Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.1982, Qupperneq 32
NYJA
AGFAFILMAN
ÓTRÚLEGA SKÖRP
OG NÆM FYRIR LITUM
ÓDÝRARI FILMA SEM
FÆST ALLS STAÐAR
LOKI
Nú er fokið í flest
eyrnaskjól. Nú á að ioka
fyrír Kanann.
Skotið á
spennivirki á
Skagaströnd
SíÖastliðinn laugardag var skotiö á
spenni í spennivirki í Hrafndal sem er
ofan við Skagaströnd. Við það brann
spennirinn yfir og spennufail varö.
Vegna þessa varö þorpið vatnslaust í
meira en 20 klukkustundir.
Ekki hefur enn tekist aö hafa upp á
þeim sem skutu á spenninn, aö sögn
Þórs Gunnlaugssonar, lögreglumanns
á Skagaströnd, en stöðugt er unniö að
rannsókn málsins. I því sambandi var
sóttur maöur til Akureyrar en ekkert
virðist benda til aö hann sé viöriöinn
málið, sagöi Þór. Frímann Hilmarsson
varðstjóri á Blöndósi stjórnar rann-
sókninni.
Ekki vildi Þór nefna neinar töiur um
tjón vegna þessa skemmdarverks en
sagöi ljóst aö þaö væri mikiö. Búiö væri
aö skipta um spenni en mikiö glópalán
væri aö dælumótorinn skyldi ekki eyöi-
leggjast líka.
Aðlokum sagöi Þór Gunnlaugsson aö
lögreglan heföi kúluna úr byssunni
undir höndum og yröi hugsanlega hægt
aö nota hana við rannsóknina. -JBH
Farmenn
f unda enn
Sáttafundur í kjaradeilu undir-
manna á farskipum og skipafélag-
anna var boðaður hjá sáttasemjara
klukkan hálftvö í gærdag og stóö
hann enn klukkan 9 í morgun. Um
sjöleytiö í morgun lagði sáttasemjari
fram sáttatillögu til athugunar fyrir
samninganefndir deiluaðila og var
hún enn í skoðun þegar blaöiö fór í
prentun. ÓEF
Flutt á slysadeild
með reykeitrun
Slökkviliöiö í Reykjavík var kvatt
aö Kaplaskjólsvegi 29 um klukkan
hálftólf í gærmorgun.
En þaö kom á staðinn var tölu-
verður reykur í einni íbúðinni og
jafnframt var sagt að miklar líkur
væru á að kona svæfi i henni. Þegar
til kom reyndist þaö rétt. Fannst hún'
inni í svefnherberginu. Grunur lék á
aö hún hefði fengiö reykeitrun og var
hún því flutt á slysadeild Borgar-
spítalans.
Ekki reyndist vera eldur í íbúðinni,
en hins vegar voru matarleif ar í potti
sem brunnu við meö þeim afleiðing-
um að íbúðin mettaöist af reyk.
-JGH.
86611
RITSTJÓRN
SÍÐUMÚLA 12—14
AUGLYSINGAR
SÍÐUMÚLA 33
SMÁAUGLÝSINGAR
SKRIFSTOFA
AFGREIÐSLA
ÞVERHOLTI 11
27022
FÖSTUDAGUR 1. OKTÓBER 1982.
Spádómarýmissa þingmanna um stormasamt upphaf kosningaþings:
BJARGRAÐiN BBNT
(NEDRIDEILD?
„Framsóknarmenn og alþýöu-
bandalagsmenn eru nú úti meö öll
leitardufl. Hvorir um sig eru dauö-
smeykir viö aö hinir verði á undan til
þess aö finna heppileg leikbrögð á
kosningaþinginu, sem nú stendur
fyrir dyrum. Upp úr þessu hafa meö-
al annars sprottiö sterkar raddir,
einkum hjá framsóknarmönnum,
um aö skella bráöabirgöalögum
ríkisstjórnarinnar strax beint í neðri
deild og láta á þaö reyna hvemig
„frávillingamir” bregöast við og
ýmsir stjórnarandstæöingar.”
Þetta em orð stjórnarandstöðu-
þingmanns, sem DV ræddi viö í vik-
unni. Fleiri þingmenn af þeim væng
á Alþingi eru svipaörar skoðunar.
Skoöanir stjómarsinna em meira á
reiki, samkvæmt viðtölum viö
nokkra þeirra. En sumir þeirra neit-
uöu ekki þessari hugmynd um meö-
ferö bráðabirgöalaganna — eöa
bjargráöanna.
,,Ég tel þetta sama sem óhjá-
kvæmilega leiö, þótt þaö sé óvíst aö
þingið losni úr sjálfheldunni þar
meö,” sagði einn stjórnarþing-
manna. ,,Staðan veröur að komast á
hreint í formlegri afgreiðslu á þing-
inu. Þaö snýr bæði aö þeim Eggert
Haukdal og Albert Guömundssyni,
en ekki síður aö stjómarandstööunni
almennt. Ýmsir þingmenn í hennar
hópi hljóta aö hugsa sig tvisvar um
áöur en þeir bregða fæti fyrir ráö-
stafanir ríkisstjómarinnar.
Að meginhluta eru ráöstafanimar
nákvæmlega sams konar og
stjómarandstæöingar hafa áöur
beitt viö líkar aðstæður. Þá er þaö
ljóst aö stjórnarflokkarnir hafa
meirihluta á þingi og ég tel aö ýms-
um stjóraarandstæöingum þyki
ógeðfellt að spila á úrelta deilda-
skiptingu þingsins.”
„Ríkisstjórnin var krafin um aö
kalla Alþingi saman þegar bráöa-
birgöalögin vora í deiglunni. Þaö
geröi hún ekki og ber því alla ábyrgð
á framvindu mála,” sagöi einn
stjórnarandstæðinga. „Þaö er yfir-
lýst að stjórnarandstaðan greiöir at-
kvæði á móti bráðabirgðalögunum
og þau falia því í neöri deild á jöfnum
atkvæðum.”
Samkvæmt ofansögöu gæti svo
fariö aö bráöabirgðalögin yröu felld
strax í þessum mánuði. Þar með
væri ríkisstjómin komin formlega í
sjálfhelduá Alþingi.
HERB.
Vegurínn fyrír Ólafsvíkurenni er frægur eða illræmdur öllu liggur alveg niður við sjó. Þegar hann kemst í gagnið verður
heldur. Skriðuföll eru tíð og vegurinn hættulegur. Nú eru hann mikil samgöngubót milli Ólafsvíkur og Hellissands.
hafnar framkvæmdir við nýjan veg fyrir Ennið. Sá vegur DV-myndirEinar Ólason.
Vinna hafm a ny a
vatnasvæði Þjórsár
virkjanamenn samþykktu miðlunartillögu ríkissáttasemjara
Vinna er nú hafin á ný við virkjanir
á vatnasvæði Þjórsár. Vinnustöðvun-
um iðnaðar- og verkamanna, sem
hófust 7. og 15. september, var aflýst
eftir að miðlunartillaga Guðlaugs
Þorvaldssonar ríkissáttasemjara
varsamþykktígær.
Verkamenn samþykktu miðlunar-
tUlöguna meö 65 atkvæðum gegn 52,
einn var auður; sex rafvirkjar sem
greiddu atvkæði sögðu allir já; tíu
málmiðnaðarmenn samþykktu en
einn var á móti; en af tíu smiðum á
kjörskrá greiddu aöeins þrír
atkvæði, einn sagöi nei, einn skilaði
auðum seðli og einn ógildum.
Er innsigluð atkvæði atvinnurek-
enda voru opnuð að lokinni atkvæða-
greiðslu starfsmanna kom í Ijós að
allir höfðu þeir samþykkt miðlunar-
tillöguna.
Helstu breytingar á k jarasamning-
um eru þær að þeir sem unnu ó virkj-
anasvæðunum fyrir verkfall og
halda áfram vinnu eftir verkfall fá
sex prósent kauphækkun fró 1. júli
þessa árs. Þeir sem ekki verða viö
vinnu eftir verkfall fó hins vegar
fjögur prósent kauphækkun frá
sama tima.
Töluverðar breytingar verða á
bónuskerfi, meöal annars þær að þak
verður sett á bónus. Þá eru ókvæði
um að verkfærapeningar veröi þeir
sömu og greiddir era í byggð. Kemur
þetta ákvæði aðallega rafvirkjum til
góða. Ennfremur verður hér eftir
sami launataxti fyrir alla iðnaðar-
menn á svæðinu. Er þetta smiðum og
málmiðnaðarmönnumihag. -KMU.