Dagblaðið Vísir - DV - 29.03.1984, Side 1
Slys varð um borð i Ms. Selá i höfninni i Reykjavik i
gærkvöldi. Maður féll af gámi á dekki og ofan i lest
sem er um 7 eða 8 metra fall. Hann mun hafa slasast
töluvert en þó ekkert á höfði enda var hann með
hjálm eins og flestir hafnarverkamenn. Þessi mynd
er tekin þegar verið var að flytja manninn i land en
þá höfðu læknir og sjúkralið búið um sýnileg meiðsli
hans fyrir flutninginn.
-klp/DV-mynd S.
Landbúnaðarf ramleiðslan í algerum ógöngum:
FIMM ÞÖSUND TONNA
KJÖTFJALL ER ÓSELT
smjör- og ostaf jall byrjað að hlaðast upp
Otflutningur á landbúnaðarvörum
frá upphafi núverandi verðlagsárs,
1. september, krefst 397 milljóna
króna í útflutningsbætur úr ríkis-
sjóöi. Það er 61 milljón meira en
heimildir eru til fyrir á fjárlögum í
ár með afgangi frá í fyrra. Eftir eru
nærri fimm þúsund tonn af kjöti og
nú stefnir í 11 milljóna lítra umfram-
framleiðslu af mjólk.
Eigi aö losna við þær kjötbirgðir
sem seljanlegar eru erlendis, hátt í
þrjú þúsund tonn af kindakjöti og
eitthvað af hrossakjöti, svo og af-
urðir úr umframmjólkinni, þarf um
173 milljónir króna í viðbót við þá 61
sem þegar hefur verið ráðstafað um-
fram heimildir. Utflutningsbóta-
þörfin er um 570 milljónir á verðlags-
árinu frá september í haust til ágúst-
loka.
Þessi útflutningsframleiðsla er
svo óhagkvæm að fyrir kjötið fá
framleiðendur aöeins um 35% af
heildsöluverði hér og ekki eyri fyrir
mjólkurvörurnar, þrátt fyrir allar
útflutningsbæturnar. Og samt er
vandinn stærri. Til eru 647 tonn af
hrossakjöti, nærri ársbirgðir. Fyrir
liggur að setja hundruö tonna í dýra-
fóður ef ekki þarf hreinlega að grafa
þau.
Þá eru til 788 tonn af nautakjöti,
eöa voru í byrjun mars, birgöir til
fjögurra mánaða, og þá voru til 162
tonn af svínakjöti sem fóru á útsölu.
Loks eru talsverðar birgðir af fugla-
kjöti, skipta hundruðum tonna að
líkindum, en það hefur verið á útsölu
í heilt ár sem er alveg hætt að ýta á
■ eftir sölunni.
Allar þessar birgðatölur eru sam-
kvæmt skýrslum Framleiðsluráðs
landbúnaöarins. En þær ná ekki til
nema 85% af kjötsölu í landinu svo að
vandinn kynni að vera enn stærri.
Arsneysla á kjöti er um 18.000 tonn.
. Þar af fara um 2.500 tonn fram hjá
kerfinu og um afdrif þeirra nú er
ekki vitað.
-HERB.
Kasparov þokast
nær sigri
—sjá bls. 8
Kratar gefa Al-
bert ráð gegn
skattsvikum
—sjá bls. 2
Með vor í hjarta
til Vínarborgar
—sjá bls. 20
„Mun aldrei biðj-
ast afsökunar"
— Sjá íþróttir
bls. 22- 25.
Okkar fisksalat
betra en erlent
—sjá bls. 4
Helga vantar
vinning í stór-
meistaratitil
— sjá bls. 28 og 40
Skaftamálið
—sjá bls. 2
Garðstofur og
gönguskíði
—sjá bls. 42-43
Vaxandi þörf
fyrir tæknimennt-
að fólk
—sjá bls. 3
Svipað verð á
bjórlíkinu
—sjá bls. 6
Síminn sem aldrei
sefur: 68-78-58
— verdlaun fyrírhvert fréttaskot sem notað erog vikuleg
aukaverðlaun fyrírþað besta
Fréttaskot,
ný leið
milli
lesenda
ogDV:
Veistu um góða frétt? Ef svo er, þá
opnast nú ný leið til þess að koma
henni á framfæri. DV hefur ákveðiö að
verðlauna hvem þann sem hringir til
blaösins og bendir á frétt eða það sem
leiðir til fréttar. Slíkar ábendingar
verða kallaðar fréttaskot. Verðlaun
fyrir hvert fréttaskot sem blaöið notar
verða þúsund krónur. Jafnframt verða
greiddar þrjú þúsund krónur fyrir
besta fréttaskot hverrar viku. DV
tekur á móti fréttaskotum allan sólar-
hringinn. Bein lina er í síma 68 78 58.
Fullkominnar nafnleyndar verður gætt
gagnvart öllum þeim sem hringja og
skjóta að blaðinu fréttum.
Með þessu framtaki vill DV enn einu
sinni skapa sem best samband við
fólkið í landinu og gefa þvi kost á aö
hafa áhrif á efni blaösins. Fréttaskot
eru vel þegin. DV vakir allan sólar-
hringinn og tekur við þeim. Beina línan
68 78 58 er simi sem aldrei sefur.
Ef þú, lesandi góöur, hefur vitneskju
um forvitnilegt efni, frétt, stóra eða
smáa, þá hringdu í síma 68 78 58. DV
tekur málið i sínar hendur og fylgir því
eftir. Með þessum hætti skapast bein
tengsl lesenda og blaös. Fréttaskotið
er lika peninganna viröL Þúsund
krónur fyrir hvert skot, sem leiöir til
birtingar fréttar og þrjú þúsund króna
verðlaun vikulega fyrir besta frétta-
skotið.
Mundu eftir DV og þessum síma
þegar þú veist eitthvað fréttnæmt: 68
78 58. Það ríkir trúnaður milli þín og
blaösins.
-JH