Dagblaðið Vísir - DV - 19.04.1983, Qupperneq 35
DV. ÞRIÐJUDAGUR19. APRlL 1983.
35
Sandkorn Sandkorn Sandkorn
Passar upp á
síðu
Fátt er svo meö öllu illt aö
einugi dugi, sagði maðurinn,
og vildi meina, að útkoma Al-
þýðuflokksins í skoðanakönn-
unum vseri ekki svo slæm,
þegar á allt er litið. „Þeim er
spáð fjórum þingmönnum,
ekki satt? Og það passar
ágætlega við stærð Alþýðu-
blaðsins. Þá fær hver þing-
maður eina síðu á dag! ”
Þeir sem ekki
komust
Framsóknarflokkurinn
bauð eldri borgurum í síðdeg-
iskaffi í Þórskaffi nú um helg-
ina, og var það Ólafur J6-
hannesson sem bað þessa kjós-
endur að gera sér þann heið-
ur aö koma og drekka kaffi.
Það þarf ekki að taka fram að
samsætið var vel sótt, en hitt
var merkilegt að margir sem
fengu boðið, en komust ekki,
hringdu til Ólafs og báðu
hann afsökunar á að þeir gátu j
ekki þegið þetta höfðinglega i
boð. Siminn mun varla hafa I
stoppaö lengi dags.
Nýyrði
Það er gömul saga á íslandi
að öðru hverju er eins og fólk
fái andstyggð á gömlum
islenskum orðum og taki ekki
ró sína fyrr en fundin hafa
verið upp ný, stirðlega
beygjanleg orð, í stað þeirra
gömlu. Þannig fóru sumir
fasteignasalar að taka hús
„til sölumeðferðar”, í stað
þess að selja þau. Og bygg-
ingar „stóðu” ekki við til-
teknar götur, heldur voru þar
„staösettar”. Nýjasta dæmið
um þetta, mun vera fisksal-
inn sem hætti að vera „fisk-
sali”. Hann er nú „sjávar-
dýrasali”.
Orðalenging
„Vaðlaheiðarvegavinnu .. ”
Þannig mun lengsta islenska
orðið hafa byrjað einu sinni.
Nýlega barst ritstjóra Sand-
korna gíróseðill, sem var
annaö og meira en gíróseðill.
Á honum stóð skrifað skýrum
stöfum: „Alþjóðapóstgíró-
innborgunarseðill”. 32 bók-
stafir, takk fyrir. Skyldi þetta
komast einhversstaðar fyrir í
venjulegri ferskeytlu?
Úr kosningabar-
áttunni
Halldór Ásgrímsson, fram-
sóknarþingmaður og fram-
bjóðandi, hefur eins og aðrir
frambjóðendur farið viða um
kjördæmi sitt, Áusturland,
siðustu daga. Sú saga berst
frá Fáskrúðsfirði, að þar hafi
hann komið við annan mann
inn i frystihús, og ávarpað
konu sem þar var að vinnu:
„Þaö er gott veðrið.” Og kon-
an jánkaði þvi. Siðan sagði
Halldór: ,J>að er gott fiskiri
núna”. „Nú,” sagði konan,
„og á hvaða báti eruð þið?”
Leiðrétting
Halldór Jónsson, frambjóð-
andi Álþýðubandalagsins á
Halldór Ásgrímsson: á
hvaða bát er hann?
Vestfjörðum, óskaöi eftir því
að koma að leiðréttingu á
Sandkornsstúf frá því á mið-
vikudag í síðustu viku. Þar
sagði að hann hefði rekiö
áróður fyrir kjöri Karvels
Pálmasonar, í efsta sæti á A-
lista, i prófkjöri Alþýöu-
flokksins og keyrt menn á
kjörstað.
Halldór sagði aö sér væri
engin launung á þvi að hann
hefði hvatt menn til að styðja
vin sinn Karvei Pálmason í
prófkjörinu, sem væri opið
öllum þeim sem ekki ættu að-
| ild að öðrum stjórnmála-
flokkum en Alþýðuflokknum.
Hann hefði enda góða reynslu
! af samstarfi við Karvel i
verkalýðshreyfingunni. Hins
j vegar hefði hann enga
menn keyrt á kjörstað, sem
væri auðvelt að sanna, því að
hann ætti ekki bil um þessar
mundir og hefði ekkert slíkt
farartæki til umráða.
Og er þá ekki annað eftir
en að biðjast afsökunar á
rangherminu.
Umsjón:
Ólafur B.
Guðnason
Kvikmýndir
i Kvikmyndir
Vemdun selsins
lítill greiði gerilur
Heiti: Prófessorinn (NothingPersonal)
Leikstjóri: George Bloomfield.
Handrit: Robert Kaufman.
Kvikmyndun: Laszlo George.
Aðalhlutverk: Donald Sutherland, Suzanne
Sommers og Roscoe Lee Browne.
Þá er komin kvikmynd þar sem
farið er höndum um vemdun
selveiðistofnsins og grimmilegt dráp
á selum. I myndinni Prófessorinn
eru þeir að vísu ekki drepnir í á-
bataskyni, heldur til að rýma land-
svæði fyrir nýjan herflugvöll í
Alaska.
Það hefur verið mikiö f jallað í fjöl-
miölum hvort sé verið aö drepa seli á
grimmilegan hátt eða hvort
eingöngu sé verið að gera það á þann
hatt aðsársaukisélítillogsýnistsitt
hverjum. Helsti málsvari vemdunar
selsins er leikkonan Brigitte Bardot
og hefur hún verið ófeimin við að
lýsa skoðunum sínum á þessu máli.
En það fer lítið fyrir boðskapnum
í myndinni Prófessorinn. Þar er sela-
verndunin aðeins yfirborðskennd
hugmynd að slappri gamanmynd.
Myndin segir frá Roger Keller
(Donald Sutherland) sem er
prófessor við háskóla í Alaska og er
nemendur hans sýna honum ljós-
myndir þar sem verið er aö drepa
seli í nágrenni við skólann lætur
hann undan þrýstingi frá þeim og fer
til Washington til að mótmæla þessu
drápi. Þar kemst hann aö því að ver-
ið sé að reisa flugvöll á því svæði þar
sem selastofninn hefur aðsetur.
Til að auðvelda fyrir sér fær hann
sér til aðstoðar lögfræöing sem
reynist vera mikill englakroppur,
Abigail Adams (SuzanneSommers),
reynslu skortir hana, en hún bætir
það upp meö miklum ákafa.
Nú fara hlutimir að gerast hratt.
Það kemur í ljós að stórt fjölþjóða-
fyrirtæki stendur að byggingum á
þessu umdeiida svæði og það hefur
engan áhuga á að hætta við fram-
kvæmdir vegna dýraverndunar-
sjónarmiða. I öilum látunum sem
fara í hönd í seinni helmingi mynd-
arinnar gleymist fljótt boðskapur
hennar og úr verður ósköp húmors-
laus samtíningur, þar sem þessi
venjulegi eltingarleikur á bílum
ræður ríkjum, og þótt allt fari vel að
lokum ertu löngu búinn að gleyma að
myndin fjaiiaöi um ómannúðlegt
dráp á selum.
Donald Sutherland leikur
prófessorinn og hef ég oftast séð
hann í betra formi. Annars er það
nokkuö furðulegt með þann ágæta
leikara að þegar hann gerir vel er
hrein unun að fylgjast með honum,
en hann getur einnig verið þannig að
það er eins og um byrjanda sé að
ræða á hvíta tjaldinu og hræddur er
ég um að leikur hans í Prófessomum
falli undir seinni liðinn. Suzanne
Sommers leikur lögfræöinginn. Hún
mun vera þekkt sjónvarpsstjarna í
Bandaríkjunum, en ekki getur sá
þáttur sem hún leikur í krafist
mikillar kunnáttu ef miða á við leik
hennar í þessari mynd.
Prófessorinn er ein af þessum
myndum sem hefði hæglega getað
orðiö ágætis skemmtun efrétt hefði
verið á haldiö, en eins og hún kemur
fyrir augu áhorfandans verður hún
að teljast misheppnuð gamanmynd.
-Hilmar Karlsson.
Bíóhöllin — Próf essorinn
Kvikmyndir Kvikmyndir Kvikmyndir
Aðalfundur
hf. Skallagríms verður haldinn laugardaginn 30. apríl 1983 kl.
14 að Heiðarbraut 40 Akranesi (Bókasafn Akraness).
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Hlutafjármál.
(Tillaga um innköllun eldri hlutabréfa
og útgáfa nýrra hlutabréfa.)
3. Önnurmal. STJÓRNIN
Áskorun
til eigenda og ábyrgðarmanna fasteigna um
greiðslu fasteignagjalda í Reykjavík.
Fasteignagjöld í Reykjavík 1983 eru nú öll gjaldfallin. Gjald-
endur sem ekki hafa gert skil innan 30 daga frá birtingu áskor-
unar þessarar, mega búast við, að óskað verði nauðungar-
uppboðs á eignum þeirra í samræmi við 1. nr. 49/1951 um sölu
lögveða án undangengins lögtaks.
Reykjavík 15. apríl 1983.
GJALDHEIMTUSTJÓRINN í REYKJAVÍK.
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á eigninni Dvergholti 14 Mosfellshreppi, þingl. eign
Ölafs Jóhannssonar, fer fram á eigninni sjálfri föstudaginn 22. april
1983 kl. 17.00.
Sýslumaðurinn í Kjósarsýslu.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 18., 22. og 26. tölublaði Lögbirtingabiaðsins 1982 á
eigninni Melabraut 20 Hafnarfirði, þingl. eign Sandblásturs hf„ fer
fram eftir kröfu Hafnarfjarðarbæjar, Útvegsbanka Islands og inn-
heimtu ríkissjóðs á eigninni sjálfri föstudaginn 22. apríl 1983 kl. 14.30.
Bæjarfógetinn í Hafnarfirði.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 71., 74. og 84. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1982 á
eigninni Löngufit 18 Garðakaupstað, þingl. eign Arnar Jóhannessonar,
fer fram eftir kröfu Garðakaupstaðar á eigninni sjálfri föstudaginn 22.
apríl 1983 kl. 13.30.
Bæjarfógetinn i Garðakaupstað.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 61., 67. og 70. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1980 á
eigninni Hamarsteigi 4 Mosfellshreppi, þingl. eign Axels Blomster-
berg, fer fram eftir kröfu Boga Ingimarssonar hrl. á eigninni sjálfri
f östudaginn 22. april 1983 kl. 15.00.
Sýslumaðurinn í Kjósarsýslu.
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á eigninni Brekkutanga 22 Mosfellshreppi, þingl. eign
Hafsteins Daníelssonar, fer fram á eigninni sjálfri föstudaginn 22.
apríl 1983 kl. 16.00.
Sýslumaðurinn í Kjósarsýslu.