Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.1982, Side 10

Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.1982, Side 10
10 DV. FIMMTUDAGUR 9. DESEMBER1982. Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd Stefnir i verd stríð um landbúnaðar- afurðir Oveöursskýin hafa hrannast upp yfir alþjóöamörkuöum aö undan- fömu þar sem stööugt grynnir á því ■ góöa í milliríkjaverslun vegna auk- innar tilhneigingar til vemdar- og haftastefnu í viðleitni ríkisstjórna til þess aö styöja viö innlenda fram- leiösluá krepputímum. Þaö er einkum framleiöslan á landbúnaöarafuröum sem mörgum sýnist stefna beint í veröstríð milli Bandaríkjanna annars vegar og Efnahagsbandalags Evrópu hins vegar. Vinskapur þessara tveggja landbúnaöarrisa hefur fariö ört kóln- andi síðustu árin. Telja Bandaríkja- menn sig ekki mikiö lengur geta unaö ódrengilegum brotum EBE á leikreglunum í milliríkjaversluninni þar sem eru niöurgreiöslurnar og ríkisstyrkirnir á landbúnaðarvömm jafnt til útflutnings sem til neyslu innanEBE-landanna sjálfra. Landbúnaðarráðherra Bandaríkj- anna sagði fyrir fáum vikum aö ein- staklingurinn heföi ekki bolmagn til þess aö keppa við ríkissjóði EBE- landanna og Washingtonstjómin yröi aö taka senn upp hanskann fyrir bandaríska bændur. Hótaöi hann beinlínis aö Bandaríkjastjórn, sem kaupir alla offramleiðsluna á mjólkurvörum af sínum bændum, myndi velta öllu smjör- og ostafjall- inu yfir á útflutningsmarkaöina meö tilheyrandi undirboöum ef EBE ekki' sæiaösér. ; Meö þessa misklíð og fleiril ágreiningsefni í veganestiö mættu viöskiptaráöherrar 88 iðnaðarríkja og þróunarlanda á Genfarfund Alþjóöa tolla- og viöskiptabanda- lagsins (GATT) á dögunum. Umræöur voru hinar áköfustu og fundarstörf stóöu langt fram á kvöldin þessa fimm daga sem ráö- stefnan stóö. Utkoman var sautján síöna plagg, yfirlýsing sem þótti meistarastykki í diplómatískri orö- fimi. Eöa eins og einn ráöherranna orðaði það á fundinum: „fallega innpakkaö búnt af oröum”. Um hitt efuðust flestir, aö yfirlýsingin mundi hafa nokkur áhrif til þess að draga úr vemdunaraögeröum einstakra ríkja á sviöi landbúnaöar og iðnaðar. Fæstir ráöstefnumanna töldu aö fundurinn heföi heppnast vel. Menn voru orðvarir eftir á í ummælum sínum um fundarstörfin og yfirlýs- inguna og virtust leggja sig fram viö aö egna ekki til ýfinga. William E. Brock, viöskiptaráðherra Bandaríkj- anna, sagöi að árangur heföi náðst á sumum sviöum og aö víst væri tolla- bandalagiö enn viö lýði. En jafnvel þeir umtalsbestu játuöu aö mikiö verkefni biði úrlausnar á næstu mán- Offramboð i landbúnaoaraturoum hefur aukið hörkuna i samkeppninni um útflutning og niðurgreiðslu■ stefna EBEþykir ýmsum vera óbiigirni. uðum því að GATT-ráöstefnan heföi ekki náö settu marki. Umsagnir bandarískra þingmanna síöan, sem ekki hafa getað leynt von- brigöum sínum meö lítinn árangur af viöræöum viö EBE, benda til þess aö naumast verði langt aö bíöa þess aö Bandaríkjaþing taki til íhugunar aögerðir til vemdar sínum land- búnaði og öömm útflutningsiðnaði. Margir þeirra segjast hafa fengiö nóg af niðurgreiöslu- og vemdar- stefnu Evrópu í útflutningi og aö hugsa veröi til mótleiks. Allir nefna mjólkurvörur sem fyrsta mótleik til þess aö byrja veröstríöiö meö. Þrátt fyrir almennt oröalag GATT- yfirlýsingarinnar á Genfarfund- inum, sem þótti lítiö bindandi, sá EBE þörf til séryfirlýsingar þar sem lögö var áhersla á aö Efnahags- bandalagið teldi sig ekki bundið af samkomulaginu til þess aö draga úr eöa hætta niöurgreiöslum og útflutn- ingsbótum á landbúnaðarvörum. Þaö var oröalag samkomulagsins umaðsetja útflutningssamkeppnina „undir meiri aga” sem EBE vildi taka af allan vafa um hvemig þaö væritúlkað. Þessi séryfirlýsing Efnahags- bandalagsins þykir ekki gefa til kynna aö EBE ætli aö taka nöldur Bandaríkjamanna ýkja alvarlega. En kvisast hefur samt frá aðalstöðv- um EBE í Briissel aö þar hafi mönnum ekki orðið um sel þegar heyröist hverjar umræöur væm vaknaöar í Washington. Viö ramman mun þó reip að draga sem eru bændasamtökin og landbúnaöurinn hjá EBE því aö samstarfiö á land- búnaðarsviöinu þykir vera þunga- miöjan í öllu starfi Efnahagsbanda- lagsins og erfitt viö aö hrófla ööm- vísi en stefna í voða tilveru þess. Nýja mafían í Þýskalandi Sú var tíöin aö vestur-þýskir versl- unareigendur héldu aö „vemdar- trygging” væri fjárkúgunaraögerö sem hvergi fyndist nema í amerískum glæpamyndum. En svo er ekki lengur. Þegar búöareigendur neituöu að láta kannski allt aö 65 þúsund krónur af hendi rakna á mánuöi í „vemdartryggingu” rigndi yfir verslanir þeirra og matsölur íkveikjusprengjum og skemmdar- verkum. Af tvennu illu velja nú hundruð smákaupmanna víöa í V- Þýskalandi heldur aö borga bóf- unum. Fjárkúgunin er þó sögö aöeins brot af þeirri skipulögðu glæpastarfsemi sem farið er að bóla á í V-Þýska- landi. Sakamálasérfræöingar em famir að tala um ,,nýja mafíu” sem láti aö sér kveða ' vændi, eiturlyfja- sölu og bankarár jm, svo að dæmi séu nefnd. Og „Nyja mafían” viröist gera þaö gott. Sérfræðingar lögregl- unnar ætla að hún velti ekki minna en 160milljörðum króna á ári. Vestur-þýska lögreglan hefur eins og aörir starfsbræöur hennar í noröurhluta álfunnar þakkað sínum sæla fyrir að þurfa ekki aö glíma viö skipulagða glæpahringi og þá er höfð í huga marghöföa ófreskja eins og mafían á Italíu og í Bandaríkjunum, glæpaskipulagningu á landsvísu. Fyrir ekki svo mörgum ámm hefðu þaö þótt fjarstæðukenndir órar að ímynda sér slíkan óhugnað í þróuöu ríki eins og V-þýskalandi. Nú segja lögregluforingjar aö milli fjömtíu og fimmtíu glæpaklíkur hafi skotiö rótum í landinu. Starfa þær rétt eins og systurfélög þeirra í Bandaríkjunum og á Italíu meö skiptingu svæöa á milli sín, eigiöfor- ingjakerfi og heföbundnar inntöku- athafnir og viðhlítandi „viöurlög” ef einhver kjaftar í yfirvöldin og lögregluna. Einhverjar þessar glæpafjöl- skyldur eru blandaðar Þjóöverjum og júgóslavneskum innflytjendum en flestar glæpaklfkurnar em saman- settar af ítölskum „Gastarbeitere” eins og Þjóöverjar kalla erlenda farandverkamenn. Enda leynir þaö sér ekki á vinnubrögðunum sem em meö „ítölsku sniöi”. Mafíuglæpum hefur fjölgaö um „3000 ”, eins og þýskur lögreglu- maður komst að oröi um þróun síðustu ára í viötali viö fréttamann fréttaritsins „Newsweek” á dög- unum.Þó hefur armur laganna ekki krækt í einn einasta ítalskan glæpa- kóng, enda kannski ekki við því aö búast því að aðalheilamir á bak við starfsemina halda sig suöur á Italiu. Segir v-þýska lögreglan aö stórlax- arnir séu sjálfir um kyrrt í öruggu skjóli á Sikiley en fjarstýri starfsem- inni meö milligöngu erindreka sinna sem standa þeim svo aftur skil á hagnáðinum. Yfirvöld i Þýskalandi hafa rekiö sig á ýmis hom í baráttunni gegn skipulagöri glæpastarfsemi. Það þykir til dæmis til einskis aö reyna að leggja aö ítölskum yfirvöldum að handtaka glæpaforingjana. Bæði sé þaö ekki líklegt til sjáanlegs árangurs og mundi sennilega spilla sámbúö Italíu og Þýskalands. Skipu- lagning réttarkerfis og löggæslu í V- Þýskalandi auöveldar auk heldur Vakandi auga kvikmyndavólarinnar náði þessari mynd af bankaræningjum að verki i Köln en mafian er sögð skipuleggja sum bankaránin. ekki baráttuna. Það er engin ein alríkislögregla í sambandslýð- veldinu heldur skiptist lögreglan í tíu sjálfstæðar einingar eftir fylkjum. Þá er ekki heldur til neinn einn upp- lýsingabrunnur eöa tölvumiðstöö meö öllum tiltækum upplýsingum,. staðfestum eða grunuöum, um mafíuna. Núna í september í haust komu foringjar úr lögregluliði fylkj- anna tíu saman til sérstakrar „mafíu” herráöstefnu til viöræöna um leiöir og sameinað átak gegn glæpaöldunni. Þaö leiddi til stór- sóknar gegn mafíunni í fimm fylkjum en útkoman var ekki önnur en nítján handtökur og flestar fyrir vægarsakir. Baráttan gegn mafíunni er ofar- lega á stefnuskrá hinsnýja kanslara, Helmuts Kohls, sem sagður er yfir- vega hvort ekki eigi aö gera hana aö kosningamáli fyrir marskosning- arnar fyrirhuguöu. Löggæslan hefur fundiö hvatningu í því aö hægri flokkar skuli komnir til valda og sækja af ákafa eftir meiri fjárveit- ingu til eflingar baráttunni gegn glæpum. Meöal annars hafa lögregluforingjar lagt til að fylgt veröi fordæmi lögreglunnar í Banda- ríkjunum með því aö gera út af örk- inni leynierindreka sem laumi sér inn fyrir raöir mafíunnar. Aörar aöferðir þykja ekki líklegar til veru- legs árangurs. Þó gengur lögreglan um þessar mundir fast eftir því aö fá frjálsara umboö til húsleitar og greiöari aögang að upplýsingum annarra opinberra stofnana. En jafnvel þótt kanslarinn kunni aö vera allur af vilja gerður til þess að auð- velda löggæsluna þá eiga slíkar hug- myndir ekki mikið upp á pallboröiö hjá Þjóðverjum sem eru afar fast- heldnir á friöhelgi einkalífsins og heimilanna. (EndursagtúrNewswcek).

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.