Dagblaðið Vísir - DV - 19.04.1983, Side 7
DV. ÞRIÐJUDAGUR19. APRIL1983.
7
Neytendur Neytendur Neytendur Neytendur
Nýtt mynstur og handprjónaband, Lopi Lyng, i fallegri flík. Áferðin á
fiikinni verður mjög falleg ef fiikin er burstuð blaut með stífum bursta.
Áferð lik og á mohair-flikum.
í Álafoss-verksmiðjunni að Vesturgötu 2 eru námskeið haldin fyrir prjónakonur. Eitt slíkt stendur nú yfir
og prjónuð eru nýmynstur úr Lopa Lyngi.
DV-myndir EÓ.
ÁLAFOSS: LOPI - LYNG
NÝTT HANDPRJÓNABAND
„Þessi nýi lopi er léttari en annar
lopi. Þetta er blanda úr fínum ullar-
tegundum, vinnsluaðferðin er önnur
og útkoman er meiri mýkt og fyU-
ing,” sagði Guðjón Kristinsson,
verksmiðjustjóri Álafoss M., er nýtt
handprjónaband var kynnt í húsa-
kynnum fyrirtækisins nýlega.
Guðjón Kristinsson er hönnuður nýja
handprjónabandsins sem nefnist
LopiLyng.
Handpr jónabandið er spunnið með
mjög litlum snúð, síðan eru tvinnaðir
saman tveir þræðir, öfugt við spuna-
snúð, þannig að snúið er ofan af
bandinu, þar til þræðirnir eru nánast
snúðlausir. Þetta gerir þaö að verk-
um að bandið verður mjög fyUingar-
mikið og mjúkt viðkomu. FUkur
prjónaðar úr Lopa Lyng eru léttar og
hlýjar. Grófari prjónar eru notaðir
til að prjóna úr Lopa Lyngi en t.d.
hespulopa.
Nýja handprjónabandið er fram-
leitt í hvítum Ut, sauðaUtunum og
einnig í átta samkembulitum, þar
sem blandað er saman nokkrum
jurtalitum í ákveðnum hlutföUum.
Jurtalitnimir minna á haustUti ís-
lenskrar náttúm og þaðan er nafnið
tiUcomið. Vegna þess hve bandið er
laussnúiö er mjög auðvelt að bursta
flíkumar, faUegasta áferðin verður
á fUkinni sé hún burstuð blaut með
stífum bursta. Um leiö og hand-
prjónabandið Lopi Lyng kom á
markaö nú í vikunni voru ný munst-
ur lögð fram í Álafoss-versluninni.
Pantanir á nýja lopanum hafa þegar
borist erlendis frá.
Tóku forráðamenn fram á kynn-
ingarfundi að nýi lopinn taki ekki við
af hespulopanum, sem er sívinsæU,
en Lopi Lyng er sterkari en annar
lopi. Vel yfir helmingur af ulUnni er
erlendur í þessu handprjónabandi.
Dokkan af Lopa Lyngi kostar 31
krónu (100 grömm), sama verð og á
Lopa Light. Sama magn af hespu-
lopa kostar 29,20 krónur.
-ÞG
ARGUS
íslenskt einingahús
með múrsteinsklæðningu
Flestir eru sammála um fegurð múrsteinshleðslunnar.
En aukakostnaðurinn er ekki aðeins fyrir augað.
Ending múrsteina er óumdeilanleg og viðhaldið er mjög lítið.
Múrsteininn þarf jú ekki að mála, hvorki eftir þrjú ár né 30 ár.
Aldrei.
Engin tvö S.G. hús eru eins.
Til þess eru valmöguleikarnir of margir.
Og svo er sérhvert hús lagað að óskum kaupandans.
Hann setur sinn svip á húsið.
Einingahús eru svo sannarlega ekki öll eins.
Hringdu í síma 99-2277og við sendum þér
allar upplýsingar strax.
SG EININGAHÚS HF.
Eyrarvegi 37,800 Selfoss
Símar: 99-2276,99-2277,99-2278.