Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.1983, Side 26

Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.1983, Side 26
34 DV.FÖSTUDAGUR29. APRÍL1983. Andlát Kristin Gísladóttir lést 20. apríl 1983. Hún fæddist aö Hrútsstöðum í Flóa 18. júní 1908, foreldrar hennar voru Kristín Jónsdóttir og Gísli Brynjólfs- son. Kristín ólst upp hjá móðurömmu sinni, Kristínu Hannesdóttur í Meðal- holtum. hún giftist eftirlifandi eigin- manni sínum, Lárusi Salómonssyni, 11. september 1932. Þau eignuðust sex böm og eru fimm þeirra á lífi. Kristín varöur jarðsungin frá Bústaðakirkju í dagkl.15. Ingvar Jóhannsson, Hvítárbakka Biskupstungum, verður jarðsunginn laugardaginn 30. apríl frá Skálholts- kirkju kl. 14. Jarðsett verður í Bræðra- tungu. Viðar Kristinsson, Greniteigi 13 Kefla- vík, verður jarðsunginn frá Kirkju- vogskirkju, Höfnum, laugardaginn 30. apríl kl. 14. Jón Guðmundsson frá Norðurgarði Mýrdal, verður jarösunginn frá Skeið- flatarkirkju laugardaginn 30. apríl kl. 15. Bílferð veröur frá Umferðarmið- stöðinnikl 11 árdegis. Sigurlaug Sigurjónsdóttir frá Steinnesi verður jarðsungin frá Þingeyrarkirkju iaugardaginn 30. apríl kl. 14. Bjami Matthíasson, Fossi Hrana- mannahreppi, verður jarðsunginn frá Hrunakirkju laugardaginn 30. apríl kl. 13. Jarðsett verðurí Tungufelli. Ölöf Sigfúsdóttir, Aöalbóli verður jarð- sungin frá Staðarbakkakirkju í dag föstudaginn 29. apríl. Sigrún Júnía Einarsdóttir, Hörgsási 4 Egiisstöðum, verður jarðsungin á morgun, laugardaginn 30. apríl, kl. 14. Garðar Guðnason, Eyrargötu 6 Siglu- firði, verður jarðsunginn frá Siglu- fjarðarkirkju laugardaginn 30. apríl kl. 14. Ingvar Jónsson, Hrafnistu, sem andaö- ist 19. apríl, verður jarösunginn frá Fossvogskirkju mánudaginn 2. maí kl. 16. Ólina Hólmfríður Sigvaldadóttir frá Syröi-Gunnólfsá lést í elli- og hjúkrun- arheimilinu Hombrekku, Olafsfirði, laugardaginn 23. apríl. Jarðarförin verður frá Olafsfjarðarkirkju laugar- daginn30. aprílkl. 14. Gyða Eggertsdóttir Briem lést 28. apríl á Vífilsstöðum. Gyða Hinriksdóttir lést í Borgar- spítalanum 27. apríl síöastliðinn. Ágústa Sigríður Guðjónsdóttir, Þrastargötu 5 Reykjavík, lést í Land- spítalanum fimmtudaginn 28. apríl. Ásgeir Einarsson rennismiður, Tungu- seli 7 Reykjavík, lést 27. þ.m. á Borg- arspítalanum. Tilkynningar Friðarvika Samhygðar Nýlega hófst friðarvika sem hreyfingin Sam- hygö stendur fyrir. I þessari viku munu tugir Samhygðarfélaga tala við fólk úti um allt land og gefa öllum kost á því að taka þátt í skrif- legri áskorun til Islendinga um að miðviku- dagurinn 4. maí verði dagur án ofbeldis. Þennan dag skorar Samhygð á alla Islend- inga að sýna hver öörum umburðarlyndi, gagnkvæma virðingu og þeir beiti hvorki sjálfa sig né aðra þvingunum. Þessi dagur verður fyrsta skrefið í átt til raunverulags friðar á Islandi og þar með þjóðfélags sem er laust við hvers kyns of- beldi. Samhygð. Hreyfing sem vinnur með lífinu. Fornleifar í Mosfellssveit Guðmundur Olafsson fornleifafræðingur, starfsmaður Þjóðminjasafns Islands, mun flytja erindi um fornleifar og fornleifaskrán- ingu í Mosfellssveit á aðalfundi Sögufélags Mosfellssveitar fimmtudaginn 5. maí nk. Fundurinn verður haldinn kl. 8.30 í bama- skólanum eða rétt við rústir miðaldabænhúss- ins að Varmá. Boðið verður upp á fornleifa- kaffi og með því (skyldi það vera skinnhand- rit frá miðöldum?). Komið, hlustið og bragðið. Sögufélag Mosfellssveitar. Kvenfélag Langholtssóknar boðar til fundar þriðjudaginn 3. maí kl. 20.30 í safnaðarheimilinu. Dagskrá: venjuleg fundarstörf, skemmtiatriði, myndasýning frá 30 ára afmæli félagsins, kaffiveitingar. Gestir fundarins verða konur úr kvenfélagi Breiö- holts. Stjórnin. í gærkvöldi í gærkvöldi Það er af sem áður var Það vekur furðu mína hvers vegna Ríkisútvarpið hljóðvarp reyn- ir ekki að gera dagskrá sína á fimmtudagskvöldum meira aðlað- andi en raun ber vitni. Þetta er eina kvöld vikunnar sem sjónvarpið veitir ekki samkeppni og þá skyldi maður ætla að reynt y rði aö draga hlustendur að viðtækjunum með einhverju góögæti. En þaö er nú eitthvaö annaö. Dagskráin er sjald-, an eins hrútleiðinleg og einmitt á fimmtudagskvöldum. Það er af sem .áðurvar, þvíégmanekkibetur en að í gamla daga hafi allra handa skemmtileg framhaldsleikrit verið á fimmtudagskvöldunum og þá var nú hlustaö. Nú hefur sinfónían fengið framhaldsþáttinn, hvernig sem á því stendur, því samkvæmt könnun sem var gerð hér um árið kom í ljós að innan viö einn af hundraði hlustenda hlustaði á sinfóníuna að staðaldri. Það eru því undarlegar ástæður sem liggja að baki því að hún skuli fá besta hlustunartíma sem völ er á. Annars voru fréttirnarí gærkvöldi besta efniö það kvöldið. Utvarpið stendur alveg sérstaklega vel að vígi sem fjölmiðill, þegar svo stendur á í þjóðfélaginu sem nú gerir. Með svo til engum fyrirvara getur það flutt fréttir af því hvemig hinar pólitísku þreifingar ganga og hvað sé yfirleitt að gerast í stjórnarmyndunarmálun- um. Þetta hlutverk leysa starfsmenn fréttastofu vel af hendi og er örugg- lega aldrei eins mikið hlustað á út- varp hér á landi eins og á kvöld- fréttatímum. Ekki skal ég láta unglingaþátt Helga Más Barðasonar frá Akureyri gjalda þess sem á eftir honum fylgdi, þetta er hressilegur þáttur og vinsæll meðal unglinga eftir því sem ég best veit. Sigurður Þór Salvarsson Æskan — Nýtt tölublað I marsblaði Æskunnar er m.a. skýrt frá stofn- un bókaklúbbs. Askrifendur geta gengið í bókaklúbbinn og fá við það rétt til kaupa á út- gáfubókum Æskunnar frá og með árinu 1983 á félagsverði. Skyldur eru engar aðrar en skilvísi. I blaðinu segir: Við erum hjartanlega sammála þeim lesendum Æskunnar sem bent hafa á að það eigi að gefa ungmennum ekki síður en fullorðnum kost á að ganga í bóka- klúbb og fá þannig góöar bækur á hagstæðu verði. — Við munum kappkosta að gefa út góðar bækur og fjölbreytt lesefni, sumt einkum til skemmtunar, annað umhugsunar- vert. — Lesendur Æskunnar eru á ýmsum aldri og viö munum reyna að hafa eitthvað fyriralla. Þá er sagt frá útgáfubókum Æskunnar í apríl en þær eru: Kári litli og Lappi eftir Stefán Júlíusson með myndskreytingum eftir Halldór Pétursson., Sara eftir Kerstin Thor- vall, þekktan sænskan rithöfund. Litsíðum hefur verið fjölgað úr fjórum í tólf. Litmynd af Línu Langsokk fyigir viðtalið við Sigrúnu Eddu Björnsdóttur. Það, og fleiri viðtöl i blaðinu, tók Eðvarð Ingólfsson, rithöf- undur og blaðamaður Æskunnar. Spumingar í 1. hluta áskrifendagetraunar 1982 eru birtar í blaöinu. Vinningar í þeim hluta eru reiðhjól af gerðunum Kalkhoff, Peu- geot og Winther. Að venju er blaðið fjölbreytt aðefni. Kvenfélag Hallgrímskirkju heldur sína árlegu kaffisölu í félagsheimili kirkjunnar nk. sunnudag, 1. maí, og hefst hún kl. 15, að lokinni guðsþjónustu í kirkjunni. Fé- lagskonur treysta á fólk að koma við og kaupa sér kaffisopa og styrkja meö þvi framgang kirkjubyggingarinnar. Tekið á móti kökum og brauöi eftir kl. 10 á sunnudag. Gideon félagið Minningarspjöld og gíróseölar eru til staðar í kirkjum og safnaðarheimilum um mest allt land. Fjáröflunarkaffi til eflingar minningarsjóði Ingibjargar Þórðardóttur verður sunnudaginn 1. maí kl. 15—17 í safnaðarheimili Langholtskirkju. vt&h Ferðalög Heimili óskast Oskaö er eftir heimili í sveit eöa strjálbýli fyrir öryrkja meö framtíðardvöl í huga. Allar nánari upplýsingar veitir félagsmálactjórinn í Hafnar- firði í síma 50482. FÉLAGSMÁLASTJÓRINN í HAFNARFIRÐI Ferðir Útivistar um helgina Á sunnudaginn 1. maí verða tvær ágætar dagsferðir í boði hjá feröafélaginu Otivist. Kl. 10.30 er ætlunin að ganga yfir Esju. Verður gengið bæði á Hátind (909 m) og Skálatind Esjunnar, en mjög langt er síðan slík ferð hef- ur verið farin. Er tilvalið fyrir allt gönguglatt fólk að notfæra sér þetta tækifæri. Að sjálf- sögðu þarf að vera vel skóaður og nestaður því ferðin tekur allan daginn. Kl. 13 verður langþráð kræklingaferð í boði. Farið verður að Maríuhöfn og Búðasandi í Hvalfirði. I Maríuhöfn var einn stærsti kaupstaður á Is- landi á 15. öld. Þetta er auðvitað tilvalin ferð fyrir alla fjölskylduna. Um næstu helgi, 6.-8. maí, verður helgarferðin Ljósufjöll — Löngu- fjörur. Ljósufjöli eru hæstu fjöll á Snæfells- nesi utan Jökulsins og Löngufjörur ein skemmtilegasta strandlengja landsins. I þeirri ferð verður margt fleira skoðað, t.d. Gullborgarhellar og Rauðamelsölkelda. Brottför í dagsferðirnar er frá BSI, bensín- sölu, og þarf ekki að panta far fyrirfram. I helgarferðina þarf að taka farmiöa á skrif- stofunni Lækjarg. 6a. Sjáumst. Ferðafélaglð Otivist. Kvennadeild Skagfirðinga- félagsins í Reykjavík er með veislukaffi og hlutaveltu í Drangey, Síðumúla 35, sunnudaginn 1. maí kl. 14. Mun- um á hlutaveltuna sé skilað í Drangey miðvikudaginn 27. apríi eftir kl. 19.30. Nýjar bækur Grasmaðkur Leikrit Birgis Sigurðssonar Iðunn hefur gefið út leikritið Gras- maðk eftir Birgi Sigurðsson en það var frumsýnt hjá Þjðöleikhúsinu 14. apríl. Þetta er f jórða leikrit Birgis sem sýnt er á sviöi en hin þrjú hafa verið leikin á vegum Leikfélags Reykjavíkur. Hið fyrsta þeirra, Pétur og Rúna, hlaut verðlaun í leikritasamkeppni L.R. á sínum tíma. Hin voru Selurinn hefur mannsaugu og Skáld-Rósa, en það síðarnefnda hefur einnig verið gefið út á bók. — Grasmaðkur er nútímaleikrit sem gerist aö mestu í Reykjavik. Það er í fjórum þáttum, fimm atriðum. Persónur eru fimm: Unnur, Haraldur, eiginmaður hennar, Bragi, systurson- ur Unnar, Gréta, dóttir Haralds, og AUi bróðir hans. Leikritið fjallar um sam- skipti þessarar f jölskyldu innbyrðis og átök sem þar veröa þegar tekið er að gera upp málefni fortíðarinnar. — Kápumynd Grasmaðks gerði Ríkharð- ur Valtingojer-Jóhannsson. Bókin er 108 blaösíöur. Oddi prentaði. Aðalfundir Aðalfundur hf. Skallagríms verður haldinn laugardaginn 30. apríl 1983 kl. 14 aö Heiðarbraut 40 Akranesi (bókasafn Akraness). Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundar- störf, 2. Hlutafjármál (tillaga um innköllun eldri hlutabréfa og útgáfu nýrra hlutabréfa), 3. önnur mál. Kvenfélag Lágafellssóknar heldur aöalfund sinn í Hlégaröi mánudags- kvöldið 2. mai nk. og hefst hann með borð- haldi kl. 19.30. Venjuleg aöalfundarstörf. Kon- ur eru beðnar að tilkynna þátttöku sína í sima 66486, Margrét, eða 66602, Hjördís. P———■——— Fundir J öklarannsókna- félag ísiands Vorfundur verður baldinn að Hótel Heklu fimmtudaginn 5. maí 1983, kl. 30.30 Fundarefni: 1. Alpaför. Ari Trausti Guðmundsson segir frá og sýnir myndir. 2. Snjóflóð vetrarins. Hafliði Jónsson. 3. Snjóflóðaspjall. Magnús Hallgrimsson. kaffibolli og rabb. Starfsnefndir hittast. Félagsstjórnin. JC Reykjavík Lokafundi hjá JC Reykjavik sem halda átti í kvöld hefur verið frestað til laugardagsins 30. apríl og verður í Víkingasal Hótel Loftleiða og hefst kl. 12.30 með borðhaldi. Rökræðueinvígi verður á milli JC Reykjavík og JC Vest- mannaeyjum. Stjórnin. Fundur Stofnfundur fyrsta billiardfélags Reykja- víkur veröur haldinn í A-sal Regnbogans sunnudaginn 1. maí nk. kl. 13. Þegar hafa skráö sig á milli 150 og 200 stofnfélagar og bú- ist er viö aö fleiri láti skrá sig á fundinum. Happdrætti Vinningsnúmer í vorhappdrætti íþróttafélags stúdenta 1983 1-4: Ferð með SL á kr. 15.000,- 41,47, 199,361. R—8: Ferð með SL á kr. 12.000,- 115, 332, 923 934. 9-100: 1, 6, 7, í 107,114 160,180, 248, 255, 396,397, 481,482, 573,574, 727,731 Hljómplata/kassetta 3,11, 24, 38, 44, 55, 58, 128,133,134,135,138, , 188,208,211,213,221, 285,308,309,329,347, 399,404, 406,412, 417, 1,491,503,513,514,515, , 575,593,597,627,631, 732,890,906,928,941, í Skífunni 71, 73, 75, 88, 91, 139,144,154,157, 223,224,227, 240, 348,375,384,388, 444,449,467,477, 523,540,554,566, 637, 641,650,666, 945,960,965,967. Afmæli Fundarboð Aðalfundur AUiance Francaise í Reykjavik vcrður haldinn fimmtudaginn 5. maí 1983 kl. 20.30 i húsakynnum félagsins aö Laufásvegi 12, annarri hæð. Dagskrá fundarins verður á þessa leið: 1. Skýrsla fráfarandi stjórnar. 2. Endurskoðaðir reikningar félagsins lagðir fram. 3. Kosningforseta. 4. Kosning nýrrar stjórnar. 5. Lagabreytingar. 6. önnurmál. Æskilegt er aö sem flestir sæki fundinn þar sem veigamikil mál er varða framtíð félags- ins veröa tekin til umræðu. Hittumst heil. Kvenfélag Árbæjarsóknar Kvenfélag Árbæjarsóknar heldur fund þriðju- daginn 3. maí kl. 20.30 í safnaðarheimUinu. A dagskrá eru venjuleg fundarstörf og skemmtidagskrá. Gestir fundarins eru konur úr Kvenfélagi Eyrarbakka. Axel Clausen, sölumaður verður 95 ára á morgun, laugardaginn 30. apríl. Hann tekur á móti gestum í Templara- höllinni milli kl. 5 og 7 síðdegis. Ölafur Albertsson frá Hesteyri, kaupmaður í Kaupmannahöfn, er átt- ræður í dag, 29. apríl. Leiðrétting A forsíðu DV í gær var birt mynd af þeim níu konum sem kosnar voru til setu á Alþingi. En þau leiðu mistök urðu að í myndatexta féllu niður nöfn þeirra Jóhönnu Sigurðardóttur Al- þýðuflokki og Kristínar Kvaran, Bandalagi jafnaöarmanna. Beðist er velvirðingar á þessum mistökum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.