Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.1983, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.1983, Blaðsíða 24
DV. FIMMTUDAGUR 3. MARS1983. Stúdentaleíkhúsið auglýsir eftir íslenskum frumsömdum leikritum til sýninga næsta vetur. Um getur verið að ræða einþáttunga eða leikrit í fullri lengd. Drög að leikritum sem krefjast nánari útfærslu koma einnig til greina. Skilafrestur er tii 30. maí næstkom- andi. Utanáskrift: Stúdentaleikhúsið, Vonarstræti 1, 101 Reykjavík. Verkstjóri Starf verkstjóra Hveragerðishrepps er laust til umsóknar. Umsóknarfrestur er til 14. mars næstkomandi. Umsóknir sendist undirrituðum sem ásamt tæknifræðingi veitir aliar nánari upplýsingar um starfið í síma 99-4150. Hveragerði 2. mars 1983 SVEITARSTJORINN I HVERAGERÐI PANTANIR Sími 13010 HÁRGREIÐSLU- STOFAN KLAPPARSTÍG 29 SÓL-SAUNA SNYRTING Komið i Ijós i okkar frábæru Silver Super sólarbekki (einnig með háfjallasói) og fáið á ykkur fallegan brúnan lit og losnið við alla streitu. Sauna og góð hvíldaraðstaða. Öll almenn snyrting: and- litsböð, húðhreinsun, hand- og fótsnyrting o.fl. Jafnt fyrir konur sem karla. gft§ Heilsuræktin, Þinghólsbraut 19, Kópavogi, sími 43332. VERSLANIR! Hin sívinsœla og myndarlega FERMINGAR- GJAFAHANDBÓK kemur út 19. mars nk. Þeir auglýsendur sem áhuga hafa á ad auglýsa í FERMINGA K GJA FAHANDB ÓKINN1 vinsamlegast hafi samband vid auglýsingadeild DV, Sídumúla 33, eöa í síma 82260 milli kl. 9 og 17.30 virka daga fyrir 5. mars nk. Hjálparstofnun kirkjunnar: DREIFIR NU100 TONNUM ÆRKJÖTS í PÓLLANDI Þann 1. mars var skipaö upp úr ms. Bæjarfossi í Gdynia, Póllandi, 100 tonnum af ærkjöti á vegum Hjálparstofnunar kirkjunnar en kjötinu verður síðar í vikunni dreift, í samvinnu við kaþólsku kirkjuna í Póllandi, til Pólverja sem búa við erfiðar aðstæöur. I janúar var dreift á vegum Hjálparstofnunarinnar 200 tonnumaf ærkjöti. Hjálparstofnunin, Rauði krossinn og ríkissjóður lögöu fram fé til kaupa á kjötinu, en eftirstöðvar af söfnun- arfé úr Póllandssöfnuninni frá fyrra ári, sem Hjálparstofnunin ásamt Al- þýðusambandi íslands og kaþólsku kirkjunni á Íslandi stóðu aö, runnu til þessa verkefnis. Fyrir flutninginn á kjötinu greiðir Alkirkjuráðið. Þá hefur Hjálparstofnunin gengið frá kaupum á 60 tonnum af saltaðri síld sem send verður til dreifingar í Póllandi seinni hluta þessa mánaðar eða í byrjun apríl. Alkirkjuráðiö lagöi fram f é til kaupa á síldinni. Hjálparstofnun kirkjunnar hefur þar með staöiö aö matvælasending- um til Póliands er nema 600 tonnum, en grundvöll aö þessum hjálparsend- ingum hefur íslenska þjóðin lagt með f rjálsum framlögum sínum. MAM/starfskynning Sjávarafurðadeild SÍS: Upplýsingarit um íslenskar sjávarafurðir Sjávarafurðadeild SlS hefur nýlega gefið út 40 bls. litprentað upp- lýsingarit á ensku um íslenskar sjáv- arafurðir. Ritið hefur meðal annars aö geyma myndir af fiskum auk upp- lýsinga um veiðar og vinnslu þeirra. Efni ritsins er allt dregið saman og unnið af Sjávarafurðadeild. Mik Magnússon fór yfir enska textann, Mikael Fransson auglýsingateiknari sá um uppsetningu og útlit. Jörundur Pálsson listmálari teiknaði fiska- myndir í ritiö en hann teiknaði þær á sínum tíma fyrir fiskakort Sjávaraf- urðadeildar sem fyrst var gefið út fyrir f jórðungi aldar. Upplýsingar um veiði, útflutning o.fl. sem birtar eru i þessu riti fyrn- ast fljótt sé þeim ekki haldið við. Því hefur verið ákveðið að gefa árlega út „Statistical Supplement” eöa rit- auka með tölulegum upplýsingum. Hugmyndin er hins vegar að endur- nýja ritið sjálft á þriggja til fimm ára fresti. -SGV MIKLAT0RGI SÍMI 22822 Fersk blóm daglega. ISHIDR ________vogir, fyrir verksmiðjur, frystihús, sláturhús, kjötvinnslustöðvar, vöruafgreiðslur o. fl. Vatnsvaröar Vogarpallar afýmsum gerðum Miða- prentari DAP-20 MEÐ EÐA ÁN PRENTARA Strimil- prentari m j. io kn it • /«S ■ «sn ; - - J' Bi Skýrir stafir í Ijósaborði. Þægilegt takkaborð. Auðvelt að þrífa. DAP-10 * Vogarþol. 5 stærðir: 6 kg, 30 kg, 150 kg og 300 kg. * Vogargerð. 4 gerðir: Fyrir raf- hlöður, með verðútreikningi, check- vígtun, eingöngu vigtun. Barðvogir, gólfvogireða vogirsem passa inn í færibönd. PLASTPOKAR O 82655 i»i ji.si.4Ms hr <mm> o tpokar 82655 PLASTPOKAVERKSMIÐJA 0DDS SIGUROSSONAR REYKJAVIK BYGGINGAPLAST * PLASTPRENTUN * MERKIMIÐAR OG VÉLAR

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.