Dagblaðið Vísir - DV - 19.04.1983, Side 44
27022
AUGLYSINGAR
SÍÐUMÚLA 33
S/WÁAUGLÝSINGAR
SKRIFSTOFUR
ÞVERHOLTI 11
AFGREIÐSLA
86611
RITSTJORN
SÍÐUMÚLA 12—14
Réttarhöld í máli
skipstjórans á
Einari Benediktssyni:
Framvísaði
öðru haffæris-
skírteini
Fiskiskipiö Einar Benediktsson BA,
sem varöskip kom meö til Hafnar-
fjaröar í síðustu viku að beiöni
Siglingamálastofnunar, mun aö öllum
líkindum halda á djúprækjuveiöar
þegar lokiö er viö lagfæringar þær sem
Siglingamálastofnunin óskaöi eftir aö
geröar yröu á skipinu. Er veriö aö
vinna viö þær núna og skipið verður
tilbúiö á veiöar aftur einhvern næstu
daga.
Fram kom í réttarhöldum vegna
töku skipsins í síöustu viku aö þaö var
ekki haffærisskírteinislaust. Skipstjór-
inn lagöi fram í réttinum annað skír-
teini, undirritaö af Hjálmari Bárðar-
syni siglingamálastjóra.
Starfsmaður Siglingamála-
stofnunarinnar afhenti skipstjóranum
þaö í Vestmannaeyjum í vetur þegar
skipiö var tekið þar við meintar ólög-
legar veiöar og beðiö var úrskuröar
um hvort Einar Ben væri togari eða
fiskibátur.
Skírteinið gilti fyrir eina ferö til
Reykjavíkur. Á því var engin dag-
setning um hvenær ferðin þangaö ætti
aö hefjast eða hvenær henni ætti að
ljúka. Siglingamálastofnunin aftur-
kallaöi ekki hitt haffærisskírteini
skipsins um leið og þaö nýja var
afhent, og sagöi skipstjórinn fyrir rétt-
inum aö hann teldi sig ekki hafa veriö
brotlegan með bæöi þessi plögg undir
höndum. -klp-
Rútubflstjóri
grunaðurum
ölvunarakstur
Rútubílstjóri á áætlunarleiöinni
Reykjavík — Olafsvík var tekinn í
Stykkishólmi á laugardag grunaöur
um ölvun viö akstur. Hann hafði þá
ekið alla leiö frá Reykjavík. Farþeg-
amir gerðu sér þetta ljóst eftir aö rút-
an var farin frá Reykjavík og kæröi
einn farþeganna bílstjórann í Stykkis-
hólmi. Lögreglan tók hann þar úr um-
ferö en vörubílstjóri var fenginn til að
Ijúka ferðinni. Að sögn Ríkarðs Más-
sonar, dómsfulltrúa í Stykkishólmi,
mun niöurstööu blóörannsóknar aö.
vænta innan tíöar.
Bílstjórinn er frá Reykjavík.
-EA
Ríkisstjórnin fliugar braðabirgðalög um húsnæðismál:
Hækkun húsaleigu
verði takmörkuð
— óheimilt verði að kref jast hærri verðbóta á húsaleigu
en nemur hækkunum á lánskjaravísitölu
Ríkisstjórnin mun á fundi sínum á
morgun ræöa hvort setja eigi bráöa-
birgðalög um aö húsaleiga fyrir
íbúðarhúsnæði hækki ekki meira en
almennt kaupgjald: Félagsmálaráð-
herra leggur málið fram í ríkisstjórn
en gert er ráö fyrir aö forseti Islands
gefi lögin út.
Meginatriöi væntanlegra bráöa-
birgðalaga er aö óheimilt veröi frá 1.
október 1982 aö krefjast hærri verö-
bóta á húsaleigu fyrir íbúðarhúsnæöi
en nemur hækkunum á lánskjara-
vísitölu Seölabanka Islands, eins og
hún er reiknuð 1. mars., 1. júní, 1.
september og 1. desember. Oheimilt
veröi aö kref jast hækkunar verðbóta
á fjárhæö húsaleigu íbúöarhúsnæöis
oftar en ársfjórðungslega. Hækki
lánskjaravísitalan á einhverjum
framangreindra útreikningsdaga
meira en nemur hækkun veröbóta á
laun, skuli hækkun verðbóta á húsa-
leigu takmarkast viö hækkun verð-
bóta á laun.
Gert er ráö fyrir aö lögin öðlist
þegar gildi og gildi til 1. júní 1984. Til
bráðabirgða veröi ákvæði um aö
hækkun á húsaleigu íbúöarhúsnæðis
á tímabilinu frá 1. október 1982 til
gildistökudags megi aö hámarki
nema 23,6%. Hafi slík húsaleiga
veriö hækkuö fram yfir þaö skuli
mismunurinn teljast vaxtalaus inn-
eign leigutaka hjá leigusala og renna
til greiðslu á húsaleigu þeirri sem
leigutaka ber næst aö greiöa leigu-
sala.
-JBH.
Ný þjóðhagsspá 1983
Kaupmáttur
rýrnar um 8%
Otlit er fyrir að þjóðarfram-
leiðsla dragist saman um 4,5—5,5%
á árinu 1983. Einnig aö kaupmáttur
tekna rýrni að meðaltali um 8% frá
fyrra ári, eða um 10% á hvem
vinnufæranmann.
Þetta kemur m.a. fram í nýrri
þjóðhagsspá Þjóöhagsstofnunar
fyrir árið 1983.
I spánni er enn fremur gert ráö
fyrir talsverðum halla á viöskipt-
um viö útlönd, eöa um 4%.
Greiðslubyröi af erlendum lánum
nam 21,4% af útflutningstekjum á
síðasta ári. I þessari spá Þjóðhags-
stofnunar er gert ráð fyrir sama
hlutfalli áriö 1983, vegna skulda-
aukningar.
Þá kemur fram í spánni aö halli á
vöruskiptajöfnuði veröi nú um 10—
11% af útflutningstekjum, í staö
22% í fyrra. Stafar þetta af auknum
vöruútflutningi og 6% samdrætti í
vöruinnflutningi.
Loks er gert ráö fyrir 3% bata á
viðskiptakjörum, sem stafar eink-
um af lækkun oliuverös og hækkun
á áli og kísiljámi. -JSS
Áhyggjuraf
ófærð
Víða um land em menn farnir aö
hafa áhyggjur af færð á vegum á
. kjördag næstkomandi iaugardag
enda segir Veðurstofan aö allt
bendi til áframhaldandi norðan-
áttar meö éljum norðanlands fram
á kjördag.
Friðjón Þórðarson dómsmála-
ráöherra sagöi í morgun aö í ráðu-
neyti sínu væru menn famir aö
hugleiða bráöabirgöalög. „Fólk
verður aö geta kosið,” segir ráð-
herrann. Hann sagði að helst kæmi
til álita aö bæta sunnudeginum við
semaukakjördegi.
Undirkjörstjórnir hafa rétt til
þess aö fresta kosningu um allt að
viku enda komi til samþykki yfir-
kjörstjómar. Ein slfk frestun, jafn-
vel í lítilli sveit, myndi valda því að
úrslit annars staðar af landinu
mætti ekkibirta.
Astand samgöngumála er
alvarlegast á norðausturhomi
. landsins. Þar er mikill snjór en
mokstur að hefjast. Vegageröin
mun leggja sig alla fram um snjó-
mðning fyrir helgina.
Á blaðsíöu 3 er einnig fjallaö um
ófærðina og kosningarnar.
-KMU.
Falklands-
eyingarnir
komnir
Hingað til lands er komin fjöl-
skylda frá Falklandseyjum. Það
eru hjónin Dennis og Margareth
Humphreys ásamt dóttur
þeirra, 10 mánaða. Hyggjast þau
setjast að á íslandi. Þau eru
bresk að uppruna og hafa starf-
að við landbúnað á Falklands-
eyjum og hyggjast starfa í þeirri
grein hérlendis. Þau hafa þegar
fengið nokkur atvinnutilboð.
Þau komu hingað til lands fyrir
milligöngu pennavinar síns,
Guðrúnar Jónsdóttur.
ás-DV-mynd: Einar Ólason.