Dagblaðið Vísir - DV - 19.04.1983, Síða 36
40
DV. ÞRIÐJUDAGUR19. APRIL1983.
Jóhannes Sæmundsson lést 10. apríl
1983. Hann fæddist 25. júlí 1940, sonur
hjónanna Sæmundar Jóhannessonar
og Sigurveigar Guömundsdóttir.
Jóhannes lauk íþróttakennaraprófi frá
háskólanum í San Jose í Kalifomiu í
Bandaríkjunum 1965. Frá árinu 1968 til
dánardags starfaöi hann sem íþrótta-
kennari við Menntaskólann í Reykja-
vík. Ariö 1972 gekk hann til liðs við
Iþróttasamband Islands og tók aö sér
starf fræðslustjóra sambandsins sem
hann gegndi til dauðadags. Eftirlifandi
eiginkona hans er Margrét Thorlacius
og áttu þau þrjá syni. Utför Jóhannes-
ar verður gerö frá Landakotskirkju í
dagkl. 13.30.
Anna Einarsdóttir lést 11. apríl 1983.
Hún var fædd 4. júní 1921. Foreldrar
hennar voru Einar Jónasson og Ágústa
fsafold Einarsdóttir. Anna var tvígift.
Fyrri . maður hennar var Kristinn
Olafsson og áttu þau tvo syni, þau slitu
samvistum. Síðari maður önnu var
Jóhann Hannesson en þau slitu sam-
vistum fyrir nokkrum árum. Útför
Önnu verður gerö frá Landakotskirkju
ídag kl. 13.30.
Aöalsteinn Jóhannsson, Samtúni 16
Reykjavík, veröur jarðsunginn frá
Fossvogskirkju þriðjudaginn 19. apríl
kl. 15.
Björn Fossdal Hafsteinsson verður
jarðsunginn frá Hólaneskirkju, Skaga-
strönd, föstudaginn 29. apríl. Kveöju-
athöfn verður frá Fossvogskirkju í
dag, þriöjudaginn 19. apríl, kl. 16.30.
Geir Benedikt Benediktsson, Hvamms-
gerði 6, verður jarðsunginn frá nýju
Fossvogskapellunni miðvikudaginn 20.
aprílkl. 16.30.
Guðmundur Einarsson, Skálholtsbraut
5 Þorlákshöfn, verður jarðsunginn frá
Þorlákskirkju, Þorlákshöfn, fimmtu-
daginn21. aprílkl. 14.
Sigurjón Kjartansson, Háteigsvegi 4,
veröur jarðsunginn frá Fossvogs-
kapellu miðvikudaginn 20. apríl kl.
10.30.
Kveðjuathöfn um Svein Ellertsson,
fyrrv. mjólkurbússtjóra, Blönduósi,
fer fram frá Blönduóskirkju, föstu-
daginn 22. apríl kl. 14. Jarðsett verður í
Reykjavík.
G UÐR UN ÁSGEIRSDOTTIR
11 ára
Er í Hlídaskóla.
Henni finnst stafsetning skemmtilegust í skólanum.
Áhugamál eru frjálsar íþróttir. Hún œfir hjá ÍR. Gaman að bera át nema í
vondu veöri.
Leggur peningana inn í banka, en er ekki báin að ákveða hvað hán kaupir.
BLAÐBERA VANTAR í EFTIRTALIN HVERFI:
LAUGAVEG
HVERFISGÖTU
AFGREIÐSLA
SÍMI27022
Úlöf Sigfúsdóttir frá Aðalbóli lést i
sjúkrahúsinu á Hvammstanga 17. þ.m.
Sigríður Jónsdóttir frá Kirkjubæ lést
sunnudaginn 17. apríl.
Guðrún Jónsdóttir Bachmann lést
laugardaginn 16. apríl.
Jón Júlíusson frá Norðurkoti, Kjalar-
nesi, andaðist í Borgarspítalanum
laugardaginn 16. apríl.
Vilhelm Frímann Frímannsson,
Hringbraut 46, lést að morgni 18. april
aðHrafnistu í Reykjavík.
Páll Pálsson, Drápuhlíð 19, lést í Land-
spítalanum 17. apríl.
Kristján Eggertsson, Þverholti 18b,
lést aö heimili sinu laugardaginn 16.
apríl.
Ingólfur A. Magnússon lést á heimili
sínu aðfaranóttl6. apríl.
Gróa Þórðardóttir frá Eilifsdal, Skóla-
gerði 51, verður jarðsungin frá Foss-
vogskirkju miðvikudaginn 20. apríl kl.
15.
Ölöf Bjarnadóttir lést í Borgarspítal-
anum þann 15. apríl.
Ársæl Gróa Gunnarsdóttir, Vailar-
braut 3 Akranesi, lést í sjúkrahúsi
Akraness 15. apríl.
Katrin Thorstensen frá Arnardal,
Hellubraut 2 Grindavík, lést í Borgar-
spítalanum. þann 17. apríl.
Tilkynningar
Sumarfagnaður
Húnvetningafélagsins
veröur haldinn i Domus Medica 20. apríl
(síöasta vetrardag) kl. 20.30.
Húnvetningafélagið
Málfreyjudeildin
Björkin
Næsti fundur veröur haldinn þriðjudaginn 19.
apríl (ath. breyttan fundardag) og hefst kl.
20.30 að Hótel Heklu. Gestir velkomnir.
Háskólafyrirlestur
Þriðjudaginn 19. apríl fytur dr. Vilhjálmur
Egilsson fyrirlestur í boði viðskiptadeildar
Háskóla Islands og Félags viðskiptafræðinga
og hagfræðinga.
Fyrirlesturinn fjallar um áhrif af stóriðju á
jafnvægi atvinnulífsins í litlu bæjarfélagi. Dr.
Vilhjálmur greinir frá einföldum líkönum af
heildarjafnvægi (e. general equilibrium) og
gerð slikra likana af hagkerfi borga og bæja
og heilla þjóðfélaga. Hann skýrir jafnframt
frá niðurstöðum úr líkani sem hann hefur gert
af áhrifum stóriðju á hagkerfið við Reyðar-
fjörð.
Vilhjáimur Egilsson lauk kandídatsprófi
frá viðskiptadeild Háskóla Islands árið 1977
og doktorsprófi í hagfræði árið 1982 frá Há-
skólanum í Suöur-Kaliforníu. Hann er nú hag-
fræðingur hjá Vinnuveitendasambandi Is-
lands.
Fyrirlesturinn verður haldinn í stofu 101 í
Lögbergi og hefst kl. 17.15. Öllum er heimill
aðgangur.
Grár högni í
óskilum í
Mosfellssveit
sást fyrst á vörubílspalli um páskana, gæti
verið kominn langt að. Hafið samband í síma
67254.
Líf og land
Aðalfundur Lífs og lands verður haldinn að
þögbergi, húsi lagadeildar Háskóla Islands,
þriðjudaginn 19.04. 1983, kl. 20.30, í herbergi
101.
Dagskrá fundarins verður:
1) Skýrslastjórnar
2) Reikningar félagsins
3) Lagabreytingar
4) Kosning nýrrar stjórnar
5) önnurmál
Stjórnin. -
Frá Félagi Snæf ellinga
og Hnappdæla í Reykjavík
Vegna alþingiskosninganna fellur niður fyrir-
hugað spila- og skemmtikvöld félagsins sem
áttiað vera23.þ.m.
Aðalfundur hf. Skallagríms
verður haldinn laugardaginn 30. apríl 1983 kl.
14 að Heiðarbraut 40 Akranesi (bókasafn
Akraness). Dagskrá: I. Venjuleg aðalfundar-
störf, II. Hlutafjármál (tillaga um innköllun
eldri hlutabréfa og útgáfu nýrra hlutabréfa),
III. önnur mál.
Aðalfundur Foreldra- og
vinafélags Kópavogshælis-
ins
veröur haldinn í kvöld, þriöjudag, í kaffistofu
hælisins og hefst kl. 20.30. Póstgírónúmer
sundlaugarinnar er 72700-8.
Aðalfundur
Snarfara
verður haldinn í húsi Slysavarnafélags
Islands fimmtudaginn 21. apríl 1983 og hefst
kl. 14.00. Dagskrá samkvæmt félagslögum.
Frá utanríkisráðu-
neytinu
Benedikt Gröndal sendiherra afhenti 2. apríl
sl. hr. Ramiz Alia, forseta Albaniu, trúnaðar-
bréf sem sendiherra Islands í Albaníu með
aösetur í Stokkhólmi. Athöfnin fór fram í
þinghúsinu í Tirana að viðstöddum hr. Reis
Malile utanríkisráðherra.
Háskólatónleikar
Atjándu og síðustu tónleikar á starfsárinu
1982—1983 í Norræna húsinu miövikudaginn
20. apríl kl. 12.30.
Á efnisskránni eru verk fyrir klarinett og
slagverk. Flytjendur eru: Kjartan
Oskarsson, klarinett, Reynir Sigurðsson,
slagverk.
Kjartan Oskarsson stundaði nám í klari-
nettuleik hjá Vilhjálmi Guðjónssyni við Tón-
listarskólann í Reykjavík og lauk þaðan
einleikara- og kennaraprófi 1976. Stundaði
síðan nám við TónUstarháskólann í Vínar-
borg, kennarar hans þar voru Rudolf Jettel og
Peter Schmidl. Kjartan hefur kennt við Tón-
listarskólann í Kópavogi, Franz Scubert Kon-
servatorium í Vín og Royndar tónUstarskól-
anum í Færeyjum.
Reynir Sigurðsson nam við TónUstarskólann í
Reykjavik í Stokkhóhni. Hann er slagverks-
leikari Sinfóníuhljómsveitar Islands. Reynir
er kennari við Tónlistarskóla Félags
íslenskra hljómUstarmanna.
Háskólatónleikar eru haldnir í Norræna
húsinu í hádeginu á miðvikudögum. Þeir
hefjast klukkan 12.30 og standa venjulega í 30
til 40 mínútur. Aðgangseyrir er 50,- kr. og 30,-
fyrir námsmenn.
Afmæli
80 ára er í dag, 19. apríl, Sigríður
Guðjónsdðttir ljósmóðir frá Bæ í
Króksfirði, nú á Háaleitisbraut 103
Rvík. Hún ætlar að taka á móti gestum
á heimili sonar síns og tengdadóttur á
Fornuströnd 1, Seltjamarnesi, eftir kl.
16 í dag.
Sovéski sjómaðurinn:
Ennþá með-
vitundaiiaus
Líðan sovéska sjómannsins, sem
brenndist illa um borð í sovéskum tog-
ara suðvestur af landinu á sunnudag,
er enn óbreytt. Samkvæmt upplýsing-
um frá sovéska sendiráðinu er hann erm
meðvitundarlaus og ástand hans mjög
alvarlegt. Hinn sovéski sjómaðurinn,
sem fluttur var til landsins um helgina
með hjartasjúkdóm, er úr allri hættu
og er líðan hans ágæt. -SþS