Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.1982, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.1982, Blaðsíða 9
DV. MIÐVIKUDAGUR1. DESEMBER1982. Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd Kennedy ætlar ekki i framboð Edward Kennedy öldungadeildar- þingmaöur mun kunngera í dag aö hann gefi ekki kost á sér til framboös fyrir forsetakosningamar 1984, sam- kvæmt því sem blaöiö „Boston Globe” segir. Blaðiö segist hafa áreiöanlegar heimildir fyrir þessu meöal nánustu aöstoöarmanna þingmannsins, en hann muni sjálfur lýsa þessu yfir á blaðamannafundi í Washington. Kennedy reyndi 1980 að ná útnefn- ingu Demókrataflokksins til forseta- framboðs en tapaði fyrir þá sök aðal- lega aö menn vom ekki búnir aö gleyma Chappaquiddickslysinu, þar sem ung stúlka í bíl meö honum fórst. Hann var sýknaður af allri ábyrgð á slysinu en var einn til frásagnar og hafa menn aldrei verið fyllilega ásáttir viö skýringar hans á slysinu. Samt var af öilum talið víst aö hann mundi stefna aö forsetaframboði aftur 1984, þótt fjölskylda hans hefði lagt að honum aö gera það ekki. Bræður hans tveir, John F. Kennedy forseti og Robert Kennedy öldungadeildaþing- maður, féllu báðir fyrir morðingja- hendi. Ted Kennedy er sagður ætla að láta eftir fjölskyldu sinni og stefna ekki að forsetaframboði. Undirritun haf réttar sáttmálans á dagskrá Austur-Þýskaland hefur ákveöið að samskipti. undirrita hafréttarsáttmála Samein- uðu þjóðanna og hvetur önnur ríki til þess sama svo að bæta megi' alþjóða Á meðan hafa hægri flokkar Vestur- Þýskalands lagst gegn hafréttarsátt- málanum, sem þeim þykir aö muni i Biðu f I júgandi diska reyndinni útiloka landið frá náma- vinnslu á hafsbotninum. Bonn-stjórnin mun ákveða í dag af- stöðu sína til undirritunar sáttmálans en forystumenn þingflokka kristilegra demókrata og kristilega sósíalbanda- lagsins segja að sáttmálinn sé of óhag- kvæmur fyrir V-Þýskaland. 48 ára gömul bandarísk kona og 38 ára gamall vinur hennar trúðu svo staöfastlega á f ljúgandi diska og heimsóknir vera utan úr geimnum að það kostaði konuna lífið. Hjúin settust að í bíl sínum á afskekktum stað á snjóþungu svæði í Minnesota og biðu þar eftir lendingu fljúgandi diska. Er vinir þeirra höfðu saknað þeirra í mánuð geröi lögreglan leit að biinum. Var þá konan frosin í hel en vinur hennar lá meðvitundar- laus viö hliö hennar. Ekki nægði þetta þó til að draga úr trú mannsins því þegar hann raknaði við á sjúkrahúsi var fyrsta hugsun hans sú að komast aftur á sama staö til að bíða eftir f ljúgandi diskum. Hafréttarráöstefnan kemur samaná Jamaíka 6. desember til þess að undir- rita sáttmálann, sem samþykktur var af 130 ríkjum í apríi síðasta vor. Þurfa að minnsta kosti sextíu ríki að undir- rita hann til þess að hann taki gildi. Nokkur ríki (þar á meðal Banda- rikin) hafa látið á sér skilja að þau muni ekki undirrita sáttmálann en menn ala á vonum um að þau muni undirrita hann síöar. FÆR GERVI- HJARTA ÚR ÁU Bandarískir skurðlæknar ráögera aö græða gervihjarta gert úr „polyu- rethane” og áli í sextíu og eins árs gamlan mann frá Seattle. Hann var lagður iila á sig kominn inn á háskólaspítala í Utah á mánudags- kvöld og var samþykkt af læknaráði spítalans aö ráðast í aögerðina. Hann er þjakaður af „cardiomyopathy”, sem er eins konar visnun eða hrörnun hjartans og verður ekki læknaö með aðgerð eða meðalagjöf. Þetta er þriðja tilvikið þar sem gervihjarta verður sett í mann. Síðast í júh' 1981 var sett plasthjarta í 36 ára gamlan sjúkhng í Texas enhann lifði aðeins viku með gervihjartað. Fyrsta skiptið var 1969 en sjúklingurinn lifði þá ekki nema hálfan annan sólarhring með nýjahjartað. Síðustu námskeið fyrírjó/ Æf INÖA8TÖÐIN) i • ENGIHJALLA 8 • 1^46900 J býður upp á: NÁMSKEIÐ 1: NÁMSKEIÐ 2: NÁMSKEIÐ 3: SKÍÐANÁMSKEIÐ 1. Upphitun 2. Þrek 3. Þol 4. Teygjur Æfingar alla daga kl. 12—13 e.h. eða kl. 20.30—21.30 e.h. Færir þjálfarar, Kristleifur og Arsæll, fara eftir viðurkenndu kerfi. Nuddpottar, saunaböð og góðar sturtur. Ljós og nudd ef þess er óskað. Innritun er haf in í síma 4 rw i i ALDRAÐIR - LEIKFIMI, HRESSING, FÉLAGS- SKAPUR LEIKFIMINÁMSKEIÐ 1. Liðkandi æfingar 2. Styrkjandi æfingar 3. Skemmtilegar æfingar 4. Hressandi æfingar Tillitssamir og reyndir kennarar taka á móti ykkur við komuna. Æfingar alla daga kl. 14—14.45. Nuddpottar, sauna, sól og nudd kl. 14.45—16.00. Kaffisopi í skemmtilegum félags- skap. INNRITUN ER HAFIN í SÍMA JANEFONDA LEIKFIMI - LOKSINS - 1. Styrkjandi 2. Qdisháðar æfingar (þolæfingar) 3. Grennandi æfingar (puð) 4. Skemmtileg músikleikfimi Kennarar: íris Gústafsdóttir, Jónína Benediktsdóttir. Æfingar alla daga kl. 10—11 f.h. eða kl. 20.30—21.30 e.h. Nuddpottar, saunaboð, ljós, nudd, góðar sturtur. INNRITUN ER HAFIN í SÍMA 46900.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.