Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1983, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1983, Blaðsíða 5
DV. FIMMTUDAGUR 8. DESEMBER1983. 5 Mál Skafta Jónssonar: Lögreglan neitar sakargiftum DV hefur borist eftirfarandi frétt frá rannsóknarlögreglustjóra ríkisins vegna máls Skafta Jónssonar: Hinn 28. f.m. sendi lögreglustjórinn í Reykjavík rannsóknarlögreglu ríkis- ins til meðferðar kærugögn af hálfu Skafta Jónssonar blaðamanns, Víöi- mel 19 Reykjavík, fyrir meint harö- ræöi af hálfu lögreglunnar í Reykjavík aðfaranótt sunnudagsins 27. f.m. Var af hálfu Skafta gerð sú krafa, að rann- sakað yrði hvort lögreglumenn hefðu gerst brotlegir með refsiverðum hætti við handtöku aðfaranótt 27. f .m. Lokið er nú frumrannsókn þessa máls af hálfu rannsóknarlögreglu ríkisins, og veröa rannsóknargögn send ríkissaksóknara til ákvörðunar. Vegna þess, sem fram hefir komið á vettvangi fjölmiöla um málið, þykir rétt að taka eftirfarandi fram: Starfsfólk Leikhúskjallara hefir lýst ástæðum þess, að lögreglan var kvödd þangað til aðstoðar aðfaranótt 27. f.m. Voru ástæðumar viðbrögð og hegðan Skafta er yfirhöfn hans fannst ekki þegar við fatahengið. Var hann með ill- yrði og hótanir í garð þess auk þess, sem hann réðst að einum dyravarð- anna, reif föt hans og veitti honum áverka. Hafi hegðan Skafta verið slík, að óhjákvæmlegt hafi verið að kalla á lögreglu til aðstoðar. Lögreglumenn þeir er fóru á vettvang bera og, að framkoma Skafta hafi verið þess eðlis, að ekki hafi verið hægt að fá skýringar hjá honum á málavöxtum. Hann hafi sýnt tilburði til þess að ráðast á dyra- vörðinn aftur, og hafi þeir orðiö að handjáma hann og færa í lögreglubíl. Mótþrói mannsins við það hafi leitt til þess að hann féll á gólf bílsins og sé ekki útilokaö að hann hafi þá hlotið áverka. Lögreglumennirnir segja að maðurinn hafi legið á maganum á gólf- inu handjárnaður fyrir aftan bak, og vegna stöðugs mótþróa hans hafi einn lögreglumaöur oröið að halda honum. Lögreglumennirnir neita því alfarið allir að þeir hafi viljandi meitt mann- inn og í bílnum hafi aldrei verið tekið um eða þrifið í höf uð hans og það keyrt í gólf bílsins. Vinkona eiginkonu mannsins, sem sat við hlið eiginkonunnar í bílnum, hefur borið að hún hafi ekki séö neitt slíkt gerast. Eftir komu á lögreglustöð var maöurinn um klukkustund í haldi en ekki er ástæða til að rekja hér það sem þar gerðist. í læknisvottorði kemur fram að maðurinn hafi komið á slysadeild í há- deginu á sunnudag 27. nóvember. I vottorðinu segir um áverka á andliti mannsins: „nef er mikið bólgiö og glóðarauga á vinstra auga. Ekki greinist skekkja á nefi, nasir virðast báðar opnar. Á enni er — miðju enninu — 3 cm löng grönn ríspa, einnig er önn- ur rispa lítil vinstra megin á enni.” Síðar í vottorðinu segir: „roði og smá- mar eru í hárssverði á hnakkasvæði. Rtg. mynd var tekin af nefbeinum, þessi rtg. mynd sýndi brot á nefbeininu án teljandi tilfærslu á brotflöskum.” Af hálfu Skafta er þvi haldið fram, að upphafið megi rekja til samskipta hans við starfsfólk Leikhúskjallara sem hafi veriö byggt á misskilningi fyrst og fremst. Ágreiningur og átök hafi síðan fylgt og enda þótt upphaf þess mætti að hans sögn rekja til fram- komu starfsfólksins, hafi komiö að því að hann var færður burt af staðnum af lögreglu, handjámaður og með valdi. Hann heldur því fram að í lög- reglubílnum hafi honum verið mis- þyrmt af einum lögreglumanni með því, að sá hafi ítrekað þrifið í hár hans og keyrt höfuð niður í gólf bílsins. Vegna þessa hafi hann meðal annars nefbrotnað og hlotið aðra ákverka á höfði. Því er og haldið fram af honum og eiginkonu hans sem jafnframt var í bílnum, að þetta hafi maðurinn marg- sinnis gert, enda þótt þau hafi beðið hannaölátaaf því. Viö rannsókn þessa máls hafa — auk lögreglumanna og Skafta Jónssonar — sex starfsmenn Leikhúskjallara verið yfirheyrðir og fleiri vitni, alls 20 manns. Likamsræktarvörur verð kr. 354,- verð kr. 198,- verð kr. 379,- verð kr. 3.156, GORMAR HANDGRIP SVEIGJUSTANGIR LYFTINGASETT FIRMALOSS GRENNINGARDUFTIÐ PRESSUBEKKIR VAXTARMÓTARINN ÖKKLAÞYNGINGAR ARMÞYNGINGAR HANDLÓÐ 2 KG HANDLÖÐ, 4,5 kg MITTISBEKKIR verð kr. 340,- verð kr. 2.755, verð kr. 267,- verð kr. 1.000, verð kr. 780,- verð kr. 598,- verð kr. 863,- verð kr. 2.466, BIRKENSTOCK •v t ll, > t •s. < i t i i t % Fur jeden Fuíl die richtige Weite fur ® ,úr ® Itf . schlanke }Æi schlanke und (r-J und ^ krattige knochige V FúOe V J FuOe • NÝ SENDINGt Þessir heimsfrægu Birkenstock-skór nýkomnir á DÖMUR OG HERRA BIRKEN&T0CK BIRKENSTOCK BIRKENST0CK BIRKENST0CK í 505 io:« Bc_j* Póstsendum. Verð frá kr. 675-1.235. Tilvalin jólagjöf. %s% ( Fást aðeins í búð k okkar að Laugavegi 95. | Sími 13570. •i, > ( Aukþess: j Nýsending I C af mjög fallegum spariskóm •jj á dömur og herra í miklu úr- é vaii og í nýtísku litum í báð- j J um búðum okkar, jji f Laugavegi 95 — sími 13570, ( Kirkjustræti 8 - sími 14181. •v Skóverslun c > Þórðar Péturssonar} FuBdlenst aus Bad Honnel

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.