Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.1983, Blaðsíða 7
DV. MÁNUDAGUR14. MARS1983.
7
Neytendur Neytendur
Menn drekka
minna ef vínið
hækkar í verði
segir í niðurst öðum f innskrar rannsóknar
„Breytingar á áfengisneyslu má ad
stórum hluta skýra meö breytingum á
áfengismálastefnu,” eru helstu niöur-
stöður finnsku áfengisrannsóknar-
stofnunarinnar. Frá þeim segir í
fréttatilkynningu frá Áfengisvarnar-
ráöi.
Hækkun á veröi áfengis og minni
möguleikar á að ná sér í það virðist
hafa afgerandi áhrif á þaö hversu
mikið menn drekka. Þannig minnkaöi
áfengisneysla í Finnlandi viö aö vín-
búöum var lokað á laugardögum og
þegar verkfall varð meðal afgreiðslu-
fólks þar. Þegar hætt var aö selja
milliöl dróst drykkjan einnig saman.
Finnar hafa gert töluvert aö því aö
upplýsa almenning um ýmislegt sem
viðkemur áfengi. Þannig gefa þeir út
vandaöan bækling meö fallegum teikn-
ingum þar sem staðreyndir eru settar
fram á auðskilinn hátt. Staðreyndir
eins og þær hversu gamlir menn verða
Neytendur
Dóra Stefánsdóttir
og
Þórunn Gestsdóttir
/ Finn/andi
þurfa menn að
vera orðnir 18
ára til þess að
fá afgreitt vin.
Myndin er úr
feiðbeininga-
bæklingi
finnsku
áfengis-
verslunarinnar.
aö vera orönir áöur en þeir fá keypt
vín, hvar hægt er aö kaupa þaö,
hvemig best er aö losa sig viö tómar
flöskur, hvemig best er að haga
stórinnkaupum og pöntunum og fleira í
þessum dúr. Athygli vekur fyrir
útlendinga í Finnlandi að á veitinga-
stöðum er ekki hægt aö fá afgreidda
tvöfalda sjússa. Og þeir sem hafa
ætlað aö leika á kerfið meö því aö hella
saman tveim einföldum fá einfaldlega
ekki afgreiöslu meir þaö kvöldiö.
Finnar hafa eins og Islendingar átt viö
margvísleg vandamál aö stríöa vegna
drykkju. Frumáherslan þar er lögö á
aö byggja upp eitthvaö sem kalla má
vínmenningu fremur en það að koma
alveg í veg fyrir aö menn drekki.
-DS.
T/LKYNN/NG
FRÁ TCM
Eigum díesellyftara til afgreiðslu
strax.
Lyftigeta 3 tonn, snúningsgafall, viðsýnismast-
ur, hreinsibúnaður fyrir útblástur, vökvastýri,
tvöföld dekk að framan, öryggisgrind, Ijósa-
búnaður, ofl.
Rafmagnslyftarar á leiðinni til
landsins.
Rafmagnslyftarar sérpantaðir fyrir fiskvinnslu-
stöðvar og vörugeymslur með allt að 935 amper-
stunda rafgeymum, auk þess sem bremsuafl er
nýtt og skilað inná geymana.
TCM liprir í snúningum,
með mikinn iyftikraft
TÖGGURHR
BÍLDSHÖFÐA 16, SÍMI 81530
TCM löng reynsla við
erfiðar aðstæður.
TEPPAHREINGERNINGAR
ÞRIFILL SF.
Sími 82205
MALLORKA
einmitt það sem þig dreymir um?
tilboðsverð um páskana!
Bjóðum sérstakt tilboðsverö um páskana.
Dæmi: 4 manna fjölskylda, hjón með tvö
börn, 5 og 10 ára
verð kr. 9.850'-
á mann, samkvæmt gengi 20.1. 198S.
Mallorka er vöknuð af vetrardvalanum líf og fjör, sólskin og
sjór. Páskaferðin er tilvalið tækifæri til að' taka forskot á
sumarið, páskarnir eru einnig mjög heppilegur tími því
aðeins fáir vinnudagar fara í fríið, þú átt því mestallt
sumarfríið enn eftir.
Komið og leitið nánari upplýsinga, nýr litprentaður bæklingur1
og video. • q
(ITKMITMC
Ferðaskrifstofa, Iðnaðarhúsinu Hallveigarstíg 1. Símar 28388-28580.
«■