Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.1983, Qupperneq 31
DV. MÁNUDAGUR 20. JUNl 1983.
31
Bátaleiga
í Höf num
Félag íslenskra rithöfunda:
Fundaði um réttindamál
Frá Heiöari Baldurssyni, fréttaritara
DVÍ Keflavík:
Bátaleiga hefur veriö opnuö í
Höfnum undir nafninu Bátaleiga Hart-
manns. Að sögn Rúnars Hartmanns-
sonar, eiganda leigunnar, verða leigöir
út 2ja manna kajakar ásamt 3—4ra
manna jullu.
Þá er hægt aö fá útsýnissiglingu á
hraðbát, sem Rúnar stjórnar, og gefst
mönnum þá kostur á aö skoða sig um i
Hafnarósunum, sem eru mjög
skemmtilegir í góöu veöri. Þar geta
menn víða farið í land og gengiö fjör-
umar eða fengiö sér snarl.
Kajakarnir eru mjög öruggar
fleytur, og þurfa til dæmis um 90 gráða
halla til þess að þeim hvolfi, og þeir
fljóta fullir af sjó með tveimur
mönnum og öllum viðlegubúnaði.
Mönnum er gert skylt að vera með
björgunarvesti sem fáanleg eru á
staönum.
Leigan veröur opin frá klukkan
þrettán til tuttugu og tvö daglega nema
aðsóknin verði sérstaklega góð, til
dæmis á góðviðrisdögum, þá verður
opið jafnvel allan sólarhringmn.
Gjaldið er 100 kr. á tímann fyrir
kajakana, en 150 kr. fyrir julluna.
Síminn hjá Bátaleigu Hartmanns er 92-
6926.
-JGH.
Tækin sem kynnt verða þykja henta
vel fyrir auglýsingar og gerð sjón-
varpsmynda.
SONY kynnir
mynd-
versbúnað
Sérfræðingar frá Sony koma hingað
til lands í vikunni og veröa með
sýningu á Sony U-matic High Band
myndversbúnaði. Mun sýningin standa
dagana 22. og 23. þessa mánaðar í
versluninni Japis.
Tæki þessi eru fyrir fyrirtæki og eru
mikiö notuð viö gerð auglýsinga og
sjónvarpsmynda. Þá þykja tækin
henta vel fyrir landshlutasjónvarps-
stöðvar.
Þar sem um sérhæfða sýningu er að
ræða er fólki ráðlagt að panta tíma svo
að hægt sé að veita hverjum og einum
sem bestar upplýsingar, að því er segir
í fréttatilkynningu frá Japis.
-sa.
SIÖ
7 bílaleigur
á höfuðborgarsvæðinu.
EURQCARD
TIL DAGLEGRA NOTA
Rúnar Hartmannsson ásamt syni sinum, Hartmanni Rúnarssyni, fimm
ára gömlum.
DV-mynd: Heiöar
Félag íslenskra ríthöfunda hélt
aðalfund sinn hinn 19. maí síðast-
liðinn.
Formaöur félagsins, Gunnar Dal,
skýrði frá störfum félagsins á liðnu
ári. Látist höfðu á árinu þrir félagar,
dr. Kristján Eldjárn, Þóroddur
Guðmundsson frá Sandi og Poul M.
Pedersen, ljóðskáld og ljóöaþýðandi
í Kaupmannahöfn.
AÖalfundarefhið var réttindamál
og staða þeirra. I umræðum um þau
komst fonnaður svo að orði:
„Skylda og réttur rithöfundar er aö
ganga uppréttur. Fullkomin réttar-
ieg samstaöa okkar er á næsta leiti.
Það sem gerir samstöðu okkar
náttúrlega og sjálfsagða er trú okkar
á vestrænan húmanisma og
mannúðarstefnu. Við viljum ekki
ofbeldi og við sættum okkur ekki við
„authoriseraöa” innrætingu örfárra
sem stefnumarkandi, varðandi
ritstörf okkar.”
Indriði G. Þorsteinsson komst svo
að orði í þessum umræöum: „Við
viðurkennum ekki það athæfi i
félagslegu starfi aö verið sé að
flokka menn niður í góöa og slæma
rithöfunda eftir einhverjum
annarlegum og innrætingarlituðum
aðferðum. Viö höfum í okkur
inngróna andstöðu við slík
sjónannið. Við félagar erum allir
menn sem skrifum bækur og eigum,
kröfu á að vera metnir út frá þvi
sjónarmiði til hlutdeildar.”
Tvær úrsagnir bárust úr félaginu
og tveir gengu í félagið á árinu. Tala
félagsmannaer76.
Gunnar- Dal var endurkjörinn
fonnaður en aðrir í st jórn eru Baldur
Oskarsson, Indriði G. Þorsteinsson,
Indriði Indriðason, Ingimar
Erlendur Sigurðsson, Jónas
Guðmundsson og Pjetur Hafstein
Lárusson. Varamenn í stjóm eru Jón
Bjömsson og Sveinn Sæmundsson og
endurskoöendur Stefán Agúst
Kristjánsson og Jón Bjarman.
KATTASANDUR
NYR OG BETRI VALKOSTUR!
KIS KIS er lykteyðandi og dregur mjög vel
í sig allan raka.
Yfo.Trf■' ' ‘ •’ '' -.'-ry
KIS KIS er ódýr og auðveldur í meðförum.
KIS KIS eykur hreinlætið hjá kisurmi þinni.
Kannaðu verðið og láttu kisuna þína
kannagæðin, þið verðið ekki fyrir
vonbrigðum!
KIS KIS, íslenskur valkostur.
FÆST í ÖLLUM HELSTU MATVÖRUVERSLUNUM
€