Dagblaðið Vísir - DV - 19.04.1983, Side 21
DV. ÞRIÐJUDAGUR19. APRIL1983.
21
KOSNINGAFUNDUR DV
KOSNINGAFUNDUR DV
„ER KOMINN TÍMI
TILAÐSÖDLAUM”
— sagði Fríðrik Sophusson
„Ég er viss um þaö aö þaö eru
margir sem eiga samleiö með Sjálf-
stæðisflokknum, samleiö meö flokki
sem er tilbúinn til þess aö leiða þjóöina
frá upplausn til ábyrgöar,” voru loka-
orð Friðriks Sophussonar.
Hann geröi fyrr í iokaræðu sinni
athugasemd viö það veður sem Jón
Baldvin Hannibalsson hefði gert út af
því aö skoðanir væru skiptar í Sjálf-
stæðisflokknum um sum mál.
„Þetta er alveg rétt hjá Jóni
Baldvini en í Alþýðuflokknum er ekki
pláss fyrir fleiri skoöanir en eina og
það var þess vegna sem Vilmundur
Gyifason yfirgaf flokkinn og þaö er
þess vegna sem hann er kaliaður Nelló
ídag.”
„Hugsið ykkur það ef Nelló flóð-
hestur hefði verið kjörinn varafor-
maður Alþýðuflokksins þá hefði Jón
Baldvin komiö ríðandi á honum hér í
salinn í dag og báðir verið ánægðir.”
Friðrik beindi síðan spjótum sínum
að Svavari Gestssyni og sagði hann
Svavar bíræfinn mann. Hann hefði
gagnrýnt Sjálfstæðisflokkinn fyrir
stefnu sína í húsnæðismálum en það
væri einmitt Svavar sem bæri ábyrgð á
því að ungt fólk heföi ekki eignast sitt
eigiðhúsnæöiídag.
-JGH.
„KAPPERBEST
MEÐFORSJÁ”
— sagði Ólafur Jóhannesson
„Að kosningum loknum verðum við
öll að vera við því búin að slíðra sverð-
in og taka höndum saman. Samstöðu
er þörf við lausn hinna alvarlegu
vandamála. Smáþjóð eins og við
Islendingar höfum hvorki efni á né
orku til að standa stöðugt í innbyrðis
deilum og togstreitu. Sannleikurinn er
sá að eftir á sýnast slíkar deilur hafa
verið deilur um keisarans skegg. Við
skulum jafnan öll hafa það hugfast aö
kapp er best með forsjá.” Þannig
hljóöuöu lokaorð Olafs Jóhannessonar
í gærkvöldi.
Olafur hafði fyrr í lokaræðu sinni
minnst á niðurtalningu verðbólgunnar.
Hann gat þess að 1980 hefði hún verið
60% en 1981 hefði tekist að koma henni
niður í 40%, 1982 hefði hún hins vegar
aukist aftur í 60% vegna skorts á
aðgerðum. „Ástæðan fyrir þessu 1981
var sú aö þá var beitt niöurtalningu.”
Olafur gagnrýndi síðan Friðrik
Sophusson fyrir að minnast ekki á
Gunnar Thoroddsen í sambandi við
núverandi ríkisstjórn en segja þess í
stað að Alþýðubandalag og
Framsóknarflokkur heföu ráðiö
mestu.
„Hann mundi víst ekki eftir neinum
öðrum,” sagði Olafur og bætti síðan viö
að Gunnar hefði nú einu sinni verið
höfuð ríkisstjórnarinnar og varafor-
maður Sjálfstæðisflokksins þegar hann
myndaðihana.
-JGH.
„EKKIAÐ BERJAST
GEGN KÖRLUM”
— sagði Guðrún Agnarsdóttir
„Ég er viss um að tíminn mun leiða í
ljós að þessi almannavakning kvenna
til að leita mannréttinda sinna, til að
verða virkar og ábyrgar um stefnu-
mótun og rekstur þess þjóðfélags sem
þær búa í er ekki bara sjálfsagt og eðli-
íegt frumkvæði. Það getur orðið gæfu-
spor fyrir afdrif mannlífs á þessari
jörð.” Þetta voru lokaorð Guðrúnar
Agnarsdóttur í gærkvöldi.
Guðrún hafði áður í lokaorðum sín-
um minnst á að stefna Kvennalistans
væri raunsæisstefna sprottin upp úr
áralangri reynslu kvenna af heimilis-
rekstri, umönnun og verndun lífs.
„Hún er stefna mannúðlegra hagsýni
sem vill taka upp rýtt gildismat mann-
legra verðmæta og samábyrgðar.”
„Stefna Kvennalistans felur einnig í
sér mannréttindabaráttu þar sem
sameinast er um að rétta hlut kvenna
til jafns á viö karla. Viö erum ekki að
berjast gegn körium heldur fyrir konur
og um leið fyrir okkur öll, því að aukið
kvenfrelsi leiðir af sér karlfrelsi. Karl-
ar eru líka fjötraðir af kynhlutverki
sínu og kysu sér ef til vill margir annað
hlutskipti en þeim býðst nú ef svigrúm
gæfisttil.”
Guðrún sagði síöan í ræðu sinni:
„Auðlindir okkar eru fyrst og fremst
við sem byggjum þetta land, þekking
okkar og tæknikunnátta, fiskimiö,
gróður, jarðvarmi og fallvötn. Við vilj-
um nýtingu á þessum auðlindum, þar
sem annað verðmætamat er lagt til
grundvallar en stimdargróði og rán-
yrkja.” -JGH
„VERULEG HÆTTA
ERTILHÆGRI”
— sagði Svavar Gestsson
„Grundvallaratriði þessarar
kosningabaráttu og þess sem við
stöndum nú f rammi fyrir, góðir fundar-1
menn, er það að þaö er veruleg hætta
til hægri. Ihaldsöflin viröast vera í
stórsókn. Tókuð þið eftir því hvað
Friðrik Sophusson sagði þegar hann
var spurður um það hvaða stefnu S jálf-
stæðisflokkurinn myndi reyna að
knýja fram í ríkisstjórn? Hann sagðist
myndi fylgja stefnu þar sem lögð yrði
áhersla á það að aðrir flokkar undir-
gangist stefnu íhaldsins. Það mun
Alþýöubandalagiö aldrei gera, hvaða
hlutskipti sem aörir flokkar kunna að
kjósa sér eftir þessarkosningar.”
Þannig hljóðuöu lokaorö Svavars
Gestssonar í gærkvöldi.
Svavar minntist fyrr í lokaræðu
sinni mikið á Vilmund Gylfason og
kosningabaráttu hans. „Vilmundur
hefur á undanfömum árum orðið
býsna þekktur fyrir það að fara fram
með miklum hávaöa í íslenskum
stjórnmálum.”
„Vilmundur Gylfason er í rauninni
alltaf að sprengja. Hann er að
sprengja reyksprengjur og fer fram
með hávaða og gerviróttækni í orði.
Undir niðri leynist hægfara og ihalds-
samur krati, afsprengikerfisins.”
Svavar fór síðan nokkrum oröum um
Jón Baldvin Hannibalsson og kvað
hann undariega mikið fyrir það að
bregða sér í dýragarða. „Hann nefndi
flóðhesta þegar hann var að tala um
Vilmund vin sinn og fyrir nokkrum vik-
um hélt hann kappræðufund við tófu-
vinafélagið í Sigtúni,” segir S vavar.
-JGH
Mikið fjölmenni sótti stjóramálafund DV og var Háskólabíó troðfullt. Setið var í
sætum, staðið á göngum og auk þess sjónvarpað til þeirra sem vora i anddyri.
„NIÐURTALNINGIN
REYNST LEIFTUR-
SÓKN FRÁ REAGAN”
— sagði Jón Baldvin Hannibalsson
„Við vitum það öll að það hefur orðið
trúnaðarbrestur á milli stjórnmála-
manna og almennings. Stór hiuti
þjóðarinnar hefur orðið fyrir sárum
vonbrigðum. Við skulum öll láta í ljósi
þá' von sameiginlega að íslenskir
stjómmálamenn endurreisi trúnaö
sinn og endurveki traust sitt hjá þess-
ari þjóð en þeir þurfa svo sannarlega
að vinna fyrir því,” voru lokaorð Jóns
Baldvins Hannibalssonar í gærkvöldi.
Jón hafði áður minnst í lokaræðu
sinni á Svavar Gestsson og hinn fyrir-
hugaöa fund þeirra í Sigtúni, þar sem
Svavar hafnaði þátttöku. „Skolli sjálf-
ur þorði ekki út úr greninu.”
Jón Baldvin gerði einnig aö umtals-
efni niðurtalningu Framsóknarflokks-
ins og sagði að sér væri ávallt hlátur í
hug þegar hún væri nefnd. Meginor-
sökin fyrir batanum árið 1981 kvað Jón
vera góða stöðu dollarans. „Með öör-
um orðum niðurtalningin er þá eftir
allt saman, loksins vitum við það,
leiftursókn frá Reagan i Hvíta hús-
inu.”
Jón gerði síðan núverandi ríkisstjóm
að umtalsefni og að enginn hefði verið
henni til vamar á fundinum. „Það er
nú þannig að þegar Gunnar Thorodd-
sen, sem hefur boriö höfuð og herðar
yfir þá í Sjálfstæðisflokknum, hefur
gengið út af sviðinu vill enginn við
hann kannast lengur af þessum sem
hann lyfti til valda og sem nutu náðar-
sólarvaldanna með honum og böðuðu
sig í ljósinu,” sagði Jón Baldvin.
-JGH
„ERUM AÐ TALA GEGN FLOKKUNUM FJÓRUM”
„Við emm að tala gegn þessu flokks-
valdi, gegn flokkunum fjómm. Ég segi
ykkur það skiptir engu höfuömáli á
laugardaginn hver þeirra vinnur. Þeir
skipta þessu með sér eins og þeir hafa
gert. Það sem að skiptir máli er að búa
til nýjar rásir. Það sem skiptir máli er
að þetta flokkakerfi sem við höfum bú-
ið við verði umskapaö.
Bandalag jafnaðarmanna er alvar-
— sagði Vilmundur Gylfason
legasta tilraun sem gerð hefur verið í
sögu lýðveldisins til að umskapa
flokkakerfiö og færa það nær fólkinu.
Ég segi ykkur, þetta er hægt, það er
komið undir árangri okkar á laugar-
daginn, við verðum aö treysta á ykkur
en þetta er hægt.” Þetta vom lokaorð
Vilmundur Gylfasonar í gærkvöldi.
Vilmundur hafði áður í lokaræðu
sinni lýst ríkisafskiptastefnu sem nú
vairi yfirgengileg í íslensku efnahags-
lífi. Hann sagði það mikilvægt að ríkis-
valdið komi hvergi nærri í samningum
um kaup og kjör og fiskverð.
„1 dag er þetta rikisafskiptastefna í
þágu mestan parts ónýts atvinnu-
rekstrar. Ög það er þar sem sósíalismi
Sjálfstæðisflokksins og sósíalismi
Alþýðubandalagsins hittast fyrir í
sama rúminu. Og það er í þessum
grandvallaratriðum sem á þessum
f lokkum er enginn munur. ’ ’
Vilmundur minntist síðan á vald
stjórnmálaflokkanna og setu stjóm-
málamanna í ríkisbönkum, í Fram-
kvæmdastofnun, í útvarpsráði og fleiri
valdamiklum stofnunum og ráð-
um. „Og hugsið ykkur ef að allt þetta
vald lenti hjá einum flokki, hundrað
manna sveit. Þá hjálpi okkur guð.” JGH
Erum séitiæfðir i HAT og CUROEN
BIFREIÐAU|VERKSTÆÐIÐ
hnastés
SKEMMUVEGI 4
K0PAV0GI
SIMI 77840
IÞROTTA-
SKÚR
með
franskn
læsingu
/ stærðum
26-35.
-,3B
Verð kr.
380.
Póstsendum.
TOPP,
®^SKÓRTNN
"/AT VELTUSUNDI 1
21212
Domus Medica,
Simi 18519.
Þingmenn
úr
DanKaraoum
og
sjóðsstjómum
Alþýðuílokkurinn
KRONURUT
Philips frystikistur.
260 OG 400 LÍTRA.
Heimllístækl hf
HAFNARSTRÆTI3 - 20455- SÆTÚNI 8-15655