Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.1983, Page 31
DV. MIÐVIKUDAGUR 23. FEBRUAR1983.
31
Sandkorn
Sandkorn
Sandkorn
Hermann horfir
hljóður á meðan
Bjarni lýsir í búri
við Laugaveg
Hermanu Gunnarsson,
íþróttafréttaraaöur útvarps,
fór utan til Hollands á
bádegi í gær. Ætlunin var aö
hann lýstí leikjum tsiands í
heimsmeistarakeppninni í
handknattleik í beinni út-
sendingu í útvarpið.
Eftir aö Hermann var
lcgöur af stað utan fóru for-
ráðamenn útvarps aö hug-
leiöa máliö aftur. Komust
■þeir aö þeirri niöurstööu í
gær aö óþarfi væri aö Iýsa
beint í útvarp sömu leikjum
og sýndir veröa beint í sjón-
varpi. En þaö furðulega er
aö Hcrmann veröur ekki
nýttur til aö lýsa sjónvarps-
leikjunum, heldur Bjarni
Felixson sem sitja mun í'
hljóðeinangruöu búri í húsi
sjónvarpsins viö Laugaveg.
Á meðan á Hermann bara
aö horfa hljóður á leikina í
HoUandi.
Stiklur Svenis
forseta
Þingmúli, blað sjálfstæðis-
manna á Austurlandi, er ný-
kominn út. Sverrir Her-
mannsson alþingismaður
skrifar að vanda mikið í
blaðiö og heggur á báðar
hcndur í pólitikinni. En að
vanda slær hann á lcttari
* strengi. Þannig er að jafnaði
eindálkur á baksíðu blaös-
ins, Stiklur, þar sem sagðir
eru nokkrir léttir. Trúlega
kemur Sverrir nálægt Stikl-
unum, þótt engum sé merkt-
ur dálkurinn.
í Stiklum áöurnefnds Þing-
múla mátti m.a. lesa þessa
sögu: „Stikluhöfundi var eitt
sinn sögð sú saga að Jökul-
dælingur nokkur hafi fyrir
langa löngu verið á ferö fót-
gangandi eftir þjóöbrautinni
skammt frá bæ sínum ásamt
hundi einum, gömlum og fót-
lúnum, og boriö byssu sér
víð hönd. Þá hafi borið þar
að bifreið úr Reykjavík —
sem fór svo greitt og óvar-
lega aö hundgreyið varö
fyrir bilnum og lá þegar
dauður. Bifreiðarstjórinn
snarstansaöi, vatt sér þegar
út úr bilnum, greinilega miö-
ur sin og mjög óðamála.
Bauð hann þegar háar bætur
fyrir hundinn og áður cn
bóndi fékk við nokkuð ráðið
né orði upp komið, hafði öku-
maður stungið drjúgum
skildingi í vasa hans. Að svo
búnu settist ökumaður upp í
bifreið sína- en sagði um leið
eins og til afsiikunar: „Ég
, vona bara að ég hafi ekki
.eyðilagt fyrir þér veiðiferð-
ina.” Þá loks fékk bóndi upp
stunið: „Veiðiferðina? Ég
var nú bara að fara yfir í
kvosina þarna til að lóga
hundspottinu.”
Deleríum Tímans
Ef cinhver DV-Iesandi
skyldi hafa glapist á orð-
hcngilsdropum Timans, sem
reyndi að sprauta i útjask-
aðan brandara um cldri
tima þýðendavillur, ferskri
DV-frétt um samdrátt í
viskiframlciðslu Skota, er
kannski við hæfi að árétta að
fyrirtækið DistiIIers er vist
til. Það framleiðir Johnny
Walker, Black & Whíte,
Haig, Vat 69 og meira af
ágætu viskíi. FuIIu nafni
heitir það DistiIIers Com-
pany (beint þýtt eftir orð-
anna hljóðan „Eimarafyrir-
tækið”). Distillers í munni
viskimanna misskilst svona
ámóta og þegar Eimskip í
munni Islendins er tekið fyrir
almennt orðaval um skip knú-
in gufuvélum en ekki Eim-
skipafélag íslands hf.
Gjöf ríkis
stjórnarinnar
íslendingafélagið í Osló
hélt upp á sextíu ára afmæli
sitt um síðustu helgi. Þar
voru að vonum mættir marg-
ir landar og þar á meðal
hluti þeirra fulltrúa sem
komu að heiman til þess að
sitja Norðurlandaþingið.
Þeirra á meðal var Friðjón
Þórðarson dómsmálaráö-
herra.
Dómsmálaráðherra flutti
tölu og óskaði félaginu til
hamingju. Þá tilkynnti ráð-
herrann að rikisstjórnm
hefði ákveðið að gefa félag-
inu í gjöf í tilcfni timamót-
anna. Biðu menn spenntir að
heyra hvcr gjöf stjórnarinn-
ar væri. Ráðherrann varð
hins vegar að viðurkenna að
ríkisstjórn tslands væri cnn
ekki búinn að ákveöa hver
'gjöfiu ætti að vera og þótti
auðsjáanlega nokkuð pínlegt
þótt vcislugcstir hefðu gam-
an af.
Umsjón
Olafur B. Guðnason
SKEMMTILEG
SUMARHÚS
Eitt mun örugglega henta yður
Nú getum við boðið úrval glæsilegra sumarhúsa i öllum stærðum, sem þér getið fengið á ýmsum bygg-
ingarstigum.
En vinsælust eru frágengin hús, því þá er allt innifalið og ekkert annað eftir en að flytja inn. Kynnið ykkur
verð og gæði húsanna, því að hér er um einstakt tækifæri að ræða.
LAND UNDIR SUMARHÚS
Félög og fyrirtæki ættu að athuga að við getum boðið stórt land undir sumarhús á fallegum stað í Vatna-
skógi.
B.H. SUMARHÚS
Auðbrekku 44—46 Kópavogi
(Dalbrekkumegin)
Upplýsingar í síma 46994.
BREIÐHOLTI /A1 SÍMI 76225 (/“*-1 Fersi fc blóm di K/A\ miklatorgi SÍMI22822 iglega.
Rafsuðuvéiar og vír ■
Haukur og Ólafur
Ármúla 32 - Sími 37700.
.WWSWWWSVvWVWWWVWNXNWVVWWW::
Hafnarfjörður
og nágrenni
Þeir sem áttu útvarpsviðtæki í viðgerð hjá Einari Long, er
hann féll frá, eru beðnir að vitja þeirra í Verslun Valdimars
Long, Strandgötu 41, Hafnarfirði, fyrir laugardag 26/2.
Verslunin hættir um næstkomandi mánaðamót.
Verslun Valdimars Long,
Strandgötu 41, Hafnarf.
; £
leigöur út til funda og
skemmtanahalds. Heitt eöa
kalt borö, kökur, snittur og
kaffi.
fLaus staða
hjá Reykjavíkurborg.
Reykjavíkurborg vill ráöa starfsmann til eftirtal-
ins starfs:
Starfskjör samkvæmt kjarasamningum.
• Starf gjaldkera í innheimtu Fjármáladeildar RR er laust til
umsóknar.
Upplýsingar veitir fjármálastjóri RR, Jón
Björn Helgason.
Umsóknir skulu vera skriflegar og greina m.a.
frá menntun og starfsreynslu auk almennra per-
sónulegra upplýsinga.
Umsóknum ber að skila til starfsmannahalds
Reykjavíkurborgar, Pósthússtræti 9, 6. hæö,
fyrir kl. 16.00, miövikudaginn 2. mars 1983.