Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.1984, Blaðsíða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.1984, Blaðsíða 36
DV.FIMMTÍJDAGUR 8; MARS1984. 36 Sviðsljósið Sviðsljósið‘Sviðsljósið LEIÐÁRLJÓS Sjóleiðin tilShampoo Enn einu sinni hafa is- lendingar misst af lestinni. Þjóðverjar eru farnir að moka upp íslenskum sjó og selja á dýru verði í Evrópu. Ekki nóg með það, þeir láta íslendinga um að dæla hon- um upp i skip sín og flytja á. áfangastað fyrir næstum ekki neitt. Sjónum er síðan breytt i iðnvöru ails konar og virðast engin takmörk fyrir hugmyndaauðgi Þjóðverja á því sviði. Frásögnin hér til hliðar um sjódælingu Eimskipa- félagsins á vegum Þjóðverja hlýtur að vekja ugg í brjóstum þeirra sem vflja ís- lenskum iðnaði ailt. Mál er að linni. Höldum vöku okkar — og vökva. y Annars er það e.t.v. ekkert undariegt að íslendingar séu alitaf að missa af lestinni þvi að hér á landi hafa aidrei verið neinar lestar og þjóðin þvi ekki í þjálfun við að ná þeim. En minna má nú gagn gera. Aftur á móti ætla Rússar ekki að missa af lestinni ef trúa skal bréfaskriftum íslenska sendiráðsins i Moksvu og utanrikisráðu- neytisins við Hverfísgötu. í Moskvu stendur fólk í bið- röðum, líkt og á lestarstöð yfir háannatimann, og bíður þess eins að tryggja sér ís- ienskan trefU í tíma. Enda er sagt um Rússa að þeir sleppi aldrei góðri biðröð. íslenskur feröamaður sem var á ferð í Moskvu fyrir ekki alllöngu stoppaði á miðju Rauða torginu tU að virða fyrir sér útsýnið. Rétt þar hjá sat gömui kona og veitti ís- lendingurinn henni enga sér- staka athygli. Þegar ferða- maðurinn var búinn að virða fyrir sér turna og múra Rauða torgsins dágóða stund sá hann sér tU mikillar furöu að myndast hafði biðröð að baki honum — minnst 300 m; iöng. Hann snerist á hæli og spurði þann fremsta á vand- aðrí ensku hverju sætti og fékk þá svarið, eða reyndar spurningu: — Er gamla konan ekki að selja skóreimar. Rússar halda vöku sinni, sleppa aldrei biðröð og missa fyrir bragðið aldrei af lest- inni. EIR. Þjóðverjar bæði drekka og þvo á sér hárið upp úr isienskum sjó — hoiit, gott oghreint. Margt er brallað á sjónum: Eimskip dælir sjó í þýskan heilsuiðnað Þegar Eyrarfoss, eitt skipa Eimskipafélagsins, lætur úr höfn í Reykjavík á miövikudögum líða ekki nema 20 tímar þar til skipiö er fariö aö dæla sjó í sérstakan gám sem þaö hef ur um borö, 20 lestir í hvert skipti. Reyndar gerist þetta ekki nema einu sinni í mánuöi en í Bremerhaven í Þýskalandi bíöa tankbilar heilsu- drykkja og sjampooframleiöenda á hafnarbakkanum og taka viö íslenska sjónum. Honum er síöan ekið í verksmiöjur þar sem framleiddir eru heilsudrykkir og hárþvottalögur. Mynd af skipi Heilsudrykkir þessir þykja afburða holiir og um hárþvottalöginn er það aö segja aö flaskan kostar 10 sinnum meira út úr búð í Hamborg en aörar venjulegri. ,,og í rauninni er þetta ekki nema tveggja tíma verk eins manns. Viö gætum þess aö sjálfsögöu mjög vel aö loka fyrir klóak og allt afrennsli frá skipinu í þá 5 tíma sem dæling varir.” Mynd af skipi Aö sögn vísra manna er sjórinn alls ekki óhoUur drykkur og Þjóðverjarnir í Bremerhaven segja aö kostir hans felist aöaUega i samsetningunni, sem mun vera sú hin sama og blóðsins. Og þannig er heilsudrykkurinn auglýstur. „Viö erum opnir fyrir frekari sjóflutningum tU meginlandsins,” sagöi Sigurður Pétursson hjá Eimskip. „Helst vUdum viö flytja svo mikið út aö alltaf væri fjara hér á landi.” -EIR. r Blikur á lofti í Mónakó: Á Rainier f ursti 39 ára gamlan son? Rainier fursti af Mónakó, faðir Karólinu sem er lesendum SVIÐSLJOSS aö góöu kunn, mun vera aUt aö því miður sín af bræði þessa dagana. Einn af blaöamönnum franska vUcuritsins Paris Match telur sig hafa komist aö því aö furstinn eigi 39 ára gamlan son, hefur skrifaö greinaflokk um uppgötvanir sínar og ætlar aö birta þær í blaði sínu. Furst- inn hefur stefnt bæði blaöamanninum og vUcublaöinu en óvíst er um málalok. Rainier fursti, er hann stóð á tvitugu, um svipað ieyti og hann féll fyrir slátraradótturinni i Marchais. Efsatt er??? Dóttir slátrarans Rannsóknir blaöamannsins stóöu í marga mánuði og niðurstöður þeirra í stuttu máU eftirfarandi: Árið 1943, þegar Rainier var aöeins tvítugur aö aldri, dvaldi hann lang- dvölum með móður sinni á sveitasetri fjölskyldunnar nálægt Marchais í norðaustur Frakklandi. Þar í bæ var aö sjálfsögöu slátrari og kjöt- kaupmaður, sem átti undurfagra dóttur, en þaö er einmitt hún sem furstinn á að hafa barnað fyrir tæpum 40 árum. Reynt var að þagga þungunina niöur og slátraradóttirin giftist fyrrum félaga í frönsku neðan- jarðarhreyfingunni sem nú er látinn. Bamið óx úr grasi og aö sögn bæjarbúa átti þaö alltaf miklu fleiri leikföng en aörir krakkar þar í sveit. Telja menn aö leikfangagjafimar hafi verið sendar úr furstahöUinni í Mónakó. Nú er strákurinn orðinn 39 ára að aldri og ásjálfur2börn. Barnabarn eða barnabörn Sagt er aö Rainier fursti hafi miklar áhyggjur af aö uppljóstranir þessar, hvort sem þær nú eru sannar eða ekki, á þaö leggur SVIÐSLJOS engan dóm frekar en fyrri daginn, geti eyðilagt hallargleöina þegar Karólína dóttir hans eignast sitt fyrsta barn nú innan skamms. Þess er beðiö meö mikiUi spennu enda fyrsta barnabam furst- ans. Ef frásögn Paris Match er aftur á móti sönn er þar á ferðinni þriöja barnabam furstans. SVIÐSLJOS sendir öllu þessu fólki sínar bestu kveöjur. Heilsudrykkjarframleiðandi sá í Bremerhaven, sem geröi sjóflutnmga- samninginn viö Eimskip, hafði í ára- raðir hirt sinn sjó í Norðursjónum. En með tíð og tíma varð hann of mengaður til framleiöslunnar og þá var leitaö á Islandsmiö. „Við gætum þess vel aö byrja ekki dælingu í gáminn fyrr en við erum komnir út fyrir landgrunniö, langt frá öUum fiskiskipum og öörum mengunarvöldum,” sagöi Baldur Asgeirsson, skipstjóri á Eyrarfossi, SMÁMÁL Þýskur garðyrkjumaöur hefur sér- hæft sig í ræktun örsmárra blóma og garöávaxta alls konar. Eins og sjá má á myndinni er blómiö ekki stórt en strax og þaö er tekið úr sérgeröum potti sínum byrjar þaö aö vaxa meö eðlilegum hraöa. Garöyrkjumaöurinn, Bruno Gruber, er einnig þekktur fyrir aö rækta kart- öflur í eldspýtustokkum. Hann vonast eftir aö mini-blómin komist í tísku. Stórtísku.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.