Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.1983, Qupperneq 11
DV. MANUDAGUR20. JUNl 1983.
11
„ÉG BÝST VID AÐ Á GRÁUM DÖGUM
LANGIALLA AÐ BREYTA TIL”
segir Geir H. Haarde, nýskipaður aðstoðarmaður fjármálaráðherra
Á næstu mánuöum veröur Geir H.
Haarde Alberts hægri hönd í orösins
bókstaflegu merkingu. Hann verður að-
stoöarmaður hins nýja fjármálaráð-
herra og er þegar meira og minna
f luttur inn í skrifstofu sína á f yrstu hæö
í Amarhvoli. Þar eru veggimir þaktir
endalausum rööum af Alþingistíð-
indum meö svörtum kjölum. Fátt
minnir á fjármálastjórn. Nema þá það
væri, aö þaö liggur stórt armbandsúr á
skrifboröinu og tíminn er peningar,
ekkisatt?
„Viö Albert höfum ekki alltaf veriö
sammála, en þaö em margar vistar-
verur í Sjálfstæðisflokknum,” segir
Geir og lýsir sig fyllilega sammála
Albert um nauösyn þess aö selja eitt-
hvaö af ríkisfyrirtækjunum, hver sem
þaunúveröa.
Albert er kaupsýslumaðurinn, Geir
hinn háskólamenntaöi hagfræðingur
meö fræöilega þekkingu á hreinu.
Hann hefur undanfarið veriö deildar-
stjóri í Seölabankanum.
Guðni kallaði mig
félagsveru
,,Ég hef aldrei haft áhuga á aö fara
sjálfur út í bisness,” segir Geir.
Annars var afi hans Steindór sá sem
kom til Reykjavíkur austan úr Ölfusi
og stofnaöi eina af fyrstu bílastöövum
landsins áriö 1914. En faðir Geirs var
norskur símamaöur og þaöan kemur
Haarde nafniö. „Framburðurinn er
eins og á Kaaberkaffinu.” Einn af
fööurbræðmm hans er bóndi á vestur-
strönd Noregs, nálægt Haugasundi.
Geir er sannur vesturbæingur, upp-
alinn á Sólvallagötunni. ,,Eg held líka
enn meö KR, þótt það séu um tuttugu
ár síðan ég lék þar seinast á Fram-
vellinum í fjórða flokki C.”
Hann tók stúdentspróf 1971 og hafði
þá verið inspector skolae um veturinn,
sá fyrsti í tíð Guöna rektors.
„Guöni kallaöi mig félagsvem,”
segir Geir, í tóni, sem gefur til kynna
aö skilgreiningin hafi ekki veriö fylli-
lega jákvæö, meinti þaö kannski ekki
alveg jákvætt,” segir Geir. „Annars
kom okkur ágætlega saman. ’ ’
Geir H. Haarde er nú formaöur Sam-
bands ungra sjálfstæðismanna, einn af
fáum sem kjörinn hefur veriö mótat-
kvæðalaust. Félagsstússiö byrjaöi
straxíbarnaskóla.
„Við vorum alltaf aö stofna alls
konar bardaga- og skemmtifélög. Þau
urðu flest skammlíf og þá stofnuðum
viö ný. Eg var formaður í einu — skák-
félaginu Hróknum.”
Fyrsta æfingin í stjórnmáladeilum
kom í Hagaskólanum þegar þráttaö
var um álverið á málfundi. Geir vildi
álver en einna höröust í andstööunni
var Alfheiður Ingadóttir, bekkjar-
systir hans og núverandi blaöamaöur á
Þjóðviljanum. Hvorugt hefur skipt um
skoðun síðan.
Fremur hrollvekjur
en vestra
„Eg býst viö aö á gráum dögum
langi alla að breyta til og reyna eitt-
hvaö óvænt. Mig hefur lengi langað í
söngtíma en aldrei komist svo langt,”
segir hagfræöingurinn sem reyndar
hefur einnig háskólagráðu í alþjóða-
stjórnmálum. Röddin er fyrsti bassi
eöa baríton... „ég syng í boðum þegar
menn eru orönir viö skál... var í
Fílharmóníukómum hjá Róbert A.
Ottóssyni. Mjög eftirminnilegur
maður.”
Hann geymir píanó fyrir móöur sína
og spilar á það til aö slaka á eftir
erfiöan dag, eöa þá hann fer í bíó.
Mega vera hrollvekjur, hann er ný-
búinn aö sjá Cat people. „En mér leið-
ast vestrar.” Islensku myndirnar
reynir hann að sjá og varð mjög hrif-
innafHúsinu.
Bókmenntirnar hafa orðið útundan.
Mestur lestrartíminn hefur fariö í að
fylg jast með lánamörkuðum og heims-
málum í erlendum tímaritum. „En
mig mundi langa aö bæta úr því,”
segir hann og er farinn aö taka meö sér
skáldskap i samningaferöimar til út-
landa.
„Eg er nýbúinn að lesa Ragnar
Finnsson þannig, á hótelherbergjum
og i flugvélum, og fannst hún mjög
áhrifamikil.”
Þessi saga Kambans segir frá Is-
lendingi sem ætlar að gerast fésýslu-
maður í útlöndum en hrapar í eymd og
niöurlægingu.
Blaðamaöur segir eitthvað á þá leiö,
að skáldin hafi afltaf djúpa samúð meö
lítilmagnanum.
Geir er fljótur til svars: „Já, þaö
höfum við líka, viö Albert. ”
IHH
GeirH. Haarde: „Já, þaöhöfum viölíka, viö Albert.”
DV-mynd: Þó.G.
Margra ára reynsla sannar gæði ÞOLer framleitt í fjölbreyttu litaúrvali.
þakmálningunar frá Málningu hf. Handhægt litakort auðveldar
ÞOL er sérframleidd alkýðmálning, valið á réttum lit.
sem innlend reynsla hefur ÞOL tryggir þér fallegt útlit
skipað í sérflokk vegna endingar og góða endingu.
og nýtni.
ÞAKMÁLNING SEM ENDIST
málning