Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.1983, Síða 31
DV. MIÐVIKUDAGUR 9. MARS1983.
31
Sandkorn Sandkorn Sandkorn
Fullklæddar fyrir Playboy?
SÍS skoðar
Playboy
Sú merka frétt birtist í Degi
á Akureyri, fyrir síðustu
helgi, að Sambandið hygðist
auglýsa í bandariska karl-
rembutímaritinu Playboy. Á
myndinni hér er auglýsingin
sýnd, og fer eflaust ekki á
milli mála að á mælikvarða
Playboy telst kvenfólkið
kappklætt. Hvort það ágæta
tímarit er besti vettvangur
fyrir fataauglýsingar, látum
við liggja milli hluta. En
besta auglýsingin væri ef-
laust sú að klæða fyrirsætu á
opnumyndinni í ullarnærbux-
ur.
Ásgeir á heima-
velli
í vikublaðinu Fréttir, sem
gefið er út í Vestmannaeyj-
um, birtist þessi frétt 10.
febrúar síðastliðinn:
í kvöld verður opið hús hjá
knattspymuráði IBV, á hótel-
inu, eins og síðasta fimmtu-
dag. Nú verður sýnt þriggja
tima prógramm með Ásgeiri
Sigurvinssyni. Þetta er sam-
tíningur frá Standard, Bay-
era Munchen og eitthvað frá
Stuttgart. Húsið verður opn-
að kl. 20.00 og er vonast til að
sem flestir knattspyrnu-
áhugamenn mæti.
„Með Ásgeiri Sigurvins-
syni. ..” Má nú ætla að minni
spámennirnir hafi fengið að
komast á skerminn lika.
Menn eins og Rummenigge,
Breitner, Six, Förster og
fleiri.
Milli línanna í
Þjóðviljanum
Það vakti athygli að á
föstudaginn var birtist í
Þjóðviljanum álytkun frá
Alþýðubandalagsfélaginu á
Súgandafirði þar sem for-
mannafrumvarpinu um
breytingar á kosningalögum
er harðlega mótmælt. Þessi
mótmæli eru borin fram, að
sagt er, vegna þess að með
frumvarpinu sé vegið frek-
Iega að hagsmunum lands-
byggðarinnar. En kunnáttu-
menn í Krcmlínólókíkk vilja
halda því fram að ástæðan
fyrir mótmælunum hafi verið
allt önnur. Sem sagt sú að
Kjartan Ólafsson, þekktur á
Súgandafirði.
s.amkvæmt formannafrum-
varpinu eigi Alþýðubanda-
lagið góða möguleika á að ná
einum manni kjörnum á Vest-
fjörðum og yrði það þá Kjart-
an Ólafsson Þjóðviljarit-
stjóri. Hann er ættaður frá
Súgandafirði og Súgfirðingar
þekki sitt heimafólk og vilji
Kjartan ekki á þing.
Frammaragrátur
Það beygja margir
Frammarar af um þessar
mundir, og hafa ærna ástæðu
til. Þeir féllu í aðra deild í fót-
boltanum í sumar, þeir virð-
ast ætla að falla í aðra deild í
handbolta og körfubolta, og
nú munu síðustu vonir brostn-
ar um það, að blaklið þeirra
komist upp í fyrstu deild að
þessu sinni. Þetta er ekki að-
eins álitshnekkir fyrir forat
íþróttastórveldi, heldur al-
varlegt f járhagslegt áfall, því
aðsókn að leikjum í fyrstu
deildum hinna aðskiijanlegu
íþróttagreina, er mun meiri
en aö neðri deildunum.
Rokna rokkkvöld
Það varð ekki tap á rokkhá-
tíðinni sem haldin var í
Broadway um síðustu helgi,
þegar samau komu rokkarar
að verða miðaldra og rifjuðu
upp gömlu stemmninguna.
Sagt er að salan á börunum
hafi verið upp á 400 þúsund
krónur, hvorki meira né
minna, og auk þess var húsið
troðfyllt í matarveislunni, og
hvorki fleiri né færri en 560
kvöldverðir framreiddir.
Fróðir menn um skemmt-
anabransann halda því fram
að aldrei hafi verið selt vín og
matur fyrir meiri peninga en
þetta kvöld, á íslandi. Ekki
að furða að haldin verði önn-
ur slík skemmtun um næstu
helgi. Og það kvað langt
komið að verða uppselt á
hanalíka!
Umsjón:
ÓlafurB.
Guðnason
Umburðariyndi
atvinnuflug-
manna á þrotum
— Flugleiðir skulda DC-8 f lugmönnum
429frídaga
„Þaö má heita óskiljanlegt að ís-
lenskt fyrirtæki neiti í sífellu að þjálfa
starfsfólk sitt til starfa en kref jist þess
í staö að fá að ráða ódýran erlendan
vinnukraft.”
Svo segir í athugasemdum sem Fé-
lag íslenskra atvinnuflugmanna hefur
sent f jölmiðlum „vegna fréttaflutnings
Flugleiöahf. um Airlndia flugið.”
Fluleiðir hættu flugi fyrir Air India í
Asíu 1. mars síöastliðinn þar sem ekki
náðist samkomulag við flugmenn
Flugleiða um að erlendar áhafnir önn-
uðust flugiö yfir háannatímann.
Félag atvinnuflugmanna segir:
„Að meðaltali hafa tólf DV-8 áhafnir
flogið hiö svokallaða Air-India fiug.
Flugleiðir óskuöu eftir að fá að ráða er-
lenda flugmenn að hluta til í þetta
verkefni sumarið 1983.
FIA samþykkti þá ráðstöfun aö því
tilskildu að þjálfaðar yrðu þrjár nýjar
áhafnir á DC-8 flugvélar félagsins.
Ástæða þessa skilyrðis var sú aö um-
burðarlyndi félagsins er á þrotum. Á
árunum 1980, 1981 og 1982 hafa of fáar
áhafnir, samkvæmt kjarasamningi,
verið á DC-8 flugvélum. Frídagaskuld
Flugleiöa við flugmenn DC-8 flugvéla,
var 28. febrúar síðastliðinn, 429 dag-
ar.”
-KMU.
Þjóðhátíðargjöf Norðmanna:
Sex samtök fá styrk
Úthlutað hefur verið styrkjum úr
sjóönum Þjóðhátíðargjöf Norð-
manna á þessu ári. 24 umsóknir bár-
ust um styrki en samþykkt var aö
styrkja eftirtalda aðila: Undirbún-
ingsfélag Rafiönaðar, Samtök um
kvennaathvarf, Islenska ungtempl-
ara, Félag ísl. línumanna, norsku-
nema, Styrktarfélag vangefinna, Fé-
lag jarð- og landfræðinema við Há-
skóla Islands.
Styrkir voru fyrst veittir úr sjóðn-
um 1976 og fór nú fram sjöunda út-
hlutun. Ráðstöfunarfé sjóösins var
að þessu sinni 250 þúsund krónur.
Norska stórþingið samþykkti í til-
efni ellefu alda afmælis Islands-
byggðar 1974 aö færa Islendingum 1
milljón norskra króna aö gjöf í ferða-
sjóð. Samkvæmt skipulagsskrá
sjóðsins skal ráðstöfunarfénu, sem
eru vaxtatekjur af höfuðstólnum en
hann er varðveittur í Noregi, varið
til að styrkja hópferðir Islendinga til
Noregs.
-MAM — starf skynning.
Frá aðalfundi Framfaraf élags Breiðholts 3 sem haldinn var í hinni nýju menningarmiðstöð við Gerðuberg,
Framfarafélag Breiðholts 3:
Harmar niðurskurð til
Borgarbókasafns
— ekki virðist unnt að opna Breiðholtsútibúið á árinu
Aðalfundur Framfarafélags Breið-
holts 3 var haldinn 22. febrúar sl. í
hinni nýju og glæsilegu menningarmið-
stöð viö Gerðuberg. Á fundinum var
kjörin ný st jórn, hana skipa 11 menn og
4 til vara. Formaður var kosinn Gísli
Sváfnisson.
Á aðalfundinum var eftirfarandi
ályktun samþykkt samhljóða: „Aðal-
fundur Framfarafélags Breiðholts 3
harmar aö ekki hafi verið unnt að veita
fé til innréttinga og bókakaupa til
Borgarbókasafns Reykjavíkur við
Geröuberg á yfirstandandi ári.
Fundurinn skorar á borgaryfirvöld að
endurskoða ákvörðun sína og leita
allra leiða til f járöf lunar s vo unnt verði
að opna safniö á þessu ári.”
Tilgangur Framfarafélagsins er að
vinna að framfara-, hagsmuna-, fé-
lags-, æskulýðs- og menningarmálum
hverfisins. Þá hefur félagið beitt sér
fyrir því að fá íbúana til að vinna að
fegrun og prýði hverf isins.
Gestir fundarins, þau Markús Öm
Antonsson borgarfulltrúi og Elva
Björk Gunnarsdóttir borgarbókavörð-
ur, kynntu fyrir gestum fundarins þá
mjög fjölbreyttu starfsemi sem fyrir-
huguð er í húsinu. Má þar nefna m.a.
félaga- og klúbbstarf, starfsemi fyrir
aldraða, listsýningar, tónleikahald og
tónlistarkennslu auk námsflokka og
þess má að lokum geta að þar verður
til húsa eitt stærsta bókasafn landsins.
Borgarbókasafni Reykjavíkur hefur
verið úthlutað 1000 fermetrum í hús-
inu.
MAM/starfskynning.
Iðnaðarráðherra á Alþingi:
Gerði grein fyrir rekstrarafkomu nokkurra fyrirtækja
Rekstrartap Jámblendifélags-
ins 1981 var 64,4 milljónir króna.
Áætlað tap 1982 er 170 milljónir, þar
af vextir 120 milljónir og afskriftir
62,3 milljónir. Kemur þetta fram í
svari iönaðarráðherra við fyrirspum
Lárusar Jónssonar um rekstraraf-
komu nokkurra fyrirtækja.
Fram kemur einnig aö rekstrar-
halli Kísiliðjunnar við Mývatn árið
1981 var 7 milljónir. Áætlaður rekstr-
arhalli 1982 er 6 milljónir. Fjárvönt-
un hefur verið mætt með töku er-
lendra lána og yfirtöku ríkissjóðs og
Manville á hluta af skuldum fyrir-
tækisins, samtals um 1,6 milljón
Bandarikjadala.
Rekstrarhalli Áburðarverksmiðju
ríkisins árið 1981 var 19 milljónir.
Verulegur rekstrarhalli hefur einnig
oröið á árinu 1982 en tölur liggja ekki
fyrir. Rekstrarhallanum var að
stærstum hluta mætt með erlendum
lánum.
Tap Alafoss 1981 var 2,9 milljónir
króna en reiknað er með lítilsháttar
hagnaöi árið 1982.
Rekstrarhalli Sementsverksmiðj-
unnar árið 1981 var 10,7 milljónir
króna. Gert er ráð fyrir óverulegum
rekstrarhalla áriö 1982. Þessum
halla hefur verið mætt meö erlend-
umlántökum.
Siglósíld var rekið með 3,8 milljóna
halla áriðl981. Aárinul982 varveru-
legur rekstrarhalli hjá fyrirtækinu
og er skýringin sögð sú að fram-
leiðsludagar voru aðeins 93. Tap-
reksturinn hefur verið fjármagnaður
með óendurkræfum framlögum
rikissjóðs, bráðabirgðalánum ríkis-
sjóðs, langtímalánum Atvinnuleysis-
tryggingasjóðs og langtímalánum
ríkisábyrgðarsjóös.
-JBH