Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.1983, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.1983, Blaðsíða 2
2 DV. MÁNUDAGUR 14.MARS1983. landssöfnun SÁÁ: Viðbrögð með albesta móti Um tvö þúsund gjafabréf hafa nú borist undirrituð til SÁÁ í hinni víðtæku landssöfnun samtakanna. Með tiliiti til þess að aöeins nokkrir dagar eru liönir frá því bréfin voru send inn á flest heimili landsins eru það mjög góð við- brögð. Það hefur vakið athygli aöstand- enda að nokkur hluti þeirra sem sendir bréfin inn sendir ávísun meö til fullnaðargreiðslu bréfanna. Einnig hafa allmargir komið á skrifstofu SAÁ að Síðumúla 3 til að greiöa þau eða til að fá annað bréf. Fyrir helgi kom t.d. 85 ára gamall maöur og greiddi þrjú bréf, sem hann fékk á staðnum, eða alls 5400 krónur. Um allt land eru nú alls 600 manns aö hefja vinnu við að saftia gjafabréfunum saman. Hefur fólkinu yfirleitt verið mjög vel tekið og eru langflestir jákvæðir gagnvart söfnuninni. Fjársöfnunarnefnd SÁÁ leggur mikla áherslu á að þeir sem vilja stuðla að því að sjúkrastöö SÁÁ rísi sem fyrst sendi bréfin inn sem fyrst. -PÁ Háskóli íslands: Kosningar til stúdenta- og háskólaráðs á morgun Kosningar til stúdenta- og háskóla- ráðs Háskóla Islands fara fram á morgun. I framboði eru þrír listar, A-listi Vöku, B-Iisti Félags vinstri manna og C-Iisti Félags umbótasinn- aöra stúdenta. Kosnir verða 15 full- trúar í stúdentaráð og þar af tveir sérstakiega til háskólaráðs. I stúdentaráði sitja 30 fulltrúar og er helmingur ráðsins kosinn hverju sinni til tveggja ára. Undanfarin tvö ár hafa Vaka og Félag umbótasinn- aðra stúdenta farið með meirihluta- völd í ráðinu en Vaka á þar tíu fulitrúa en Félag umbótasinnaðra stúdenta sjö. Um fjögur þúsund manns eru á kjörskrá í kosningunumá morgun. -SþS. Vaka: 150 íbúðir byggðar á næstu þremur árum „Undanfarin tvö ár hafa Vaka og Félag umbótasinnaðra stúdenta myndaö meirihluta í stúdentaráði og á þeim tíma hefur veriö gert mikið átak í hagsmunamálum stúdenta,” segir Öli Björn Kárason efsti maður á lista Vöku. ,d5r þar nærtækast að taka Félagsstofnun sem dæmi og bættan rekstur hennar og mega þeir sem ganga aö kjörborðinu á morgun hafa þessa staðreynd i huga. Vaka leggur megináherslu á tvennt. Annars vegar að farið verði út í byggingu stúdenta- garöa þarsem byggðar verði 150íbúöir á næstu þremur árum. Til þess viljum við taka lán hjá Byggingarsjóði verka- manna og einnig viljum við leita aðstoöar hjá öðrum sjóðum. Við erum á móti því að ríkið byggi þessa garða og færi okkur þá á silfurfati. Þá viljum viö benda á að sá framfærslugrund- völiur sem námsián eru miðuð við er löngu úr takt við tímann. Sem dæmi má nefna að samkvæmt honum eru 1200 krónur ætlaðar á mánuði til húsaleigu og er það eins og allir sjá úr tengslum við allt verölag í landinu. Hins vegar tökum viö það skýrt fram að þessi námslán eru lán sem eiga að greiöast til baka aö fullu er námi lýkur. Við erum ekki aö þiggja neinar ölmusur heldur tímabundna aðstoö. ” -SþS. Vinstri menn: stórtskref til lækkunar á hitunarkostnaöi FYRIR ÞÁ HÚSEIGENDUR SEM NOTA OLÍU TIL UPPHITUNAR Hf. Raftækjaverksmiðjan í Hafnarfirði hefur um árabil framleitt rafhitara fyrir vatn til húsaupphitunar. Tæki þessi eru framleidd í tveim aðal gerðum, með og án neysluvatns spírals. Reynslan af þessum tækjum hefur sýnt að rekstur þeirra kostar aðeins brot af því sem væri ef olía væri notuð til kyndingar. Munurinn er 40% og eykst stöðugt. Sjálfvirkni tækjanna tryggir lágmarks orkunotkun hverju sinni og viðhaldskostnaður er hverfandi lítill. Tækin eru laus við allan hávaða og ioft mengun. Stýribúnaður tækjanna samanstendur af tveim rekstrarhitastiilum sem halda hitastigi kerfisins stöðugu og yfirhitavara sem rýfur allan straum að tækinu ef hitastig fer yfir leyfilegt mark. Hafðu samband við sölu- og tæknideild og fáðu upplýsingar um stærð þess hitara sem hentar þéi Við gerum verðtilboð án skuldbindinga. Góðir greiðsluskilmálar. Stuttur afgreiðslutími. Stígðu skrefið til fulls, og þú sparar 40%. Mununm á kostnaði við rafhitun og oiiukyndingu ai 40H sé ekki miðað við breytilogar rúðurgreiðelui á oliu aftu landiMutum. Ríki og sveitarfélög fjármagni byggingar „Aðalbaráttumál okkar vinstri manna í þessum kosningum eru byggingarmál Háskólans,” segir Jóna Hálfdánardóttir sem er efst á lista vinstri manna. „Okkar stefna er sú að fjármögnun bygginga fyrir stúdenta lendi ekki á herðum stúdenta heldur standi ríki og sveitarfélög straum af kostnaði við þær. Námslánamálin verða að sjálfsögðu á oddinum og þar viljum við vekja athygli á að sá grundvöllur, sem fram- færsluvísitala stúdenta er reiknuð eftir, er allt of lágur. Við viljum því að hann verði hækkaöur og að tekið verði fullt tillit til félagslegra aðstæðna námsmanna, húsnæðis- og fjölskyldu- stærðar. Endurgreiðslur námslána skulu miðaðar við tekjur aö loknu námi. Þá viljum við benda á að Félags- stofnun stúdenta á að vera þjónustu- stofnun fyrir stúdenta sem veiti sína þjónustu á eins lágu veröi og hægt er. Hún hefur að undanfömu verið rekin með hagnaðarsjónarmið í huga en þar sem við erum við nám í stofnun, sem rekin er af ríkinu án gróðasjónarmiöa, teljum við að sama eigi að gilda um_ Félagsstofnunstúdenta.” -SþS. 13í fw "hmJw n Umbótasinnaðir stúdentar: Leggjum aðaláhersluna á húsnæðis- og lánamál Rafha Hafnarfirði, símar 50022, 50023, 50322 „Við leggjum aðaláhersluna á húsnæöismál stúdenta annars vegar og lánamálin hins vegar,” segir Elsa Friðfinnsdóttir efsti maöur á lista Féiags umbótasinnaðra stúdenta. „I sambandi við húsnæðismálin höfum við iagt fram ákveöna stefnu um bygg- ingu garða. Við bendum þar á nokkur önnur atriöi en hinar fylkingamar gera en ég tel ekki ástæðu til aö rekja þessar leiöir hérna heldur bendi á stefnuskrá okkar þar sem nákvæm- lega er farið í þessi mál. önnur mál sem brýn em núna em lánamálin sem em reyndar eilífðarmál. Það tókst í fyrra að ná fram 100 prósent brúun fjárþarfar þannig að brýnasta málið nú er fyrst og fremst að vinna að breyttum framfærslugrundvelli. Stjórn lánasjóðsins hefur viðurkennt að nauðsyn sé á að breyta þessum framfærslugrundvelli svo aöalmáliö hjá okkur er að fylgja þessu eftir. Það verður að færa framfærslugmndvöll- inn að því sem raunhæft er miðað við húsaleigu og annað. Einnig veröur að auka tekjuumreikning þannig aö sumartekjur dragist ekki að fuilu frá láni. Þá leggjum við áherslu á að framhald verði á þeim hagstæða rekstri Félagsstofnunar stúdenta sem þar hefur verið undanfarin tvö ár. ” Sérð þú < það sem ég sé? Börn skynja hraða og fjarlægðir á annan hátt en fullorðnir. ALL0RKA PARADIS Á JÖRÐ PÁSKAFERÐ 30. mars —15 dagar. Ótrúlega ódýr f jölskylduferð. Hjón meö 2 börn innan 12ára: aöeins kr. 8.600, — fyrir manninn. Laugavegi 66. Sími: 28633,

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.