Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.1983, Síða 29
DV. MÁNUDAGUR 20. JUNl 1983.
29
Baráttan um fslandsmeistara
titilinn í raiii aldrei harðari
Baráttan um Islandsmeistaratitilinn
í ralli hefur aldrei verið tvísýnni en nú
eftir vorrall Hótel Borgarness, sem
fram fór á dögunum og skýrt hefur
veriö frá í DV. >að voru 19 keppendur
sem mættu til leiks að þessu sinni því
þessi keppni gaf stig til Islands-
meistara í ralli. Þó voru nokkrir ný-
liðar sem kepptu frekar af áhuga en
getu. I upphafi átti þessi keppni að
vera tveggja daga keppni, en vegna
misskilnings við leyfisöflun fékkst ekki
leyfi nema fyrir öðrum deginum. Síðan
var rallið stytt, því bændur í nágrenni
Húsafells mótmæltu því að keppnin
færi þar fram, svo þaö var ákveðið aö
fella hluta leiðarinnar niður til að
halda friöinn. I staöinn voru allar leiðir
eknar tvisvar, þ.e.a.s. fram og til
baka. Lítið var um óhöpp í þessari
keppni og aðeins einn bíll náöi ekki aö
ljúka keppni, en það var Lada þeirra
Ævars og Bergsveins. Þeir urðu fyrir
því óhappi að spindill brotnaði í fram-
hjóli hjá þeim svo þeir urðu að hætta
keppni. Þeir bræður, Omar og Jón
Ragnarssynir, tóku ranga beygju á
fyrstu sérleið og töfðust við það um 15
sek. sem þeim tókst ekki að vinna upp í
allri keppninni. Mikil barátta stóð á
milli Halldórs Ulfarssonar á Toyota og
Loga Einarssonar á Escort og var ekki
útséö um hvor yrði í fyrsta sæti fyrr en
keppninni var lokið. Þeir óku báðir
mjög vel og óhappalaust þrátt fyrir
mikinn hraöa. Einnig stóð Jón S.
Halldórsson sig ágætlega þar til á síð-
ustu sérleið að bíllinn bilaði en Jón dó
ekki ráðalaus frekar en fyrri daginn.
Kveikjulokið hafði dottið af og kveikju-
hamarinn týndist. Jón tók þá á rás
hlaupandi út að timastöðinni sem var í
um tveggja km fjarlægð og náði í
Ekki var nóg fyrir Jón og Hjalta að aka
vel á köflum. því bíllinn bilaði og þeir
höfnuðu í neðsta ssti.
Omar og Jón höfnuðu í þriðja sæti en
þeir hafa unnið öll röllin í Borgarnesi
fram að þessu.
nýjan kveikjuhamar. Síðan hljóp hann
til baka og geröi við bQinn til að geta
lokið keppninni og það tókst honum
þótt hann lenti í síöasta sæti.
En úrslit í þessari tvísýnu keppni
urðu þau að Halldór Ulfarsson og Hjör-
leifur Hilmarsson á Toyota sigruðu
með 2.33 mín. I refsistig. I öðru sæti
urðu Logi Einarsson og Ásgeir
Sigurðsson á Escort meö 2.40 mín., en í
þriðja sæti komu Islandsmeistaramir,
þeir Omar og Jón Ragnarssynir, á
Renault með 3.01 mín. I fjórða sæti
komu Húsvíkingarnir Þorsteinn og
Sighvatur á BMW með3.50mín.
Næsta rall verður haldið á Húsavík
dagana 15.—16. júlí og má þá búast við
spennandi keppni því Halldór hefur 37
stig til Islandsmeistara og Omar 35
stig.
Ertu hættulegur
IUMFERÐINNI
án þess að vita það?
Mörg lyf hafa svipuö áhrif
og áfengi
Kynntu þér vel lyfiö
sem þú notar.
Logi og Ásgeir á Ford Escort náðu öðru sæti eftir hörku keppni.
öra Ingólfsson, eða Dalabóndinn eins og hann er oftast kallaður, mætti til leiks a
Trabantinum og hafnaði í 16. sæti sem er ágætis árangur.
DV-myndir Árni Bjarnason.
Halldór og Hjörleifur urðu að halda vel á spöðunum til að ná fyrsta sætinu.
Toyota HI-LUX árg. '81, ekinn
26.000, rauður, m/húsi.
Verð 260.000.
Toyota HI-LUX árg. '82, ekinn
17.000, rauður. Verð 335.000,
m/plasthúsi.
Toyota HI-LUX disil '82, ekinn
20.000, rauður. Verð 370.000,
m/plasthúsi.
Toyota Carina árg. '80, 2ja dyra,
ekinn 42.000, rauður. Verð
180.000.
Toyota Tercel 4x4 árg. '83,
ekinn 6.000, hvitur.
Verð 365.000.
Toyota Cressida dísil árg. '81,
ekinn 67.000, drappl. Verð
300.000. Rafmagnsrúður, út-
varp/segulband.
milur, gulur. Verð 180.000. Skipti
möguleg á ódýrari bilum.
Toyota Cressida DL árg.
ekinn 24.000, rauður.
Verð 310.000.
'82,
Toyota Land Cruiser dísil árg.
'80, ekinn 87.000, drappl. Verð
300.000.
Einnig: Toyota Land Cruiser
bensin árg. '76, ekinn 54.000
Toyota Crown dísil árg. '81,
ekinn 133.000, svartur. Verð
290.000.
Einnig: Toyota Crown Super Sal-
oon árg. '81, ekinn 48.000,
rauður. Verð 380.000. (6 cyl.,
m/beinni innspýtingu, rafmagns-
rúður og laesingar, sjálfskiptur,
m/overdrive, útvarp/segulband,
vetrardekk.)
TOYOTA
SALURINN IVIýbýlavegi 8 Sími: 44144.