Dagblaðið Vísir - DV - 19.04.1983, Síða 6
DV. ÞRIÐJUDAGUR19. APRÍL1983.
6
AÐ LJÚKA
UPP
RITNINGUNNI
ER HVERJUM
MANNI HOLLT
GÓÐ OG NYTSÖM
FERMINGARGJÖF
Fæst í bókaverslunum og
hjá kristilegu félögunum.
HIÐ ÍSL. BIBLÍUFÉLAG
(f>ttÖbraubóötofu
Hallgrimskirkju, Reykjavik,
sími 17805, opið 3—5 e.h.
Haukur og Ólafur
raftækjaverslun
AUGLÝSIR
Raflagnir
í úrvali
t.d. ELCO rofar, tenglar, fjöhengi og fatningar
bæði á loft og veggi, einnig höfum við rofa,
vegg- og loftdósir.
SIENIENS rofa, tengla, töflurofa, töflutengla,
várrófa og’lekaliða.
TICINO rofar, tenglar og klær.
BJARG rofadósir og veggdósir. Plaströr,
hólkar beygjur. töflustútar, loftplötustútar
o.fl. o.fL
TONGSRAM tjósaperur, yfir 200 gerðir.
SYLVANIA fhírperur frá 8 til 65 vött. i
FAM ryksugur og fylgihlutir.
HOBART rafsuðuvélar og rafsuðuvir i úrvali.
M0T0R0LA ahernatorar i bfla, báta og
vinnuvélar, 6-32 V, 30-120 amper.
PARIS - RHONE startarar í franska bfla.
N0ACK rafgeymar í flestar bifreiðir.
VAC0 verkfæri.
STANLEY verkfæri.
METABO rafmagnsverkfæri.
DAV hleðslutæki i ýmsum stærðum.
RULE dráttarspil á bfla og einnig til að draga
með báta á vagna.
ÚNNUMST EINNIG ALLAR ALMENNAR
RAFMAGNSVIOGEROIR 0G NÝLAGNIR i
HÚS OG VERKSMIOJUR.
Haukur og Ólafur
raftækjaverslun
Ármúla 32 —Sími 37700 — Reykjavík
in
Neytendur Neytendur Neytendur Neytendur
Nú gleymir enginn
húsnæðisláninu
— greiðsluseðlar minna á afborgun
„Það er verið að vinna að þessu af
kappi,” sagði Sigurður E. Guðmunds-
son, framkvæmdastjóri Húsnæöis-
stofnunar ríkisins. Hann átti þar við
seðla sem mönnum verða framvegis
sendir þegar þeir eiga að greiöa af hús-
næöismálalánum sínum.
Hingað til hafa menn enga slíka
seðla fengið. Þeir hafa því þurft að
muna hvenær gjalddagi lána þeirra er.
Og til þess að fá upplýsingar um
hversu mikið greiða á af lánunum hef-
ur þurft aö hringja, eða fara, í Veð-
deild Landsbankans. Fyrir hvem
gjalddaga hefur því verið svo mikið
álag á símakerfi veðdeildarinnar að
drjúgan tíma getur tekið að ná sam-
bandi. Starfsfólk þar hlýtur líka að
vera örþreytt eftir slíkar hrinur. Marg-
ir af þeim sem skulda húsnæðislánin
hafa líka orðið fyrir því aö hrökkva upp
um nætur og haldið að þeir væru orðnir
stórskuldugir því þeir hefðu gleymt að
borga af lánunum. Sjálfur viöurkenndi
Sigurðuraðslíkt hefði komiðfyrirsig.
„Það hefur verið mikill vilji til að
bæta úr þessu. En skorthefur nægileg-
an tækjabúnað sem er núna verið að
reyna að fá,” sagði hann.
Nauðsynlegur tækjabúnaöur, til þess
aö senda mönnum gíróseðla sem hægt
er að greiöa íhverjum banka, erennþá
ekki fyrir hendi og verður líklega ekki
fyrr en seinni hluta ársins. En til
bráðabirgða verða mönnum sendir
greiösluseölar sem þeir geta greitt í
hverju útibúi Landsbankans. Einnig er
hægt að kaupa svonefnda C-gíróseðla í
útibúum annarra banka (þeir kosta
6,50 krónur) og senda greiðsluna þann-
ig. Búast má við því að eitthvað af’
þessum greiðsluseðlum verði á röng-
um nöfnum. Sigurður sagði það al-
gengt að menn gleymdu að tilkynna
eigendaskipti íbúöa til húsnæðisstofn-
unar og væru því reikningar á nöfnum
gamalla eigenda. Eitt af því sem gera
þarf áður en hægt er að senda út
greiðsluseöla sem hægt er að greiða í
hverjum banka er aö komast í fast
tölvusamband við Fasteignamat ríkis-
ins. Þá fást kórréttar upplýsingar um
hver er raunverulegur eigandi hverrar
íbúöar.
Þeir sem greiða af lánum sem veitt
voru fyrir ársbyrjun 1980 greiða aðeins
einu sinni á ári. En þeir sem eru með
lán síðan eftir þaö greiða fjórum sinn-
um á ári. Því verða í framtíðinni send
út yfirlit ársfjórðungslega um stööu
manna hjá sjóðnum og hvað greiða á í
það skiptið.
Þeir sem eru með eldri lán til kaupa
á nýrri íbúðum eiga að greiða af þeim
núna 1. maí. Það er að segja 1. maí er
gjalddagi. En síðasti dagur til að
greiða af láninu án þess að dráttar-
vextirfalliáþaðerl.júní. DS
Flestallir sem byggja sér ibúðir eða hús taka til þess húsnæðislán. Nú verður greiðsla á þeim auðveldari.
DV-myndEinar Ólason.
Rannsókn á nítríti og nítrati í fæðu:
„Þyrfti að setja
strangari reglur”
segir dr. lón Óttar Ragnarsson
„Nítrít og nítrat hafa minnkað í
kjötvörum undanfarin ár. En mér
finnst aö þetta þurfi að minnka enn-
þá meira. 1 rauninni ætti að setja
miklu strangari reglugerð þar sem
kveðið væri á um það að þessi efni
ætti ekki að nota nema í litlum mæli,
jafnvel alls ekki, til að lita mat eða í
mat sem þarf að sjóða fyrir neyslu,”
sagði doktor Jón Ottar Ragnarsson
matvælafræðingur. Hann hefur
undanfarin 10 ár verið að rannsaka
nítrít og nítrat (saltpétur) í fæðu
einkum við fæðudeild RALA. Meö
honum að rannsókninni vann Ragn-
heiöur Héðinsdóttir matvæla-
fræðingur.
Rannsóknin hófst fyrir réttum tíu
árum þegar mikiö magn af nítríti
fannst í saltkjöti. Fór magnið stund-
um upp í heilt gramm í kílói. Þetta
vakti ugg því samband er talið vera
á milli nítríts í fæðu og krabbameins
í maga. Síðar hefur doktor Þórir
Helgason svo leitt að því líkum að
sykursýki kunni hugsanlega að stafa
af neyslu nítríts. Er það þá móðir
sem neytir nítrítsins og ófæddir synir
hennar fá skert sykurþol. Enn er ver-
ið að rannsaka þá kenningu til hlítar.
„Nítrat breytist í nítrít í líkaman-
um. Oft breytist nítrítið síðan í N-
nítróssambönd sem valda krabba-
meini. Þetta gerist einkum í maga
fólks sem er veilt fyrir. Til dæmis
fólks með magabólgur. Með því að
neyta C-vítamíns með nítrítinu dreg-
ur úr lílíum á því að þessi sambönd
myndist. Menn geta því dregið úr
hættunni á magakrabba með því að
borða grænmeti með saltkjötinu. En
það þýðir þá ekki að matreiða það
þannig að allt C-vítamín hverfi úr
því. Slíkt gerist við langa suðu. Fólk
sem veilt er í maga ætti einnig aö
forðast nítrít.”
Erþað nauðsynlegt?
Jón Ottar var spurður að því hvort
nítrít væri nauðsynlegt, hvort ekki
væri hægt að komast ágætlega af í
inatargerðán þess.
„Nítrít og salt hafa verið notuð til
þess að koma í veg fyrir rotnun í
matvælum. Vitað er fyrir víst aö ef
matur er ekki rotvarinn getur mynd-
ast í honum clostridium botulinum
sem er lífshættuleg matareitrun. Ef
saltiö er minnkaö, eins og menn eru
að reyna núna því það þykir ekki allt
of hollt, eykst hættan á rotnun ef
nítrítið er minnkað líka. Þegar mat-
ur er soðinn eyðast hins vegar mat-
areitrunargerlamir. Því þarf ekki
svo mikið salt og alls ekki nítrít í mat
sem hvort eð er er soöinn fyrir
neyslu, eins og til dæmis saltkjöt.
Menn eru hins vegar hræddari við
t.d. álegg. Nítrít er í flestum tilfell-
um nauðsynlegt í þaö því geriarnir
þrífast mætavel í lofttæmdum um-
búðum sem núna tíðkast. En hvort
allt það magn sem nú er notað er
nauðsynlegt er hins vegar efamál,”
sagði Jón.
Nítrat fannst fyrst og fremst í
rannsókn hans á söltuðu og reyktu
kjöti og svo grænmeti. Ástæðan fyrir
því aö það finnst í grænmetinu er sú
aö það er í áburðinum, bæöi þeim líf-
ræna og þeim ólífræna. Sérlega sagði
Jón óhóflega notkun á ólífrænum
áburöi vera slæma hvað þetta varð-
aði. En grænmetið er aö því leyti
Dr. Jón Óttar Ragnarsson mat-.
vælafræðingur.
skárra en kjötiö að í því er C-vítamín
sem kemur í veg fyrir að hin hættu-
legu efnasambönd myndist. En þá
má ekki eyðileggja C-vítamínið við
matreiðsluna. DS.