Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.1983, Side 30
30
DV. MÁNUDAGUR 20. JUNl 1983.
15 kjörbúöir og stórmarkaðir
á höfuðborgarsvæðinu.
EURDCARD
TIL DAGLEGRA NOTA
DANSSTÚDÍÓSKÓRNIR
Litir: biár, gulur, hvitur og orartge. Litir: hvítur, biár, gulur, grænn,
Stærðir: 39—41. bleikur og orange.
Stærðir: 35—41.
Litir: blár, bleikur og hvitur.
Stærðir: 35—41.
Litir: biár, bleikur og hvitur.
Stærðir: 35—41.
Einnig sumarbolir með legghlífum og
höfuðbandi. Allir litir.
Verslunin
Verslunin ÓÐINN
Akranesi, simi93—1986.
Tjarnargötu 20A
230 Keflavík, sími 92-3255
I Póstsendum I
Allar vörur fyrirtækisins
með 50% afslætti
Viö breytum rekstrínum og seljum
því al/ar vörur verslunarinnar
í dag og næstu daga
með helmingsafslætti.
Missið ekki af útsölu ársins.
Halldór Jóhannesson hlífði hvorki AMC Jeep jeppanum né 401 cid. vélinni í honum í tilraunum sínum til að komast
fram fyrir Bergþór. Ekki tókst Halldóri það en þeir Bergþór eru nú jafnir að stigum í keppninni um íslandsmeist-
aratitilinn því að Halldór sigraði í fyrstu torf ærukeppni sumarsins sem haldin var á Akureyri.
DV-mynd Jóhann Kristjánsson
Torfærukeppnin á Hellu:
Harka færist í Is-
landsmeistarakeppnina
Það var Bergþór Guðjónsson sem bar sigur úr býtum í torfærukeppninni á
Hellu, eftir harða baráttu við Halidór Jóhannesson. ’46 Willysinn og Bergþór
sjást hér ösla áfram í miðri Varmánni. DV-mynd Jóhann Kristjánsson
Bergþór Guöjónsson sigraði í tor-
færukeppni Flugbjörgunarsveitar-
innar á Hellu, keppnin var haldin í
nágrenni Hellu fyrir nokkru. Er
þetta þriðja árið í röð sem Bergþór
sigrar í Hellukeppninni en hann
hreppti Islandsmeistaratitilinn 1981
og ’82. Bergþór stefnir vafalaust á Is-
landsmeistaratitilinn í ár en það hef-
ur nú þegar sýnt sig að sá róður verð-
ur erfiður fyrir hann. Helsti keppi-
nautur hans, Halldór Jóhannesson,
hefur verið að betrumbæta bíl sinn í
allan vetur og hefur nú létt hann tölu-
vert, auk þess sem drifhlutföll og
f jörðun hafa verið bætt mikið. Hall-
dór lenci í öðru sæti Hellukeppninn-
ar en hann sigraði í fýrstu torfæru-
keppni sumarsins sem haldin var á
Akureyri í maí. Þeir Halldór og
Bergþór eru því jafnir að stigum
eftir tvær fyrstu torfærukeppnir
sumarsins og verður keppnin milli
þeirra vafalaust hörð seinna í sum-
ar.
Sigurður Vilhjálmsson keppti á
Willys með 283 cid. Chevrolet vél og
gekk honum misjafnlega vel í
þrautunum. Virtist hann vera einkar
laginn við að festa sig í drullupyttum
en hann hlífði gamla jeppaálbúrinu
hvergi og þandi það svo að drullu-
sletturnar stóðu í allar áttir. Voru til-
þrif Sigurðar oft æði skrautleg þegar
hann barðist um á hæl og hnakka svo
að jeppinn nötraöi og skalf, meira
undan átökum Sigurðar en 283 cid.
vélarinnar. I sumum þrautum
keppninnar stóð Siguröur sig mjög
vel og má þar t.d. nefna sandbrekk-
una sem keppendur áttu að bakka
upp. Þar bakkaði Sigurður upp eins
Iéttilega og hann væri á Laugavegin-
um, við mikinn fögnuð áhorfenda.
Guömundur Helgi Christensen
keppti á VW Buggy, heimasmíðuð-
um, en honum gekk ekki mjög vel í
keppninni. Var Buggyinn allt of
kraftlaus, auk þess sem framdrifið
vantaöi í hann. Áhorfendur höföu þó
greinilega gaman af aö fylgjast með
Guðmundi sem ók oft í loftköst-
um.Þegar kom að blautu torfærun-
um, þ.e.a.s. tímabrautinni sem lá
yfir mýrlendi og þrautunum sem
voru í akstursleiöinni yfir Varmá,
hætti Guðmundur keppni enda hefði
Buggyinn farið allur á bólakaf í
þeim.
Gunnar Sveinsson náði takmörk-
uðum árangri í þessari torfæru-
keppni enda voru torfærurnar allt of
erfiðar fyrir standard Toyota Hilux-
inn hans. Tókst honum einungis að
komast eina braut á enda en það var
síðasta tímabrautin.
Haraldur Magnússon keppti á
Willys með 6 cyl. 232 cid. vél og stóð
hann sig nokkuö vel miðað við
hversu kraftlítill jeppinn hans var og
illa búinn dekkjum. Keppnin endaði
nokkuð illa hjá Haraldi því að í síð-
ustu brautinni braut hann framdrifs-
skaftið eða framdrifið þegar hann
var að reyna að brölta upp úr
Varmá.
Jóhann Kristjánsson
Æk n j y-
1 WJBIJ • *' *, rm ÉÍMéSm
Þau voru oft sKemmtileg tilþrifin sem Guðmundur Helgi Christensen sýndi á VW Buggyinum sinum en hér kemur
hann upp eina brekkuna með f ramhjólin á lofti. DV-mynd Jóhann Kristjánsson.