Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.1982, Qupperneq 15

Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.1982, Qupperneq 15
DV. FIMMTUDAGUR 9. DESEMBER1982. 15 Menning Menning Menning Menning Þessi mynd er tekin úr bók Guðmundar og undi'r henni stendur: Einn af fulltrúum verkalýðsins á samningafundi sýnir einum af fulltrúum atvinnu- rekenda auðmýkt sina og lotningu. Hið rétta er að hér er Jón Helgason, formaður Einingar á Akureyri, að óska Barða Friðrikssyni, lögfræðingi Vinnuveitendasambandsins, til hamingju með afmælið ■ (bls. 44) meö þessu er Jón aö reyna aö kaupa hann. En „ungi maðurinn var alls ekki til sölu. Það var ekki einu sinni hægt aö treysta honum til aö hlaupa ekki meö málin út fyrir stjómina, og stundum sigldi hann m.a.s. fram hjá stjórninni og sneri sér beint til félaganna á félagsfundum.. ”, segir Guömundur og er aö vonum hróðugur. Guömundur fer eftir þeirri kenningu sinni að „hinn al- menni félagi verkalýöshreyfingarinn- ar er miklu færari um aö stjóma henni en flokksblindaðir saltstólpar” og býöur fram lista til stjórnarkjörs. Svo bregöur viö í frásögninni aö ekki er annað aö sjá en aö Guömundur standi einn gegn fjölmennu illa innrættu liði Jóns sem undir stjóm hans beitir skipulögöum rógi og níði um „unga manninn” til aö tryggja sér sigur og áframhaldandi völd. Svo er reyndar líka annars staöar í bókinni. „Orólega deild’” Alþýöubandalagsins og fylkingarfélagar fá sömu afgreiðslu og stjórnmálaflokkamir, eru „til í aö makka og gera baksamninga”, og má því „líta á þennan hóp aö mörgu leyti sem, fimmta flokkinn”. Þaö er Guömundur einn sem aldrei og hvergi hvikar frá hinum sanna málstaö. IMefndir og völd f níunda kaflanum er listi (með myndum að sjálfsögöu) með nöfnum 36 verkalýösforingja og nefndarstörf af ýmsu tagi sem þeir hafa meö hönd- um. Kemur væntanlega engum á óvart aö þar er að finna fulltrúa og varafull- trúa í bæjarstjórnum, ýmsum nefnd- um, sem t.d. fjalla um málefni aldr- aöra, fatlaöra og dagvistarmál. Hvaöa spillingu hér er verið að fletta ofan af er ofar mínum skilningi en segja má aö hér eigi viö sem um annað efni bókar- innar að „hálfsannleikur oftast, óhrekj- andilygl” Samsærisvefur En nú æsist leikurinn. Næst kemur kafli um Vinnuveitendasambandið. I ljós kemur aö atvinnurekendur er aö finna í öllum stjómmálaflokkum. Þeir eru í frímúrarareglunni og þar má finna líka ýmsa verkalýösforingja. Verkalýösforingjar eru líka í stjórnum ýmissa atvinnufyrirtækja. Þræðirnir í samsærinu liggja víöa. Þá kemur samvinnuhreyfingin, eigandi margra stórfyrirtækja og Framsóknarflokks- ins. Samsærisvefurinn stækkar. Þá er rööin komin að ríkisvaldinu sem býr sig margvíslegum dulargervum. Embættismenn eru í stjómmála- flokkunum og frímúrarareglunni, BSRB er einnig angi af þessu kerfi í dulargervi launþegasamtaka. Og yfir allri hræsninni trónar ríkissáttasemj- ari „meö geislabaugi hins algera hlut- leysis og dæmalausrar sanngirni og réttsýni”. Skuggaleg erlend öfl En aö fleiru er aö hyggja. Viö neyöumst til aö selja afurðir okkar til útlanda og kaupa inn vömr frá erlend- um kaupahéönum. Viö tökum þátt í margvíslegu erlendu samstarfi og formlegum samtökum. Allt opnar þetta leiðir til áhrifa á íslenskt sam- félag. I útlöndum hafa hreiöraö um sig skuggaleg öfl sem þegar að er gáð standa í nánum innbyrðis tengslum. Þarna era fjölþjóölegir auðhringir, Rockefellerættin leynifélagið CFR, Bilderberghópurinn meö Geir Hall'- grímsson og Bjöm Bjarnason innan- borös, NATO og fleiri klúbbar sem hingaö teygja anga sína gegnum Varö- berg, Samtök um vestræna samvinnu og annan skuggalegan félagsskap. Markmiö þessa samsæris er arðrán alþýðu en hámarksgróöi yfirstéttar, eyðilegging lofts, láös og lagar með mengun og þrotlaus útþensla nýrrar tækni sem þó má ekki verða til aö bæta lífskjör hinna mörgu. Gimsteinninn Aö lokum kveöur Guömundur Sæmundsson lesanda sinn meö ósk um aö sjá hann síðar í baráttunni. Mér er óskiljanlegt aö nokkur maður sem trúir efnisframsetningu þessarar bókar, láti sér detta í hug aö sækjast eftir trúnaðarstöðum innan verkalýös- hreyfingarinnar. Svo gegnumrotin og gerspillt er hún aö mati höfundar aö fánýtt væri aö föndra viö einstakar umbætur. Svo úrræöalaus er Guðmundur raunar gegn hinum tröll- aukna samrana allrar spillingar heimsins aö vandséö er hverju erindi hann sjálfur hefur aö gegna í baráttu viö örlítinn anga spillingarinnar í fá- mennu plássi á hjara veraldar. Enda er þetta ekki bók um verkalýðshreyf- inguna. Bókin birtir okkur heimssýn GuömundarSæmundssonar. Þrotlausa baráttu afla ljóss og myrkurs. Bólu-Hjálmar kvaö á sinni tíö: Víöa til þess vott ég fann, þótt venjist oftar hinu, aö Guö á margan gimstein þann, sem glóir í mannsorpinu. Eftir lestur þessarar bókar er ljóst aö Hjálmar kallinn fór meö ýkjur. Gimsteinninn í mannsorpinu er aöeins einn — GuömundurSæmundsson. Heimssýn höfundar Þaö hlýtur aö hafa verið af einhverju svipuöu tilefni og útkomu þessarar bókar, sem öm Arnarson kvaö á sinni tíö: Mikið er um hjá mýi á skán meö mælgi og látum skrítnum. Þaðlofarþámildiog miklarþaölán aö mega lif a í skítnum. Hver kúadella er kostaland Þá kenning er skylt aö boöa, aö jöröin sé skítur, hafið hland og himinninn keitufroða. Þaö er sú mynd sem þessi bók gefur af heimssýn Guðmundar Sæmundsson- ar. Ólafur Hannibalsson TIL HANS TIL HENNAR Guðrún Svava Svavarsdóttir: Þegar þú ert ekki Höfundur gerði myndirnar Iðunn 1982 Aldrei slíku vant ber útlit og tilhög- un bókar augljósa merkingu: brot bókarinnar, pappírinn, rósin í mynd- skreytingu ljóðanna höföar allt saman lesandanum til algengrar út- gáfu „bestu ástarljóöa”. Bók til að gefa unnustunni, eiginkonunni, elskhuganum viö hentugt tækif æri! Og víst er ástin yrkisefniGuörúnar Svövu. Þaö er kunnara en þurfi aö segja frá því aö ljóö hennar era oft um og upp úr hennar eigin skilnaðar- máli, beram oröum og beinlínis og án þess aö fara í neinar skáldlegar felur með efniö. Þaö er nú engin nýlunda, síöur en svo, aö yrkja um sín eigin tilfinningamál, þótt hitt kunni aö vera nýtt, minnsta kosti hér hjá okk- ur, aö gera einkahagi sina og sinna nánustu meö þessu móti aö bókar- efni. Annars staöar hefur þetta verið lenska í bókmenntum undanfarin ár: það er tikkanen-tískan, sem svo má kalla, og ekki til neinnar eftir- breytni, hvaö sem ööra líöur um rit þeirra góðufinnsku hjóna. Þetta er aö vísu mest undir lesandanum komiö. Enginn segir honum aö lesa ljóö Guðrúnar Svövu í Þegar þú ert ekki, eöa lesa þau ein- vöröungu sem frásögn af einkalífi hennar. Auðvitað er þaö trúlegt aö margur grípi til bókarinnar af ein- skærri forvitni um einkamál. En ansi finnst mér hætt viö aö slúðurgildið geti í verki spillt bókinni fyrir lesanda, lokað fyrir honum ljóöun- um, en skáldlegt gildi þeirra fari á hinn bóginn vaxandi, veröi til þegar slúðriö þverr og dvínar. Og þaö er lesandans aö ráöa fram úr því. Nú hafa auðvitað fleiri gengið í Guðrún Svava: Ástin sem lifsform og lifsgildi. Bókmenntir r Olaf ur Jónsson gegnum hjónaskilnaöi en höfundur þessara ljóöa. Og kannski spurning hvort skilnaðurinn sjálfur sé eigin- legt efni þeirra þótt hann auðvitaö sé tilefni ljóðanna. Hér er öllu heldur ort um ástina sem lífsform og lífs- gildi, Guðrún Svava kemur sínum einföldu oröum aö tilfinningum sem áreiðanlega era algengar íástalífi og hjónaböndum, lýsir eins konar ferli frá beiskju og heift, þegar ástin bregst, um einmanaleik og angist til sátta við sjálfa sig, nýrrar bjartsýni aö lokum. Það er ekki þar meö sagt aö tilefni ljóöanna skipti engu máli. ööru nær. Þvert á móti takast þau, gildi þeirra ræðst af því hve ein- földum og látlausum oröum tekst aö koma aö reynslu sem eflaust er almenn og algeng en jafnframt sér- stök hverju sinni, af því að lesandinn trúir aö dagsatt sé sagt. Þetta á auðvitað aö sýna og sanna meö tilvitnun í bókina. Og þá vandast málið af því hvaö bókin er stutt, ljóðin einföld, textinn samfelld- ur — hætt við aö bæöi bók og lesanda sé gert rangt til aö tilfæra of mikið úr henni, rjúfa samhengi efnisins. Veröur samt aö reyna þaö: Húnbentiáþig: Égvilhann. Og ást mín varö gömul. Áöur umvaföi þögn þín mig traust og hlý en nú þögnin Þegaröldurlægir og góösemi vinanna fjarar út hvaðþá? Þaö er allt svo undarlegt þegar þú ert ekki. Ég ráfa eins og svefngengill um hús- iö enþúertekki. Ef til vill er þaö einsog dauðinn? Hann kemur aftur, segir fólk. „Hann kemuraftur.” En enginn viröist reyna aö skilja aö mín bjargarvon er aö lif a ein, sjálf ogán þín. Orðin, ljóðin eru fjarska einföld hvert um sig. En saman miðla þau tilfinningaferli sem lesandi auðveldlega nemur sem sannleika. Og engu líkara en batinn sem ljóðin vilja lýsa felist beinlínis í vanda sjálfra þeirra, aö kveöa rétt aö til- finningu, skiljast viö hana meö því aöskiljahana. Og vert er að geta þess að bók Guörúnar Svövu er mjög fallegur hlutur, hin einfalda myndskreyting hæfir ljóöunum eins vel og á verður kosið. Víst er þetta bók sem vel sóm- ir „í jólapakka”. Handa honum. Og handa henni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.