Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.1983, Síða 8
8
DV. MÁNUDAGUR20. JUNI1983
Útlönd
Útlönd
Útlönd
Útlönd
Pólska stjórnin vegna páfaheimsóknarinnar:
Varar kirkjuna
við öllu andófi
Jóhannes Páll páfi blessar mannfjöldann við útiguðsþjónustu á leikvanginum í
Varsjá.
Jóhannes PáU páfi hvatti í ræðu tU
þess í gær að pólskt sjálfstæði og
þjóðareining yrði virt og bað heUaga
Maríu fyrir allt þaö sem byggt hefði
verið upp síðan í ágúst 1980 (þegar
óháðu verkalýössamtökin voru
stofnuð).
Samtímis hafa stjómvöld varað
kaþólsku kirkjuna við og lagt að henni
að hindra mótmælaaðgerðir pólitískra
andófsmanna meðan á heimsókn
páfans stendurí Póllandi.
Talsmaður stjórnarinnar veittist að
þeim stuðningi sem feimnislaust hefur
verið sýndur Einingu, hinum bönnuðu
verkalýðssamtökum, og var gefið í
skyn að það kynni að seinka fyrir
afnámi herlaganna ef mótmæla-
aðgerðum y rði haldið áfram.
Vék málpípan að veifum og fánum
Einingar sem sést höfðu á lofti við
guösþjónustur og trúarsamkomur í
Varsjá og í Szestochowa þar sem
páfinn ávarpaði fólk við útiguðsþjón-
ustu undir múrum Jasna Gore-klaust-
ursins.
Kirkjunnar þjónar hafa hvatt
söfnuði sína til þess að spilla ekki
trúaryfirbragöi mannsafnaða en hafa
þó ekki bannað veifur og spjöld með
stuðningsyfirlýsingum við Einingu.
Eftir messur hefur fólk verið hvatt til
þess að dreifa sér með friði og spekt.
Lögreglan hefur samt látið afskipta-
laust að veifum Einingar hefur stöðugt
fjölgað og önnur tákn til stuðnings
hinni óháðu verkalýöshreyfingu síðan
páfinn kom til landsins.
I opinberum yfirlýsingum hafa
hvergi komið fram nein andsvör við
ræðuflutning páfans, sem tvívegis um
helgina tók sér í munn orðið „solidarin-
ocs” (eining) í almennri merkingu.
Pólsk valkyrja stjakar við lögreglumanni í mótmælaaðgerðum í höfuöborginni, en stjórnvöld vara kirkjuna við því
að páf aheimsóknin sé notuð til mótmælaaðgerða andóf smanna.
DRAUGASKIP Á
REKI í TVO MÁNUÐI
Draugaskip, sem fannst mann-
laust á reki í Karabíska hafinu í
fyrri viku, reyndist hafa um borð
farm hergagna frá Sovétríkjunum
sem metinn er á 20 milljónir doll-
ara, að því er y firmaður flota Vene-
zuela, Rafael Bertorelli, segir.
Skipið, sem heitir Cloud og er skráð
á Kýpur, var dregið að flotastöð
Venezuela í Turiamo. Um borð
fundust skotfæri i fallbyssur en
engarbyssur.
BertoreUi aðmáráll sagði að
skipið hefði lagt upp frá Las
Palmas á Kanaríeyjum 6. apríl og
verið á leið tU Nígeríu. Það fannst
síðan 8. júní, þegar fragtskip frá
Venezuela sigldi framhjá því, en þá
var enginn um borð.
Talsmaöur Lloyds-tryggingafé-
lagsins sagði að skipið hefði veriö
taUð af 7. april, eftir aö skipshöfinin
yfirgaf það í stormi og var tekin
umborðíannaöskip.
Kjamorkuvopnalaust
svæði á Balkanskaga
Stjómvöld í Rúmeníu hafa þekkst
boð gríska forsætisráðherrans,
Andreasar Papandreou, að taka þátt í
umræðum um kjamorkuvopnalaust
svæði á Balkanskaga, að því er segir í
tUkynningu frá hinni opinberu frétta-
stofu Rúmeníu, Agerpres. Annar
þjóðarleiðtogi á Balkanskaga, Todor
Zhivkov, hefur þegar þekkst þetta boð.
Bréf frá Ceausescu til Papandreou,
þar sem boöi gríska forsætisráð-
herrans er tekið, hefur þegar verið
afhent sendifuUtrúa Grikklands í
Búkarest. I hinni opinberu tilkynningu
sagði að hugmyndir Papandreous
væm mjög í samræmi við hugmyndir
Ceausescu um samstarf ríkjanna á
Balkanskaga.
I fyrri viku höfnuöu stjómvöld í
Albaníu boði Papandreous, á þeirri
forsendu að hugmyndir um kjarnorku-
vopnalaust svæði á Balkanskaga væm
tálsýn, meöan ríki á svæðinu ættu aðUd
að hernaðarbandalögum.
Pyntingar í ísra-
elskum fangelsum
Læknir frá Irak, sem verið hefur í
haldi í fangabúðum Israelsmanna í
Ansar í Suður-Líbanon, hélt því fram
aö þar iðkuðu tsraelsmenn pyntingar
og ýmiss konar ofbeldi gegn föngum
sem minnti helst á aðferðir nasista.
Læknirinn, sem heitir Namzi Obeidi,
sagði þetta á blaðamannafundi í
Damaskus og einnig að hann hefði verið
í haldi í Ansar í eitt ár og nýlega verið
sleppt lausum. Obeidi var yfirmaður
sjúkrahúss sem rekið var á vegum
Rauða hálfmánans í borginni Sídon.
Obeidi, sem sagðist vera kommún-
isti og standa með kröfum Palestínu-
araba um eigið ríki, sagði aö fangar í
Ansar, sem eru 5000 talsins, kölluðu á
samvisku heimsins að fletta ofan af
nasistavinnubrögðum ísraelskra
stjómvalda. Hann sagði einnig að
nýlega hefðu Israelsmenn drepiö þrjá
fanga og sært fjóra í búðunum í Ansar.
ARAFAT REYNIR AD
SÆTTA ÖFLIPLO
Yasser Arafat og miðstjórn Fatah-
hreyfingarinnar komu saman til fund-
ar í nótt til þess að ræða uppreisnina
meðal skæruliöa samtakanna en hún
leiddi til átaka í einni bækistöö PLO-
skæruliöa skammt frá Damaskus í
gær.
13 manna miðstjórnin mun að líkind-
um kalla saman til fundar í 73 manna
byltingarráði Fatah en í þeim hópi eru
að minnsta kosti níu uppreisnarseggir.
Hvort þeir mæta til fundarins þykir
svo óvíst.
Arafatmun leggja mikiðkappá aö
ná forystunni saman og helst meö upp-
reisnarseggjum til staðar til þess að
reyna að jafna þann ágreining sem um
tveggja mánaöa bil hefur skapað
klofning meðal skæruliða Palestínu-
araba í norður- og austurhlutum Líb-
anon.
Einn aðalforingja hans, Ezzedin
Sharif ofursti, særðist ásamt þrem
mönnum sínum i átökunum í búðum
skæruliða skammt frá Damaskus í
gær. — Arafat sakaði í gær
Líbýumenn, sem herlið eiga að baki
sýrlensku sveitunum í Austur-Líban-
on, um aö æsa til átaka meðal flokka
PLO-skæruliða.