Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.1983, Blaðsíða 37
DV. ÞRIÐJUDAGUR 6. DESEMBER1983.
37
Sviðsljósið
Sviðsljósið
Sviðsljósið
Þessi hárgreiðsla færði Sólveigu Leifsdóttur fjórða sæti igala-greiðslu. Stúlkan er Ásdis Höskuldsdóttir.
íslenska landsliðið í hárgreiðsiu ásamt módelum sínum. / neðri röð frá
vinstri eru: Helga Ólafsdóttir, Sólveig Leifsdóttir, Helga Bjarnadóttir,
Guðrún Hrönn Einarsdóttir og Sigurveig Runóifsdóttir.
Hárlandsliðin á
Norðuriandamóti
— íslenska hárgreiðslusveitin hafnaði í öðru sæti
Hárlandsliðin, úrvalslið Islands í
hárgreiðslu og hárskuröi, tóku nýlega
þátt í Norðurlandamóti sem haldið var
á Hotel Scandinavia í Kaupmanna-
höfn.
Hvert hinna fimm Norðurlanda
sendi tvær sveitir, fimm keppendur í
hvorri grein. Sveitirnar höfðu áður
verið valdar með undankeppni í hverju
landi.
Islensku hárgreiöslumeisturunum
gekk betur í keppninni en rakarasveit-
inni íslensku. i hágreiðslu hafnaöi Is-
land í öðru sæti, á eftir Noregi. Rakar-
amir höfnuðu í fimmta sæti.
Til að gefa örlitla hugmynd um
hvemig keppnin fór fram má geta þess
að hárgreiðslukeppninni var skipt í
þrennt: Gala-greiðslu, daggreiöslu og
klippingu og blástur. I Gala:greiðsl-
unni hafði hver keppandi 30 mínútur, í
daggreiðslunni 7 mínútur en til að
ljúka klippingu og blæstri fengust 50
mínútur.
Þrír dómarar, tveir frá Hollandi og
einn frá Vestur-Þýskalandi, dæmdu
síðan árangurinn.
Besta árangri íslensku keppendanna
náði Sólveig Leifsdóttir. Hún varð í
fjórða sæti í hárgreiðslunni á eftir
þremur Norðmönnum. I sjöunda sæti
varð Guðrún Hrönn Einarsdóttir.
PoppararáHúsavík:
UNGIR STRÁKAR
SPILA í EDEN
Eden er meira en aldingarður þar
sem par, nakið aö mestu, etur epli af
tré. Á Húsavík er líka Eden, popp-
hijómsveit kornungra pilta sem án
efa eiga eftir að láta að sér kveða ef
þeir halda áfram eins og þeir byrja.
Blaðamaður DV hitti þá féla^ana
fyrir í kjallara við götuna Sólbrekku
á Húsavík. Þeir vom þar aö æfa af
miklu kappi, sögðust reyndar æfa
alla daga. Þeir em fimm en
trommarann vantaöi þetta kvöldið.
Strákamir kváðust hafa byrjaö að
spila saman sumardaginn fyrsta
síðastliðið vor, enginn þeirra hefði
áður verið í hljómsveit en þeir væra
allir að læra í tónlistarskólanum. Á
þessum stutta hljómsveitarferli
hefði einu sinni verið spilað opinber-
lega. Það var í Barnaskóla Húsa-
víkur ekki alls fyrir löngu. Þangað
komu um 40 manns og viðtökur
reyndust með ágætum.
Þegar tekið er tillit til þess að strák-
amir í Eden em á aldrinum 11 til 14
ára verður að teljast merkilegt að allt
sem þeir flytja er frumsamið og í
pokahorninu hafa þeir oröið ein 18
lög. Aðallagasmiöurinn heitir Jó-
hannes Pétur Davíösson og er 12 ára
gamall. A honum sannast að eplið
fellur ekki langt frá eikinni því faðir
hans var harður poppari á árum
áður, Davíð Jóhannesson í Tempó.
„Eg var 10 ára þegar ég byrjaði
að semja lög,” sagði Jóhannes Pét-
ur. Og hvaöa lag hefur orðið vinsæl-
ast? „Alveg örugglega „Strákurinn
gekk yfir götuna”.” Blaðamaöurinn
bað um að fá að heyra það lag og
ekki stóð á því. Jóhannes Pétur greip
gítarinn og flutti lagiö einn í spili og
söng með miklum ágætum. Ég
spurði hvernig lögin yrðu til? „Þetta
lag varö til þannig að ég var bara
að spila og fór að raula með og
ímynda mér eitthvaö. Þá kom þetta
og mér fannst þaö flott. Svo skrifa ég
stundum texta og finn hljóma við á
gítarinn.”
Þeir i Eden em harðir að halda
áfram að spila saman. Hljóðfæri og
búnað eiga þeir sjálfir en em þó allt-
af að bæta viö sig. Slíkt er að sjálf-
sögðu ekki létt því fjárhagurinn er
ekki mjög góður. Þeir sögðu mér
sögu af því hvernig bassaleikarinn,
sem er 11 ára gamall og yngsti
hljómsveitarlimurinn á Húsavík,
eignaðist bassann sinn. Sigþór hafði
fengið peninga í skírnargjöf og þeir
voru lagðir inn á reikning. Hann tók
svo í vor helminginn út og keypti bass-
ann eða öllu heldur fékk hann lán hjá
foreldrunum til að kaupa hljóðfærið
og borgaöi þeim svo þegar hann gat
tekið út af reikningnum. I sumar
getur hann aftur tekiö út af
reikningnum og þá er ætlunin að
fjárfesta í góðum bassamagnara.
Þannig er líf alvörapoppara.
-JBH/Akureyri.
Hljómsveitin Eden er skipuð fimm vöskum Húsvikingum af yngri kyn-
slóðinni. Fjórir þeirra voru að æfa þegar D V bar að garði, trommarinn
hafði ekki komist. Hann heitir Jón Höskuldsson. Á myndinni eru:
Sigþór Kristinn Skúlason bassaleikari, Jóhannes Pétur Daviðsson
gitarleikari og söngvari, Sigurjón Magnús Einarsson gítarleikari og
Sigurður Viðar Heimisson hljómborðsleikari.
Guðrún Hrönn Einarsdóttir varð sjötta igala-keppninni fyrirþessa greiðsiu.
i sjöunda sæti igala-keppninni varð greiðsla Helgu Bjarnadóttur. Módeiið
er María Waltersdóttir. Þess má geta að kjóllinn er hannaður af Maríu
Lovisu, sem rekur verslunina Maríurnar á Klapparstíg.
Yngsti hljómsveitarmaðurinn á Húsavík, bassaleikarinn Sigþór Kristinn
og lagasmiðurinn Jóhannes Pétur. o V-myndir JBH