Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.1983, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.1983, Blaðsíða 8
8 DV. FIMMTUDAGUR 3. MARS1983. Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd Rafmagnsleysi íBoston Fólk lokaðist inni í lyftum há- hýsa í Boston og mikið öngþveiti myndaðist í umferðinni, þegar götuvitar virkuðu ekki í miðborg- inni eftir að rafmagnið fór þar af i gœr. Rafmagnskapall neðanjarðar hafði brunnið yfir. Þúsundir heimila og fyrirtækja urðu raf- magnslaus og verslanir í miðborginni urðu að loka. Bar þetta að um háumferðartimann. Blóðugar erjur í Assam á Indlandi Stærsta rán fyrr og síðar Flóð í Ástralíu Það á ekki af Suður-Ástralíu að ganga. Nú eru skoliin á flóð viða þar sem geisuðu kjarreldar fyrir tveim vikum. í mörgum bæjum liggja götur undir eins metra djúpu vatni. Manntjón hefur ekki orðið af flóðunum en hundruð manna voru látin yfirgefa heimili sin því að spáð var áframhaldandi úrhellis- rigningum í Adelaide-hæðunum. Það var eins og hellt væri úr fötu á þessum slóðum í gær en jarðveg- urinn er glerharður eftir einhverja verstu þurrka í sögu Ástralíu og rann vatnið ekki niður í hann. Ár og lækir urðu bakkafull nær sam- stundis og flæddu fljótlega. Fréttir eru af 6 metra háum flóðöidum sem farið haf i með 15 km hraða. Áskorenda- einvígin Lajos Portisch frá Ungverja- landi og Viktor Korchnoi munu tefla áskorendeinvigi sitt i Bad Kissingen í Vestur-Þýskalandi. Alþjóðaskáksambandið hefur boð- að að það muni byrja 25. mars. — Enn hefur ekki verið ákveðið hvar einvígi þeirra Zoltans Riblis frá Ungverjalandi og Eugenio Torres frá Filippseyjum verði haldið. Löngveikindi hjáNiven Kvikmyndaleikarinn David Niven, sem liggur á sjúkrahúsi í London þessa dagana, er sagður eiga í erfiðleikum með að tala og hafa lítU not af vinstri hendi sinni. Hjördis eiginkona hans segir að Niven (73 ára) eigi ekki við hjarta- krankleika eða krabbamein að stríða heldur sé eitthvað að vöðvunum. Læknar hafa sagt henni að hann muni þurfa langan tíma tU þess að ná sér. Bensírt- skömmtun íPóllandi Langar biðraðir mynduðust við bensinafgreiðslur í Póllandi i fyrradag eftir aö boðað hafði veriö að tekin yrði upp skömmtun á ódýr- ara bensininu. Bensínið var skammtað i fyrra en skömmtun- inni aflétt siðari hluta árs. í byrjun mánaðarins var aflétt skömmtun á sápu og þ vottadufti og látið í veðri vaka að skömmtunin yrði afnumin af fleiri vörutegund- um þegar liði fram á árið. Áfram er þó ströng skömmtun á matvörum. Sykur, smjör, hveiti, tóbak og áfengi er af skornum skammti í PóHandi. Sömuleiðis er fatnaður, skór og fleiri neytenda- vörur skammtaðar. I fyrradag var framið stærsta rán í sögu Danmerkur, þegar vopnaðir menn réðust að peningaflutningavagni í bænum Lyngby, norðan við Kaup- mannahöfn, og höfðu á brott með sér 8,3 mUljónir danskra króna. Tveir starfsmenn Den Danske Bank, sem í vagninum voru, voru slegnir niður og ræningjamir tóku síðan bUinn, sem fannst skömmu síðar á víöavangi, tóm- ur. Þrátt fyrir mikla leit hefur danska lögreglan ekkert fundið sem gefur vís- bendingu um hverjir ræningjarnir eru. Bankinn, sem átti peningana, Den Danske Bank, hefur heitið fimmtíu þúsund króna verðlaunum fyrir upp- lýsingar um þetta mál og danska póst- gíróþjónustan hefur heitið sömu upp- Neyðarástandslög hafa verið leidd í gildi í Assam-fylki á Indlandi og Uðs- auki sendur hernum til þess að hindra frekari blóðsúthelUngar en 30 létu þar lífiö í gær, þegar róstur brutust út að nýju. Nýja fylkisstjórnin, sem Kongress- flokkur Indim myndaði um síðustu helgi (upp úr kosningunum sem djöflagangurinn spratt út af), lýstiyfir neyðarástandi í sex umdæmum fylkis- ins og setti herinn tU þess að halda uppi lögum og friði. — Valkösturinn er talinn kominn upp i 2500 manns eftir óeirðirnar í f ebrúar. Hefur hemum verið gefin ströng fyrirmæU um að berja niður hvers konar uppþot og stööva átök. Hefur hann umboð tU húsleita og handtöku án úrskurðar, til upptöku vopna og tU þess að endurheimta þjófagóss. Styrrinn stendur miUi innfæddra ætt- bálka Assama og Hindútrúarmanna og aðfluttra Bengala múhameðstrúar. Verst gekk á um miðjan febrúar, síð- ustu daga fyrir kosningamar, sem heimamenn voru andvígir vegna þátt- töku aðfluttra. Assamar, vopnaðir öxum, spjótum, bogum og fomum framhlaðningum.gerðu áhiaup á tugi smáþorpa og myrtu á einum degi miUi 1000 og 1500 manns. Hindúatrúarmenn gerðu sams konar árás í gær á 24 aðflutta fiskimenn sem bjuggu í smáþorpi á bakka Brahma- putra. Um 1000 manna múgur hakkaði fiskimennina í spað. Samdægurs var ráðist á þorp í Nowgong-umdæmi og brenndir 300 þorpskofar en átta menn létu lifið. Böm, konur og gamalmenni hafa verið á meðal fóraarlamba tryUts múgs i Assam, en þessi mynd var tekin eftir fjöldamorðin föstudaginn fyrir kosningarnar. Vopnaður múgur vopnast bareflum, spjótum, bogum og öxum og heldur af stað tU þess að berja á „út- lendingunum” eða tU þess að verja þorp sitt áhlaupi. Atti Tyrkinn að myrða Lech Walesa íRóm? Búist er við á næstu dögum nýjum uppljóstrunum varöandi samsærið um að myrða Lech Walesa, þegar hann heimsótti Róm 1981. Rannsóknardómarar hafa varað átta menn við — 4 Búlgari, 2 verka- lýðsstarfsmenn, 1 konu úr atvinnu- málaráðuneytinu og Tyrkjann Mehmet Ali Agca — að þau liggi undir grun um samsæri til f jöldamorðs. Það er sagt að samsærið hafi snúist um að koma fyrir sprengju í bifreið Walesa þegar hann kom til Italiu í janúar 1981 (og heimsótti m.a. páfann). Tyrkinn Agca afplánar ævUagt fangelsi fyrir tilræðið við páf ann (í maí 1981) og einn Búlgaranna hefur verið í haldi síðan í nóvember, grunaður um hlutdeUd í tilræðinu. Hefur rannsóknin beinst að hugsanlegri hlutdeUd leyni- þjónustu Búlgaríu í tUræðinu við páfann og nú nýjum vangaveltum um aö Agca hafi upphaflega verið ráðinn tU þess að drepa Walesa, leiðtoga hinnar óháðu verkalýðshreyfingar í Póllandi. Verkfall út af nýjum ráðamanni DeUa kolanámumanna í Bretlandi út af ráðagerðum um lokun á óhag- kvæmum námum er sögð fullt eins sprottin út af ráðningu nýs yfirmanns hins opinbera námarekstrarfyrir- tækis, Ian MacGregor, sem áöur stýröi stáliðjumríkisins. Hann fækkaöi starfsmönnum stáliðj- anna um helming á þriggja ára biU og er talið aö Thatcher hafi ráöið hann gagngert til þess að taka kolaiðnaðin- umtak.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.