Dagblaðið Vísir - DV - 19.04.1983, Side 23
22
DV. ÞRIÐJUDAGUR19. APRlL 1983.
DV. ÞRIÐJUDAGUR19. APRlL 1983.
23
íþróttir
íþróttir
íþróttir
íþróttir
íþróttir
íþróttir
íþróttir
íþróttir
Brady ekki með
írum gegn Spáni
Brendan O’Callaghan, miöherji Stoke, er kominn
aö nýju í landsliðshóp írlands, sem mætir Spánverj-
um í Evrópukeppni landsUöa í Zaragoza 27. april.
O’Callaghan lék sinn síöasta landsieik 1980.
Liam Brady leikur ekki meö írum gegn Spánverj-
um þar sem hann er í leikbanni — hefur veriö
bókaöur tvisvar í fyrri leikjum íra í EM, gegn HoU-
andi og Möltu.
Landsliöshópur írlands er skipaöur þessum leik-
mönnum:
Markverðir: Jim McDonagh, Gerry Peyton og
PatBonnar.
Varnarleikmenn: John Devine, David O’Leary,
Mike Walsh, Mark Lawrenson, Kevin Moran og
Chris Hughton.
Miövallarspiiarar: Gary Waddock, Tony
Grealish, Garry Daly, Mick Martin, Ronnie
Whelan, Ashley Grimes og Kevin Sheedy.
Sóknarmenn: Kevin O’Callaghan, Brendan
O’Callaghan, Mick Walsh, Garry Ryan, Tony
Galvin og Mick Robinson.
Eins og kunnugt er leika Islendingar í riöU meö
Spánverjum og Irum, einnig Holiendingum og
Möltubúum.
-sos
Sú norska jafnaði
heimsmetið
Norska stúlkan Grete Waitz jafnaði besta tima
konu i maraþonhlaupi, þegar hún hljóp vegalengd-
ina á 2:25,29 í London-maraþonhlaupinu á laugar-
dag. Alison Roe, Nýja-Sjálandi, náöi þeim tima
fyrir tveimur árum í New York. Þrátt fyrir krampa
og hnémeiösli i hlaupinu virtist Grete Waitz örugg
um að bæta heimsmetið. Hún varö þó að láta sér
metjöfnun nægja eftir aö í fyrstu haföi verið gefið
upp að hún heföi bætt tíma Roe um eina sekúndu.
Sigurvegari í London varö Mike Gratton, Bret-
landi, og hljóp á 18. besta tíma sem náöst hefur í
maraþoni, 2:09,44. Hann hljóp frá öðrum eftir 37
km, þegar hlaupiö var framhjá Tower of London.
Kom vel fyrstur í mark. Landi hans Gerry Helme
varö annar á 2:10,12 og Daninn Henrik Jörgensen
þriðji. Belgíumaðurinn kunni, Emile Puttemans,
var lengi vel fyrstur í hlaupinu ásamt þremur
hlaupurum frá Eþíópíu en þeir gáfu mikiö eftir loka-
kafla hlaupsins.
Besti árangur i maraþonhlaupi.
2:08.13 Alberto Salazar, USA New York 81
2:08.18 Robert de Castella, Fukuoka 81
2:08.34 Derek Cla vton Australia Antwerpen 69
2:08.38ToshihikoSeko, Japan Tokio83
2:08.39 Carlos Lopes, Portúgal Rotterdam 83
2:08.53 Dick Beardsley, USA Boston 82
Rummenigge með
hæstu einkunn
Frá Axel Axelssyni — fréttamannl DV í V-Þýska-
landl:
Karl-Heinz Rummenigge, fyrirliði v-þýska lands-
liösins og leikmaður með Bayern Miinchen, hefur
fengiö bestu meðaleinkunnina í Bundesligunni i vet-
ur hjá blaðinu Kickers. Rummeuigge er með meöal-
einkunnina 2,48. Þess má geta að Ásgeir Sigurvins-
son hjá Stuttgart er ofarlega á blaöi með meðal-
einkunnina 3,13. Ásgeir hefur þó ekki leikið alla leiki
Stuttgart vegna meiðsla.
Stúdentsprófið
í fyrsta sætinu
— Michael Laudrup neitar
tilboðum stórfélaganna
Danski landsliösmaðurinn í knattspymunni,
Michael Laudrup, sem aðeins er 18 ára, ætlar að
leika í Danmörku meö Bröndby þetta leiktimabil og
sumariö 1984. Hann bað forráðamenn Bröndby aö
hafa samband viö Liverpool svo stórkarlar félags-
ins, stjórnarformaöurinn, forstjórinn og Bob
Paisley, færu ekki aö hafa fyrir því að koma til
Kaupmannahafnar. Þeir fengju ekki annað svar en
nei. Þaö varö þvi ekkert af för Liverpool-mannanna
til Kaupmannahafnar. Miehael hefur einnig neitaö
tilboðum frá Ajax, Hollandi, og Anderlecht, Belgíu.
Hann er ákveðinn í aö ljúka stúdentsprófi áöur en til
atvinnumennsku í knattspymu kemur. hsim.
Bikarleikur
í Sandgerði
Keppni i átta liða úrslitum bikarkeppni hand-
knattleikssambandsins hefst i kvöld. Þá verður einn
leikur í Sandgeröi og fær Reynir Þór frá Vest-
mannaeyjum i heimsókn. Leikurinn hefst kl. 21.
Hann ber sig ekki fagmannlega þegar hann er að reyna að skalla knöttinn. Það er
eins og hann sé hræddur — markaskorarinn Schatzschneider.
Heimsmet í
maraþonhlaupi
— bandarísk stúlka hljóp vegalengdina á 2:22,43
Bandariska stúlkan Joan Benoit setti
i gær nýtt heimsmet í maraþonshlaupi
kvenna i hinu fræga Bostonmaraþon-
hlaupi. Hljóp vegalengdina á 2:22,42
og bætti fyrra heimsmet um næstum
þrjár mínútur. Frábær árangur hjá
þessari 25 ára konu, sem er íþrótta-
kennari við háskólann i Boston. Fyrra
metið áttu tvær stúikur og sagt er frá
því í dálknum lengst tU vinstri.
Mjög góður árangur náðist í Boston-
maraþonhlaupinu í gær. Heimamaður-
inn Greg Meyer frá Wellesley í
Massachusetts sigraði á 2:09,00, sem
er níu sekúndum lakari tími en best
hefur náðst í Boston-maraþon-
hlaupinu. Alberto Salazar, Bandarikj-
unum, á mettímann. Þá er þetta átt-
undi besti tími sem náðst hefur í mara-
þonhlaupi í heiminum. Ron Tabb frá
Oregon, USA, varö annar í hlaupinu á
2:09,32 og Benji Durden frá Georgiu
þriðjiá 2:09,57.
Joan Benoit átti eldra bandaríska
metiö í maraþonhlaupi kvenna,
Zoff hættir í
marki Ítalíu
— lék sinn síðasta landsleik á laugardag
Fyrirliði italska landsUðsins í knatt-
spyrnu, markvörðurinn frægi Dino
Zoff, tilkynnti i gær að hann gæfi ekki
framar kost á sér í ítalska landsUðið.
Ástæðuna fyrir þvi sagði hann tapleik
ítala i Rúmeníu i Evrópukeppninni á
laugardag. Nú yrði að fara aö „yngja”
upp italska landsUðið.
Markaskorarinn mikli, Dieter Schatzschneider:
Verður að hætta að
borða egg og bacon
— Hann er kunnur markaskorari í 2.
deUd sem hefur játað að það sé ekki
hans sterkasta hlið að skalla knöttinn.
Hann reykir, drekkur og hefur gefið út
þá yfirlýsingu að honum hundleiðist aö
æfa knattspyrnu. Þessi knattspyrnu-
maður, sem virðist ekki i fljótu bragði
vera iþróttamaður, er sagður næsta
stórstjarnan í knattspymunni í V-
Þýskalandi og sá leikmaður sem eigi
eftir að vera mikið í sviðsljósinu í sjón-
varpi, útvarpi og á síðum dagblað-
anna.
— Hver er þessi leikmaður? Jú, nafn
hans er Dieter Schatzschneider og
hefur hann skorað yfir 30 mörk á þessu
keppnistímabili og er sagður vera arf-
taki Gerd „Bomber” Miiller, fyrrum
leikmanns Bayem Múnchen og V-
Þýskalands.
Schatzschneider er 25 ára og hefur
hann aldrei leikið i Bundesligunni.
Hann hefur verið leikmaður með
Hannover og Fortuna Köln og það var
einmitt hann sem á heiðurinn að því að
Fortuna Köln er nú komið í úrslit V-
þýsku bikarkeppninnar, með því að slá
lið út eins og Braunschweigh, Borussia
Mönchengladbach og Dortmund en
gegn þessum liðum skoraöi hann alls
fimm mörk og þá hefur hann skorað
26 mörk fyrir Fortuna Köln og
Hannoverí2.deild.
Þessi mikli markaskorari fer til
Hamburger SV næsta keppnistímabil
og á hann að taka við hlutverki Horst
Hrubesch en þeir eru svipaðir í vaxtar-
lagi. Schatzschneider er 1,87 m að hæð
og vegur 88 kg. Leikaðferö þeirra er
ekki þó sú sama því að Hrubesch er
þekktur fyrir skallamörk sín en hinn
ekki. Schatzschneider er svipaður og
Gerd Miiller, þannig að hann þarf ekki
mikið pláss til að athafna sig inni í
vítateig andstæðinganna.
Það er ljóst að Jupp Derwall,
landsliðseinvaldur V-Þýskalands,
hefur mikinn áhuga á að fá þennan
tmikla markaskorara i landsliðið og
sérstaklega eftir að hann lék með B-
landsliðinu gegn Frankfurt og skoraði
bæði mörk landsliðsins í jafnteflisleik
2-2.
Verður Schatzschneider arftaki Uwe
Seeler hjá Hamburger SV? Það hafa
ekki margir markaskorarar sést í
Hamborg síðan Seeler var mesti
markaskorari liðsins á árunum 1960—
1970.
Það er ljóst að Ernst Happell,
þjálfari Hamburger SV, þarf að taka
Schatzschneider í gegn þegar hann
kemur til félagsins og það þýðir þá
ekkert fyrir hann að segja að honum
leiðist æfingar. Hann kemst ekki upp
með það hjá Happell, sem er mjög
strangur þjálfari.
Happell mun fá þennan mikla
markaskorara til að draga úr reyking-
um og hætta óhóflegri drykkju. Þá
mun Schatzschneider þurfa að hætta
að borða egg og beikon — og drekka
ískalt kók rétt fyrir leiki eins og hann
ervanurnú.
-SOS.
Dino Zoff, sem nú er 41 árs og var
fyrirliði, þegar Italía varð heimsmeist-
ari í fyrirrasumar á Spáni, hefur um
langt árabil verið frægasti markvörð-
ur heims. Hann lék sinn fyrsta lands-
leik fyrir Italíu 27 ára gamall eða fyrir
14 árum. Hefur leikið 111 landsleiki
fyrir Italíu og er leikjahæstur lands-
liðsmaður þar og með þeim hæstu í
heiminum.
Mikla líkur eru á aö Zoff hætti einnig
að leika með liði sínu, Juventus,
Torino, í vor, einkum og sérílagi ef
J uventus verður E vrópumeistari.
hsím.
Keppni í borðtennis á mótinu á Selfossi.
DV-mynd Dolli.
Keppni faUaðra á SeHossi
tslandsmót fatlaðra var haldið á
Selfossi dagana 15.—17. apríl. Keppt
var í borötennis, bogfimi, boccia og
sundi. Þátttaka var góð og keppnin
tókst vel.
Sigurvegarar í sundi urðu: Hrafn
Logason, ösp, Súsanna Pálmadóttir,
Gáska, Gunnar Guðmundsson, Iþrótta-
félagi fatlaðra í Reykjavík, Eygló
Ebba Hreinsdóttir, Björk, Olafur
Olafsson, Ösp, Kristín Friðriksdóttir,
IFH, Edda Guðmundsdóttir, Hvöt,
Anna Geirsdóttir, IFT, Þórhallur
Árnason, IFH, GunnlaugurSigurgeirs-
son, ösp, Ina Valsdóttir, ösp, Sigfús
Brynjólfsson, IFR, Edda Bergmann,
IFR, Þröstur Friðþjófsson, IFH,
Ragnheiður Olafsdóttir, IFH, Sigrún
Huld Hrafnsdóttir, Ösp, Böðvar
Böðvarsson, IFH, Sigurður Péturs-
son, ösp, Kristín Rós Hákonardóttir,
IFR, Gunnar Valur Gunnarsson, HSK,
Hlaðgerður Snæbjömsdóttir, IFR,
Sigrún Pétursdóttir, IFR, Benedikt
Valsson, ösp, Aðalheiður Þorgils-
dóttir, IFH, Sigurður Pétursson, IFH
og Olafur Olafsson, ösp. Sumir sigruðu
í fleiri en einni grein.
Sigurvegarar í boccia. Jón Grétar
Hafsteinsson, ösp, Sigurður Björns-
son, IFR, Tryggvi Haraldsson, IFA,
Helgi Dan. sæmdur
gullmerki ÍSÍ
— á fimmtugsafmæli sínu á laugardag
Helgi Daníelsson — knattspyrnu-
kappinn kunni frá Akranesi, sem er nú
formaður landsliðsnefndar KSÍ, hélt
upp á fimmtugsafmæli sitt á laugar-
daginn og var margt um manninn hjá
Helga þá. Helgi var sæmdur gullmerki
ÍSÍ fyrir mikil og góð störf í þágu
íþrótta á tslandi, og þá sérstaklega
knattspyrnu. Það var Sveinn Bjöms-
son, forseti ÍSÍ, sem sæmdi Helga gull-
merkinu.
Að sjálfsögðu færði Knattspymu-
sambandið honum veglega gjöf og Ell-
ert B. Schram, formaður KSI, hélt
snjalla ræðu og sló á létta strengi. Það
hefur ávallt verið létt yfir mannamót-
um þar sem Helgi Daníelsson hefur
verið, þar sem hann er maður
skemmtilegur og gamansamur.
Ellert sagði margar stuttar sögur af
Helga og ætlum við að láta eina þeirra
fljóta með hér.
— „Það var ekki létt yfir mönnum í
búningsklefa íslenska landsliðsins eftir
aö tsland hafði tapað einum landsleik
0—6. Helgi Daníelsson, sem þá varði
markið, var frekar niðurlútur úti í einu
hominu á búningsklefanum, þar sem
nokkur mörkin sem hann fékk á sig
höfðu verið af ódýrari gerðinni.
— Það lifnaði þó heldur betur yfir
Helga þegar erlendur maður kemur til
hans og segir. — „Daníelsson, ég hef
mikinn áhuga á þér.” Helgi verður
ánægður og segir: — „Hvað, ert þú
erlendur umboðsmaður eða þjálfari?”
„Nei,” sagði maðurinn: — „Eg er
augnlæknir.”
Ellert sagði að Helgi væri góður fé-
lagi og hrókur alls fagnaðar þar sem
hann væri og sagði svo stutta sögu: —
„Á fyrsta glasi byrjar Helgi alltaf að
tala um að hann sé besti markvörður
sem Island hefur átt. Á öðru glasi fer
hann að segja frá öllum erfiðu skotun-
um sem hann hefur varið um æfina. Á
þriðja glasi er hann orðinn besti mark-
vörður heims, nema kannski að rússn-
eski markvörðurinn Jachin sé í svipuð-
um gæðaflokki — og síðan á fjórða
glasi, þá skilur hann ekkert í því hvers
vegna hann er enn valinn í landsliðið.”
-SOS
, Sveinn Björnsson, forseti ÍSÍ, sést hér sæma Helga Daníelsson gullmerkl ÍSL
, DV-mynd Friðþjófur.
Ivar Kristjánsson, IFA. I sveitakeppni
sigruöu sveitir f rá ösp, IFR, IFA.
Sigurvegarar í borðtennis urðu
Sonja Ágústsdóttir, ösp, Jón Grétar
Hafsteinsson, ösp, Þröstur Friðjóns-
son, IFH, Guðný Guðnadóttir, Viðar
Guðnason, Sævar Guöjónsson og Haf-
dís Ásgeirsdóttir í einliöaleik en í
tvíliðaleik Böðvar Böðvarsson og
Þröstur Friðþjófsson, Einar Malberg
og Hafdís Ásgeirsdóttir, Viðar Guðna-
son og Guðný Guðnadóttir.
Urslit í bogfimi uröu: 1. Elísabet Vil-
hjálmsdóttir 431 stig, þrjú gull. 2.
Ásgeir Sigurðsson 331 og þrjú gull.
Sautján ára strákur
hljóp 100 m á 9,8!
en af rekið verður ekki staðf est sem nýtt heimsmet
Sautján ára strákur, Michael Taylor,
hljóp 100 m á 9,8 sek. á móti í
! Shrevport í Louisiana í síðustH viku. Ef
afrekið verður staðfest er það nýtt
heimsmet á vegalengdinni en nokkur
| áhöld eru um það. Til þess að svo megi
Enskursigur
ífimleikum
Ensku piltarnir lögðu þá íslensku að velli i
iandskcppni í íimleikum, sem fór fram í
íþróttahúsi Ármanns á laugardaginn. Eng-
land fékk samtais 193,80 stig og ísland 137,20
stig.
James May hlaut flest stig eða 49,60 og
ensku strákarnir skipuðu fjögur fyrstu sætin
en Guðjón Gíslason náði bestum árangri fyrir
ísiand. Hann f ékk 41,10 stig.
verða þarf að uppfylla þrjú skilyrði.
Timi tekinn á þrjár klukkur. Brautina
þarf að endurmæla eftir hiaup og vind-
mælir þarf að vera til staðar. Aðeins
fyrsta atriðið af þessum þremur var
uppfyllt í Louisiana.
Hið opinbera heimsmet í 100 m
hlaupi er 9,95 sek og Bandaríkja-
maðurinn John Hines á það. Það var
sett á ólympíuleikunum í Mexikó-borg
1968. Næstbesti löglegi tíminn er 9,98
sek. og náði Silvio Leonard, Kúbu,
þeim árangri í Guadalajara 1977. Með-
vindur var 0,3 sekúndumetrar þegar
Hines setti heimsmet sitt, 0,6 þegar
Leonar vann afrek sitt. Meövindur
telst löglegur ef vindhraði er 2,0
sekúndumetrar eða minni.
I fyrrasumar hljóp Bandaríkja-
maðurinn Galvin Smith vegalengd-
ina á 9,91 sek. á móti í Karl-Marx Stadt
í Austur-Þýskalandi. Meövindur var
aðeinsofmikill,2,l.
Fyrir nokkrum dögum hljóp Willie
Gault, Bandaríkjunum, 100 m á 9,95
sek. og Calvin Smith á 9,97 sek. á móti í
Knoxville í Bandaríkjunum. Meðvind-
ur alltof mikill eða 8,0 sekúndumetr-
ar. Ef við lítum á fleiri afrek með að-
eins of miklum meðvindi má nefna að
James Sanford, USA, hljóp á 9,88 sek.
á móti í Westwood, USA, 1980.
Meðvindur var 2,3. Á móti í Baton
Rouge hljóð langstökkvarinn frægi,
Carl Lewis, á 9,99 sek. árið 1981. Með-
vindur 2,6 sekúndumetrar.
hsím.
Heim sænskur meist-
ari annað árið í röð
— sigraði Frölunda í báðum úrslitaleikjunum
Gautaborgarliðið Heim varð
sænskur meistari í handknattleik
annað áriö í röð í síðustu viku. Sigraði
annað Gautaborgarlið, Frölunda, í
báðum leikjunum í úrslitakeppninni.
Fyrst 23—16 og síðan 20—16 í þeim
Stórsigur Ungverja
Ungverjar unnu stórsigur, 6—2, yfir
Luxemburgarmönnum í Evrópu-
keppni landsliða í Budapest í gær. 11
þús. áhorfendur sáu Tibor Nyilasi
skora tvö mörk fyrir Ungverja — bæði
beint úr aukaspyrnu. Aðrir sem skor-
uðu voru Haiszan. Kiss. Szentes og
mörk Luxemburgar.
Staðan er nú þessi í þriðja riöli EM:
England
Ungverjaland
Danmörk
Grikkland
Luxemburg
4 2 2 0 14-2 6-
2 2 0 0 12-4 4
2 110 4-3 3
31112-3 3
5 0 0 5 5-23 0
siðari.
Heim hafði mikla yfirburði í leikjun-
um, einkum þó í hinum síðari, þó að
markamunur væri þá minni. Leik-
menn Heim gáfu mjög eftir lokakafl-
ann, þegar öruggur sigur var í höfn.
3153 áhorfendur voru á síðari leiknum
og þá léku þeir Björn Jilzén og Thomas
»Augustsson mjög vel í liði Heim og
landsliösmarkvöröurinn Claes Hell-
gren varði markHeimsnilldarlega.
„Þetta var mun léttara en við
reiknuðum með,” sagði þjálfari Heim,
Dan-Plof Lindquist, eftir leikinn.
hsim.
Andrésar-
andarleik-
arniríHlíð-
arfjalli
Mikill áhugi er fyrir Andrésar-
andarleikunum á skíðum, sem
fara fram í Hlíðarf jalli við Akur-
eyri nú í vikunni. Nú þegar hafa
430 krakkar á aldrinum 12 ára og
yngri verið skráðir til leiks.
Mótið verður sett í Akureyrar-
kirkju á miðvikudagskvöldið kl.
20 og síðan hefst keppnin á
fimmtudaginn í Hlíðarfjalli.
Þetta er í áttunda skipti sem
Andrésar-andarleikamir em
haldnir. -AB, Akureyri.
Hrubesch til
Standard
Frá Kristjáni Bemburg — frétta-
manni DV í Belgíu.
— Það er nú orðið ljóst að
Horst Hmbesch, landsliðsmaður
V-Þýskalands, sem leikur með
Hamburger SV, mun gerast leik-
maður með Standard Liege
næsta keppnistimabil. Þessi
mikli markaskorari mun styrkja
Standard Liege mikiö.
Víkingur í
efsta sæti
Reykjavíkurmeistarar Víkings
skutust upp í efsta sætið á
Reykjavikurmótinu í knatt-
spymu, þegar þeir sigmðu Ár-
mann 1—0 á Melavellinum í gær-
kvöld. Ragnar Gislason skoraði
mark Víkings nokkuð snemma í
fyrri hálfleik og skömmu síðar
var einum leikmanni Ármanns
vikið af velli fyrir slæmt brot. Ár-
menningar vom því tíu það sem
eftir var en fengu ekki á sig fleiri
mörk. Staöan er nú þannig.
Víkingur 2 2 0 0 2—0 4
KR 2 110 3—13
Fram 2 110 2—03
Þróttur 2 110 3—23
Ármann 3 0 12 1—3 1
Fylkir 10 0 10-20
Valur 2 0 0 2 0-3 0
Einn leikur verður á mótinu í
kvöld. KR og Fram leika og hefst
leikurinnkl. 19. hsím.
Víðavangs-
hlaup Hafn-
arfjarðar
fer fram sumardaginn fyrsta,
næstkomandi fimmtudag. Hefst
hlaupið kl. 14 við Lækjarskólann.
Keppt verður í eftirfarandi
flokkum.
Karlar
fæddir 1976 og síðar
fæddir 1974 og 1975
fæddir 1969 —1973
fæddir 1966 —1968
fæddir 1965 og fyrr
Konur
fæddar 1976 og síðar
fæddar 1974 og 1975
fæddar 1970 —1973
fæddar 1969 og fyrr
Drengjahlaup
Ármanns
Hið árlega drengjahlaup Ár-
manns verður að venju háð
fyrsta sunnudag í sumri, 24.
apríl. Keppt verður í tveimur
flokkum. Eldri flokkur, þátttak-
endur fæddir 1963 eða síðar og
yngri flokkur, þar sem keppend-.
ur em fæddir 1969 eða síðar. Þátt-
tökutilkynningar þurfa að berast
til Jóhanns Jóhannessonar í sima
38140 eða 19171 fyrir sumardag-
inn fyrsta, 21. apríl.