Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.1982, Blaðsíða 36
DV. ÞRIDJUDAGUR 23. NOVEMBER1982.
36
DÆGRADVÖL
DÆGRADVÖL
DÆGRADVÖL
„ Guðsorðabækurnar eru yfirleitt ódýrar, "segir Bragi Kristfónsson, en bókin sem hann gluggar í þarna kostar einar litlar 30.000 krónur. Þetta er útgáfa
Peringskiölds af Heimskringlu frá 17. öld. Mynd BH.
„Feikileg virðingarstaða
að selja gamlar bækur'’
„Menn eru aö furða sig á því hvað
það eru margar fornbókaverslanir í
Reykjavík en það er ekkert skrítið.
Það eru s vona 3—5.000 titlar til sölu hjá
forlögum landsins til samans. En á
þessari öld einni hafa verið gefnar út á
Islandi milli 50.000 og 100.000 bækur og
mikið af því efni er enn í gildi þótt það
sé uppselt,” segir Bragi Kristjónsson í
Bókavörðunni.
—Hvers konar fólk er þaö sem sæk iir
þessar verslanir helst?
„Þaö er nú viss kjarni sem alltaf er á
ferðinni og fylgist grannt með því sem
kemur inn. Safnaramir láta okkur vita
af hlutum sem þá vanhagar um og eru
að leita að en mest er þetta fólk sem
ætlar að kaupa ódýrar bækur til lestrar
ogafþreyingar.” '
— Af hverju ákvarðast verðlagið
aðallega?
„Aldurinn skiptir miklu en það er
ekki bara hann. Guðsorðabækur frá
fyrri öldum eru til dæmis yfirleitt
ódýrar og þær sem eru frá síöustu öld
eru oftast nær einskis virði. Það stafar
af því aö í nærfellt 250 ár voru gefnar út
— segir Bragi Krist jónsson bokakaupmaður
Bækurnar breytast og mennirnir með.
Bækur
Baldur Hermannsson
5—6 bækur á ári, næstum einvörðungu
guösoröabækur nema örfáar um nátt-
úrufræði. Sjaldgæfar bækur eru alltaf
dýrari, svo og þær sem eru vel með
farnar.”
— Vildirðu selja nýjar bækur?
,,Æ nei, það held ég ekki. Ef ég
kemst yfb- bók í sellófan þá er ég
snöggur að rífa það utan af henni, ég
vil ekki sjá þetta bölvað drasl. Það eru
svo mikil samskipti kringum gamlar
bækur, menn eru látiaust að hringja og
spyrjast fyrir, stundum utan úr heimi.
Erlendis er þetta feikileg virðingar-
staða að selja gamlar bækur, í Sviss og
Þýskalandi eru þeir með doktor á
doktor ofan. Þetta er líka afar virðu-
legur bransi i Ameríku og Englandi og
ríkar tradis jónir í honum.’ ’
— Finnst þér Islendingar ekki sýna
starfinu tilhlýðilega virðingu?
„Það er nú kannski út af þessari and-
styggilegu nafngift. Fombókasali —
þetta minnir strax á skransala eða
brotajámsala. Fólk fær einhverja dul-
vitaða óbeit á stéttinni út af þessu
klaufalega nafni. Ég vil kalla okkur
bókakaupmenn.”
Og í þeim svifum kom ung kona
stormandi inn og bað hann blessaðan
að hafa uppi áBólu-Hjálmari fyrir sig.
Þá ætti hún allan flokkinn....
Miðdrymbis á Hverfisgötu
Miðdrymbis á Hverfisgötunni
stendur Bókavaröan, víöfeðmur sal-
ur og bjartur með tugþúsundir gam-
alla bóka og nýrra á hillum og gólfi.
Henni á aðra hönd er nýtisku kvik-
myndahús meö ótal sali og æsispenn-
andi sýningar fram á nætur. Þar
næst kemur vegleg myndbandaleiga,
fjörmikið dekurbarn nútímans, og
skammt undan er önnur mynd-
bandaleiga.
Bókavarðan stendur þama
álengdar eins og varöturn virðu-
legrar menningar sem þverskallast
við að hörfa, umkringd víghreiðrum
tískufjölmiðlanna og berst við þá
vægðarlausri baráttu um sálirnar í
brjóstum vegfarenda og krónumar
í vösum þeirra.
,JEn hörðust er þó samkeppnin frá
vinsölunni þama hinumegin,” segir
Bragi Kristjónsson bókakaupmaður.
„Ofterumennaðvelkja því fyrirsér
hvort þeir eigi nú að eyða krónunum
hér eða þar og oft er þetta ansi mikið
sálarstríð. Þeir sem koma hingað til
mín fara nú sjaldnast þangað á
eftir.”
Hvers konar töfrar em það sem
draga mennina á vit hinna fornu
bóka af þvílíkum krafti að sjálfur
Bakkus konungur lýtur í lægra
haldi? Er það þráin eftir varan-
legum verðmætum — þrá þeirra
manna sem notið hafa froðunnar af
sýndarmenningu nútímans og þarfn-
ast nú bóka eins og ungur svallari
þarfnast fjörefna eftir annasama
helgi?
Auglýsingaskrum bókaforlaganna
nær ekki inn í þennan varðtum til
þess að villa um og blekkja. Hér em
allar bækur laugaðar sínu rétta ljósi,
góöar bækur era góðar,vondar
bækur vondar, tíminn hefur skilið
hismið frá kjamanum. Héma ræður
lögmál hins frjálsa markaöar: Sjald-
gæfar bækur kosta mikið, algengar
bækur er hægt að fá fyrir lítið, gott
lesefni, góðir höfundar og gott ásig-
komulag er einnig metiö að verð-
leikum.
Fombókasalan er varðturn bók-
menntanna en hún er einnig bólvirki
hins frjáisa markaðar og tollheimtu-
menn hins opinbera fá hér engu ráðið
um verðlag, tap og hagnað. Forn-
bókasalan er afskekktur heimur þótt
honum sé fyrir komið við eina höfuð-
götu borgarinnar.