Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.1983, Blaðsíða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.1983, Blaðsíða 23
DV. FIMMTUDAGUR 3. MARS1983. 23 íþróttir íþróttir íþróttir íþróttir „ísle nski ön linn aftur ái flug og ekki í skotfæri á næstunni” sögðu íslensku leikmennirnir eftir 26-24 sigur yf ir BúlgaríuíHM-keppninni f Hollandi ígærkvöld Sigurður Sveinsson átti sinn besta landsleik í langan tíma í gærkvöldi. Frá Sigmundi Ó. Steinarssyni, fréttamanni DV á HM-keppninni í Hollandi: íslensku leikmennirnir og fylgdarlið þeirra stukku hátt i loft upp af fögnuði þegar hollensku dómararnir flautuðu til leiksloka í leik íslands og Búlgaríu í HM-keppninni í gærkvöldi. Hæst af öllum stökk Hilmar Björnsson lands- liðsþjálfari því þá var sigur Islands i húsi, 26:24. Islenska liðið er nú méð 4 stig í keppninni um 7. til 8. sætið í HM-keppn- inni og útlitiö alls ekki slæmt þessa stundina. Það var aftur á móti slæmt lengi vel í leiknum í gærkvöldi. Það var ekki fyrr en á síðustu 10 mínútunum sem strákarnir sýndu sitt rétta andlit og á þessum kafla tryggðu þeir sér sigurinn. Það tók langan tíma fyrir lið'ið að rífa sig upp. Hilmar B jömsson þjálfari hafði talað vel yfir strákunum fyrir leikinn. Sagði hann þeim að Búl- garamir yrðu erfiðir framan af í leiknum en það hefði sýnt sig í leikjum þeirra að undanfömu að þeir gæfu eftir í síðari hálfleik og þá þyrftu ísl. leik- mennirnir að vera viðbúnir að hremma bráðina. Búlgaramir höfðu yfir nær allan fyrri hálfleikinn. I leikhléi var staðan 12:11 þeim í vil og langt var liðið á síðari hálfleikinn þegar Guðmundur Guðmundsson jafnaði 19:19 úr hraðaupphlaupi. Þetta mark gaf íslenska liðinu tóninn. Jóhannes Stefánsson kom Islandi yfir 20:19 eftir frábæra línusendingu Sigurðar Sveins- sonar og áfram var haldið. Búlgaramirkærðu leikinn við ísland Frá Sigmundi Ó. Steinarssyni, fréttamanni DV á HM-keppninni í Hollandi: Búlgarir fóru alveg upp á háa c-ið eftir tapið fyrir íslandi í HM-keppn- innl i gærkvöldi. Reiknuðu þeir þar sýnilega með sigri en urðu að sætta sig við tveggja marka tap 26—24. Eftir leikinn kærðu þeir fram- kvæmd hans og heimtuðu að hann yrði leikinn upp aftur, þar sem íslendingarnir hefðu haft rangt við. Sögðu þeir að í eitt skiptið hefðu verið 8 islendingar inni á veilinum i elnu, en þeir mega bara vera 7. Tímaverðir og eftirlitsdómari gerðu enda athugasemd við þetta atvik og heldur ekki hinir hollensku dómarar leiksins, sem þó voru Búlg- örunum mjög hliðhoUir i leiknum. Kæran verður tekin fyrir í dag og ef dómurinn verður Búlgörunum hUðhoUur verða þjóðirnar að mætast aftur og leika þá trúlega á föstudag- inn. SOS/-klp- Þegar 5 mín. voru eftir var Island yfir 23:20 og komst svo í 24:21 en Búlgarir minnkuðu í 24:23 þegar 2 mínútur voru eftir. Þá var boltinn dæmdur af Islendingum fyrir töf en sóknin hafði þó ekki staðið yfir nema í 13 sekúndur!! Alfreð Gíslason náði boltanum af Búlgörunum og skoraði 25:23 úr hraðaupphlaupi þrátt fyrir að hann væri með tvo Búlgara á bakinu. Búlgarir minnkuðu muninn aftur í eitt mark — 25:24 — en Sigurður Sveinsson innsiglaði sigurinn 26:24 með ógurlegri neglingu á síðustu sekúndunum. Fyrri hálfleikur íslenska liðsins var dapur í alla staði. Liðið skoraði þá t.d. ekki nema 3 mörk í 14 sóknum og var óöruggt í vörninni. I síðari hálfleiknum var allt annar bragur á liðinu. Þá brilleruðu líka langskytturnar — sérstaklega Alfreð og Sigurður Sveins- son og Þorbergur var þá mjög ógn- andi. Þeir Steindór Gunnarsson og Jóhannes Stefánsson „blokkeruðu” vel fyrir þá og þeir Bjarni og Guömundur voru hreyfanlegir í homunum. Þor- björn Jensson batt vömina mjög vel saman og var þar aðalmaður en annars var varnarleikur íslenska liðs- ins þá í heildina góður — og þó áber- andi bestur síðustu 10 mínútumar. Mörk Islands í leiknum gerðu þessir: Alfreð Gíslason 6, Sigurður Sveinsson 5, Bjarni Guðmundsson 4, Kristján Arason 2/1, Hans Guðmundsson 2, Jóhannes Stefánsson 2, Guðmundur Guðmundsson 2, Þorbergur Aðal- steinsson 2 og Steindór Gunnarsson 1 mark. SOS/-klp- Sigmundur Ó. Steinarsson Sömu laun fyrir eitt golfmót — og fyiirallt keppnistfmabilið í fyrra Bandarikjamaðurinn Gary Koch varð sigurvegari í Doral Eastera Open-golfkeppni atvinnumanna I Bandarikjunum, sem fram fór i Miami í Florida og lauk á mánudaginn. Koch, sem vann sér inn samtals um 40 þúsund dollara á siðasta ári, fékk álíka upphæð núna fyrir þennan eina sigur. Hann lék mjög vel á rennandi blautum vellinum, eða á 64—72—65 og 70 höggum. Var hann samtals 17 höggum undir pari og 5 höggum betri en næsti maður, sem var Ed Fiori. Þar á eftir komu þeir George Burns á 277 höggum og þeir Ray Floyd og Tom Kite á 278 höggum. -klp- Stefnum á 7. eða 8. sætið í bessu móti” — segir Þorbergur Aðalsteinsson, fyrirliði íslenska landsliðsins Frá Sigmundi Ó. Steinssyni, frétta- manni DV á HM-keppninni í Hollandi: Það var kátína í herbúðum Islend- inga eftir sigurinn yfir Búlgörum i gærkvöldi. . . „Við stefnum að því að verða í 7. eða 8. sætinu í þessari keppni og tryggja okkur þar með rétt til að leika í B-heimsmeistarakeppninni í Noregi 1985,” sagði Þorbergur Aðal- steinsson, fyrirliði islenska liðsins, eftir leikinn. „Síðari hálfleikurinn var góður hjá okkur. Við nýttum sóknirnar vel og um 60% sóknamýting þá sýnir það best. Við fundum líka út veikleika mark- manns þeirra. Hilmar sagði okkur að Betri nýting en áður Sóknaraýting isl. liðsins við Búlgaríu í gær er sú besta hingað til í keppninni. 26 mörk skoruð úr 54 sóknum eða 48,1%. 11 mörk í f.h. úr 29 sóknum eða 37,9% en 15 mörk úr 25 sóknum í s.h. Árangur einstakra leikmanna. Skot Skot Skot Línu- Knetti Mörk varin frh. sending tapað Fiskuð víti Nýt- ing Þorbergur A. 4 2 2 0 0 4 1 25% Jóhannes St. 2 2 0 0 0 1 0 66.6% Steindór G. 3 1 0 2 0 1 0 25% Guðmundur 4 2 2 0 0 1 0 40% Bjarai G. 7 4 1 2 ð 0 0 57% Kristjón A. 3 2 0 1 0 3 0 33.3% Sig. Sveins 4 4 0 0 2 3 0 62.5% Þorbjöra 0 0 0 0 0 0 0 0 AlfreðG. 6 6 0 0 0 1 0 85.7% Hans G. 2 2 0 0 1 2 0 50% Einar Þorvarðarson varði 5 skot í leiknum, Brynjar Kvaran eitt. -SOS/hsím. skjóta á hann hægra megin, þaö gerðum við og dæmið gekk upp,” Þeir kunna sitt fag „Þetta búlgarska lið var erfitt viðureignar og viö vissum það fyrir- fram þótt enginn okkar hefði leikið gegn þeim áöur,” sagði Þorbjörn Jensson. „Flestir þeirra eru meðyfir 100 landsleiki að baki og kunna sitt fag. Þeir réðu bara ekki við okkur í síðari hálfleiknum. ” Búlgararnir sprungu „Við vorum ákveðnir í að rífa okkur upp, en það tók okkur langan tíma eftir áfallið sem við fengum þegar Sviss sigraði Spán,” sagði Guðmundur Guðmundsson. „Hilmar sagði okkur að Búlgararnir myndu springa í síðari hálfleiknum og gerðu þeir það. Þá gengum við á lagið og afgreiddum þá.” Gömlu fleygarnir rötuðu rétta leið „Eg fékk góð tækifæri í þessum leik,” sagði Sigurður Sveinsson, sem átti sinn besta landsleik með Islandi í langan tíma í gærkvöldi. „Strákamir opnuðu vel fyrir mig og þegar maður sá smugurnar hikaði maður ekki við að senda gömlu fleygana á réttan stað. ” SOS/-klp- ísrael með vopnaða öryggisverði Frá Sigmundi O. Steinarssyni, fréttamanni | DV á HM-keppninni í HoUandi: Mikill viðbúnaður er hér i kringum landslið I tsraels eins og venjulega þegar íþróttamenn frá ILandinu helga taka þátt i keppni erlendis. Fylg- lir þeim eftir fjöldi lögregluþjóna og verðir eru Ivið hótel þeirra og á öllum stöðum þar sem þeir |koma og fara um. Kapparair fengu leyfi hjá hoUensku lögregl- Junni tU að hafa með sér sérstaka öryggisverði frá ísrael. Eru þeir vopnaðir og fylgja löndum sínum eftir eins og skuggar á meðan á heims- neistarakeppninni stendur. -klp- Dómararnir höfðu rétt fyrir sér Vestur-Þjóðverjar vora heppnir að sigra I Tékka í leik landanna í B-keppninni á mánudag. I Tékkneska liðið byrjaði mjög vel, komst í 5—1. Þá byrjuðu Þjóðverjarair að saxa á forskotið I vegna stórieiks Brand, sem bókstaflega „lamdi” samherja sína áfram. Þá var Wunder- I lich óstöðvandi lokakaflann. Skoraði fimm sið- ustu mörk þýska liðsins, þar af lokamarkið á | síðustu minútunni. Tékkar geystust í sókn og markvörðurinn I Hirner Marian var þar á meðal. Brand braut Ula I á honum og Tékkinn sló tU hans. Báðir reknir af I velli. Úr aukakastinu áttu Tékkar skot í stöng. l Urðu ofsareiðir þegar dómararair dæmdu ekki jmark því þeir álitu að knötturinn hefði lent í 1 járastönginni inni í markinu. Sjónvarpsmyndir Ifrá leiknum sýndu þó að svo var ekki. Norsku j dómararnir Bolstad og Antonsen dæmdu leikinn [mjög vel. Eftir leikinn kom tU slagsmála mUli | leikmanna liðanna. -SOS. Janusz fylgist með B-keppninni Janusz Cherwinski, fyrrum landsliðsþjálfari I íslands í handknattleUmum, er meðal áhorfenda lí B-keppninni hér í HoUandi. í IHF-mafíunni, jeins og stjómarmenn alþjóðahandknattleik- jsambandsins eru kaUaðir hér. Janusz er yfir- Jmaður póiska landsliðsins en Pólverjar keppa | hér ekki. Þeir eru í A-riðli HM. -SOS. Bjóða þýskum 15 þús. mörk Vestur-þýsku handknattleiksmennirnir, sem I taka þátt í B-keppninni, fá 15 þúsund mörk hver jef þeir verða i tveimur efstu sætunum og 1 tryggja sér með þvi rétt í handknattleikskeppni | Úlympiulcikanna í Los Angeles 1984. í viðtali við þá segjast þeir gjaraan vilja koma | til islands næsta vetur í landsleiki. Ferðin tU | íslands i haust hafi verið frábær. Þeir hafi búið |á Hótel Esju og þar hafi einnig verið flokkur |danskradansmeyja. SOS. Kristján Ara vekurathygli FuUtrúi vestur-þýsku Bundesligu-liðanna í I handknattleiknum er hér i HoUandi á B-keppn- inni. Hefur fylgst mjög vel með og hann sagði mér að mörg lið i Bundesligunni mundu hafa áhuga á að fá Kristján Arason tU sín næsta keppnistimabil. Kristján hefur vakið mikla I athygli, stór og sterkur, og var annar mark- | hæsti leikmaður keppninnar í forriðlunum. SOS. Péturdug- legastur knatt- spyrnumannanna Pétur Pétursson hjá Antwerpen hefur verið Idugiegastur íslensku knattspyraumannanna í jBelgíu að fylgjast með B-keppninni í handknatt- lleUi í Hollandi. Pétur var meðal áhorfenda á lleikjum islands og Spánar og islands og Belgíu. |Hann sá einnig leik islands og Búlgaríu i gærkvöld. Það hefur verið nóg að gera hjá Pétri > leikjunum. Áhorfendur hafa þyrpst að honum ItU að fá eiginhandarundirskriftir. SOS.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.