Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.1983, Blaðsíða 30
Byrjað var á miklu hlaupi yfir íbókasafnið og voru nokkrir kennarar með iþví
Lestrarrall hafið
í Mosfellssveit
— nemendur tíu ára bekkjar í
Varmárskóla lesa 20 bækur á 10 vikum
Allóvenjulegt rall hófst í Varmár-
skóla í Mosfellssveit í fyrradag. Hér er
um aö ræöa svokallaö lestrarrall, sem
er í því fólgið aö allir nemendur í tíu
ára bekk eiga aö lesa 20 bækur á næstu
10 vikum. Aö því loknu svara þeir
nokkrum spurningum um hverja bók
og gera úr henni útdrátt. I lokin verður
síöan happdrætti þar sem dregið
veröur úr númerum allra þátttakenda.
Ralliö hófst meö því aö allur hópur-
inn, um 110 börn, var ræstur viö
Varmárskóla og hlupu síöan allir sem
fætur toguðu yfir í bókasafnið, sem er í
gagnfræöaskólanum. Þar var mikill
handagangur í öskjunni; hver og einn
fékk aö velja sér 20 bækur meö aöstoð
kennara. Sérstakt eyöublaö fylgir og
fær hver nemandi dagstimpil á það, aö
loknum lestri hverrar bókar. Alhr sem
klára 10 bækur fá viðurkenningu.
Hugmyndina aö þessu lestrarralli á
Jón Sævar Baldvinsson, safnvöröur í
Héraösbókasafni Kjósarsýslu, en safn-
iö stendur aö rallinu ásamt Varmár-
skóla. Jón sagöi að tilgangurinn meö
því væri að efla lestraráhuga nem-
enda. Tíu ára árgangurinn væri valinn
vegna þess aö nám í lesfögum hefst
einmitt í tíu ára bekk. -PÁ
Mikii eftirvænting rikti meðal barnanna er úthlutað var gögnum i rallinu. Jón Sævar Baldvinsson
bókavörður er lengst til vinstri.
DV-myndir Bjarnleifur.
Véladeild Sambandsins:
Heldur endurmennt-
unamámskeið
fyrir starfsmenn
I rekstri fólksbíla-, vörubíla- og
tækjaverkstæðis Þjónustumiðstöðvar
véladeildar Sambandsins aö Höfða-
bakka 9 í Reykjavík hefur veruleg
áhersla veriö lögö á endurmenntun
starfsmanna. Þjónustumiöstööin hélt á
nýliönu ári fjölda námskeiöa sem öll
þjónuðu sama markmiöi, það er að
auka gæöi viðhalds- og viðgerðar-
þjónustu jafnt verkstæða Þjónustu-
miöstöövarinnar sem umboðsaðila
hennar um allt land. Fengnir voru sér-
fræðingar frá framleiösluaöilum til
þess aö halda fyrirlestra og hafa á
hendi stjóm á þessum námskeiðum.
I byrjun ársins var haldiö námskeiö í
viðhaldi og viðgeröum International
Harvester dráttarvéla. Stjóm þess var
í höndum Ian Brewster frá Doncaster í
Englandi. Þátttakendur í námskeiðinu
voru starfsmenn vörubíla- og tækja-
verkstæðis Þjónustumiöstöövarinnar. starfsmönnum Þjónustumiðstöðvar-
A næstu mánuðum veröur efnt til innarogþjónustuaðilumumalltland.
fjölda námskeiöa og boðið til þeirra jbh
Ályktun atvinnumálanefndar Keflavíkur:
Sjávarút-
vegsfynr-
tækií
erfiðleikum
Atvinnumálanefnd Keflavíkur hélt
fund í upphafi mánaöarins og álykt-
aði um atvinnumál á Suðumesjum.
Lýsir nefndin áhyggjum sínum
vegna alvarlegs ástands hjá sjávar-
útvegsfyrirtækjum í bænum, Hraö-
frystihúsi Keflavíkur, sérstaklega.
Lögö er áhersla á aö stjórnvalds-
aögeröir verði að koma til, ef leysa á
vanda þessarar atvinnugreinar.
Síðan segir: „Nefndin skorar á alla
atvinnurekendur á Suðurnesjum aö
láta Suðurnesjamenn ganga fyrir
þeim störfum sem til falla á svæöinu
og ítrekar fyrri ályktanir sínar um
að stéttarfélög standi á rétti umbjóð-
enda sinna í þessum efnum. Jafn-
framt telur nefndin alls óverjandi aö
erlendir ríkisborgarar sitji aö störf-
um, sem tslendingar hafa og geta
unnið.”
Einnig kemur fram í ályktuninni
að á vegum nefndarinnar er unnið að
könnun á búsetu starfsfólks á at-
vinnusvæði Suðurnesja.
JBH