Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.1983, Blaðsíða 6
6'
DV. FIMMTUDAGUR3. MARS1983.
Neytendur Neytendur Neytendur Neytendur
Fermingarnar byrja eftir rúmar þrjár vikur:
Kaltboröeða
heitur matur
— verðið er breytilegt
Iiða tekur að fermingum. Fyrstu
fermingar eru á pálmasunnudag sem
er 27. mars. Aðalfermingartíminn er
hins vegar í apríl. Venja er orðin á
flestum heimilum fermingarbama að
gera sér eitthvað til hátíðabrigöa.
Veislur em haldnar, gjafir gefnar og
einstaka vel stæð fjölskylda bregður
sér jafnvel til útlanda.
Þegar ég var fermd fyrir 14 árum
voru fermingarveislur algengastar
þannig aö móðir fermingarbarnsins
stóð á haus vikum saman viö undirbún-
ing. Hún bakaði ótal tegundir af kökum
og tertum og smurði brauð. Dugleg-
ustu mæöumar saumuðu jafnvel á
sama tíma föt á bömin, sérlega
dæturnar. Einstaka fjölskylda keypti
líka aö mat, yfirleitt kaldan.
Timarnir hafa mikiö breyst síöan.
Með aukinni útivinnu kvenna er tími til
baksturs í margar vikur ekki fyrir
hendi lengur. Og hvað sem öllum ósk-
um kvenna um jafnrétti líður þá er það
svo að út á þetta sviö heimilishaldsins
hætta sér ekki nema huguðustu karl-
menn. Því er mikið keypt tilbúið nú
oröið. Viö könnuðum verð á því sem
menn gætu hugsanlega haft í
fermingarveislum hjá nokkrum aðil-
um á höfuðborgarsvæðinu. Þeim kom
saman um að fólk væri þegar farið að
panta í stórum stíl. En ekki var raun-
hæft að kanna verðið fyrr því margir
reiknuðu þaö ekki endanlega út fyrr en
eftir vísitöluhækkunina 1. mars.
Við skiptum fermingarveislunum í
tvennt. I dag veröur fjallað um mat
hvers konar. Á mánudag verður hins
vegar fjallað um það sem hægt er að
kaupa að í kaffiboðið. Auövitað eru
staðirnir mun fleiri en þeir sem taldir
eru upp hér. Þetta er fyrst og fremst til
þess aö gefa mönnum einhverjar hug-
myndir. Úti á landi eru ugglaust flest
hótelin með þjónustu af þessu tagi og
jafnvel einhver jar verslanir líka.
Kaltborð
Matborð, sími 21771, selur mikið af
köldum borðum, bæði í fermingarveisl-
ur og aðrar veislur. Maturinn kostar
215 krónur á mann og er þjónusta mat-
reiðslumanna við að leggja á borð og
sjá um allt borðhald innifalin. Á borð-
inu eru ýmsar tegundir, allt eftir því
sem hver vill. Rammi hefur verið sett-
ur upp en út frá honum er hægt að
breyta vilji menn það, án þess að verö-
ið breytist. 1 þessum ramma er roast
beef, reykt grísakjöt, kjúklingar, lax
ýmist grafinn eða í mæjónesi, 2—3
tegundir af síld, fylltar rauðsprettu-
rúllur, 3 soðnar grænmetistegundir,
heitar kartöflur og sósa og allt að 10
tegundir af fersku grænmeti með
viðeigandi sósum. Vissara er að panta
sem fyrst.
Veislumiðstöðin, simi 11250. Boöið er
upp á sérstakt fermingarborð. Á því er
roast beef, kjúklingar, marineraö
lambalæri, reykt aligrísalæri, graflax,
blandaðir sjávarréttir í hvítvíns-
hlaupi, sósur, grænmeti, kartöflur, síld
og hrásalat. I eftirrétt er sérrí trifle.
Verðið er 265 krónur á mann. Kokkur
kemur með matinn og raðar honum á
borðið. Boðið er upp á borðbúnað sem
fylgir ókeypis ef keyptur er matur.
Vissara er að panta sem allra fyrst.
Veitingamaðurinn, sími 86880, hefur
sett saman sérstakt fermingarborð. Á
því er roast beef, kjúklingar, ham-
borgarhryggur, marinerað lambalæri,
laxarönd, sjávarréttasalat, tvenns
kanar salat annaö, sósur og fleira með-
læti. Á eftir fylgir ananas frómas.
Veröið er 220 krónur á mann. Kokkur
kemur á staöinn og raðar á boröið.
Panta þarf strax.
Skútan í Hafnarfirði, sími 51810 er
með kalt borð á 230 krónur fyrir mann-
inn ef gestir eru innan viö 50. Séu þeir
fleiri fer verðið niður í 215. Búist er við
einhverri hækkun á næstunni. Á borð-
inu er roast beef, kjúklingar, skinka,
hangikjöt, lax, rækjur, 4 tegundir af
síld, graflax, brauð, smjör, grænmeti,
sósur og salöt. Kokkur sér um aö raða
matnum á borðið.
Kalda borðið hjá Árbergi, síma
86022, kostar 230 krónur á mann. Á því
er kjúklingakjöt, lambasteik, hangi-
kjöt, svínasteik, skinka, lax í mæjón-
esi, fiskhringur, 3 tegundir af síld,
grænmetissalat, hrásalat og remúlaði-
salat, kartöflusalat, kokkteilsósa og
brún sósa, brauð og smjör. Kokkur set-
ur matinn á boröiö. Vissara er að
pantafljótlega.
Gafl-inn, sími 54424, selur nær ein-
göngu köld borð í fermingarveislur.
Maturinn kostar 260 krónur á mann. Á
borðinu er hamborgarhryggur, svína-
steik, hangikjöt, kjúklingar, roast
beef, lax, sjávarréttir, 3 tegundir af
síld, rækjur, sósur, salöt, grænmeti og
kartöflur. Kokkur kemur með matinn
og raöar honum upp. Panta þarf strax.
Veislustöð Kópavogs, sími 41616, er
meö kalt borð á 265 krónur á mann. Á
því eru 2 tegundir af svínakjöti,
kjúklingar, roast beef, hangikjöt, köld
lambasteik eða heitur lambapottrétt-
ur, graflax eöa nýr lax, sósur, salöt,
grænmeti og soðnar kartöflur. Panta
þarf sem allra fyrst.
Kalda boröiö hjá Rán og Naustinu,
sími 20132, kostar 275 krónur á mann.
Á því er lambasteik, hangikjöt, roast
beef, reykt grísakjöt, kjúklingar, lax,
nokkrar tegundir af síld, sósur, græn-
meti og kartöflur. Hægt er að fá einn
eða fleiri af þessum réttum heita. Verð
lækkar ef pantaö er fyrir marga.
Panta þarf með 3—4 daga fyrirvara.
Heitur matur
Matborð í Skipholti hefur selt mikið
út af heitum mat en lítið í fermingar-
veislur. Hægt er að fá allt kjöt með
viðeigandi grænmeti og sósum. Verðið
er 180—235 krónur á mann. Matreiðslu-
maöur kemur tí staðinn og sér um
veisluna. Vissara er aö panta sem
fyrst.
Hjá Árbergi, síma 86022, er hægt að
panta heita rétti af öllum tegundum og
á öllu verði. En svo dæmi sé tekið kost-
ar roast beef með súpu á undan og
grænmeti og sósu meö 250 krónur
á mann. Lambalæri meö súpu og
viöeigandi meölæti kostar 175. Panta
þarf fljótlega.
Hægt er að fá heitan mat hjá Gafl-in-
um í Hafnarfirði. Svo dæmi sé tekið rnn
verð kostar svínasteik með viðeigandi
meðlæti og súpu 250 og roast beef meö
súpu og meðlæti kostar 290. Panta þarf
strax.
Rán og Naustið, sími 20132, eru með
hvers konar pottrétti. Pottréttur
stroganoff kostar til dæmis 170 krónur
á mann, kjúklingapottur 160 og lamba-
pottur 140. Allt er þetta með viöeigandi
meðlæti. Veröið lækkar ef keypt er
fyrir marga. Einnig er hægt að fá
sígildan heitan mat. Lambalæri með
súpu kostar 215 með eftirrétti 250,
nautakjöt 280,305 meö súpu og 340 með
eftirrétti. Panta þarf meö 3—4 daga
fyrirvara.
Upplýsingaseðill
til samanburöar á heimiliskostnaði
Hvað kostar heimilishaldið?
Vinsamlega sendið okkur þennan svarseðil. Þannig eruð þér orðinn virkur þálttak-
andi i upplýsingamiðlun meðal almennings um hvert sé meðaital heimiliskostnaðar
fjölskyldu af sömu stærð og yðar. Þar að auki eigið þér von um að fá nv Isamt heimilis-
tæki.
Nafn áskrifanda
Heimili
Kalt borð er vinsælast i fermingarveislum þegar keyptur er matur.
Hægt er að fá heita rétti, með viðeigandi grænmeti og súpum.
Blandað borð af
heitum og köldum
réttum
Brauðbær, sími 28470, útbýr slík borð
fyrir fólk. Misjafnt verð er eftir því
hversu margir koma. Þannig kostar
maturinn 320 krónur ef gestir eru 25—
30 en séu þeir fleiri en 35 fer verðið
niður í 300 krónur á mann. Á borðinu er
graflax, rækjur í hlaupi, paté,
hamborgarhryggur, lambapottur
stroganoff (heitur), nautamörbráð
innbökuð (heit), heitt grænmeti, hrá-
salat, hrísgrjón og brauð. Innifalið í
þessu verði er ef menn vilja aö kokkur
komi á staöinn og sjái um að skera
matinn. Einnig er innifalið í verði ef
menn vilja hnífapör, diska og glös. Það
er tekið óhreint til baka. Panta þarf
sem allra fyrst því aðeins eru teknar 7
veislur á dag. Sumir fermingardag-
anna eru að verða upppantaðir.
Þegar haft var samband við Rán og
Naustið var verið að setja saman svo-
nefnt kabarett borð. Á því verða bæði
heitir og kaldir réttir en ekki er alveg
ljóst hverjir þeir verða. Með verður
grænmeti og sósur hvers konar. Verðið
verður um 250 krónur á mann. Nóg er
aðpantameð3—4dagafyrirvara.
:i Sími
d
i Fjöldi heimilisfólks----
5
í Kostnaöur í febrúarmánuöi 1983
Matur og hreinlætisvörur kr.
Annaö ' kr.
Alls kr.
Veislumiðstöðin
leigir borðbúnað
Hjá Veislumiðstöðinni er hægt að fá
leigðan út borðbúnað. Siminn þar er
11250. Þrjár krónur kostar að fá hvert
stykki af glösum og diskum og sama
verð er fyrir hnífapariö. Þeir sem
panta veislumat hjá fyrirtækinu borga
ekkert fyrir leiguna og ganga fyrir
öðrum. Hugsanlegt er að fleiri staðir
finnist þar sem hægt er að fá leigt leir-
tau. Þeim fer þó ört fækkandi frá því
sem var þegar stærstu búsáhaldabúðir
leigðu út slíka hluti. DS