Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.1982, Qupperneq 26
26
DV. FIMMTUDAGUR 9. DESEMBER1982.
LAUSSTAÐA
Hafnamálastofnun ríkisins óskar aö ráða
viöskiptafræöing. Verkefni: bókhald, endur-
skoöun og kostnaöareftirlit.
Umsóknarfrestur til 10. des.
Hafnamálastofnun ríkisins,
Seljavegi 32, sími 27733.
í safnadar/ieiniili Búslcidakirkju í
kcöld, finimludaginn 9. des., kl.
20.30.
Geslur fundarins: Sr. Árni Pálsson.
Kctffi og med því — bögglauppbod
og g/nislegl f leira lil skeninilunar.
Eigum fyrírliggjandiá COLTbíla:
Krómaðar toppgrindur fyrir skíöi og þ.h.
Mottusett.
Merktar aurhlífar, aftan og framan.
Spoiler, svartan aftan á kistulok.
Spoiler, svartan undir framstuðara.
Sendum ípóstkröfu.
fssó;
NESTI TRYGGVABRAUT 14
Pantanasími 96-21365 og 96-25075.
Akureyri.
Adeins
316,00.-
Er
þetta
ekki
rétta
jóla-
gjöfin?
^l. Pálmason hf.
ÁRMÚLA 36, S. 82466
Hljómsveit Þorsteins Magnússonar var ein þeirra sveita sem fram kom á
maraþontónieikunum i Tónabæ sem hófust um helgina. Á myndinni eru,
talið frá vinstri: Jakob S. Magnússon, bróðir Þorsteins, Þorsteinn og Pétur
Hjaltested.
Músíktilraunir ’82 í Tónábæ:
LIFANDI
1 ENNING
Þaö virðist ekkert lát vera á tónlist-
arsprengingunni sem fór af staö meðal
ungs fólks hér á landi um og upp úr
1980. Hvarvetna eru menn í bílskúrum
og skólum og spila og spila. Aö undan-
förnu hefur afrakstur allrar þessarar
spilamennsku komið fram á músík-
tilraunum SATT í Tónabæ. Þar hafa
komið fram og munu koma fram
hvorki meira né minna en 22 nýjar
hljómsveitir, allar með frumsamið
efni og flestar skipaöar fólki á
aldrinum 14—20 ára.
Tónleikarnir 2. desember voru
fjörugustu tónleikarnir til þessa. Þar
komu fram 6 hljómsveitir sem eru
góður þverskurður af því sem er aö
gerast í tónlistarmálum unga fólksins í
dag.
Fyrstir voru Medium frá Sauðár-
króki. Sú hljómsveit er nýstofnuð,
aðeins tveggja mánaða gömul en hefur
þegar náö langt. Þeir spila þétt popp-
rokk og gefa jafnöldum sínum á
höfuðborgarsvæðinu ekkert eftir. Þeir
sögðust vera komnir til að bera sig
saman við aðrar hljómsveitir. Hið eina
sem þeir hefðu á Sauðárkróki væri
hljómsveit Geirmundar Valtýssonar.
Á eftir þeim spilaöi Trúöurinn sem er
úr Hagaskóla og er skipuö 15 ára
drengjum. Þeh- spila pönk af þyngrí
gerðinni, eiginlega þróað pönk af
ógnarlegum krafti og fjöri. Mér fannst
þessi hljómsveit vera sú næstbesta á
kvöldinu og er illa svikinn ef ekki á
eftir aö hey rast meira f rá henni í f ram-
tíðinni.
Þriðja hljómxveitin hét Utrás. Hún
er úr Kópavogi að mestu og spilar
þungarokk sem enn virðist njóta
mikilla vinsælda hér á landi eftir 12 ár.
Þeir Utrásarmenn þurfa að bæta sig og
æfa meira til aö ná tökum á því sem
þeir eru að gera. Hljóðfæraleikararnir
viröast hver fyrir sig vera sæmilegir,
en þeir þurfa að ná betur saman.
Garöabæjarhljómsveitin Signaltus
var næst á dagskrá. Sú hljómsveit
rekur áhrif sín til eldri hljómsveita en
flestar hinna. Þeir félagar eru góöir
hljóðfæraleikarar og hafa nokkuð sér-
stakan stíl. Þeir eru ekki beinlínis
fjörug hljómsveit og lög þeirra voru
sum nokkuð langdregin. Þó veröur aö
telja að þeir geti átt framtíöina fyrir
sér ef þeir halda sig við efnið.
Síðustu tvær hljómsveitirnar vöktu
mesta eftirtekt þetta kvöld. Dans-
hljómsveit Reykjavíkur og nágrennis,
DRON, spilar geysiskemmtilegt dans-
rokk. Þeir hafa lag á að koma fólki í
gott skap og ósjálfrátt fara fætur
manns af staö. Hljómsveitin er frá
Kópavogi, en þar hefur verið fjörugt
tónlistarlíf í kjölfar vinsælda
Fræbblanna. Greinilegt er að meðlimir
DRON eru farnir að kunna ýmislegt
fyrir sér og þeir voru besta sveit
kvöldsins að mínum dómi og annarra.
Á eftir þeim lék Centaur. Þaö er
þungarokkshljómsveit sem hefur náð
góöum tökum á þeirri tónlistarstefnu.
Söngvarinn er mjög góður. Centaur
ætti aö geta náð vinsældum, kannski
þegar búin að ná vinsældum, en
tónlistin sem þeir spila er oröin einum
of gömul fyrir minn smekk.
Áhorfendur greiddu atkvæði um
bestu hljómsveitirnar og voru þau
talin á meðan besta hljómsveit
landsins, Þeyr, spilaöi nokkur lög. Ur-
slit urðu þau að DRON sigraði eins og
búast mátti við, Centaur varö í öðru
sæti, Signaltus í þriðja, Trúðurinn í
f jóröa sæti, Medium í fimmta og Utrás
rak lestina. Tvær efstu hljóm-
sveitirnar taka síöan þátt í úrslita-
keppninni þann 12. desember ásamt
sigurvegurunum frá hinum
kvöldunum.
Líklegt er að með öðrum eins áhuga
og kom þarna fram verði Islendingar
búnir að eignast nokkrar frábærar
hljómsveitir eftir svosem tvö-þrjú ár.
Þá verður rokktónlist útflutningsvara.
-ÁDJ.
Togarasaga Guðmundar Halldórs
er
sannkölluð
sjómannabók
Guðm. J.
Guðmundsson
Jónas
Guðmundsson
Saga
Guðmundar
Halldórs togaramanns nær
yfir langa ævi, allt frá að búa
í steinbyrgjum og róa áraskipum
fyrir aldamót, til hnoðaðra járnskipa.
Jónas Guðmundsson nær ótrúlega
góðu sambandi við þennan tröllvaxna
karakter. Viðtal Jónasar við Guðmund
J. Guðmundsson son hans, er hreint
gull. Þar lýsir Guðmundur heimilis-
föðurnum Guðmundi Halldóri, Verka-
mannabústöðunum gömlu, kjörum
alþýðumannsins og daglegu lífi hans.
og
brimsölt
' JÍítitA S &S 0
TOGARAMAOURiNN
t.UOMÞNDUR HAitÖÖR
og sonor x*»s
ouówusíOu* i
?0{j
Bókaútgáfan Hildur
Skemmuvegi 36 Kópavogi
Símar: 76700 - 43880