Dagblaðið Vísir - DV - 24.03.1983, Síða 41
DV. FIMMTUDAGUR 24. MARS1983.
41
Sviðsljósið
Sviðsljósið
Sviðsljósið
Valt er veraldar-
gengið ogþó...
Þegar Dewi Sukarno, fyrrverandi
forsetafrú í Indónesíu, neyddist til aö
fara í útlegð áriö 1966, vissi hún lítið
um hvaöa framtíö biöi hennar.
Sukarno forseti andaöist áriö eftir og
frúin varö eftir í París, ásamt dótt-
urinni Kartiku.
Það var fyrst haustiö 1981 sem hún
fékk leyfi til aö heimsækja heimaland
sitt aö nýju og frá 1982 hefur hún verið
búsett þar og rekur fasteignasölu. Frú-
in hefur semsé endurheimt aö nokkru
sína fyrri stööu....
Skákaö í skjóli
Framsóknarfbkks
Hún byrjar snemma pólitíska þráskákin. Hér sjáum við hvar Æskulýðsfylking Alþýöubandalagsins og Samband
ungra sjálfstæöismanna leiða saman riddara sína. Allaballarnir höfðu betur í þetta skiptið. Það vakti mikla athygli
manna að engar kvartanir bárust til yf irdómara vegna lýsingar, stóla, kaffibrúsa, dulspekinga, jóga eða jógúrtar.
Æskulýössamband Islands hélt
fyrir nokkru sveitakeppni í skák í
húsnæði Framsóknarflokksins að
Hamraborg 5 í Kópavogi. Sex sveitir
tóku þátt í keppninni sem þótti takast
meö ágætum.
Mótið var mjög spennandi og úrslit
réöust ekki fyrr en eftir síöustu
umferöina, þegar tvær efstu sveit-
irnar tefldu. Þaö voru sveitir
Landsambands mennta- og fjöl-
brautaskóla og Ungmennafélags
Islands.
Þessari viöureign lauk meö sigri
ungmennafélagsins og hlaut sveit
þeirra alls 17,5 vinninga á mótinu. I
öðru sæti varö svo Landssamband
mennta- og f jölbrautaskóla og þriöja
sætiö kræktu ungir framsóknarmenn
sér í.
Viö látum hér fylgja tvær myndir
sem teknar voru á mótinu.
-JGH.
Og hér er það sigursveit Ungmennafélags íslands. Talið frá vinstri, fremri
röð: Þröstur Einarsson Kópavogi, Björgvin Jónsson Keflavík. Aftari röð frá
vinstri: Þorvaldur Logason Neskaupstað, Elvar Guðmundsson Garðabæ og
Einar Már Sigurðsson Neskaupstað.
Leikið fyrir dansinum. Þótti hápunktur kvöldsins að íslensk hljómsveit skyidí birtast á sviðinu, slíkt gerist ekki á
hverju blóti.
Islendingafélagið í Chicago hélt hið
árlega þorrablót sitt þann 5. mars
síðastliðinn og var hljómsveitin Pónik
fengin vestur til að leika fyrir dans-
inum. Var Einar Júlíusson söngvari
meöíförinni.
Um 110 manns voru viöstaddir blótiö
og var þorramatur fluttur alla leiö frá
Islandi. Flugleiðir gáfu frítt far fyrir
hljómsveitina, hljóöfærin og matinn.
Var gerður góöur rómur aö leik hljóm-
sveitarinnar, enda er hún ein sú elsta
og reyndasta á landinu.
Um það bil 80 fjölskyldur taka
virkan þátt í starfsemi Islendinga-
félagsins í Chicago en 250 fjölskyldur
eru á lista félagsins.
Islendingafélagið heldur einnig 17.
júní skemmtun og aðalfund í október
ár hvert. Formaöur félagsins er Ása
Þorsteinsdóttir.
UTU
TVÍBUR-
INNÁ
SIGNU-
BÖKKUM
Hversu margir Parísar-
farar hafa veitt þessu eftir-
tekt? Þessi litla systir
amerísku frelsisstyttunnar
stendur á Signubökkum,
eins og sjá má.
Þegar Frakkar gáfu
Bandaríkjamönnum hina
raunverulegu frelsisstyttu
fyrir síöustu aldamót, tóku
sig til nokkrir þakklátir
Bandaríkjamenn í París og
létu gera þessa litlu eftir-
mynd. Sú litla mun vera
fjórðungur af stærð hinnar
amerísku.
PÓNIK í CHICAGO