Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.1983, Qupperneq 28

Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.1983, Qupperneq 28
28 DV. ÞRIÐJUDAGUR13. SEPTEMBER1983. Andlát J6n KJerúlf Guðmundsson lést 4. september sl. Hann var fæddur 13. apríl 1895. Foreldrar hans voru Guðrún Friörika Þórarinsdóttir og Guö- rrvundur Guðmundsson. Jón giftist Hjálmfriöi Hjálmarsdóttur. Jón og Hjálmfriður eignuöust tvær dætur og ólu einnig upp fósturdóttur Jóns. Jón var einn af stofnendum samvinnu- félags útgeröarmanna í Neskaupsstað. Lengstan tíma eftir aö Jón kom til Reykjavíkur, vann hann hjá SIS sem lagermaður. Hjálmfríði konu sína missti hann árið 1960. Utför Jóns verður gerö frá Fossvogskirkju í dag kl. 13.30. Elías Bjarnason, Fálkagötu 23 A, lést að heimili sínu 9. september sl. Jón Ólafsson bakari, Blönduhlíð 13, lést í Landspítalanum 11. september. Þorbjörg Andrésdóttir andaöist í svefni 10. september. Útför ákveðin föstudaginn 16. september kl. 13.30 frá Dómkirkjunni. Guðmundur Guðmundsson, Asvalla- götu 49, verður jarðsunginn frá Dóm- kirkjunni miðvikudaginn 14. septemberkl. 13.30. Tilkynningar • Kvennadeild SVFÍ í Reykjavík Konur sem geta aöstoöaö viö hlutaveltu mæti í húsi SVFl fimmtudaginn 15. september kl. 20.00. Stjórnin. Háls-, nef- og eyrnalæknir á ferð um Húsavík. Einar Sindrason, háls-, nef og eymalæknir, ásamt öðrum sérfræðingum Heymar- og tal- meinastöðvar Islands, verður á ferð á Húsa- vík dagana 16. og 17. sept. 1983. Rannsökuð verður heym og tal og útveguð heymartæki. Áætlun Akraborgar Frá Akranesi kl. 8.30 kl. 11.30 kl. 14.30 kl. 17.30 Frá Reykjavík kl. 10.00 kl. 13.00 kl. 16.00 kl. 19.00 Kvöldferðir 20.30 22.00 Október, sunnudagar. Nóvember—apríl, engar kvöldferðir. Smáauglýsingadeildin er íÞverholtill og síminn þar er27022 OpiðallavirkadagafrákL 9—22 Laugardaga frá kl■ 9—14 Sunnudaga frá kl. 18—22 Hlust hf. flutt í nýtt húsnæði Hljóðupptökustudíóið Hlust hf. hefur flutt i nýtt og betra 100 fm húsnæði aö Skipholti 9 i Reykjavík. Þama er um að ræða sérhannaðan upptöku- sal, sem er 50 fm að stærð með öllum þeim búnaði sem til þarf, og 25 fm stjórnklefa sem er búinn öllum þeim fullkomnustu átta rása tækjum sem völ er á í dag. Má þar nefna Teac Tascam, átta rása segul- band meö DBX uniti, Revox tveggja rása master tape, tólf rása Tabco mbter borð, effect unit-tæki af öllum gerðum, reverb, deley maskínu og fleira. Hlust hf. bíður upp á alls konar upptökur, hvort sem það er fyrir upplestur, ljóðalestur, upptökur á auglýsingum í útvarp eða sjón- varps-demoupptökur og plötuupptökur. Verðinu er mjög stillt í hóf til þess að sem flestir geti notfært sér þessa þjónustu. Hallgrímskirkja — félagsstarf aldraðra Fimmtudaginn 15. september verður farið til Þingvalla til að sjá haustlitina. Lagt af stað frá Hallgrímskirkju kl. 13. Upplýsingar gefur safnaðarsystir í síma 39965 eða í kirkjunni þriðjudag 13. september í síma 10745. BBC tölvunotendur athugið Stofnfundur BlBlS (félag BBCnotenda) verð- ur haldinn laugardaginn 17. sept. kl. 14 í húsi Félags Bókagerðarmanna, Hverfisgötu 21. Aliirvelkomnir. SPENNUM BELTIN sjálfra okkar vegna! UMJV ALLA VIKUNA Úrval TIMARIT FYRIR ALLA UMBOÐSMENN VANTAR STRAX Á: BREIÐDALSVÍK OG ÓLAFSVÍK VINSAMLEGAST HAFIÐ SAMBAND VIÐ AFGREIÐSLUNA í SÍMA 27022. Hitaveitubilanir Reykjavík og Kópavogur sími 27311, Sel- tjamames sími 15766. Tapað -fundið Kvennalistinn íReykjavik Ráðstefna Samtaka um kvennalista var hald- in að Búðum 2.-4. september 1983. Ráðstefn- una sóttu um 100 konur á aldrinum 17 til 74 ára og víðs vegar að af landinu. Á ráðstefnunni voru flutt mörg fróðleg erindi, m.a. erindi Kristínar Ástgeirsdóttur um kvennabaráttu á Islandi, annars staðar í Evrópu og í Bandaríkjunum sl. 15 ár. Erindi Sigríðar Dúnu Kristmundsdóttur um kvennamannfræði og erindi Þórunnar Friðriksdóttur um kynmótun. Að loknum erindunum voru hópumræður og niðurstöður hópanna ræddar. Fulltrúar Islands í friðargöngu kvenna frá New York til Washington, þær Guðrún Agnarsdóttir og María Jóhanna Lárusdóttir, skýrðu frá göngunni og Kvennaleikhúsið skemmti. Seinni dag ráðstefnunnar voru umræður um starf hreyfingarinnar og komandi þingstarf. Tiltekin voru fjölmörg verkefni sem á þyrfti að taka. Kom m.a. fram að brýnt væri að leggja áherslu á eftirfarandi atriði í mál- efnum kvenna: 1. Að húsmóðurstarfið verði metið sem önnur störf í þjóðfélaginu t.d. með tilliti til trygg- inga og sem starfsreynsla á almennum vinnu- markaði. 2. Breytt forgangsröðun verkefna þannig að hætt verði að vanrækja kvennamál. 3. Opnari umræða um stöðu kvenna á Islandi, m.a. í skólum, fjölmiðlum og í launþega- samtökum. Einnig voru húsnæðismál rædd og var lýst stuöningi við kröfur áhugamanna um hús- næðismál. Jafnframt var bent á að æskilegt væri að fólk gæti valið um fleiri leiðir í húsnæðismálum en þá að hver fjölskylda verji bestu árum ævinnar í að koma sér upp eigin húsnæði. Þess vegna bæri að leggja áherslu á byggingu íbúða á vegum félagasamtaka og byggingu langtimaleiguibúða. Reiðhjól tapaðist Sl. föstudagskvöld tapaðist splunkunýtt blátt torfæruhjól með rauðu sæti hjá Glæsibæ. Eig- andinn, sem er aðeins átta ára, hafði sjálfur safnað fyrir hjólinu og því er missir hans ekki minni en ella. Ef einhver hefur séð hjólið, vin- samlegast hringi í sima 35923 eða hafi sam- band við DV. Úr tapaðist Síðastliðið föstudagskvöld tapaðist gullúr í Hagkaupi. Urið er af gerðinni Citizen Quartz, kvenúr með brúnni ól úr krókódílaskinni. Sá sem hefur fundið úrið getur skilað því á rit- stjóm DV eða hringt í Agnesi Amardóttur í vinnusima 22020. Kvikmyndir Kvikmyndaklúbbur Alliance Francpise sýnir Le Crabe-Tambour, miðvikudagana 14/9 og 21/9, fimmtudagana 15/9 og 22/9 kl. 20.30 í Regnboganum. Myndin var gerð áriö 1977 af Pierre Schoen- doerffer. 1 aöalhlutverkum eru Jean Roche- fort, Claude Rich, Jacques Perrin, Jacaues Dufilho, Odile Versois og Aurore Clenent. Ráðstefna, „orðGuðstil þín" Hvað boðar Biblían? Hversu bókstaflega ber okkur að taka kenningar hennar? Eru skoðan- ir hennar úreltar eða sígildar? Hvað eiga kristnir menn við þegar þeir kalla hana orð Guös? Allir sem komast í snertingu við kristna trú glíma við þessar og aðrar álíka spumingar. Stundum liggja svörin ekki á lausu og oft eru menn alls ekki sammála í þessu efni. Sumarið 1975 var haldið hérlendis norrænt kristilegt stúdentamót undir yfirskriftinni ORÐ GUÐS TIL ÞlN. Undir sömu yfirskrift verður haldin í Reykjavík ráöstefna um næstu helgi, 17. og 18. sept. Að henni standa KFUM og K, Samband íslenskra kristniboðsfélaga, Kristileg skólasamtök og Kristilegt stúdenta- félag. A ráðstefnunni verður fjallað um viðhorf til Biblíunnar og boðskaps hennar. Aðalfyrirlesari verður Anfin Skaaheim, fram- kvæmdastjóri norsku kristilegu skólahreyfingarinnar. Ráðstefnan er öllum opin. Astæða er til að hvetja til þátttöku þá sem glíma við spuming- ar á þessu sviði eða vilja fræðast um Biblíuna. Ráðstefnan fer fram að Amtmannsstíg 2b. I tengslum við hana stendur Hið íslenska Biblíufélag að biblíusýningu þar sem m.a. verða sýndar sjaldséðar útgáfur Heilagrar ritningar frá fyrri öldum. Væntanlegir þátttakendur eru beðnir um að láta vita af sér á skrifstofu KFUM og K að Amtmannsstíg 2b, sími 13437, fyrir miðvikudag 14.9. kl. 17. Útvbtarferðir Helginll.-18.iept. 1. Haustferð á Kjöl. Eyvavarða til heiðurs Eyjólfi Halldórssyni ferðagarpi verður hlað- in. Hveravellir — Kerlingarfjöll — Beinahóll o.fi. Pantið timanlega vegna takmarkaðs hús- rýmis. 2. Þórsmörk. Uppselt. Sjáumst siðar. Af skipulagsástæðum er æskilegt að farmiðar í haustlita- og grillveisluferð 23. sept. verði sóttir sem fyrst. Upplýsingar og farseðlar á skrifstofunni Lækjargötu 6a, simi 14606 (sim- svari). SJÁUMST. Ferðafélagið Ctivist. Skák Taflfélag Seltjarnarness: September: Æfingamót alla fimmtudaga kl. 8,5 mín. mót, þrenn verðlaun. Október: Æfingamót alla fimmtudaga kl. 8,5 mín. mót, þrenn verðlaun. Nóvember: Æfingamót alla fimmtudaga kl. 8,7 mín. mót, þrenn verðlaun. Desember: Æfingamót alla fimmtudaga kl. 8,7 mín.mót, þrenn verðlaun. Ath. að í desember verður aðeins teflt tvo fimmtudaga, 1. og 8. des. September: Hraðskákmótið verður haldið fimmtud., 15. sept., kl. 8, þrenn verðlaun. Október: Hraðskákmótið verður haldið fimmtud., 13. okt.,kl. 8,þrenn verðlaun. Nóvember: Hraðskákmótið verður haldið miðv.d., 16. nóv., kl. 8, þrenn verðlaun. Desember: Hraðskákmótið verður haldið fimmtud., 15. des., kl. 8, þrenn verðlaun. Firmakeppnin hefst þriðjud. 6. sept. kl. 8. T.S. sendir sveit í 1. deild — 2. deild og ungl- sveit í 3. deild og hefst keppnin í Rvík 16. sept. Berjumst til sigurs. Fjöltefli við Islands- meistarann Hilmar Karlsson verður haldið laugardaginn 24. sept. kl. 14. Unglingaæfingar verða á laugardögum frá kl. 1—3. Leiðbeinendur verða Jón Pálsson og JónB.Lorange. Happdrætti Útdregnir vinningar í bíl- beltahappdrætti umferðar- ráðs 7. sept. 1983: Nr. 36263Endurryðvörn á bíl/Ryðvarnarskál- inn kr. 3.000 Nr. 4069 „Klippan” barnabílstóll/Veltir hf. kr. 2.370 Nr. 24139 Mótorstilling/Sveinn Egilsson hf. kr.1500 Nr. 23202 „Bílapakki” til umferðarörygg- is/bifreiðatryggingafélögin kr. 1.163 Nr. 39606 ” Nr. 31108 ” Nr. 48489 ” ” Nr. 14724 ” Nr. 18158 ” Nr. 36154 „Gloría” hjálpar- púði RKI/olíufélögin Nr. 46197 ” ” Nr. 14069 ” Verðmæti samtals Fjöldi vinninga 12. kr.1.163 kr.1.163 1.163 kr.1.163 kr. 1.163 slökkvitæki og skyndi- kr.811 kr. 811 811 kr.16.281

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.