Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.1984, Síða 8
DV. ÞRIÐJUDAGUR 7. FEBRUAR1984.
Útlönd
Útlönd
Útlönd
Útlönd
Útlönd
Herforingjamir í Argentínu:
Reynduað
hylma yfir
verk sín í
„skítugu
heriörinni”
Fyrri herforingjastjóm Argentínu
hafði fyrirskipað lögreglustjóranum í
liéraðinu La Pampa að eyðileggja all-
ar skrár varöandi „skítuga stríöiö”
gegn vinstrisinnum.
Fundist hefur skeyti frá því 28.
nóvember 1983, þar sem lögreglustjór-
num er skipaö að senda strax öll gögn
' arðandi málið til hersins til eyðilegg-
ngar þegar í stað.
Embættismenn hinnar nýkjörnu hér-
Jsstjórnar La Pampa fundu skeytið
i egar þeir voru að grúska í skjölum úr
cínbættistið forvera sinna. Það var
dagsett tveim vikiun áður en lýðræðið
var endurreist í Argentínu í vetur.
Antonio Troccoli innanríkisráðherra
segir skeytið vera fyrstu sönnun þess að
herinn hafi með ólögmætum hætti
spillt gögnum sem gátu áfellt herfor-
ingja fyrir vægðarlausa herför þeirra
gegn vinstrisinnum í landinu.
„I skítuga stríöinu”, eins og þaö er
daglega kallað, hurfu um 30 þúsund
menn í Argentínu á átta árum. Talið er
að þeir hafi flestir fallið fyrir leyni-
þjónustumönnum.
FYRRUM FORSETI
BÓLIVÍU EFTIR-
LÝSTUR FYRIR
KÓKAÍNSÖLU
Yfirvöld Argentínu hafa gefiö út
andtökuskipun á hendur Luis Garcia
leza hershöföingja og fyrrum forseta
’ ’-ólivíu og Luis Arce Goez offursta,
r 'rrum innanríkisráðherra hans. Þeim
erður vísað úr landi.
Argentínustjórn hefur þó neitaö að
amselja mennina yfirvöldum Banda-
kjanna sem vilja mennina til yfir-
?yrslu vegna meintrar aðildar að
’ ókaínsölu.
Forsetanum og ráðherra hans hafði
verið veitt landvistarleyfi til bráða-
birgöa en það hefur verið fellt niður
þar sem „ferill þeirra geri þá óæski-
legar persónur í Argentínu”.
Meza hershöfðingi rændi völdum í
Bólivíu í júlí 1980. Stjórn hans sagði af
sér strax í ágúst árið eftir og lá undir
ámælum fyrir að hafa séð í gegnum
fingur sér varðandi hlut Bólivíuhers í
kókaínverslun landsins.
Núverandi stjórn Bólivíu hefur
einnig hug á að ná þeim Meza og Goez
til að svara fyrir ýmsar sakir.
wiiiiiáii
lÍÍiÉl
wMmM
y'M/ý s. ý
mm
Wmm.
.-.y/íV/.’ SS.S,
■sss/-
. ' 1
\ *
fflg/ s--s\?rWs2
»; WjA HB t hk \wRl
Fréttamenn horfa á eftir „Áskorandanum”, sem skildi eftir sig langan útblástursbólstur þegar honum var skotið á
loft í þessa ferð.
Svffa ígeimnum
ótengdir við
geimfarið
Veðhlaupahesturinn Shergar, einhver dýrasti hestur sem sögur fara af.
Lygilegustu vísindareyfarar rætast í
dag þegar tveir bandarískir geimfarar
munu fljúga frjálsir í geimnum, út-
búnir eldflaugahreyflum sem komið er
fyrir á baki þeim.
Utbúnaður þessi, sem geim-
tæknimenn kalla MMUS, lítur út eins
og klunnalegir hægindastólar, en gerir
geimfaranum kleift að fljúga hverja
stefnu sem honum hentar utan geim-
farsins. Hraðinn getur mestur verið 25
metrarásekúndu.
Þetta gerir geimfaranum mögulegt
að athafna sig utan geimfars síns og án
þess að vera tengdur við það með taug.
— Ymsir sovéskir og bandarískir
geimfarar hafa „gengið í geimnum”,
en ávallt tengdir þá með h'nu við geim-
farsitt.
MMUS er drifið áfram af köfnunar-
efnisgasi en geimfararnir stýra út-
blæstrinum með handföngum. Á þessi
útbúnaöur að auðvelda geimförum í
framtíðinni viðgerðir utanborðs.
Fyrstu geimfaramir sem reyna
þennan framúrstefnufarkost eru
Bruce McCandless og Robert Stewart
sem eru meö skutlunni „Askor-
andanum”, sem hefur veriö í fjóra
daga á sóli umhverfis jörðina.
Leitin að Shergar:
Var hestinum lógað?
Eigendur hestsins Shergar, sem
rænt var af hrossabúi Aga Khans á
Irlandi fyrir ári, telja að Irski
lýðveldisherinn (IRA) hafi staðið að
ráninu. Hesturinn, sem unnið hafði
fjölda veðreiöa á sínum tíma, var
einvörðungu orðið hafður til und-
aneldis og metinn til 15 milljóna doll-
ara.
Breska útvarpið segir að eig-
endurnir séu orðnir þeirrar skoðunar
að hestinum hafi veriö lógað fljót-
lega eftir að honum var rænt. Hann
hafi sennilega aldrei verið fluttur úr
landi, eins og menn voru famir að
halda.
Vopnaðir menn höfðu yfirbugað
gæslumenn hrossabúsins og haft
Shergar með sér í flutningabíl á
brott. Krafist var lausnargjalds,
tveggja milljóna írskra punda.
Eigendurnir svömðu strax um hæl
að þeir mundu ekki greiða lausnar-
gjald.