Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.1983, Qupperneq 7
DV. MIÐVIKUDAGUR 9. MARS1983.
Neytendur
Neytendur
Neytendur
Neytendur
Hækkun á gjaldskrá hitaveitu:
Sækja þarf um leyfi
til iðnaðarráðuneytis
Sigríöur Haraldsdóttir í Njarövík
hringdi: Mig langar til þess aö fá aö
vita um hvort hitaveitur þurfa ekki
að sækja um leyfi til einhverra aöila
til aö hækka gjaldskrá sína. Hita-
veita Suöurnesja hækkar sína gjald-
skrá í nær hvert einasta skipti sem
reikningar eru sendir út. Hélt ég aö
sækja þyrfti um leyfi fyrir svona
hækkunum og það ekki veitt svona
oft.
Annað langar mig aö vita og þaö er
hvort ákveöa má þann dag sem
dráttarvextir falla á einhliða. Þarf
ekki leyfi til að flýta honum?
Guörún Skúladóttir, starfsmaöur
iðnaöarráðuneytisins, varö fyrir
svörum. Sækja þarf um leyfi til
iönaöarráöuneytisins fyrir hækkun á
gjaldskrá hitaveitna. Slik leyfi eru
veitt í byrjun febrúar, maí, ágúst og
nóvember. Umsóknir um leyfi til
hækkunar þurfa aö hafa borist fyrir
þann tíma. Þaö kemur stundum fyrir
aö gjaldskráin hækkar ekki fyrr en
nokkuð er liðið á mánuöinn. Þá nægir
hitaveitunum ekki einn reikningur til
þess aö færa inn á hækkunina. Hluti
hækkunarinnar er því tiltekinn á
næsta reikningi eftir hækkun og
afgangurinn á næsta reikningi á
eftir. Því heldur fólk oft aö verðið sé
hækkaö oftar en gert er.
Varðandi dráttarvextina sagöi
Guörún aö í sumum gjaldskrám
væru þeir tilteknir svo og tími til aö
greiða reikninginn áöur en dráttar-
vextir legöust á. í reglugerð væri
líka kveðiö á um sumar af hita-
veitunum. Aðrar hitaveiturværuhins
vegar ekki meö slík ákvæöi og gætu
því fækkaö dögum aö því er virtist
einhliöa. Hitaveita Suðurnesja er
með fastákveöna 14 daga frá því aö
reikningur er sendur út og þar til
dráttarvextir falla á. Guörún sagöi
aö ekki heföi veriö sótt um leyfi til
þess að fækka þeim dögum þannig aö
ef þaö heföi verið gert ætti aö athuga
þaömálbetur.
DS
**' \ --- v.VU
RVIV-
**$£.**** W®9
VLVSt
V.VÓs- \.’8l «
raosVM' vr“ íun<Öt> upO,
\ wóúW' °* -
letöuf
FólkiðáKópaskeri:
Sparaði sér 14
þúsund krónur með
því að kynda með
raf magni í stað olíu
Birgir Dýrfjörö hringdi og vildi enn
ræða nokkuö um orkuna. Hann flytur
inn rafmagnshitara.
Birgir vildi sérstaklega nefna
greinarstúf í blaðinu á miðvikudag.
Þar tók maöur á Kópaskeri saman
orkunotkun sína á síöasta ári. I ljós
kom aö hann og fjölskylda hans höföu
eytt 36425 kvst til upphitunar. Kostaöi
þaö miöað viö verölag í marsbyrjun
19.892 krónur. Birgi fannst þetta dæmi
sérlega skýrt því tekið var fram
hversu miklu haföi veriö eytt af raf-
magni. En honum fannst vanta hversu
miklu heföi veriö eytt ef kynt heföi
verið meö olíu.
Hann sagöi góöa olíubrennara nýta
um þaö bil 60% orkunnar. Þaö þýddi aö
fyrir hverjar 6 kílóvattstundir væri
eytt einum lítra af olíu. Tæki sem væru
farin aö ganga úr sér eyddu hins vegar
mun meiru.
Frekar
að
fara til
tungls-
ins en að drekka
Þó að bjórinn kunni hugsanlega að minnka eitthvað líkur á hjartveiki er
skaðsemi hans mun meiri en sem því svarar, segir í fréttatilkynningu
frá Afengisvarnarráði.
— sér til heilsubótar
„Heldur myndi ég ráöleggja sjúkl-
ingum mínum að fara til tunglsins en
aö segja þeim að drekka einn eða tvo
áfengisskammta daglega af því að ég
teldi það hollt fyrir hjartað,” sagöi
Mary Jane Ashley, prófessor í læknis-
fræöi viö háskólann í Toronto í
Kanada.
Þessi orö hennar koma fram í
fréttatilkynningu frá Áfengisvarnar-
ráði. Tilefni hennar er lítil, þýdd
klausa sem birtist í Morgunblaöinu
fyrir nokkru. I henni var sagt aö
vísindamenn þættust hafa sannaö að
bjórdrykkja gæti komiö í veg fyrir
hjartasjúkdóma. Áfengisvarnarráö
segir aö þama hafi sem svo oft áöur
gleymst aö gera grein fyrir þeim fyrir-
vara sem heiðarlegir vísindamenn hafi
á slíkum fullyröingum. Sem sé þeim að
þó aö áfengi kunni aö bæta eitthvað
líöan manna sé skaðsemin sem þaö
valdi margfalt meiri. „Þaö er ljóst að
lítt stoöar aö komast hjá að veikjast af
einum sjúkdómi ákveðinn tíma ef
maöur andast af öörum sökum
drykkju fyrir aldur fram,” segir í til-
kynningunni.
Vitnaö er í vísindamenn sem eins og
Mary Jane hafa kynnt sér áfengismál
gaumgæfilega. Taka þeir í sama
streng og hún. í grein um heilsutjón af
völdum áfengisdrykkju í blaði Hjarta-
vemdar Bandaríkjanna segir meöal
annars: „Ef áfengi kynni aö hafa
einhver jákvæð áhrif á þessusviði falla
þau um sjálf sig vegna annars tjóns
sem áfengisneysla veldur.”
Frétt Morgunblaösins um bjórinn er
eftir þessu að dæma því miöur ekki
sönn. -DS.
mtÐUEKKUN
A UTVARPIMBÐ KASSFmjTÆKI
STERÍO ÚTVARP MEÐ KASSETTUT/EKI ÁÐUR KR. 6.295,- NU KR. 3.980,-
Tandq
RAFMAGNS- ■
OG RAFEINDAT/EKI
VERSLUN
LAUGAVEG1168
RVÍK. S. 18055
Miöaö viö þessa nýtingu og sams
konar upphitun og maðurinn á Kópa-
skeri notaöi heföi hann þurft 6 þúsund
lítra af olíu á síöasta ári. Þaö væri á
verölagi dagsins í dag 42.300 krónur. í
bréfi Kópaskersbúans kemur fram aö
3 eru í heimili. Þeir heföu því fengiö
samtals 3 1/2 olíustyrk heföi olía
veriö notuö tii upphitunar. Þaö væru
nú 7840 krónur. Eftir stæöi því aö fyrir
olíuna hefði veriö greitt 34.460 krónur.
Eöa 14.568 krónum meira en greitt var
fyrir rafmagniö.
Birgir sagöi aö verö á rafmagni til
húshitunar heföi verið komið langleiö-
ina upp í þaö sem olían kostaöi seint á
síöasta ári. En þá heföu ráðamenn
farið aö greiða niður rafmagnsverö og
því væri munurinn aftur oröinn
umtalsverður.
DS
Notaðar járnsmíðavélar
Brodrene Hansen verktöjsmaskiner eru 1 Reykjavik frá fimmtu-
deginum 10. mars til sunnudagsins 16. mars.
Við komum með mörg og góð tilboð í notaðar vélar.
MASKINSAX
KANTPRESSUR
RENNIBEKKI
FRÆSIVÉLAR
B0RVERK
SAGIR
PRESSUR
SLIPIVÉLAR
LYFTARA
SUÐUVÉLAR
0G MARGT FL.
Hringiö og viö heimsækjum ykkur, og veriö
velkomin á Hótel Esju, sími 82200.
Einnig eru uppl. i síma 84858.
rt«>TBrdr.Hansen værktojsmasldner