
ar þessar „Bold Guard” (djarf-
mannleg vöm) og stóðu þær yfir í
fimm daga í héraðinu Schleswig-Hol-
stein. I henni tóku þátt 46.000 her-
menn frá fjórum löndum, með ÖU
hugsanleg nútima hergögn. „Bold
Guard” er aftur á móti liður í sam-
tals 26 heræfingum Nato í haust, á
timabiUnu frá septemberlokum tU
miðs nóvembers. AHs taka 820.000
hermenn þátt í æfingum þessum.
Heiðursgestur við æfingu þessa
var sovéski ofurstinn K.I. Tscher-
jomuchin og var hann iðinn við að
festa á fUmu undir leiðsögn vestur-
þýskra liðsforingja sem gættu þess
vel að hann missti ekki af neinu. Var
hann boðinn tU leiks samkvæmt
Helsinki-sáttmálanum frá 1975 þar
sem fjallað er um gagnkvæm skipti á
fulltrúum við heræfingar Nato og
Varsjárbandalagsins. Það skal þó
tekið fram að Varsjárbandalaginu
fannst ekki ástæða til að halda þann
samning við sínar heræfingar í
hajust.
Heiðursgesturinn
hvað
mein/ausastur
Annars má segja að Tscherjo-
muchin ofursti hafi verið hvað mein-
lausastur austantjaldsnjósnara viö
heræfingu þessa, enda allar hreyf-
ingar hans fyrirfram ákveðnar.
Samkvæmt upplýsingum fréttaþjón-
ustu hersins bars rafeindahlerunar-
Uði Austur-Þjóðverja talsverður liðs-
auki fyrir æfinguna. Tvö sovésk
njósnaskip lágu á hleri undan strönd-
um Eystrasalts. Á hverjum degi óku
nýir og nýir bíla úr hersendisveit
Sovétmanna yfir æfingasvæðið. Og
við tilflutning á Hawkeldflaugunum
mátti sjá skipverja á austur-þýska
kaupskipinu Sangerhausen mynda
atburðinn í gríð og erg.
Annars er það einkum tvennt sem
háir haustæfingum Nato í ár: Fjár-
skortur og umhverfisvemdunarsjón-
armið.
Fyrir fjórum árum stóð „Bold
Guard” æfingin yfir í 10 daga. Nú var
hún helmingi styttri. Einnig var
skrúfaö fyrir að hermennirnir fengju
vín með kvöldmatnum. Fyrir f jórum
árum ollu æfingarnar umhverfis-
skaöa sem kostaöi Nato 30 milljónir
v-þýskra marka. Nú var sá póstur
tæplega 20 milljónir marka.
Enda fékk hver hermaður dreifi-
bréf fyrir æfinguna með nákvæmum
leiðbeiningum um hvernig þeir ættu
að forðast skemmdir á umhverfinu.
Þar stóð m.a. að ekki mætti nota ann-
an við en sjálffallin tré og hrís. Þeir
máttu ekki fara um vissa, friðaða
vegi og ekki reka nagla í tré. Eða
eins og einn þýskur liðsforingi orðaöi
það: Þetta var reglulega biHeg græn-
ingjaæfing (Þýtt ogendursagt
úr West am Sunntag)