Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.1983, Page 27
DV. LAUGARDAGUR17. DESEMBER1983.
bragös að halda mig við tveir plús
tveir eru jafnt og f jórir aöferðina en
samkvæmt henni er hundrað og
fimmtíu þúsund talsvert meira en
hundrað þúsund og hefur því maður
sem borgaði síöamefndu upphæðina
í skatta á þessu ári hærri skatta á
næsta ári ef hann borgar þá fyrr-
nefndu upphæðina og veit ég ekki um
nein rök sem geta haggaö þessum út-
reikningi.
Að vísu verður auðvitaö einhver
til þess að halda því fram að tekjur
þessa manns hafi hækkað og þess
vegna sé þetta ekkert annað en bull í
mér og eru það álíka skynsamleg rök
og að ég segði við son minn, sem kom
rétt í þessu heim úr skólanum meö
miða sem á stóð að hann hefði lengst
um fjóra sentímetra síðan í fyrra, að
hann hefði sko ekkert lengst, hann
hefði bara elst.
Frí
En það er óvíst að þingmenn og
ráðherrar komist að niðurstöðu i
þessu máli fyrir jól því að þeir eru aö
fara í frí eins og kennarastéttin sem
má ekki ráða því hvaö hún kennir
ekki í Islandssögu og ætti helst aö
hafa uppskrift frá foreldrum um
hvað eigi að kenna yfirleitt og
hvernig að mati lögfróðra manna,
mikið skelfing held ég að það yrði dá-
samleg grautargerð.
I jólafríinu hugsa menn svo sjálf-
sagt um fimmtán þúsund króna lág-
markslaun á miili þess sem ham-
borgarhryggurinn er tugginn og hon-
um skolað niður með eðalvínum því
að þó aö atvinnurekendur hafi sagt
nei, sem er staölaö svar eins og sum-
ar innréttingarnar sem þeir fram-
leiða, held ég að það hafi ekki verið
hugsað nóg um þessa hluti í röðum
ríkisstjómarinnar sem hefur það á
stefnuskrá sinni að menn geti lifað
af laununum sínum og skilst mér að
þar sé ekki eingöngu átt viðalþingis-
menn og ráðherra.
Fimmtán þúsund krónur er ekki
há upphæð nema þegar maður þarf
að borga hana í skatta og sem
svolítið dæmi um brjálæðið í
peningamálunum var mér bent á það
í auglýsingabæklingi um daginn aö
tilvalin gjöf og ódýr handa afa mín-
um sáluga væru tóbaksdósir á einar
sex þúsund krónur.
Sem betur fer þarf afi minn ekki á
neinum dósum að halda þar sem
hann dvelst þessa stundina.
Kveðja
Ben. Ax.
28. — Bxe4 29. Rh4+ Kh5! 30. Dxf6
Dd2+ 31. Kfl
Svartur leikur og vinnur!
31. —Kg4!!
Þessi þrumuleikur gerir út um
tafliö. Eftir 32. Hg7+ Kh3! er svarti
kóngurinn kominn í skjól og tekur
þátt í mátsókninni gegn hvíta
„kollega” sínum.
32. RÍ3 Bd3+!
Fellur ekki í síðustu gildruna: 32.
- Ddl+ 33. Kf2 Dxf3+ 34. Dxf3 Bxf3
35. Hg7+ og síðan 36. Kxf3.
33. Kgl De3+
Hvítur gafst upp, því að riddarinn
fellur óbættur með skák eftir 34. Khl
Dxf3+. Ef hins vegar 34. Kg2 mátar
svartur með 34. — De2+ 35. Khl (35
Kgl Dfl mát) Dfl+ 36. Rgl Be4+ og
mát í næsta leik.
Norðurlandameistarinn
vann Bent Larsen
Á síðustu árum hefur mikil gróska
verið í dönsku skáklífi svo elstu
menn muna vart annað eins. Á
hverju ári eru haldin fjölmörg al-
þjóðleg skákmót og efnilegir danskir
skákmenn spretta upp eins og
gorkúlur. Þeirra efnilegastur er án
efa Norðurlandameistarinn ungi,
Curt Hansen, sem er tvítugur að
aldri. Hann hefur þegar nælt sér í
áfanga að stórmeistaratitli og varð
Evrópumeistari unglinga 1981—’82.
Það vakti því gifurlega athygli er
komið var á fót iitlu einvígi miili
hans og Bent Larsen í „Det Nye
Teater” í Kaupmannahöfn. Þeir
tefldu tvær skákir, með.hálftíma til
umhugsunar, og voru áhorfenda-
bekkir þéttsetnir og eftirvæntingin
mikil. Alls komu um 850 manns að
fylgjast meö köppunum. Komið var
á fót stóru sýningartjaldi í salnum,
þar sem áhorfendur gátu fylgst meö
leikjunum jafnóðum og jafnframt
tímanotkun keppenda. I hliðarsal út-
skýrðu kunnir skákmenn skákir
þeirra á sýningartafli. Þótti þetta
heppnast með afbrigðum vel og
höfðu áhorfendur hina bestu
skemmtan af.
Og úrslitin? Curt Hansen gerði sér
lítið fyrir og lagði Bent Larsen aö
velli í báðum skákunum!
Spilarar athugið! Þetta var síðasta
spilakvöld ársins en síðan verður byrj-
aö á fullum krafti þriðjudaginn 3. janú-
ar og þá með eins kvölds tvímenningi.
Spilað er í Gerðubergi kl. 19.30 stund-
víslega. Keppnisstjóri er Hermann
Lárusson.
Frá Bridgefélagi Reykjavíkur
Tvær síðustu umferðir í aðalsveita-
keppni félagsins voru spilaðar sl.
miðvikudag. Áður en þær hófust hafði
sveit Urvals 6 stiga forskot á sveit
Samvinnuferða Landsýnar. Að lokinni
fyrri umferöinni á miðvikudag haföi
munurinn aukist upp í 9 stig. I síöustu
umferðinni tapaði sveit Urvals 15—5
fyrir sveit Ágústs Helgasonar en Sam-
vinnuferðasveitin vann sveit Friðþjófs
Einarssonar 19—1 og tryggði sér þar
með sigur í mótinu.
I sveitinni spiluðu Helgi Jóhannsson,
Hörður Blöndal, Jón Baldursson,
Siguröur Sverrisson og Valur Sigurðs-
son. I sveit Urvals spiluðu Guðlaugur
Jóhannsson, Ásmundur Pálsson, Hjalti
Elíasson, Karl Sigurhjartarson og örn
Amþórsson.
Lokastaða mótsins varð þessi:
Samvinnufcröir—Landsýn Stig: 252
Úrvai 247
Jón Hjaltason 227
Guðbrandur Sigurbergsson 196
Þórður Sigurðsson 184
Ólafur Lárusson 179
Þórarbin Sigþórsson 178
Bragi Hauksson 177
Runólf ur Pálsson 177
Spilamennsku er lokið hjá félaginu á
þessu ári. Vegna Reykjavíkurmóts í
sveitakeppni verður ekkert spilað hjá
félaginu í janúar en aðaltvímennings-
keppni félagsins með barometerformi
hefst 1. febrúar. Dagskráin eftir ára-
mót verður nánar kynnt síðar.
TBK
Síðastliöinn fimmtudag, 15.
desember, var háður eins kvölds jóla-
tvímenningur. 36 spilarar mættu til
leiks og var spilað í N—S riðli og A—V
riðli. Verðlaun voru veitt, svonefndar
jólaskeiðar fyrir sigurvegara hvors
riðils fyrir sig.
Ursliturðuþessi:
N-Sriðill Stig:
Anton R. Gunnarsson — Ragnar S. Magnússon 271
Rafn Krist jáusson —
Þorstcinn Kristjánsson 237
Geirarður Geirarðsson — Sigfús Sigurhjartarson 235
A—V riðill Helgilngvarsson — Magnús Torfason 257
Ingólfur Böðvarsson — Bernharður Guðmundsson 252
Gisli Steingrimsson — Sigurður Steingrímsson 235
Þetta var síðasta spilakvöld TBK á
þessu ári en í byr jun næsta árs, þ.e.a.s.
12. janúar, hefst aöalsveitakeppni fé-
lagsins, og eru félagar og annaö
bridgeáhugafólk hvatt til þess að
mynda með sér sveitir og mæta hresst
í slaginn. Við byrjum kl. 19.30 í Domus
Medica. Tafl- og bridgeklúbburinn
þakkar svo öllum þeim er spilað hafa í
vetur góða þátttöku og ennfremur ósk-
ar TBK öllum bridgespilurum og öðr-
um landsmönnum gleðilegra jóla og
farsæls komandi árs.
I GRÁFELDAR
| MOKKASKINNS-
1 FATNAÐUR
SKINNASAUMASTOFAN S/F,
Bankastræti 11. Sími 12090.
FYRIR
DÖMUR
OG
HERRA
>W.