Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.1984, Síða 5
DV. FIMMTIJDAGÚr 8. MARS1984.
Vísirað stjórná
djúprækjuveiðinni:
Togararnir
verða reknir
af ákveðnum
veiðisvæðum
— svo bátarnirgeti
setið að veiði þar
„Við höfum í undirbúningi aö loka
ákveðnum svæöum fyrir stærstu skip-
unum til að tryggja þeim bátum, sem
hafa stundað þar veiðar undanfarin ár,
áframhaldandi möguleika þar,” sagði
Halldór Ásgrímsson sjávarútvegsráð-
herra í viötali við DV. DV skýrði frá
því fyrir helgi að margir bátaútgerðar-
menn óttuðust að togararnir yrðu bún-
ir að „ryksuga” djúprækjumiðin á
meðan bátarnir væru á vertíð svo ekk-
ert yrði eftir handa þeim að verðtíð
lokinni.
Jafnframt kom fram að ýmsir fiski-
fræðingar óttast að í óefni kunni að
stefna í djúprækjuveiðum þar sem
hundruð fiskiskipa fyrirhuga þær veiö-
ar í ár, en engar reglur eða takmark-
anir eru í gildi um þessar veiðar.
„Við munum fylgjast vel með veið-
unum og beita skyndilokunum ef við
óttumst einhvers staðar ofveiði,” sagði
Halldór. -GS.
Sjávarútvegsráðherra
um hugsanlegar
rækjuveiðar við
Svalbarða:
Reynum að
halda okkar
rétti til hins
ýtrasta
„Við höfum rætt að það verði eitt-
hvaö reynt fyrir sér með rækjuveiðar
við Svalbarða en það virðist liggja fyr-
ir að þótt Norðmenn telji sig ekki geta
bannað okkur veiðar þar að það sé
þegar of mikið veitt þar,” sagði Hall-
dór Asgrímsson sjávarútvegsráðherra
er hugmynd íslenskra útgerðarmanna
um rækjuveiðar við Svalbarða var bor-
in undir hann.
Það kom fram í DV á laugardag að
ýmsir þeirra útgerðarmanna, sem
þegar gera út togara sína á djúprækju-
veiðar eða munu hef ja þá útgerð innan
tíðar, líta þennan möguleika hýru auga
ef veiðin reynist ekki nægileg hér við
land eða ef togurunum verður hugsan-
lega stuggað af einhverri rækjuslóð
hér.
Halldór var spuröur hvort hugsan-
lega væri rétt að reyna eitthvað fyrir
sér þótt Norömenn væru því mótfallnir
svo að við eignuðumst einhvern samn-
ingsrétt um þessar veiðar í framtíð-
inni.
„Við núverandi aðstæður hljótum
viö að reyna að halda okkar rétti til
hins ýtrasta og við skulum ekki
gleyma því að Norðmenn hafa fengið
að veiða hér við land án þess að við
veiddumnokkuöhjáþeim.” -gs
Stofnana-
keppni í skák
— fer í gang eftir helgina
Skákkeppni stofnana og fyrirtækja
hefst í A-riðli mánudag, 12. mars kl. 20
og í B-riðli miðvikudaginn, 14. mars kl.
20. Teflt verður í félagsheimili Tafl-
félags Reykjavíkur að Grensásvegi
44-46.
Fyrirkomulag þessarar árlegu og
sívinsælu keppni verður með venju-
legu móti, tefldar verða 7 umferðir
eftir Monradkerfi í hvorum flokki og er
umhugsunartími ein klukkustund á
hvorn keppanda. Hver sveit skal skip-
uð f jórum mönnum og 1—4 varamönn-
um að auki. Fyrsta kvöldið verður
tefld ein umferð en tvær þau næstu.
Mótinu lýkur meö hraðskákmóti.
Þátttöku í keppnina má tilkynna í
síma Taflfélagsins á kvöldin en loka-
skráning í A-riðil er á sunnudaginn 11.
mars kl. 14—17, en í B-riðil á þriðjudag
kl. 20—22. , -BH
HVORT GILDA HÉR
LÖG EÐA FJÁRLÖG?
Fatlaðir hugleiða prófmál á ríkissjóð vegna niðurskurðar á lögbundnum framlögum
Stjómarnefnd um málefni
fatlaðra telur aö fjárlög hafi skorið
lögboðið framlag til nefndarinnar
niður um liölega 60 milljónir.
Nefndarmennirnir Baldur Kristjáns-
son og Guömundur Ragnarsson hafa
lagt fram þá tillögu að höfðað verði
mál á hendur ríkissjóði til að fá úr-
skurð um hvort f járlög upphefji al-
menn lög i landinu. A Norðurlöndum
mun svo ekki vera en í seinni tíð virð-
ist sem í vissum tilvikum upphefji
fjárlög hér önnur lög, þ.e. að f járlög
séu sterkari öðrum lögum.
„Okkur langar ekkert í mála-
rekstur nema í ljós komi að við
getum ekki fengið úrskurð í málefn-
um okkar með öðrum leiðum,” sagði
Sigfinnur Sigurðsson, formaður
stjórnarnefndarinnar í viðtali við
DV.
Hann sagði að fráfarandi
stjórnamefnd hefði gert fjárskuld-
bingingar í trausti laga frá 1. janúar
1983 sem í raun hafi þýtt vel yfir 100
milljóna framlag nú en framlagið af
fjárlögum sé aðeins um 60 milljónir.
Sigfinnur tók fram að þessi niður-
skurður kæmi ekki beinlinis niður á
núverandi rekstri heldur drægi hann
stórlega úr öllum nýjum fram-
kvæmdum til hagsbóta fatlaðra.
I dag verður fundur í stjómar-
nefndinni, en Sigfinnur bjóst ekki við
að ákvörðun yrði tekin um málsókn á
honum þar sem enn væri leitað leið-
réttinga eftir öðrum leiðum.
-GS.
Fordinn frá upphafí“
Þegar bílablaðamenn skrifta um hinn byltingarkennda bíl frá Ford verk-
smiðjunum, Ford Sierra, dettur þeim aldrei í hug að líkja Sierra við aðra
bíla en þá, sem eru í miklu dýrari verðflokki. Umsagnir þeirra eru allar á
einn veg:
„Við gátum ekki fundið einn veikan blett“ (Autorevue, Austurríki).
„Sierra er einfaldlega stórkostlegur bíll“ (Jyllandsposten, Danmörk).
„Sierra. Framtíðin komin á vegina“ (L’Est, Frakklandi).
„Þetta er risastökk fram á við að öllu leyti“ (Autocar, Bretlandi).
„Hann er besti fj... bíllinn á vegum írlands“ (Sunday World, írlandi).
„Besti Fordinn frá upphafi“ (Auto Motor und Sport, Þýzkalandi).
„Fyrsti bíllinn, sem lítur út eins og bíll framtíðarinnar" (Echo de la Bourse, Belgíu).
Þannig hafa umsagnirnar verið fermetra eftir fermetra í erlendum blöðum, enda
hefur Ford sierra þegar fengið 15 alþjóðleg verðlaun (á aðeins rúmu ári), - fleiri
verðlaun en nokkur Ford bíll frá upphafi bílaaldar.
Vegna sérstakra samninga við Ford-verksmiðjurnar í Köln, V-Þýzka-
landi, getum við boðið þennan frábæra bíl - á mjög góðu verði í tak-
mörkuðu magni.
Verð frá aðeins 385.000 kr.
Við erum stoltir af þessum bíl.