Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.1984, Blaðsíða 1

Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.1984, Blaðsíða 1
DAGBLAÐIЗVISIR 58. TBL. — 74. og 10. ARG. — FIMMTUDAGUR 8. MARS 1984. { NIÐURSTÖDUR SKOÐANAKÖNNUNAR DV~ Afgerandi meiríhluti styður kjarasamningana Afgerandi meirihluti landsmanna styöur nýgeröa kjarasamninga, samkvæmt skoöanakönnun sem DV geröi um síðustu helgi. I könnuninni var spurt: Ertu fylgjandi eða andvígur niðurstöðum nýgeröra kjarasamninga Alþýöu- sambandsins og Bandalags starfs- manna ríkis og bæja ? 50,3 af hundraöi kváðust fylgjandi samningunum. 20,5 af hundraöi voru andvígir þeim, 24,2% óákveðnir og 5% svöruðu ekki spumingunni. Þetta þýðir aö 71,1 af hundraði þeirra sem tóku afstööu voru fylgjandi niöur- stööum samninganna en 28,9% and- vígir. Úrtakiö í skoöanakönnuninni var 600 manns. Þar af var jöfn skipting milli kynja og helmingur á Reykja- vikursvæðinu og því helmingur utan c sjánánarábls. 4ogummæliábaksíðu þess. Af andstæðingum samninganna munu flestir væntanlega hafa talið þá ganga of skammt en í þeim hópi eru einnig þeir sem töldu kaup- hækkunina of mikla, ef miðað er við ummæli fólks í könnuninni. -HH „Hraf ninn flýgur” ksrður fyrir að virða ekki höfundarrétt: „Á SPRENGISANDI VAR NOTAÐ í LEYFISLEYSI” — segir Selma Kaldalóns um notkun á kunnasta lagi Sigvalda S. Kaldalóns Sauðárkróksvatnið: GULLS ÍGILDI Innan tíðar hefjast aftur fram- kvæmdir viö byggingu vatns- átöppunarverksmiöju á Sauðár- króki. Búið er að steypa grunn að henni. Snemma á næsta ári ættu Hafskip að sigla úr Sauðárkróks- höfn hlaöin tamlurhrcinu vatni á Ameríkumarkað. Sem kunnugt er af fréttum hillir nú loksins undir að Isleudiugar hefji útflutning á vatni í stórum stíl. Hreinn Sigurðsson hefur í mörg ár átt þann draurn að selja útiendum af vatnsauðlegö landans. Og nokkurn veginn í þeim umbúð- um sem sjást á myndinni á vatnið aö fara í kæliskápa á amerískum heímilum. Markaðurinn þar er kröfuharöur og þurfti m.a.s. að hanna flöskurnar sérstaklega fyrir ísskápana vestra. I.íklega veröur fagnað á Sauðár- króki og víðar um land þegar sér á eftir fyrsta vatnsskipinu úr höfn. Islenska vatnið verður þá loks gulls ígildi. -JBH/Akureyri Þetta er maðurinn, sem lét drauminn verða að veruleika. Hreinn Sigurðsson heldur þarna á flösku af þvi hreina og tœra Sauðárkróksvatni, sem i Ameriku verður „Pure icelandic Water". Simamynd í morgun: GVA. „Já, það er rétt að A Sprengisandi, þekktasta lag föður míns, var notað í heimildarleysi I þessari mynd og út- lendur maður skráður fyrir tónlistinni sem þó hefur ekki gert annað en að út- setja lag föður míns,” sagði Selma Kaldalóns, dóttir Sigvalda S. Kalda- lóns tónskálds, er DV innti hana eftir því hvort rétt væri að höfundarréttur Sigvalda S. Kaldalóns á þessu kunna lagi hans hefði ekki verið virtur i mynd Hrafns Gunnlaugssonar „Hrafninn flýgur” og að erfingjar Kaldalóns hefðu kært þessa heimildarlausu notk- un til STEFs (Samband tónskálda og eigenda flutningsréttar). „Við höfum falið lögfræðingi STEFs að gæta réttar okkar í þessu máli,” sagði Selma ,, og mér skilst að hann hafi þegar fengið loforð Hrafns Gunnlaugssonar um að þetta verði leiðrétt með einhverjum hætti þannig að a.m.k. komi fram i auglýsingum aö hér sé um lag föður míns að ræða þó það sé útsett á nokkuö nýstárlegan hátt,” sagöiSelma. Hún sagðist vilja leggja á það áherslu að það væri ekki vilji erfingja Kaldalóns aö spilla með neinum hætti fyrir mynd Hrafns sem hún kvaðst telja mjög góða aö mörgu leyti en hins vegar væri óhjákvæmilegt að vemda höfundarrétt Sigvalda S. Kaldalóns á þessu kunna iagi hans sem þekkt væri langt út fyrir landsteina. -JH Asmundur Stefansson, forseti ASÍ, um niðurstöðu skoðanakönnunar DV: ITAKT VID AFGREIÐSLU SAMNINGSINS „Þessi niðurstaða er mjög í takt við það sem maður hefur séð, bæði í afgreiðslu samningsins og umtali,” sagði Asmundur Stefánsson, forseti Alþýðusambands lslands, í morgun um niðurstöðu skoðanakönnunar DV. Hann sagði ennfremur að það væri ekki hægt að láta þessa niður- stöðu koma sér á óvart. „Okkur hef- ur verið það ljóst að óánægjan er mikil þar sem kaupmáttarfallið sem fólk stendur frammi fyrir er mikið. Og samningamir snúa þeirri þróun ekki nematakmarkaöviö.” En miðað við þá aðstöðu sem þjóð- félagið er í teljum við samningana hafa verið skynsamlegri heldur en aðgerðir. Þeir em ekki sanngjamt mat á réttlátri skiptingu en skyn- samlegt mat á aðstæðum, þaö stað- festir skoðanakönnunin.” , -JGH Skoda-bingóin í Sigtúni draga dilk á eftir sér — sjá bls. 3 og baksíðu Sigurganga Harts sýniróvissu kosningaspánna sjá bls. 10

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.