Dagblaðið Vísir - DV - 19.04.1983, Blaðsíða 4
4
DV. ÞRIÐJUDAGUR19. APRIL1983.
Forsetinn heilsar upp á dansarana að sýningu lokinni.
Forsetinn skálaði við Yves LeRoux, áttatíu og þriggja ára gamlan mann, sem
forðum réri á íslandsmið og er búsettur í Paimpol.
DV-myndir Guðlaugur T. Karlsson.
Jack Lang menningarmálaráðherra
bauð forseta islands að sjá ballett-
sýningu í óperunni í París, fimmtudag-
inn 14. apríl. Virðulegir dátar standa
heiðursvörð með sverð á lofti er Vigdís
gengur í skautbúningi til sýningarinn-
Á afmælisdegi sinum, 15. april, dvaldi
Vigdis Finnbogadóttir á Bretagne-
skaga, i Paimpol og nágrenni. Forseti
íslands lagði blómsveig að minningar-
skjöldum um franska sjómenn sem
fórust á islandsmiðum.
— svipmyndir f rá heimsókn
Vigdísar Finnbogadóttur
. Opinberri heimsókn Vigdísar Finn-
bogadóttur, forseta Islands, í Frakk-
landi lauk um síðustu helgi. Á þeim
fjórum dögum sem forsetinn og
fylgdarliö hans dvöldu í Frakklandi
var haldið uppi strangri dagskrá og
komið við á fjölda opinberra staöa og
rætt við við margan mætan mann.
Ekki er að efa að nafn Islands mun
bera oftar á góma meöal Frakka eftir
en áður og almennt ríkir mikil ánægja
meö hvernig til tókst í ferðinni. Forseti
Islands lét hafa eftir sér viö heimkom-
una aö hann teldi heimsóknina hafa
heppnast vonum framar og bætti við
að þetta væri líkast til skemmtilegasta
ferö sem hann hefði f arið.
Lítum á nokkur augnablik í ferð for-
setans sem Guðlaugur T. Karlsson,
fréttaritari DV í föruneyti Forseta Is-
lands, festiá filmu.
-ás
Fimmtudaginn 14. aprQ skoðaði Vigdis Finnbogadóttir Sjóminjasafnið í París.
Þar mátti sjá þessa glæsUegu brjóstmynd sem foröum mun hafa prýtt stefni
glæsiskips.
, FORSETINN
IFRAKKLANDI
Svo mælir Svarthöfði Svo mælir Svarthöfði Svo mælir Svarthöfði
Niðurstödur benda til utanþingsstjómar
Þá liggja fyrir þær skoðanakann-
anir, sem væntanlegar eru fyrir 23.
aprU. Þær benda tU, að umtals-
verðar breytingar muni eiga sér stað
á fylgi flokkanna, en sigur Sjálf-
stæöisflokksins verða minni en búist
var við. Það er þó Ijóst, að úrslit
kosninganna munu valda því að
Sjálfstæðisflokknum verður falið
fyrstum flokka að mynda ríkisstjórn,
þótt hann, vegna innri mála, virðist
vanbúinn nokkuð. Þá má alveg eins
búast við því að flokkurinn fái órými-
lega skamman frest tU stjórnar-
myndunar, og fer það eftir þeim
ráðum, sem forsetinn fær. Ljóst er
að forsetinn mun hlusta töluvert á
skoðanir forsætisráðherra á málinu.
Framsókn er nú spáð 12—13 þing-
mönnum, eða um seytján prósentum
atkvæða, og er þá flokkurinn kominn
í sama farið og hann var í eftir kosn-
ingarnar 1978. Ljóst er að vinstra
fylgi Framsóknar fer nú í auknum
mæli yfir tU Alþýðubandalagsins, og
verða slíkar sveiflur oft og tíðum
örlög mUliflokka.
Hér á árum áður var Framsókn
stundum skömmuð fyrir aö hlaupa
úr ríkisstjórnum. En þá hegðaði hún
sér rétt, vegna þess að mUliflokkur
tapar ævinlega atkvæðum, þegar
hann fer að sitja lengur í ríkisstjórn-
um en málefni leyfa. í raun er hann
sá baggaauki í stjórnmálum, sem
hindrar að haUist á merinni. Þegar
því hlutverki lýkur, soga sterkari
aðilar til sin fylgi hans eins og nú er
raunin. En Alþýðubandalagið tapar
líka. Þar kemur tU kvennaframboð
og VUmundur, en báðir þessir aðUar
ná töluvert inn í raðir bandalagsins.
Tap Alþýðubandalagsins yrði meira
og áhrifaríkara ef framsóknarfylgið
væri ekki samt við sig í svona tU-
feUum, eins og raunar kom berlega í
Ijós í kosningunum 1978.
Mistök Framsóknar voru þau, að
fara ekki úr rikisstjórn snemma árs
1982. Síðan hefur hallað mjög á
ógæfuhUðina fyrir flokknum. Hann
fékk ekki að halda áfram niðurtaln-
ingarstefnunni fyrir bandalaginu, og
situr nú uppi eiginlega ráöalaus,
nema hvað hann er að boða að endur-
taka eigi leikinn frá 1981 með niður-
talningu samkvæmt lögum. En fleiri
eiga um sárt að binda en Framsókn.
Gömlum bandalagsflokki eftir
þriggja ára „ego-trip” dr. Gunnars
Thoroddsens. Lúðvík Jósepsson vUl
ekkert um stefnumið flokksins tala.
Hann sagði í ÞjóðvUjanum á sunnu-
dag. „Ég vU taka það skýrt fram, að
ég tek ekki beinan þátt í þeim kosn-
ingum, sem nú eru á næsta leiti, og
blanda mér því sem minnst í þær.”
Þetta er kannski lexía, sem aUa-
baUar skUja.
Um Alþýðuflokkinn er .það að
segja, að honum var ekki skapað
nema skUja við VUmund með hryggi-
legum afleiðingum. Honum er spáð
fjórum þingmönnum, og er þá taUð
að tveh' verði kjördæmakosnir. VU-
inundur fær fylgi frá þeim svo og
kvennaframboðið, því varla er að
búast við að þeir alþýðuflokksmenn
snúi sér tU stjórnarsinna í öngum
sinum. Miðað við atkvæðatölur
almennt virðast þeir ansi mikið úr
leUt, þegar kemur til stjórnarmynd-
unar. Annars þurfa menn tæplega að
vona upp á venjulega stjórnar-
myndun að kosningum loknum ef
Sjálfstæðisflokkurinn fær ckki
hreinan meirihluta. Það hefur flogiö
fyrir að i ráöi sé myndun utanþings-
stjórnar, sem gæti verið heppUeg
undir vissum kringumstæðum. Hins
vegar fylgir þessari sögu, að núver-
andi forsætisráðherra sé þegar byrj-
aður að undirbúa ráöstafanir fyrir 1.
júní, þegar hann ætti eftir öllum
sólarmerkjum að vera hættur. Grun-
semdir hafa menn um það, að honum
sé ekki á móti skapi aö mynduö verði
utanþingsstjórn að því tUskUdu að
forseti feli honum að mynda hana.
Við þetta myndi stjórnartími hans
a.m.k. framlengjast þangað til þing
kæmi saman að hausti, en lengi
hefur legið í loftinu, að hann vUdi
stjórna fram á haustið. Eftir nokkra
kosningabaráttu og töluverö pólitísk
tUhlaup yrði þessi endir á baráttunni
næsta óvæntur.
Svarthöfði.