Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.1982, Qupperneq 29
DV. FÖSTUDAGUR1. OKTÖBER1982.
37
Sviðsljósið
Sviðsljósið
Sviðsljósið
Fyrsta f ramsýníng vetrarins á stóra sviði Þjóðleikhússins:
Garðveisla eftir Guðmund Steinsson
sem þegar hefur hlotiö nokkurt umtal
Nýjasta leikrit Guömundar Steins-
sonar var frumsýnt á stóra sviðinu í
Þjóöleikhúsinu síöastliöinn fimmtu-
dag. I verkinu er áleitinn siðferðis-
boöskapur og lagt út af sögunni um
Adam og Evu og aldingarðinum og
lífinu sem Guð gaf þeim. 1 leikritinu
er fylgst meö Adam og Evu í
aldingarðinum. Smám saman
fjarlægjast þau upprunann og Adam
og Eva eldri taka viö. Leikurinn
endar síðan í mikilli veislu-orgíu.
Spurt er um missi Paradísar — í
sögunni gömlu — og hugsanlegan
missi aldingarðsins Jarðar á
kjamorkuöld.
Leikstjóri sýningarinnar er María
Kristjánsdóttir. Þetta er fyrsta
verkefni hennar fyrir Þjóðleikhúsiö
en hún hefur leikstýrt hjá
Leikfélagi Reykjavíkur, Akureyrar
og Húsavíkur svo eitthvað sé nefnt.
Leikmynd og búninga gerir Þórunn
Sigríður Þorgrímsdóttir sem starfað
hefur töluvert fyrir Þjóöleikhúsið og
Leikfélag Reykjavíkur. Tónlistin við
sýninguna er eftir Gunnar Reyni
Sveinsson, en hann gerði t.d.
leikhljóö við síðasta verk Guðmund-
ar Steinssonar. Ásmundur Karlsson
annast lýsinguna.
Aðalhlutverk í leikritinu leika
Kristbjörg Kjeld og Erlingur Gísla-
son (Adam og Evu eldri) og auk
þeirra fara með stór hlutverk Jórunn
Sigurðardóttir og Guðjón Pedersen
(Adam og Eva yngri) og Ragnheiður
Arnardóttir. Þau þrjú síðastnefndu
eru í hópi yngri leikara okkar.
Jórunn er að stíga sín fyrstu skref á
fjölum Þjóðleikhússins en Guöjón
kom fram í Dansi á rósum og
Þórunn Sigríður Þorgrímsdóttir, hönnuður leikmyndar og búninga, og
María Kristjánsdóttir leikstjóri voru meðal þeirra, sem kynntu verkið
fyrir blaðamönnum. (D V-m ynd Einar Óiason).
Ragnheiður í Gosa og Snjó. Fjöldi
annarra leikara kemur við sögu, svo
sem Tinna Gunnlaugsdóttir, Borgar
Garðarsson, Sigmundur Amgríms-
son, Helga Jónsdóttir, Sigríður
Þorvaldsdóttir, Gísli Alfreðsson,
Steinunn Jóhannesdóttir, Bessi
Bjarnason, Þórhallur Sigurðsson,
Sigurður Sigurjónsson og síðast en
ekki síst Haukur Morthens.
Höfund leikritsins, Guðmund
Steinsson, þarf vart að kynna.
Undanfarin ár hafa leikrit hans
jafnan notiö hylli, t.d. Sólarferð (76)
og Stundarfriður (78).
Garðveisla hefur sem kunnugt er
vakið óvenjumikla athygh, og urðu
töluverð blaöaskrif um „ósiðsemi” í
verkinu og það nokkrum mánuðum
áður en f mmsýnt var.
ás.
Á meðan gestir i Garðveislu koma
til veislu syngur tónlistarmaður —
Haukur Morthens — lag.
. . . en að lokum snýst hún upp i orgiu.
Hór takast Adam og Eva eldri (Kristbjörg og Eriingur) á i einu atriði
leiksins.